Morgunblaðið - 22.11.1956, Qupperneq 1
20 siður
43. argangur
279. tbl. — Fimmtudagur 22. nóvember 1956
Prentsmiðja Morgunblaðsina
i (
• Myndin var tekin er NasserS
S og Hammarskjöld hittustj
£ í Kairó. ^
Molofov skipaður yfirráðherra!
Sfalinisfar ná undirtökunum í Kreml
Súez-skiurðtmnn verður ekkí
gerður skipgengur fyrr en
erlendur her er á brotf úr landinu
Moskva og London 21. nóv.
Tilkynnt var í Moskvu í dag, að Molotov
fyrrum utanríkisráðherra Ráðstjórnarinnar
og undanfarið einn af aðstoðarforsætisráð-
herrum hennar, hefði verið skipaður ráð-
herra yfir ráðuneyti því, er umsjón hefur
með öðrum ráðuneytum og sér um að sam-
þykktum og kröfum stjórnarinnar sé fram
fyigt.
NEW YORK, 21. nóv.: — í dag
var skýrsla Hammarskjölds,
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, birt í aðalstöðvum S.Þ.
Er hún í tveim meginhlutum og
Ijallar um væntanlega hreinsun
Súez-skurðarins og gæzlustarf
gæzlusveita S.Þ. í Egyptalandi.
hafa fallizt á gæzlustarf S. Þ i
samræmi við ályktunina þess
efnis. Mun verkefni gæzlusveit-
anna verða eins og ráð hafði verið
fyrir gert, að sjá um að vopna-
hlésskilmálarnir verði haldnir og
hafa eftirlit með brottflutningi
erlendra herja úr landinu.
Svo sem kunnugt er var
Molotov nýlega látinn víkja
úr embætti utanríkisráðherra,
en við því tók einn öflugasti
stuðningsmaður Krúsjeffs,
Shepilov. Undanfarið hefur
allt þótt til þess benda, að
aðstaða stalinistanna í Kreml,
með Molotov í fararhroddi,
styrktist óðum — og sérlega
hefur þess gætt eftir athurð-
ina í Ungverjalandi. Jafn-
framt mun aðstaða and-stal-
inistanna hafa veikzt til
muna, og er þar aðallega um
að kenna hnekki þeim, er
Rússar hafa beðið eftir af-
hjúpun glæpaverka Stalíns.
Þetta nýja embætti Molo-
tovs þykir ótvírætt benda til
þess, að stalinistarnir hafi ní
á ný náð undirtökunum i
Kreml, en emhætti þetta er
mjög mikilvægt — og má
geta þess í því sambundi, að
Stalin fór með það um tiu
ára skeið, eða frá árunum
1920—30.
Ekki hefur þess verið getið,
að Molotov hafi jafnframt lát-
ið af embætti aðstoðarforsæt-
isráðherra — og þykir því
sýnt, að hann sé á ný orðinn
einn áhrifamesti maðurinn í
Kreml.
Nehrú neitar því
að hafa óttazt Rú SSS
I
NÝJU DELÍ, 20. nóv.:
DAG var samþykkt í indverska þinginu traustsyfirlýsing á
utanríkisstefnu Nehrús. — Nehrú hélt ræðu við þetta tæki-
færi og lýsti því m.a. yfir að ekki kæmi til mála að Indverjar
segðu sig úr brezka samveldinu vegna atburðanna við Súez. Benti
hann á að ástandið í alþjóðamálum muni ekkert batna við slíkar
aðgerðir af hálfu Indverja.
ÁRANGURSRÍKARI
Er skýrslan byggð á ályktun S.Þ.
um íhlutun í Egyptalandsmálin
og viðræðum Hammarskjölds við
Nasser.
Kvaðst Hammarskjöld hafa
fallizt á það sjónarmið Nassers,
að ekki bæri að hefja hreinsun
skipaskurðarins fyrr en allir
brezkir og franskir hermenn eru
á brott úr landinu. Mun ýmsum
félögum verða falið að sjá um
verkið, en Nasser leggur ríka
áherzlu á það, að þau verði
hvorki brezk né frönsk. Hins veg-
ar er ekki útilokað, að Bretar og
Frakkar veiti einhverja aðstoð
við verkið.
Hammarskjöld kvað Nasser
AKRANESI, 21. nóvember. —
Togarinn Bjami Ólafssorr seldi í
gær afla sinn í Hamborg, sem
var 180 lestir, fyrir 80 þús. mörk.
— Oddur.
Matvæli og eídsneyti brátt
á þrotum í Ungverjalandi
en verkamenn halda fast við kröfur sínar og vinna ekki
BÚDAPEST og VÍN, 21. nóvember:
ALLSHERJARVERKFALLINU í Ungverjalandi heldur enn áfram. Enda þótt rúmur
fjórðungur verkamanna hafi mætt til vinnu í dag, hafa verkamenn ekki aðhafzt neitt —
aðeins rætt um ástandið. Fulltrúaráð verkamanna hefur skorað á verkalýð landsins að halda verk-
fallinu áfram enn um tvo daga til að mótmæla því að Rússar hindruðu útifund verkamanna í dag.
