Morgunblaðið - 22.11.1956, Blaðsíða 20
279. tbl. — Fimmtudagur 22. nóvember 1956
Tímaritið Stefnir efnir til Ung-
verjalandskvölds
Fjölbreytt kynning á ungverskri tón■
list og bökmennturri i Sjálfstæðis-
húsinu annað kvöld
iNNAÐ KVOLD efnir tímarit ungra Sjálfstæðis-
manna, Stefnir til kynningar á ungverskri tónlist og
bókmenntum og fer kynningin fram í Sjálfstæðishúsinu.
Verður þar fjölbreytt dagskrá sem góðir listamenn munu
flytja. Ungverska þjóðin hefir um langan aldur átt sér blóm-
lega og djúpstæða menningu, mikil tónskáld og ágæta rit-
höfunda.
Vill Stefnir kynna lítið brot af verkiun þeirra á þessiun
tímamótum, er íslendingar allir fylgjast með baráttu hinnar
hugrökku þjóðar fyrir frelsi sínu. Aðgangur að Ungverja-
landskvöldi þessu er ókeypis.
MIKIL MENNINGARÞJÓÐ
Hugir manna hér á landi sem
annars staðar í veröldinni hafa
mjög dvalið við hina hetjulegu
baráttu ungversku þjóðarinnar
fyrir frelsi sínu og fornri menn-
ingu. ísiendingar hafa fylgzt með
þeirri baráttu með djúpri hlut-
Ráðherrann ber
a!la ábyrgðina
FRÁ ÞVÍ var skýrt hér í
blaðinu í fyrradag, að stór-
felldar hækkanir hefðu orð-
ið á flutningsgjöldum með
olíuskipum. Myndi næsti
farmur af brennsluolíu til
togaranna hækka útgerðar-
kostnað þeirra um 2000 kr.
á dag, frá því sem nú er. —
Væri ástæðan sú að skip
það sem hingað fiytur olí-
una tekur 220 shillinga fyr-
ir hvert íotrn hennar.
Nú hefur Mbl. sannfregn-
að, að hér áttu sér stað stór
kostleg mistök hjá við-
skiptamálaráðherra, Lúð-
vík Jósefssyni, er um
þessa olíuflutninga var sam
ið.
Þegar olíufélögin leituðu
til hans, er semja þurfti um
flutning á þessari olíu hing-
að heim, höfðu þau fyrst í
stað á hendinni tilboð um
flutning, sem hljóðaði á 120
shillinga fyrir tonnið. Heirn
ild Lúðvíks fékkst ekki. Því
gátu olíufélögin ekki tekið
þessu hagstæða tilboði.
Annað skip bauð síðar
130 shillinga farmgjald
fyrir olíutonnið. En leyfi
viðskiptamálaráðherrans
fékkst ekki. Þriðja skipið,
sem bauðst til flutninganna
skyldi leigt fyrir 160 shill-
inga tonnið. Leyfi viðskipta
málaráðherra ríkisstjórnar-
innar fékkst ekki heldur
fyrir því. Þegar svo flutn-
ingsgjaldið var komið upp
í 220 shiilinga fyrir tonnið,
þá kom svarið frá skrif-
borði ráðherrans: Takið
þessu tilboði!
Af því sem hér hefur ver-
ið rakið, er það ljóst, að
Lúðvík Jósefsson ber fulla
ábyrgð á því, að dagkostn-
aður við togaraútgerðina
mun með tilkomu næsta
olíufarms til togaranna
hækka um hvorki meira né
minna en 2000 krónur.
Skarpskyggnin leynir sér
ekki á sviði viðskiptanna
hjá viðskiptamálaráðherran
um!
tekningu og margir lagt eitthvað
af mörkum til hjálpar.
Með Ungverjalandskvöldi því,
sem Stefnir hyggst halda annað
kvöld vill tímaritið kynna
nokkra þætti úr bókmenntum og
tónlist Ungverja. Verða m. a.
fluttir kaflar úr ritverkum ís-
lenzkra manna um frelsisbaráttu
Ungverja 1849, ungversk tónlist,
smásögur og ljóð.
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ
Dagskráin er í höfuðdráttum
sem hér segir:
Gísli Magnússon píanóleikari
leikur lög eftir Bela Bartok,
Gunnar G. Schram ritstj. Stefnis
flytur ávarp, Sveinn Víkingur les
ungverska smásögu.
Helga Váltýsdóttir og Ævar
Kvaran lesa m. a. ungversk ljóð
í þýðingum Steingríms Thor-
steinssonar og fleiri, og kafla úr
ritum Gísla Brynjúlfssonar um
frelsisstríð Ungverja 1849. Þor-
steinn Hannesson syngur ung-
versk þjóðlög, Baldvin Halldórs-
son les ungverska smásögu og
Guðmundur Jónsson píanóleikari
leikur verk eftir Franz Liszt.
