Morgunblaðið - 22.11.1956, Side 2
2
MORCT’\BLAÐ1Ð
Fimmtudagur 22. nóv. 1956
Eins hlýtt og í jiilí ’55
Ein Iægð ó diog yfír kndlð
Vatnsborð Þingvallavatns hækkar mikið
IFYRRINÓTT var hið versta veður hér í Reykjavík, sunn-
an slagviðri með stórrigningu. Mun langt vera síðan jafn-
stórfellt úrfelli hefur orðið hér í Reykjavík, en úrkoman mæld-
ist 26 millimetrar. — Mest var úrkoman þó á Þingvöllum, tæp-
lega 49 millimetrar.
EIN LÆGÐ A DAG &
Undanfarið hefur sem kunnugt
er verið óvenju umhleyphigasamt
veður, og sá dagur ekki úðið, að
ein lægð a.m.k. hafi ekki farið
yfir landið. Og ekki mun eiim
einasti dagur þessa nóvember-
mánaðar hafa verið þurr og úr-
komulaus. Hér í Reykjavík eru
götumar í úthverfuniun illa
farnar eftir svo miklar rigning-
ar. í fyrrinótt slitnaði vélbétur-
inn Hilmir hér frá bryggju inni
á höfninni og rak upp í Örfirseyj-
argranda, en ekki mun hann
hafa orðið fyrir verulegum
skeinmdum.
BÁTAR fóru A flot
Séra Jóhann Hannesson, þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum sagði
í símtali við Mbl. í gær, að vatns-
borð Þingvallavatns hefði hækk-
að mikið undanfarið. í gær, eftir
hina stórfelldu úrkomu þar í
fyrrakvöld og nótt, voru allir
hólmamir fyrir framan túnið
við Þingvallabæ á kafi; bátar,
sem sumarbústaðaeigendur voru
búnir að ganga frá, höfðu farið
á flot, — og inn við Vaínskot
var mikið flóð í Þingvallavatni og
vatnsborðið svo hátt að einnig
þar flutu bátar upp. Svo mikill
vöxtur hljóp í Öxará, að hún
flæddi yfir vegarspottann heim
að Þingvallabæ, og sagðist séra
Jóhann aðeins einu sinni muna
eftir slíku flóði í ánni áður.
Á Þingvöllum hefur ekki kom
ið þurr dagur í nóvember frekar
en hér í Reykjavík. Sagði séra
Jóhann, að hann hefði um dag-
inn gert samanburð á hlýindun-
Um í þessum mánuði og júlimán-
uði í fyrra, óþurrkasumrinu, og
væri hitastigið hið sama nú og
þá.
Stórrigningin á Þingvöllum
minnti mjög á skýfall, og einn-
ig var mikill veðurofsi.
Fréttaritari Mbl. á Seyðisfirði
sagði, að í hvassviðri þar í gær,
hafi sviptivindur feykt um koll
skúr, sem stóð við rafstöðina.
Drengur var uppi á skúmum að
lagfæra þar eitthvað, og fékk
hann mjög slæma byltu og var
í sjúkrtihúsi í gærkvöld. Heitir
hann Gunnar Ragnarsson. Litlu
munaði að annar maður, Gísli
Blomkvist að nafni, yrði undir
skúrnum er hann fauk.
Hann fékk að fara heim til
*ín strax eftir að læknir hafði
gert að meiðslum er hann hlaut.
Stúlka slasaðist
í gærkvöldi
í gærkvöldi varð allharður á-
rekstur á Suðurlandsbraut á
móts við Múla.
Bifreiðinni R-7750, var ekið inn
á Suðurlandsbraut, sem er aðal-
braut, af Múlavegi og rakst þá á
bílinn R-6723, sem kom eftir Suð
urlandsbrautinni. Stúlka í þess-
um bíl, Sigurborg Bragadóttir,
til heimilis í Ártúnum, slasaðist
í árekstrinum og var hún flutt
í Slysavarðstofima. Var verið að
rannsaka meiðsli hennar, er blað
ið spurðist fyrir um þau í gær-
kvöldi. Mun hún einkum hafa
meiðst í baki.
Hverjor eru
sbyUuraor?
LUNDÚNUM, 15. nóv. — Valda-
mestu menn 8 Arabaríkja hafa
gefið út tilkynningu að afloknum
fundi þeirra í Beirut, höfuðborg
Lebanon. Þar er þess krafizt að
Bretar, Frakkar og ísraelsmenn
fari með heri sína frá Egypta-
landi þegar í stað og án skil-
yrða.
Ef það yrði ekki gert, og til
nýrra bardaga kærni myndu
Arabaríkin þegar í stað verða við
skyldum sínum samkvæmt varn-
arbandalagssamningi Araba-
ríkjanna. — Reuter.
