Morgunblaðið - 17.04.1957, Side 6
6
MORCVNBLAÐÍÐ
Miðvikudagur 17. april 1957
99
SUugga-Sveinn “ eliur í hrfástr-
ugum ijelíum Æustur-Persíu
ÞAÐ var í lok síðasta mán-
aðar, sem ílokkur persneskra
lögreglumanna kom að flaki
úr tveimur jeppabílum í
Tangeorkeh-eyðimörkinni í
austurhluta Persíu, skammt
frá landamærum Pakistan. —
Þarna höfðu vopnaviðskipti
orðið og var aðkoman Ijót.
Jepparnir tveir voru allir sund-
urskotnir, rúðurnar brotnar og
skotgöt höfðu hleypt lofti úr
hjólbörðunum. Skammt frá und-
ir klettabungum fundust lík
fjögurra manna, — tveggja
persneskra manna og tveggja
hvítra manna, sem reyndust vera
bandarískir þegnar — Brewster
Wilson 35 ára að aldri og Kevin
Carroll 37 ára. En þeir voru báð-
ir starfsmenn bandarísku efna-
hagsaðstoðarinnar, sem sam-
kvæmt 4 P.-áætluninni er að
hefja viðreisn ýmissa héraða
Persíu.
★
BÓFINN DADSHAH — Lögreglu
mennirnir voru ekki í neinum
vafa um, hver hér hefði verið að
verki. Það var hinn illræmdi
sextugi bófi og útlagi Dadshah,
sem leikið hefur lausum hala í
hrjóstrugu hálendi Austur-
Persíu síðan 1947.
Þegar fregnirnar af þessum at-
burði bárust út, fékk umheimur-
inn að vita, að í þessum skörð-
óttu fjöllum var ástandið líkast
því sem tíðkaðist á Sikiley á
uppgangsárum Mafíunnar.
Afbrotasaga Dadshahs hófst
1947. Fram að þeim tíma hafði
hann verið sæmilega heiðvirður
persneskur bóndi. En þá kom
hann að konu sinni í faðmi annars
manns. í bræði sinni drap hann
þau, þusti þvínæst rakleitt heim
að húsi friðilsins og sendi þrjá
af fjölskyldu hans sömu leið.
Eftir það lagðist hann á f jöll
út, safnaði í kringum sig hóp!
annarra álíka dánumanna.
Þeir hafa síðan stundað rán og
þrælasölu. Hafa þeir einkum
rænt konum og selt þær sem
ambáttir út í arabísk skip.
Lögreglan hefur oftsinnis elt
bófaflokkana, en tapað þeim
inn í hálendið sem er mjög
illt yfirferðar.
SKOTFÆRI ÞRAUT. — Þegar
lögreglumennirnir komu á stað-
inn gátu þeir ætlað, hvað hafði
gerzt þar. Hálfum mánuði áður
hafði skollið í bardaga í fjalla-
skarði einu milli bófaflokks
Dadshahs og lögreglunnar, sluppu
bófarnir eins og endranær. Nú
komu ameríkumennirnir akandi
á jeppabílunum tveimur og hugð
ust athuga landshætti fyrir áætl-
anir sínar. Mun bófaforinginn
hafa ætlað að það væru lög-
reglusveitir, því að farartækin
voru hin sömu og lögreglan not-
ar. Munu bófarnir hafa byrjað
skothríð á jeppana úr fjarlægð,
en ferðamennirnir voru einnig
vopnaðir og snerust til varnar.
En skotfæri þeirra þraut og stiga-
mennirnir umkringdu þá og unnu
vægðarlaust á þeim.
En nú kom annað upp úr
kafinu. í jcppanum hafði ver-
ið fimmti farþeginn. Það var
kona, hin 35 ára frú Anita
Carroll, eiginkona annars
hinna föllnu hvítu manna. En
af henni sást hvorki tangur n
tetur þarna á bardagastaðn-
um.
Atburðurinn þótti tíðindum
sæta og þá einkum í Bandaríkj-
vmum og Persíu. Var það for-
dæmt ákaflega að slíkt skyldi
látið viðgangast á miðri tuttug-
ustu öld, að bófaflokkar gætu
gengið um rænandi og myrðandi.
