Morgunblaðið - 17.04.1957, Qupperneq 3
Miðvikudagur 17. aprfl 1957
MORCVHBLAÐIÐ
Samsöngur Karla-
kórs Akureyrar
AKUREYRI, 15. apríl. — Karla
kór Akureyrar hélt fyrsta sam-
söng ársins í Nýja Bíói, í fyrra.
dag, undir stjóm Áskels Jónsson-
ar. Við hljóðfærið var frú Þyri
Eydal. Á söngskrá voru 13 lög eft
ir innlenda og erlenda höfunda.
Einsöngvarar með kórnum voru
Jóhanna og Jósteinn Konráðs-
synir og Tryggvi Georgsson.
Áheyrendur troðfylltu húsið og
tóku söngnum með miklum fögn-
uði. Varð kórinn að syngja auka-
lag og endurtaka mörg lög. Að
loknum söngnum bárust blóm-
vendir. — Job.
Hœttulegt
leynivopn
KAIRO, 15. apríl. — Egypzk blöð
hafa skýrt frá nýju leynivopni
Israelsmanna. Það eru kvenna-
hersveitir ísraels, sem nú reyna
markvisst að vinna herlið S. Þ. á
sitt band. Hefur egypzka stjórn-
in afhent Burns hershöfðingja S.
Þ. mótmæli vegna þess að her-
menn úr gæzluliði S.Þ. iðki það
að fara frá Gaza-svæðinu yfir
landamærin til fsraels, til þess
að njóta blíðu hjá hinum ísra-
elsku valkyrjum.
Þetta er hættulegt, segir
Egyptastjórn, því að valkyrjurn-
ar veiða hernaðarleyndarmál upp
úr hermönnunum. Krefjast Eg-
yptar að loku verði fyrir það
skotið að hermenn S.Þ. geti far-
ið í frítímum sínum yfir til Gyð-
ingalands. — Reuter.
Kólnor í veðri
næstu dægur
BLAÐIÐ sneri sér í gærkvöldi til
Veðurstofunnar til þess að leita
fregna um veðurútlit næstu daga.
Taldi veðurfræðingur útlit íyrir
SV- og V-átt næstu daga og kald-
ara í veðri en verið hefur að
undanförnu.
Vonar að starf hans hafi
aukið skilning vinaþjóða
Carl Peterson yfirm. USIS hverfur af landi
RÚM tvö ár undanfarið hefur mr. Carl Peterson veitt forstöðu
USIS, upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna hér á landi. En
hann er nú á förum af landinu, þar eð honum hefur verið feng-
inn starfi annars staðar. Peterson, þessi hægláti og ætíð svo vin-
samlegi maður, hefur eignazt fjölda vina, þennan stutta tíma, er
hann hefur dvalizt hér, ekki sízt meðal blaðamannanna, sem oft
hafa þurft til hans að leita um ýmiss konar upplýsingar. — Er
það mál þeirra allra að hann hafi unnið starf sitt, það er að þeim
hefur snúið, með alúð og prýði.
lýsingar, sem skrifstofan veitir
um Bandaríkin er ólituð af póh-
tískum áróðri. Bækurnar í bóka-
safninu eru þær almennu bækui,
sem eru á markaðnum heima »g
sama er að segja um fréttirnar
og kvikmyndirnar. Það er ekki
okkar hlutverk að reyna að hafa
nein áhrif á aðrar þjóðir með
lituðum áróðri, heldur aðeins að
sýna staðreyndirnar, sýna þjóðlíf
Bandaríkjanna eins og það er,
jafnt hinar ljósu og dökku hliðar.
Við erum lýðræðisþjóð og vilj-
um ekki þröngva neinum skoðun
um inn á aðrar frjálsar þjóðir.
Carl Peterson
Peterson mun fljúga utan í dag,
en fréttamaður frá Mbl. hitti
hann sem snöggvast að máli í
gærdag.
— Er ég kom til íslands fyrir
hálfu þriðja ári, hafði ég frekar
litla þekkingu á landinu. Ég
hafði í nokkur ár starfað hjá
upplýsingaþjónustunni í Vínar-
borg, sem var þá hersetin borg.