Fundur norrænna landvarnarábherra
Landvamaráðherrar þriggja Norðurlanda, Danmerkur, Sviþjóðar og Noregs, komu í síðustu vikn
saman á fund í Kristjánsborgarhöll i Kaupmannahöfn. Þeir ræddu meðal annars hinar ískyggÞ
legu horfui’ i alþjóðamálum, scm skapazt hafa eftir að Rússar sýndu sitt rétta andlit í Ung-
verjalndi. Einnig ræddu þeir með hvaða hætti Norðurlöndin gætu tekið þátt i lögrcgluliði Sam-
einuðu þjóðanna á Súez-eiði. Ráðherrarnir eru taiið frá vinstri: Torsten Nilsson frá Sviþjóð, Poul
Hansen, Danmörku og Nils Handal frá Noregi.
7 ný ísl. sundmet í gœrkv.
5 ísl.met fullorðinna - 2 unglingamet
á síðari degi Ármannsmótsins —
einnig telpnamet hjá Agústu. | Drengjasveit Ármanns settl
í bringusundi karla 100 m. varð drengjamet í greininni 2:38,7 mín.
enn 7 ný met og sum svo glæsi
leg, að þau skipa okkar bezta
fólki á bekk með beztu sund-
mönnum Norðurlanda — og er þá
mikið sagt. Hafa því á þessu móti
verið sett alls 10 ísl. met og auk
þess 4 unglingamet. — Samtals
14 sundmet.
í fyrstu fjórum greinum kvölds
ins komu ný met. Helgi Sigurðs-
son byrjaði í 400 m. skriðsundi.
Þar sem hann varð annar á eftir
Wolf A. Þýzkal. Synti Helgi á
4:55,3. Ari, sem nú varð 4. átti
gamla metið 4:56.4.
í næstiu grein bætti Ágústa
Þorsteinsdóttir 100 m kvenna-
raetið í skriðsundi um 2,1 sek.,
synti á 1:00,5. Glæsilegt met. —
Kiinast synti á 1:14,0. Þetta er
Þorgeir Ólafsson Á, annar á eftir
Fricke. Tímarnir 1:13,1 og 1:14,7,
en sá tími Þorgeirs er 6/10 úr
sek. betri en ísl. metið var.
Í 100 m flugsundi karla setti
Pétur Kristjánsson glæsilegt ísl.
met 1:10,8 mín og bætti sitt fyrra
met um 4,5 sek!!! Pétur varð
þriðji. Schneider sigraði (1:09,8)
og Wolf varð annar (1:10,1).
í 4x50 m bringusundi karla
setti sveit Ármanns ísl. met synti
á 2:29,9 (2:21,9 það gamla).
Húsvíkingar gáfu sjúkrahúsi
sínu vegiega afmælisgjöf
HÚSAVÍK, 19. nóvember:
SJÚKRAHÚSIÐ í Húsavík varð 20 ára síðastl. laugardag. —
Húsvíkingar og Þingeyingar voru mjög samhentir og unnu
með sér stökum áhuga og skilningi áð byggingu spítalans og var
húseignin skuldlaus þá rekstur sjúkrahússins hófst. Á liðnum starfs-
árum hefur sjúkrahúsið eignazt ýmis ný tæki og húsbúnaður
verið aukinn og endurbættur og hafa allir héraðsbúar átt hlut að
máli. Húsvíkingar hafa sýnt þessari stofnun sérstaka ræktarsemi.
Kurr í liði Rússa
í IJngverjalandi
LONDON, fréttaritari Daily Telegraph símar frá Vín:
FLÓTTAMENN, sem síðast komu yfir landamærin, segja,
að fregnir fljúgi nú um allt Ungverjaland þess efnis,
að mikil ólga sé í rússneska hernum í Ungverjalandi.
Hafi meira að segja slegið í bardaga með hinum nýju
liðsaukum og her þeim, sem fyrir var í landinu. Á þetta
að hafa gerzt um helgina, í Papa — um 70 mílur norður
af Búdapest og einnig í Eperjes norð-austur af borginni.
Einnig hafa borizt fregnir um það, að nokkur hundruð
rússneskra hermanna hafi farið yfir landamærin til Júgó-
slaviu — og skilið vopn sín eftir. Júgóslavar hafa styrkt
landamæravörð sinn við rúmensku og ungversku landa-
mærin mjög.
Þá segja flóttaraenn einnig þær fréttir, að í Rússlandi,
skammt frá ungvcrsku landamærunum, hafi verið unnin
skemmdarverk á aðaljárnbrautarlíuunni, sem liggur tU
Ungverjalands — og liðsafli Rússa hefur verið fluttur eftir
Mun þetta hafa átt sér stað suður af Przemnysl.