Bandaríska stjórnin sendi Pers-
um harðorða orðsendingu, þar
•eoa hún kvaðst fylgja atburð-
um þessum með áhyggjum. Og
þótt almenningur í Teheran hefði
skellt skollaeyrum við fyrri
fregnum um rán í hinum fjar-
Stjórnarskipfi urðu vegna árásar hans
á friðsamt ferðafólk
læga austurhluta landsins, var
nú sem nokkuð annað gilti, þar
sem útlendir gestir höfðu orðið
fyrir árásinni. En Persar eru
allra manna gestrisnastir og geta
ekki þolað að eitt hár sé skert á
höfði gistivina sinna.
★
HVÍT KONA — Fyrst var að
huga að því, hvað hefði orðið
um Anitu Carroll. Ýmsar sögu-
sagnir komust á kreik um þetta.
Furðumargir kváðust hafa séð
hvíta konu ríðandi á úlfalda í
hópi stigamanna sem fóru fram-
hjá. Mönnum kom því fyrst í
hug, hvort stigamennirnir hefðu
rænt konunni og hefðu í hyggju
að selja hana mansali. Voru
boð send til herskipa á Persa-
flóa að vera á verði meðfram
ströndinni og aðgæta vel sigling-
ar arabískra báta þar.
Sjálfur yfirmaður ríkislögreglu
Persíu, Ali Goltira hershöfðingi,
Nýi persaieski forsætisráðherr-
ann dr. Egbæl.
kom á vettvang og með honum
hópur lögreglumanna. Var þús-
und manna lögreglulið skipulagt
í skyndi út frá borginni Irans-
hahr og víðtæk leit og eltinga-
leikur hafinn. Flugvélar sveim-
uðu yfir hálendinu. Vörpuðu þær
niður flugmiðum, þar sem Dads-
hah bófa var heitið griðum, ef
hann aðeins skilaði konunni heilli
á húfi.
★
BRAGÐ BÓFANS — Það var
ekki nema eðlilegt, að vonir
manna glæddust, þegar héraðs-
stjóranum í Iranshahr barst bréf,
sem sagt var að kæmi frá sjálf-
um bófaforingjanum. í því full-
vissaði Dadshah héraðsstjórann
um, að konan væri á lífi og
örugg. Hún væri í haldi en myndi
skilað, ef lögregluleitinni væri
hætt tafarlaust.
Persar ráðguðust nú um, hvað
gera skyldi. Líklega væri það
ætlun bófanna að halda konunni
sem gísl og því óvarlegt að
kreppa mjög að þeim.
En það kom í ljós að orð-
sendingin var bragð eitt, því
daginn eftir fannst lík Anitu,
í gljúfri einu um þrjá km frá
bardagastaðnum. Hún hafði að
líkindum verið flutt þangað,
en síðan skotin vegna þess að
hún veitti mótspyrnu.
Eftir þetta hélt eltingaleiknum
áfram með enn meiri krafti en
áður. Bófaflokkurinn hafði nú
tvístrazt. Þeir flýðu um fjöllin
fótgangandi og lögreglumenn
eltu þá einnig fótgangandi, því
að landið er mjög erfitt yfirferð-
ar. Á nokkrum stöðum hafði
komið til vopnaviðskipta og sex
bófar voru fallnir síðast þegar
til fréttist, þeirra á meðal mágur
Dadshahs að nafni Ghaderdad,
en álitið er, að hann hafi vegið
konuna.
Fyrir fáeinum dögum voru 15
manns úr bófaflokknum hand-
teknir, karlar og konur, er þau
leituðu til byggða handan landa-
Bandariska fólkið sem stigamannahópurinn felldi,
í miðjunni er Anita Carroll og hægra megin mað-
ar hennar. Vinstra megin er Brewster Wilsen.
mæranna í Pakistan. Foringi
þessa hóps var bróðir Dadshahs.
Hann mun hljóta dóm í Pakistan,
verður líklega hengdur.
Bófaflokkurinn virðist vera
orðínn tvístraður og mun Dads-
hah þykja kreppt að sér, því að
nýlega fannst látin við slóð hans
uppáhaldskona hans. Hafði hún
verið vanfær, en bófinn stytt
henni aldur, þar sem hún tafði
flóttann.
STJÓRNIN FELLUR — Vegna
þessara atburða ákvað forsætis-
ráðherra Persíu, Hussein Ala, að
segja af sér. Mun þar hafa bland-
azt saman að stjórn hans var
gagnrýnd fyrir að hafa ekki fyrr
látið til skarar skríða við slíka
stigamenn og svo hitt, að hann
vildi með þessu gefa persnesku
þjóðinni til kynna, hve alvarlegt
þetta mál væri. Allir yrðu í fram-
tíðinni að leggjast á eitt með að
vinna bug á stigamennskunni.
