Morgunblaðið - 05.03.1957, Side 1
20 síður
ísraelsmenn byrja&ir að flytja
//ð sitt frá Gaza og Akabaflóa
Jerúsalem, 4. marz.
í DAG ræddust þeir við á Lyddaflugvelli, Dayan, yfirmaður fsraelshers og Burns yfirhers*
höfðingi S. Þ. í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. — Ræddu þei# um, hvernig haga
skyldi hrottflutningi ísraelshers frá Gaza og strandlengjunni meðfram Akabaflóa. Burns
hershöfðingi lýsti því yfir á fundinum, að þeir hefðu náð samkomulagi um það, hvenær
brottflutningur ísraelsherja skyldi hefjast. Golda Meir, utanríkisráðherra ísraels, stað-
festi það á fundi Allsherjarþingsins í kvöld.
ENGIN ÁHÆTXA
Fréttir frá Jerúsalem herma, aS
Ben Gurion, forsætisráðherra,
hafi veitt hershöfðingja sínum
heimild til að sitja fund þennan,
eftir að stjórn hans hafði fengið
„viðunandi tryggingar" Banda-
ríkjastjórnar, en ekki er fullvíst
í hverju þær eru fólgnar.
Fréttamenn segja, að orðsend-
ing Bandaríkjastjórnar hafi sann-
fært Ben Guríon um, að það sé
enginn áhætta fyrir ísraelsmenn
að kalla herlið sitt frá Gaza og
Akabaflóa. Reutersfréttir herma,
að í orðsendingunni hafi því ver-
ið lýst yf ir, að ekki sé rétt á þessu
stigi málsins að setja hin um-
deildu landssvæði undir egypzk
yfirráð.
Þegar boðin komu frá Israels-
mönnum um, að þeir væru reiðu-
Ræðast við
WASHINGTON, 4. marz. — Til-
kynnt hefur verið í Washington,
að Eisenhower Bandaríkjaforseti
fljúgi til Bermuda hinn 20. marz
nk., þar sem hann mun ræða við
Macmillan forsætisráðh. Breta.
Ráðgert er, að viðræðurnar taki
3 daga.
Eftir 5 vikur
KAIRÓ, 4. marz. — Unnið er af
kappi að því að hreinsa Súez-
skurð. Segja þeir, sem að því
vinna, að búast megi við því, að
verkinu verði lokið eftir 5 vikur
og geti þá aftur hafizt skipasigl-
ingar um skurðinn.
búnir að ræða við Burns, var
hann á leið í bifreið sinni frá E1
Arish til Súez. Könnunarflugvél
var þegar í stað send á eftir bif-
reiðinni og önnur búin undir flug
ferð til Lydda. Með því móti náði
Burns fundinum þar á tilsettum
tíma.
ÁRÁSIR?
Yfirleitt hafa fsraelsmenn tek-
ið fregnunum um brottflutning
hers þeirra frá Gaza og Akaba
með þögn og þolinmæði. Þó hafa
Affalágreiningsefnið er efna-
hagsástundiff í landinu, enda hef-
ur þaff nú leitt til þess, aff um
92 þús. manns eru aúvinnulaus.
Annars segja fréttamenn, aff lít-
ill munur sé á stefnu affalflokk-
anna, flokks De Valera og Cost-
ellos forsætisráffherra sem neín-
ist Fine Gael. Af þeím sökmv
sé almenningur heldur áhuga-
laus um kosningar þessar.
SKÆRUHERN AÐ UR
Áhugi manna beinist aðal-
stúdentar efnt til krögugangna á
nokkrum stöðum. — Á morgun
kemur ísraelsþing saman til
fundar og er þá gert ráð fyrir, að
Ben Gurion verði fyrir hörðum
árásum vegna hinnar nýju stefnu.
••
Fregnir í gærkvöldi hermdu
að Israelsmenn væru þegar
byrjaðir að flytja herlið sitt
frá Gaza og Akabaströnd-
inni.
lega að frambjóðendum Lýð-
veldisflokksins, sem berst fyr-
ír sameiningu norðurhluta
landsins, sem Bretar ráða yf-
ir, og móðurlandsins. Segja
fréttamenn, að af fylgi flokks
ins megi væntanlega sjá,
hvort skæruhernaður lýðveld
ishersins í Norður-írlandi
undanfarið nýtur samúðar al-
mennings eða ekki.
Áhugi munnu beinist
uí Lýðveldisflokknum
Lundúnum, 4. marz.
STJÓRNMÁLAFRÉTTARITARAR segjast ekki geta sagt neitt
um úrslitin í kosningunum til írska þingsins, sem fram eiga
að fara á morgun. Aðalbaráttan stendur milli stjórnarflokkanna
og flokks De Valera (sjá grein hér í blaðinu í dag um írsku
kosningarnar).
Kirkjuhöfðingi íra viil aðiid að brezka
samveldinu og brotthvarf frá hlutleysi
TVEIM dögum fyrir þingkosningurnar í írlandi hefur John D’Alton
kardínáli og erkibiskup alls írlands, komiff fram meff nýjar
tillögur sem miffa að sameiningu landsins. — D’Alton kardínáli
leggur til aff írland hverfi frá núverandi einangrunarstefnu sinni
og gangi í brezka samveldiff. Meff því telur biskupinn aff rutt yrffi
úr vegi mikilll hindrun fyrir sameiningu.