Flóttamenn segja þær fréttir, að miklir hlutar Búdapest séu nú algerlega í rúst. Heil hverfi
hafi verið jöfnuð við jörðu í bardögunum. Frelsissveitir í hæðunum norður af borginni veita enn
harða mótstöðu, og nauðungarflutningarnir halda enn áfram. Hins vegar hefur frétzt, að nokkr-
um þeirra, er handteknir höfðu verið, hafi verið sleppt að nýju. Segja flóttamenn og, að ung-
verskir og rússneskir landamæraverðir við austurrísku landamærin leyfi mörgu flóttafólki að
flýja gegn greiðslu. Eru þeir sérlega áfjáðir í að ná dýrgripum ýmsum — og verðmæt hálsmen
hafa opnað leið margra til frelsisinr
Rússor óttast þjóðir leppríkjanna
Miklir herllistningar til Búlgnrín
LONDON, 21. nóvember:
ÞÆR FREGNIR hafa borizt til Belgrad og Vín, að rússneskur her
streymi nú inn í Búlgaríu til þess að styrkja aðstöðu leppstjórn-
arinnar þar og koma í veg fyrir að Ungverjalandsatburðirnir endur-
taki sig þar í landi. Auk þess sem rússneskur her hefur verið sendur
landleiðina inn í landið hefur hann einnig komið sjóleiðis yfir
Svartahafið — og gengið á Iand í Varna.
Búlgarska leppstjórnin er
augsýnilega farin að óttast um
sinn hag, því að miklar hand-
tökur hafa farið fram að und-
anförnu í landinu og hefur
Muraviev, fyrrum forsætisráð-
herra og leiðtogi bændaflokks
ins, m. &. verið handtekinn,
auk annarra, sem stóðu í
stjórnmálabaráttunni áður en
kommúnistar brutust til valda.
Einnig munu f jölmargir prest-
ar og kirkjuhöfðingjar hafa
verið handteknir.
★ ★
Vestur-þýzka blaðið „Die
Welt“ kvaðst hafa það eftir áreið
anlegum heimildum, að klofning-
ur sé í miðstjórn búlgarska
kommúnistaflokksins — og
hafi 35 meðlimir hennar
yfirlýst sig titoista eftir að
Tito hélt hina frægu ræðu sína
á dögunum, þar sem hann sagði
Rússa eina bera ábyrgð á blóð-
baðinu í Ungverjalandi.
Auk þessa hafa borizt fregnir
vestur fyrir járntjald þess efnis,
að Rússar hafi enn aukið herafla
sinn í Rúmeníu af ótta við upp-
reisn.
★ ★
f dag hafði fulltrúaráð verka
manna boðað til fundar á
íþróttasvæðinu við Búdapest.
Rússneskir skriðdrekar og her
menn hindruðu hins vegar
ferð verkamanna til fundar-
staðarins, svo að ekkert varð
úr fundarhöldunum á þeim
stað. Var í skyndi ákveðið að
haldið skyldi til þess staðar, er
líkneskja Stalins hafði staðið,
en rússneski herinn hindraði
cinnig fundinn þar með því
að loka aðliggjandi gotum,
Verkamannaráðið hvatti verka
menn því til þess að halda alls-
herjarverkfallinu áfram í tvo
sólarhringa í mótmælaskyni.
Einnig bar ráðið fram þá kröfu
á hendur Kadar, að hann ætti
viðræður við ráðið um kröfur
verkamanna um brottflutning
alls herafla Rússa úr landinu og
endurskipun Nagys í embætti
forsætisráðherra.
Þá sagði Nehrú, að ástæða væri
til að ætla að frelsisbarátta
Ungverja hefði orðið árangurs-
ríkari, ef Bretar og Frakkar
hefði ekki ráðizt inn í Egypta-
land.
FJARSTÆÐA
Hann mótmælti því að Ind-
verjar hefðu greitt atkvæði
gegn því á Allsherjarþinginu
að frjálsar kosningar færu
fram í Ungverjalandi af ótta
við Ráðstjómina. Ráðherrann
bætti því við að hann teldi
það ekki samboðið sjálfstæði
neinnar þjóðar að S.Þ. sæju
um þingkosningar í landi
hennar. Þá mótmælti Nehrú
því einnig að indverska
stjórnin fylgdi utanrikis-
stefnu Júgóslava í einu og
öllu. Slíkt væri hin mesta
fjarstæða.
Orðsending, sem undirrituS
er af fulltrúum verkamanna,
bænda, menntamanna og
æskumanna, hefur veriff send
Nehru forsætisráðherra Ind-
lands, og er hann þar hvattur
til þess aff gera allt, sem í hans
valdi stendur til þess uff Ung-
verjar fái sjálfstæði og land
þeirra öðiist hlutleysi.
Vetur er nú að ganga í garð í
Ungverjalandi og landið því sem
næst matvælalaust. Einnig eru
kolabirgðir landsins og annað
eldsneyti að ganga til þurrðar.
Koianámur eru sagðar orðnar
hálffullar af vatni, því að engin
starfræksla né viðh'ald hefur far-
ið fram í þeim í nær mánuð.
* ★
Flóttamenn skýra frá því,
aff nauffungarflutningum sé
enn haldið áfram, en nokkrir
þeirra, er handteknir höfðu
veriff og fluttir úr landi hafa
• . Frh. á bls. 19.