Nú hefur ný stjóru verið
mynduð í Persíu. Hinn fráfar-
andi forsætisráðherra situr
enn áhrifamikill í henni, en
forsætisráðherra hefur verið
skipaður dr. Manouchehr Egh-
bal, vinsæll maður og vel lát-
inn. Hann er læknir að mennt,
hefur verið rektor Teheran-
háskóla, sérlega vinsæll meðal
stúdenta, og þar áður var hann
héraðsstjóri í Azerbajsan,
nyrsta héraði Persíu, er Rúss-
ar ágirntust um tíma og tókst
honum með atorku að draga
verulega úr áhrifum Rússa í
því héraði. Hann er talinn
framkvæmdasamur og mun nú
líta á það sem fremsta hlut-
verk sitt, að uppræta stiga-
mennsku í hálendi Persíu.
Þ. Th.
Magnús Níelsson — minníng
í DAG verður gamall vinur minn
til moldar borinn, Magnús Níels-
son, sem lengi var kenndur við
Svefneyjar.
Magnús var fæddur 30. septem-
her 1887 í Eyjahreppi í Snæfells-
nessýslu og hefði því orðið sjöt-
ugur í haust, ef honum hefði orðið
lengra lífs auðið. Foreldrar hans
voru þau Níels Ólafsson og Marsi-
bil Katrín Sigurðardóttir, og
dvaldist hann með þeim til 8 ára
aldurs en fór þá til Magnúsar
Jóhannssonar og konu hans í Svefn
eyjum og taldi hann sig lengi síð-
an heimilisfastan þar.
slirifar úr
daglega lifinu
FAÐIR skrifar:
Láta mun nærri að 7—10
þús. Reykjavíkurbörn sæki bíóin
á hverjum sunnudegi, þegar hafð-
ar eru tvær barnasýningar, eða
að flest þeirra fari í bíó annan
hvern sunnudag og sum oftar.
Langur tími
ÞAÐ sem mér finnst aðallega
athugavert við þessar bíó-
ferðir, er hversu langan tíma þær
taka hverju sinni. Til þess að ná
í miða mæta börnin % til 1 klst.
áöur en sala þeirra byrjar kl. 1,
en sýningar byrja kl. 3 og 5. Síð-
an byrjar löng bið þar til sýning
hefst, og sum bíða við bíóið allt
til kl. 5, nema þau sem eiga heima
í nágrenni bíóanna Auk óþæg-
indanna, sem börnin hafa af
þessu, veldur þetta oft vandræð-
um á heimilunum, því að þau
börn sem lengst þurfa að fara,
gefa sér varla tíma til að matast
á venjulegum matmálstíma, áður
en lagt er í hina löngu bíóferð,
sem oft tekur 4 og jafnvel allt að
6 klst.
Til að stytta þessar löngu bíó-
ferðir dettur mér í hug hvort
ekki væri heppilegra fyrir alla
aðila að sala aðgöngumiða, að
hverri barnasýningu, hæfist ekki
fyrr en Vz klst. fyrir sýningu. —
Slíkt væri áreiðanlega tö mikils
hagrseðis fyrir börnin, heimilin
og bíóin sjálf, því með því að
dreifa aðgöngumiðasölunni á
lengri tíma bættu bíóin þjónustu
sína við gestina.
Vonandi byrjar eitthvert bíó-
anna á þessari nýbreytni til
reynslu, kannske hún gefist vel.
Eða hvað finnst bíóeigendum?
í Þjóðleikhúss-
kjallaranurn
Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ var
brá ég mér í Þjóðleikhúsið.
Leiksýningin var óvenjustutt
þetta kvöld, henni lauk kl. 10.45.
Ég ákvað þess vegna að fá mér
kvöldkaffi í hinum vistlega veit-
ingastað í kjallara hússins. Ég vil
strax taka það fram, að þennan
dag hafði ég hringt á umræddan
veitingastað og spurzt fyrir um,
hvort opið væri um kvöldið. —
Svarið var já, það væri opið til
kl. 11,30, en hljómlist yrði þar
ekki.
Fámennt var í salnum, þegar
inn var komið, en þó setið a.m.k.
við þrjú borð. Ég pantaði kaffi
hjá þjóninum. Hann hvarf til
eldhúss, en kom að vörmu spori
aftur með þá tilkynningu, að
kaffi væri ekki hægt að fá. „Nú —
hvers vegna?“ spurði ég. „Húsið
er lokað“, sagði hann.