Á Ungverjalandskvöldi þessu
verður tekið á móti framlögum
í Ungverjalandssöfnunina.
AKRANESI, 21. nóv. — Suð-
austan rok var hér í nótt, senni-
lega um 11 vindstig. Voru sjó-
menn á ferli í alla nótt til þess
að gæta báta sinna. — Oddur.
,Samningarnir v/ð Banda-
ríkin eru í höndum ríkis-
stjórnarinnar allrar'
„Þjóöviljinn" skýrir frá oð samið
sé um brottflutning varnarliðsins
Alþýðusambandsþingid':
Hannihal víttur fyrir að
misnota Alþýðu-
sambandið
STÖRF Alþýðusambandsþingsins héldu áfram í gær. Miklar um-
ræður urðu um skýrslu forseta samtakanna, Hannibalds Valde-
marssonar og var harðlega deilt á hann fyrir að hafa notað Al-
þýðusambandið til pólitísks áróðurs og jafnvel gengið svo langt að
láta það bjóða fram í samvinnu við stjórnmálaflokk í Alþingis-
kosningunum.
Voru það forystumenn Alþýðu-
flokksins í verkalýðssamtökun-
um, þeir Magnús Ástmarsson for-
maður H.Í.P. og Jón Sigurðsson
fyrrv. framkvstj. sambandsins,
sem víctu Hannibal Valdemars-
son fyrir þessa misnotkun hans á
Alþýðusambandinu.
Fundir hófust ekki fyrr en eft-
ir hádegi í gær. Gaf forseti sam-
bandsins þá skýrslu sína um starf
stjórnarinnar síðustu tvö árin.
Var það löng ræða en að henni
lokinni hófust umræður um þessa
skýrslu Hannibals Valdemars-
sonar.
ÁRÓÐURSTÆKI
Við það tækifæri töluðu Al-
þýðuflokksmennirnir tveir.
Gerðu þeir sérstaklega að um-
talsefni frásögnina í skýrslunni
um fundahöld og erindisrekstur.
Þar er þess getið, að Hannibal
hafi haldið fundi víða á Aust-
fjörðum, og hafði i för með sér
Lúðvík Jósefsson alþm.
Deildu þeir mjög á þetta fram-
fsrði forseta sambandsins að ferð
ast á vegum þess og í þess erinda-
gjörðum í för með þingmanni
eins pólitiska flokksins og einnig
það að Hannibal hefði haldið
pólitíska fundi í þessum ferðum
sínum asamt Lúðvík.
STJÓRNMÁLAÞÁTTTAKA
Þá var og rætt um hve óhæft
það væri að Alþýðusambandið
sem ætlað hefði ver'ð 'cð starfa
eingöngu sem kjarasamtökum
verkalýðsins í landinu, tæki allt
í einu að bjóða fram með einum
stjórnmálaflokki. Væri þeð mikil
og ill misnotkun á tilgangi Al-
þýðusambandsins og ranglæti við
fjölmarga meðlimi þess.
Umræður úrðu nokkrar urn
skýrsluna á kvöldfundinum í gær
en hann hófst kl. 21.
7 ísl. sundmet setl í
gærkvöldi. Sjá bls. 2
EFTIRFARANDI fréttagrein birt
ist í „Þjóðviljanum" í gær:
„Samningárnir við Bandaríkin
eru í höndum ríkisstjórnarinn-
ar allrar.
Morgunblaðið segir í gær að
búið sé að skipa nefnd til samn-
inga við Bandaríkin um brottför
hernámsliðsins og eigi sæti í
henni Emil Jónsson, Guðmundur
í. Guðmundsson og Tómas Árna-
son. Þessi fregn Morgunblaðsins
er tilhæfulaus með öllu. Sam-
kvæmt ákvörðun Alþingis verða
samningarnir við Bandaríkin í
höndum rikisstjórnarinnar allrar,
en búizt er við að forsætisráð-
herra og utaníkisráðherra annist
einkum viðræðurnar við banda-
rísku samninganefndarmennina."
í forustugrein blaðsins segir
síðan á þessa leið:
„Það er stefnt að brottflutningi
erlends herliðs af íslandi og samn
ingar um það hafnir."
AFDRÁTTARLAUS AFSTAÐA
í þessu sambandi er rétt að
minna á að í fyrradag birti „Þjóð-
viljinn" þá yfirlýsingu að „álykt
un Alþingis um hernámsmálin
stendur enn óbreytt og óhögguð".
Loks má benda á að þann 5. þ.m.
lýsti miðstjórn og þingflokkur A1
þýðubandalagsins því yfir að
Atlantshafssamningurinn væri
raunverulega úr gildi fallinn og
hin mesta nauðsyn að allt varn-
arlið yrði flutt burt.