ÁHRIFAMIKILL MAÐUR
Kardínálinn er án efa einn
áhrifamesti maður írlands. Hann
er kirkjuhöfðingi 90% þeirra sem
játa kaþólska trú I írska lýðveld-
inu og 40% íbúanna í Norður-
írlandi. Biskupssetur hans er í
Armagh í Norður-írlandi. Hann
er nú kominn yfir sjötugt. Hefur
hann ekki haft bein afskipti fyrr
af írskum stjórnmálum, en orð
hans um þessi mál munu verða
þung á metunum og geta haft
áhrif á úrslit kosninganna.
FORDÆMI MEGINLANDS-
ÞJÓÐA
f sérstöku samtali, sem Douglas
Hyde fréttamaffur Observer átti
við kardínálann, sagði hann m. a.:
— Ég er sannfærður um, að
hægt er að finna lausn á sam-
einingarmáli írlands, ef báðir aðil
ar vilja gefa nokkuð eftir í anda
góðvilja og sáttfýsi. Við höfum
að undanförnu séð að evrópskar
þjóðir, svo sem Þjóðverjar og
Frakkar eru reiðubúnar að slá af
gamalli þjóðernisstefnu til þess
að geta starfað saman í friði og
eindrægni. Hinn sami samstarfs-
andi finnst mér að gæti leyst
vandamálið hjá okkur og bætt úr
hinu hörmulega ástandi sem nú
ríki-
LÝÐVELDI f BREZKA
SAMVELDINU
Kardínálinn hélt áfram:
— Ef stjórn Norffur-írlands
féllist á aff sameinast írska lýff-
veldinu, þá tel ég aff írland ætti
aff bindast brezka samveldinu,
sem sjálfstætt lýffveldi á sama
hátt og Indland. Það mundi
tryggja Norffur-frlandi tengsl viff
Bretland og veita því efnahags-
legt öryggi. Skipasmíffaiðnaður
Norffur-írlands myndi þá engan
halla bera.
HLUTLEYSI RANGT
Þá lýsti kardínálinn sig mót-
fallinn þeirri einangrunarstefnu,
sem frar hafa fylgt fram til þessa.
Hann sagði:
— Þaff virffist augljóst, eins
og nú er ástatt, þegar tilveru
evrópskra þjóffa og menningu
þeirra er ógnaff, aff ekkert ríki
Vestur-Evrópu getur lifaff í al-
gerri einangrun. Jafnvel land
eins og Spánn hefur neyffzt til
aff hverfa frá langri hlutleysis-
stefnu. Ég myndi leggja til aff
sameinað írland gerðist affili
aff Atlantshafsbandalaginu.
Dönsku börnin eru komin meff leikföngin sín út á götu. Hér sést
lítill snáði spóka sig í sunnudagsveffrinu í bíl sinum. í baksýn er
Hótel Evrópa sem stendur viff Löngulínu.
EINN MILDASTI VETUR
Á ÞESSARI ÖLD
llanir þakka sínum sæla fyrir
DÖNSK BLÖÐ skýra frá því, að veturinn, sem nú er um garð
genginn í Danmörku, sé einn hinn mildasti sem komið hefir
þar í landi á þessari öld. Þó að marz-mánuður sé rétt að byrja,
hefir vorið hafið innreið sína í dönsku skógana. Meðalhiti vetrar-
mánuðina var 2,9 gráður, en yfirleitt er hann ékki nema 0,4 gráður.
Af þessu sést, hve mildur s .1. vetur var þar í landi.
Veturinn 1924—1925 er hinn
mildasti sem komið hefur í Dan-
mörku á þessari öld. Þá var meðal
hitinn vetrarmánuðina 3,7 gráður
— og er það algjört met.
Danir eru ákaflega þakklátir
fyrir hinn milda vetur, því að
illa hefði getað farið, ef hann
hefði verið langur og kaldur. —
Eldsneytisskorturinn vegna Súez-
deilunnar hefði þá komið niður
á þeim með hálfu meiri þunga. —
Geta má þess að lokum, að þrír
undanfarnir vetur voru mjög kald
ir. í fyrra voru dönsku sundin
t. d. ísi lögð langt fram á vor og
Farmgjöld
stórlækka
ÞÝZKA blaffið Die Welt segir
frá því, aff farmgjöld hafi stór
Iækkað undanfariff. — Tekur
blaðiff dæmi um þaff og segir,
að hinn 23. febrúar hafi flutn-
ingsgjald á einu kolatonni frá
Bandaríkjunum til Rotterdam
veriff 5G,40 mörk, en hinn 27.
sama mánaðar hafi þaff veriff
komiff niffur í 47 mörk.
í apríl-mánuði þurftu húsbænd-
urnir að byrja dagsverkið með
því að kynda kolaofnana og reka
hráslagann á dyr. Voru þá rúður
í Kaupmannahöfn oft svo hélað-
ar, að ekki sást út um þær með
góðu móti.
Hva5 er á seyði ?
JAKARTA, 4. marz. — f dag
fékk Sokarno Indónesíuforseti
skýrslu frá herráðsforingja sín-
um um ástandið á eyjunum í
Austur-Indónesíu. Þar tók Su-
mual hershöfðingi völdin i sínar
hendur og segist með því munu
hamla gegn því að ríkið liðist
sundur. Hann hefur lýst því yfir,
að hann sé reiðubúinn að koma
til Jakarta að ræða við stjórnina
þar um ástandið. — Sokarno
sagði í dag, að hann mundi ráð-
færa sig við þingið, áður en hann
tæki kommúnista í stjórn sína,
eins og ráðgert er. Forsetinn sagði
ennfremur, að lýðræðið yrði
haldið í heiðri, þótt kommúnistar
tækju þátt í stjórn og utanríkis-
stefna landsins yrði áfram sniðin
eftir stefnu hlutlausra ríkja í
Asíu.