Ný bók fyrir bridgeiðkendur
sem Zóphónías Pétursson tók saman.
1 DAG kemur í bókabúðir Bridge-
bókin, en eins og náfnið bendir
til er hér um að ræða bók fyrir
bridge spilara, konur jafn sem
karla, byrjendur sem kunnáttu-
menn, sagði hinn kunni bridge-
maSur Zóphónías Pétursson, sem
tekið hefur bókina saman, er hann
átti stutt samtal við tíðindamann
Mbl. í gær um þessa bók. Zóphóní-
as Pétursson hefur í áratugi ver-
ið meðal fremstu bridgespilara hér
í bænum og undanfarna vetur hef-
ur hann annast bridgeþátt í út-
vaipinu.
Þessir þættir mínir í útvarpinu
eru upphaf þess að ég réðist í að
semja slíka bridgebólt, en hún er
mjög alhliða, sagði Zóphóníasr og
þó mér sé málið nátengt þá hef
ég svona við kunningja mína, sem
mikið spila bridge, talað um að
þetta yrði nokkurs konar „alfræði
bók bridgemanna". — Það er mik-
ið verk að taka svona bók saman,
eins og þeir hljóta að gera sér
Ijóst sem þekkja til gangsins í
bridge. Bókin er við það miðuð að
hún geti eins hjálpað þeim sem
er vanur bridgespilari og hinum
sem ekki þekkir spilið en ákveður
að hann skuli nú taka sig fram
um að læra það.
Bókinni er skipt í þrjá aðal-
kafla: Sókn og vörn, heitir sá
fyrsii, þá kemur Sagnavísi og að
lokum Sag ikerfi.
1 fyrsta kaflanum er fullkom-
lega lýst þessum megin þætti
bridge-spilsins. í öðrum kaflan-
Ný loftskeylastöð fyrir flugið
verður reist skammt frá Gander
Hún á að stórbæfa loffskeytasambandið við fiugvélar
GÓÐUR árangur hefir nú náðst i máli, sem ICAO — Alþjóða-
flugmálastofnun Sameinuðu þjóðanna — hefir borið mjög fyr-
ir brjósti, en það er betra loftskeytasamband en verið hefir við
flugvélar, sem fljúga á leiðum yfir Norður-Atlantshafið.
Kanadastjórn hefir samþykkt, að láta byggja loftskeyta-
stöð skammt frá Gander á Nýfundnalandi, sem ICAO taldi
alveg nauðsynlega fyrir Norður-Atlantshafsflugið. Stöðin
mun kosta um 650 þús. dollara. Auk þessa hefir Kanada-
stjórn skuldbundið sig til að hafa nána samvinnu við þær
þjóðir, er hafa flugvélar I förum yfir Atlantshafið.
BETRA SAMBAND
ICAO beindi þeirri áskorun
til Kanadastjórnar fyrir nokkru,
að hún hjálpaði til við að koma
á öruggara og betra loftskeyta-
sambandi á Norður-Atlantshafs-
svæðinu og þá fyrst og fremst,
að komið væri upp loftskeyta-
stöðvum af nýrri gerð, en notuð
hefir verið til þessa, svo ekki
yrði í framtíðinni hætta á, að
samband rofnaði allt í einu milli
landstöðvar og fiugvélar, en það
kemur því miður stundum fyrir
eins og málum er háttað nú.
FULLKOMIN STÖÐ
Hin nýja loftskeytastöð verður
því af allra nýjustu og fullkomn-
ustu gerð. Hún mun senda á mjög
hárri tíðni til þess að merkin frá
stöðinni geti farið um svonefnt
„ion“ loftlag, sem er um það bil
85 km. frá jörðinni. Með þessu
móti á stöðin einnig að vera mjög
langdræg.