Það er því ljóst, að Alþýðu-
bandalagið hefur nú markað
afstöðu sína til samninga
þeirra við Bandaríkin, sem nú
standa yfir. Flokkurinn heldur
fast við að yfirlýsingu Alþing-
is frá 28. marz verði fylgt fram
og varnarliðið hverfi burt í
seinasta lagi, þegar samnings-
frestur er útrunninn, en á
hann er þegar byrjað að iíða.
Þessi afstaða Alþýðubandalags
ins er hins vegar alveg gagnstæð
afstöðu utanríldsráðherrans. sem
lýsti eftirfarandi yfir á Alþingi
hinn 16. þ.m.:
„Ég álít að nú sé slíkt hættu-
ástand að varnarlið sé íslandi
nanðsyn.“
Hvort cfan á verður í samning-
unum, hin skýlausa afstaða Al-
þýðubandalagsins, að varnarlið-
ið hverfi á burt eða afstaða utan-
ríkisráðhcrrans, að „varnarlið só
íslandi nauðsyn“ mun svo værtt-
anlega koma bráðlega í ljós. Eftir
svo eindregnar yfirlýsingar er
ljóst að kommúnistar munu ekki
sætta sig við að hvikað verði um
hænufet frá yfirlýsingu Alþingis
um brottför varnarliðsins og er
þá eftir að vita hvort samstarfs-
flokkar þeirra eru á sama málL
Almenningu bíður þess með
eftirvæntingu að sjá hvað ofan á
verður í þessu stórmáli.
Gullfoss mcð
jólat
re
ÚM DAGINN var frá því sagt í
Kaupmannahafnarblaðinu Dag-
ens Nyheder, og birt mynd með,
er verið er að setja jólatré um
borð í Gullfoss. Svo skammt er
nú orðið til þessarar stórhátíð-
ar.
Bæjarráð hefur verið minnt á
nálægð jólanna, því að á síðasta
fundi þess voru afgreidd tvö
leyfi til jólatréssölu tii lögreglu
stjóra, tvær umsóknir um jóla-
tréssölu, við Laugaveginn innan
verðan, frá Alaskastöðinni og í
Bankastræti, fyrir Agnar Gunn
laugsson.
Fargjöld
skólabarna
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á þriðjudaginn, var rætt um
fargjald skólabama, þeirra sem
eldri eru en 12 ára. Var þar
samþykkt að nemendur barna-
skólanna skuli, þótt eldri séu en
12 ára, greiða sama gjald með
strætisvögnum og yngri nemend
ur skólanna.
Knnnur tébknesknr visindn-
og stjórnmnlnmnðnr kemnr
hingnð í heimsókn
Flytur fyrirlestra um járnt jaldslöndin
AFÖSTUDAGSKVÖLDIÐ kemur kunnur tékkneskur vísinda- og
stjórnmálamaður í fyrirlestraferð liingað til lands og mun
hann dveljast hér í viku. Er það dr. Lúmír Soukup, en hann starfaði
um skeið í utanríkisþjónustu Tékkóslóvakíu, og var einkaritari
og nánasti samverkamaður Jan Masaryks, hins kunna utanríkis-
ráðherra Tjekka, allt þar til dauða hans bar að höndum með svip-
legum hætti 1948.
FLÚÐI EFTIR VALDARÁN
KOMMÚNISTA
Eftir dauða Masaryks og valda
rán kommúnista flúði dr. Sou-
kup land og hefir á seinni árum
verið lektor í tékkneskum bók-
menntum og málvísindum við
háskólann í Glasgow. Dr. Soukup
hefir stundað nám við háskólana
í Prag og París og doktorsprófi
í heimspeki lauk hann frá há-
skólanum í Edinborg.
Nú er hann einn af leiðtogum
frjálsra Tékka í Englandi og hef-
ir ferðazt víða og haldið fyrir-
lestra um ástandið í löndunum
austan járntjalds, og stjórnarfar
kommúnismans sem þar ríkir.
ALMENNIR FYRIRLESTRAR
Það er Samband ungra Sjálf-
stæðismanna, sem stendur að
heimsókn Dr. Soukups hingað til
lands.
Hann mun flytja fyrirlestur á
vegum Almenna bókafélagsins í
Háskólanum á laugardaginn kl.
5 og talar þá um tékkneskar bók-
Dr. Lúmír Souk;
menntir og menningarlíf. — Á
sunnv daginn kl. 2 e. h. flytur
hann fyrirlestur fyrir almenning
um ástandið í löndunum austan
járntjalrts og verður fyrirlestur-
inn í Sjálfstæðishúsinu. Þessi
merki fræðimaður mun halda
víðar fyrirlestra, meðan hann
dvelst hér á landi.