BÓKASAFN
Á 17. afmælisdegi sjúkra-
hússins var Egill Jónasson hag-
yrðingur sjúklingur á sjúkrahús-
inu og orti hann þá ljóð þar sem
hann benti á að sjúkrahúsið 'ætti
ekkert bókasafn. Var Ijóðið fjöl-
ritað og borið í hús í bænum.
Samdægurs eignaðist sjúkrahús-
ið nokkurt bókasafn.
17 ÞÚS. KR.
Afmælisins á laugardaginn var
minnzt þannig að verzlanir bæj-
arins tóku á móti afmælisgjöfum
til sjúkrahússins og skyldi fé sem
gefið væri- renna til kaupa á nýj-
um tækjum til sjúkrahússins.
Gáfu bæjarbúar aUs 17 þús. kr.
í peningum. Siðan hafa fleiri gjaf-
ir borizt og í dag sendi Kven-
fálag Mývatnssveitar 1000 kr. svo
að söfnunin er alls komin á 19.
þús. og hefur stjórn sjúkrahúss-
ins beðið Morgunblaðið að færa
Húsvíkingum beztu þakkir fyrir
þessa höfðinglegu gjöf og um leið
þakka aðrar góðar gjafir á und-
anförnum árum. —SPB.
í öðrum greinum sigruðu. Sig-
ríður Sigurbjörnsdóttir Æ í 50
m bringusundi telpna, 41,9. Guð-
mundur Gíslason ÍR í 50 m skrið-
sundi drengja, 28,2. Ágústa Þor-
steinsdóttir Á I 100 m bringu-
sundi kvenna, 1:31,4. Schncider
AÞ í 50 m baksundi karla 32,5.
Norðurbær vann Suðurbæ i
sundknattleik.
Fögur flugþerna
Þessi fallega Ijóshærða stúlka er
íslcnzk. Hún heitir Guðrún Fjóla
Jónsdóttir og er dóttir Jóns
Þórðarsonar, Fálkagötu 9A hér á
Melunum.
Eftir að maður hefur horft um
stund á þessa fallegu mynd undr
ast maður það ekki, að Guðrún
Fjóla var valin úr fjölda um-
sækjenda til að gerast flugþema
hjá hinu geysistóra bandaríska
flugfélagi American Airlmes.
Hún hefur nú um nokkurra vikna
skcið gengið á flugþernuskóla fé-
lagsins í Chicago og er nú farin
að gegna störfnm á flugvélum fé-
lagsins, sem hafa bækistöð á La
Guardia flugvellinum við New
York.
Vér höfum fregnað það, að
Guðrún Fjóia sé um 170 senti-
metrar á hæð, og vegur 59 kg.
Hún stundaði nám í Gagnfræða-
skóla Vesturbæjar á Öldugöt-
unn i. Helzta tómstundagaman
hennar er að lesa góðar bækur,
synda og fara á skíði.
Viðskiptaskráia 1956
komin út
VIÐSKIPTASKRÁIN fyrir ári*
1956 er komin út. Þetta er mikil
bók, á tólfta hundrað blaðsiður,
og flytur, eins og að líkum lætur,
minkinn fróðleik um viðskipta-
og kaupsýslumál landsins, en
einnig eru þar margvíslegar upp-
lýsingar um félagsmál í Reykja-
vík, kaupstöðum og flestum kaup
túnum landsins.
Bókinni er skipt í sex megin-
flokka. I 1. flokki eru uppdrættir
af Reykjavík, íslandi og af vita-
kerfi og fiskimiðum kringum
landið.
I 2. flokki er skrá yfir öll hús f
Reykjavik, á Akureyri og í Hafn-
arfirði, og er tilgreint lóða- og
húsamat, ^óðastærð og nafn eig-
anda.
í 3. flokki eru upplýsingar um
stjórn landsins, fulltrúa Islands
erlendis og erlendra ríkja hér á
landi og stjórn Réykjavíkurbæj-
ar. Þá er einnig félagsmálaskrá og
og nafnaskrá Reykjavíkur.
f 4. flokki eru kaupstaðir og
kauptún utan Reykjavíkur, 47
talsins, með félagsmálaskrá og
nafnaskrá fyrir hvern stað um
sig.
f 5. flokki er Varnings- og
starfsskrá, sem er meginkafli bók
arinnar. Eru fyrirtæki og ein-
staklingar af öliu landinu til-
greind þar, raðað eftir starfs- og
atvinnugreinum.
Aftan til í bókinni er ýtarleg
ritgerð á ensku, eftir dr. Björn
Björnsson, hagfræðing, og nefn-
ist hún „Iceland: A Geographical,
Political and Economic Survey“.
Útgefendur leggja áherzlu á að
allt hafi verið gert sem unnt var
til að hafa allar upplýsingar í
bókinni sem réttastar. Ritstjórn
annaðist Páll S. Dalmar, en Stein
dórsprent h.f. er útgefandi.