STÖÐIN ÞAGNAÐI
ICAO hefir lagt mikla áherzlu
á að gera þessar endurbætur sem
allra fyrst einkum vegna þeirra
ókosta, að hætta er á, að núver-
andi stöðvar verði óvirkar, eða
heyrist ekki, þegar mest á riður.
Sérfræðingar ICAO skýra frá
því, að helmingur allra flugvéla,
sem flugu yfir Norður-Atlants-
hafið í fyrrasumar hafi orðið fyr-
ir þeim óþægindum, að stöðin,
sem þær voru í sambandi við,
þagnaði allt í einu.
Auk' hættunnar, sem af þessu
kynni að stafa, er það þreytandi
fyrir starfsfólk flugþjónustunnar
að verða stöðugt að vera á hættu-
verði sökum þess að loftskeyta-
sambandið rofnar við farþega-
flugvél, sem svo skömmu síðar
tilkynnir „allt í lagi“.
Sóphónías Pétursson.
um er meðal annar: Allt um for-
handardobl, sektardobl og redobl.
— Spurnarsagnir Culbertsons fuil
komlega útskírðar. — Varnar-
sagnir gegn hindrunaropnunum.
— Óvenjulegar grandsagnir. —
Beinar slemmusagnir. — Keðju-
sagnir. — Herberts-reglan full-
komlega útskírð. — Gamii og nýi
„Blackwood“ o. fl. o. fl.
I þriðja kaflanum „Sagnkerfi"
eru útskírð fulkomlega tvö fræg-
ustu sagnkerfi sem nú eru kunn
í heiminum: Enska „Acol“-kerfið
og Ameríska ,,Stayman“-kerfið,
og auk þess er þar samanþjöppun
úr ameríska „Goren“-kerfinu og
franska „Canapé‘-kerfinu.
Nokkrir vinir og velunnarar
Zóphóníasar hafa stuðlað að því
að hjálpa honum að koma bók
þessari ó framfæri, og margir
kunnir bridgemenn hafa hjálpað
til að gera bókina sem bezta.
Óhætt mun að treysta því að bók-
in verður vel úr garði gerð, og
tvímælalaust bezta og fullkomn-
asta bridgebók, sem komið hefur
út hér á landi. Bókin er 350 bls.
Skellinöðru
stolið
mánudag
SIÐASTLIÐINN
12, R-472. Þeir, sem gætu gefið
upplýsingar í þessu sambandi eru
beðnir um að hafa samband við
rannsóknarlögregluna. Tegundin
er NSU.
Ég ímyndaði mér að ísland væri
sakir hnattstöðu sinnar, kalt land
og mér var sagt, að fólkið væri
einnig fremur kalt og fráhrind-
andi. En ég hef komizt að því
að landið er hlýrra en mörg lönd
er sunnar liggja og fólkið hefur
þegar maður kynnist því, hlýtt
hjartalag, þótt það beri það ekki
utan á sér.
----o-----
— Hvernig hefur yður líkað
starfið á íslandi?
— Verkefni okkar í upplýsinga
þjónustunni er að reyna að auka
vináttu og skilning milli þjóða
okkar. Starfsskilyrði skrifstof-
unnar bötnuðu verulega, þennan
tíma, sem ég starfaði hér, er við
fluttum í húsakynnin að Lauga-
vegi 13.
Upplýsingastarfið er fólgið m.
a. í því, að við höfum opið all-
stórt bókasafn, með helztu skáld-
verkum, listabókum, vísindarit-
um og svo bókum til kynningar
á þjóðlífi í Bandaríkjunum ásamt
tímaritum og blöðum. Þá erum
við ætíð reiðubúnir að senda ís-
lenzkum blöðum margháttaðar
upplýsingar um bandarísk mál-
efni. Næst er að telja kvikmynda
safnið, en þaðan hafa ýmis fé-
lagasamtök fengið lánaðar margs
kyns fræðslumyndir.
----o-----
Ég vil taka það fram, segir
Peterson að öll fræðsla og upp-
— Eruð þér ánægðir með starf-
ið hér á landi?