Það fer hins vegar ekki milli
mála, að veitingasalirnir voru
opnir á þessari umræddu stundu,
þar sem:
1. Upplýst hafði verið í símtali
fyrr um daginn, að salirnir væru
opnir til kl. 11.30.
2. Tekið var á móti yfirhöfnum
í fatageymslu gegn gjaldi.
3. Þjónninn kom að borðinu og
spurði, hvers ég óskaði.
4. Vínbarinn opinn og þar allir
drykkir til reiðu með allt upp í
50—60% áfengisinnihaldi. Það
spurðist ég fyrir um.
Yfirleitt góð þjónnsta
EG pantaði ekki vín hjá þjónin-
um á borðið, en mér er næst
að halda, að ekki hefði staðið á
því, ef ég hefði farið fram á það,
því um annað hefur ekki verið
að ræða, þegar þjónninn spurði,
hvað um væri beðið. Ég vildi því
segja, að veitingastaður þessi,
hafi boðið gesti sínum lélega
þjónustu, svo ekki sé meira sagt.
Mér hefur ætíð fallið vel við
Þjóðleikhússkjallarann sem veit-
ingastað af því að rekstur Þor-
valdar Guðmundssonar veitinga-
manns hefur að mínum dómi ver-
ið til fyrirmyndar. En sé þessi
ráðstöfun, sem að ofan greinir,
undan hans rifjum runnin er
mér illa brugðið. Mér er nær að
halda, að hann hafi ekki verið
viðstaddur, og þannig vilji hann
ekki, að komið sé fram við við-
skiptavini Leikhússkjallarans. —
1 Háskólastúdent.
Ungur að árum fór hann að
stunda sjó, og þá auðvitað fyrst
á opnum bátum undan Jökli og
víðar. Um tvítugsaldur fór hann
í Flensborgarskóiann og lauk
prófi 1912. Síðan hóf hann verzl-
unarnám í Verzlunarskólanum og
í Kaupmannahöfn, en þótt hann
stundaði verzlunarstörf um skeið,
líkaði honum ekki sá starfi, svo
að hann sneri sér aftur að sjó-
mennskunni og hélt hann því á-
fram meðan heilsan leyfði. Magn-
ús var sjómaður og fiskimaður
með afbrigðum svo að um það
mátti segja, að „betri þóttu hand-
tök hans, heldur en nokkurs ann-
ars manns“.
En fyrir það, hvað hann lagði
oft hart að sér sakir kapps og
dugnaðar fékk hann liðagigt og
ýmsa fylgikvilla. Hjartað bilaði
og um skeið leit helzt út fyrir,
að hann mundi ekki kemba hær-
urnar. Magnús náði sér furðan-
lega aftur en varð nú að gefa
sjómennskuna upp á bátinn. Hins
vegar vann hann ýmiss konar létt-
ari störf, og það mun hafa verið
árið 1937, að fundum okkar Magn-
úsar bar fyrst saman. Magmús
hafði mikinn áhuga á gróðri
og skógrækt og varð það til þess
að hann leitaði á minn fund. Vildi
þá svo vel til, að hann gat bráð-
lega fengið ýmis störf við istt
hæfi, og upi frá því snerust
öll störf hans um gróðursetningu
og hirðingu trjáplantna. Natni
hans og trúmennska f hirðingu
plantna var mikil.
Magnús Níelsson var á ýmsan
hátt sérkennilegur maður. Hann
var tryggðatröll og vinur vina
sinna. Hann var góðum gáfum
gæddur, fróðleiksfús og ágætur
spilamaður. Magnús var hár mað-
ur og þrekinn, sterklegur og bar
sig vel, fremur stórskorinn, en
ekki ófríður.
Magnús Níelsson kvæntist aldrei,
og er á leið ævina varð hann ein-
stæðingur, eins og gengur um
slíka menn. En um mörg ár vann
hann í trjáræktarstöð Hermanns
Jónassonar ráðh. og fluttist hann
í hús hans og frú Vigdísar. Þar
átti hann góða ævi, og f veikind-
um hin síðustu tvö ár naut hann
góðrar aðhlynningar þeirra hjóna,
Magnús andaðist úr hjartabil-
un hinn 10. þessa mánaðar.
Hákon Bjarnason,