— Mér hefur líkað ágætlega
dvöl mín hér á landi. Eg þykist
finna að skilningur milli þjóða
okkar hefur aukizt. Enginn efi er
á því að þekking Bandaríkja-
manna á íslenzkum málefnum
hefur stórlega aukizt. Og ég
held líka að skilningur íslend-
inga á bandarískum högum hafi
aukizt nokkuð. Eg þykist méga
vona að sú þróun haldi áfram.
T. d. ætti Fulbright-samningur-
inn, sem nýlega var undirritaður
að geta stuðlað að þvi.
Ég held að skilningur íslend-
inga fari vaxandi á því að ýms-
ar hættur steðja að í þessum
heimi og að frjálsar þjóðir þurfa
að standa saman til að geta sigr-
azt á þeim. Við í Bandaríkjunum
skildum þetta ekki heldur fyrir
nokrum árum, héldum að við
gætum verið hlutlausir í heims-
átökum, og kannske er það vegna
hinnar gömlu hlutleysisstefnu
okkar, sem tvær heimsstyrjaldir
brutust út.
Að lokum vildi ég svo biðja
Mbl. að færa hinum mörgu kunn-
ingjum hér á landi beztu kveðj-
ur og þakklæti fyrir ánægjulega
viðkynningu.
Breiðtjald í Hafnar-
fjarðarbíói
HAFNARFIRÐI — Unnið hefir
verið að þvi undanfarið að koma
fyrir svokölluðu breiðtjaldi,
CinemaScope, í Hafnarfjarðar-
bíói og aðrar nauðsynlegar breyt
ingar gerðar á vélum bíósins.
Var í fyrsta skipti sýnt á tjald-
inu sl. laugardag og þá
myndin Sæfarinn, sem er Oscar
verðlaunamynd og gerð er eftir
Fleslir leiluðu uppl.
um flugmál
AKUREYRI, 15. apríl. — Æsku-
lýðsheimili Templara gekkst fyr-
ir starfsfræðsludegi í barnaskól-
anum í gær kl. 2—4. Ólafur Gunn
arsson sálfræðingur skipulagði
störf dagsins með aðstoð stjórnar I hinni frægu sögu Jules Verne.
Æskulýðsheimilisins. | Til þess að koma fyrir hinu stóra
Veittar voru upplýsingar í 62 > sýningartjaldi þurfti að gera
starfsgreinu er 42 menn gáfu.
Alls komu 184 gestir. Flestir leit
uðu upplýsir.ga í eftirtöldum
greinum: Flugmál 60; læknis-
fræði 35; símamál 30; háskóla-
nám í heimspekideild 30; sjávar-
útvegsmál 28; iðnskólanám og
iðnnám 26; vélaverkfræði 25;
loftskeytafræði 22; hagfræði og
viðskiptafræði 21; byggingaverk
fræði 20. í öðrum starfsgreinum
var minna um fyrirspurnir. —
— Job.
að
ýmsar breytingar, en það
er mjög stórt. Einnig hefir verið
sett upp nýtt glæsilegt tjald, sem
dregið er fyrir breiðtjaldið fyrir
og eftir sýningu. Eru allar þess-
ar breytingar hinar ágætustu og
setja fallegan svip á bíóið.
Á annan í páskum verður byrj-
að að sýna ítalska mynd í bíóimi
og verður það jafnframt Norður-
urlanda-frumsýning á henni. —
Aðalhlutverkið er leikið af hinni
frægu Ginu Lollobrigida. —G.E.
Halldór Pétursson hefur nýlega teiknað nokkrar myndir af persón-
skellinöðru stolið frá BarúnJZ UnUm ! hÍnUm SkemmtUe&a ffamanleik „Don Camillo og Peppone“,
sem syndur er í Þjóðleikhúsinu í kvöld í 22. sinn. Meðal þeirra
er þessi, sem hér birtist, og er hún af Róbert Arnfinnssyni og Val
Gíslasyni í aðalhlutverkunum. Hlé verður á sýningum leikhússins
hátíðardagana en á annan páskadag verður „Doktor Knock“ sýnd-
ur í 5. sinn.