Morgunblaðið - 17.04.1957, Síða 9
Miðvíkuclagur 17- aprfl 1957
MORCUNfíT 4ÐIÐ
vandamal síns
>
, • v ■ ’
enn stendur og hefir á sínum
tíma verið veglegt og vandað
guðshús. Áður áttu Sauðárkróks
búar kirkjusókn að Sjávarborg.
Með hifmi nýju kirkju eru sam-
einaðar Sjávarborgarsókn og
Fagranesssókn en kirkjurnar
þar lagðar niður.
FÉLAGSSKAPUR DAFNAR
Fljótt tekur alls konar félags-
skapur að dafna. Árið 1886 er
stofnaður sparisjóður, sem í dag
er orðinn sterk stofnun. 1888 er
stofnað leikfélag, sem mun vera
elsta leikfélag landsins. Kaupfé-
lag er stofnað 1889, kvenfélag
1896, stúka 1897. Landsímastöð
er opnuð 1906, og sama árið tók
sjúkrahús það, sem enn er rekið
til starfa og árið 1907 er stofnað
ungmennáfélag. Fyrsta bryggja,
sem skip gátu legið við er byggð
1913. Hafnarlög fyrir staðinn
eru samþykkt 1931 og núverandi
höfn byggð á árunum 1937—’39.
Kaupstaðarréttindi fær svo Sáuð-
árkrókur árið 1947. Er því 10
ára nú sem kaupstaður og á því
þar þriðja merkisafmælið á þessu
ári.
Elsta húsið, sem enn stendur
á Sauðárkróki mun vera svo-
nefnt Ellindarhús og var það
byggt skömmu eftir 1872 af
fyrsta kaupmanninum, sem hér
Gislason, sem allir voru dugandi
áhrifamenn í verzlunarstétt, en
Valgarð og Popparnir báðir voru
miklir forystumenn í félagsmál-
um.
ÝMSIR FORYSXUMENN
Fyrsti skólastjóri hér er Lárus
Tómasson, síðan Einar Stefáns-
son og þá séra Árni Björnsson,
síðar prófastur í Görðum. Var
séra Árni mikill afskiptamaður
um félagsmál og lengi oddviti.
Jón Þ. Björnsson tekur svo bæði
við skólastjóra- og oddvitastöð-
unni af séra Árna. Skólastjóri er
Jón frá 1908 til 1952, en að sveit-
arstjórnarmálum vinnur hann
frá 1913 til 1934.
Fyrsti sýslumaður búsettur á
staðnum er Jóhannes Ólafsson,
sem hingað fluttist framan frá
Gili 1890. Fyrsti héraðslæknir
var Árni Jónsson, um 1880 er
héðan fluttist að Glæsibæ. En
fyrsti læknirinn, sem hér settist
að var Guðmundur Magnússon
síðar prófessor, hingað kominn
1892. Læknissetur er hér fyrir-
skipað árið 1907.
Fólk lifði hér aðallega á verzl-
un, útgerð og síðar gripahaldi,
sauðfé og kúm. Flestar verða kýr
hér 1934 þá 130 talsins, en síðan
hefir þeim farið fækkandi, en fé
fjölgað.
Þessi mynd er frá því um 1905. Sýnir hún markað á Sauðárkróki. Bændurnir verzla með kýr mg
hesta og káupa timbur. Prúðbúið fólkið gengur um og sýnir sig og sér aðra.
íbúar á Sauðárkróki eru skv.
síðasta manntali 1074. Fólksfjölg-
un hefír ekki verið mikil að und-
anförnu, en fólkinu hefir ekki
Flugvöllurinn á Sauðárkróki, mikil og góð samgöngubót. Brautin er með hinum lengstu hér á
landi og þar geta millilandaflugvélar auðveldlega lent.
settist að og sem áður er getið.
Hér á Sauðárkróki hefir alltaf
verið rekin nokkur útgerð, lengi
framanaf á smábátum og um alda
mót var malarkamburinn mor-
andi af slíkum farkostum.
FRAMSÝNIR OG DUGANDI
MENN
Sauðárkrókur átti á bernskuár-
um sínum framsýna og dugandi
menn. Hinir dönsku kaupmenn,
sem hér settust að voru mennt-
aðir athafnamenn. Stóðu þeir
ásamt mörgum gegnum íslend-
ingum í fylkingarbrjósti á sviði
menningar og veraldlegra fram-
fara. Þessir menn voru búnir
listrænum hæfileikum og stað-
urinn býr enn að kynnum þeirra
af heimsmenningunni.
Fyrstan þessara marpia má
telja gamla Popp, eins og
hann var oftast nefndur, Lúðvík
Popp hét hann fullu nafni. Hann
stóð m.a. fyrir kirkjubygging-
unni, sem ber merki framsýni
hans og listrænnar gáfu. Þá má
nefna Stefán Jónsson faktor hjá
Gránufélaginu, Valgarð Claessen,
síðar Kristján Popp og Kristján
Um fjölda búenda hér á hin-
um ýmsu tímum segir Jón mér
svo frá.
Árið 1870 er hér enginn íbúi,
1880 eru 60 íbúar, 1890 192 íbúar,
1900 eru 487 íbúar og árið 1913
eru þeir orðnir 533 ,eða um það
bil helmingur þess fjölda er nú
byggir staðinn.
RÆXX VIÐ BÆJARSXJÓRANN
UM DÆGURMÁLIN
Við Jón Þ. Björnsson slítum
þessu spjalli, sem aðeins getur
sýnt skyndimyndir í stuttri blaða
grein. Ég kveð hann og þakka
ánægjulega stund og held á fund
BjÖrgvins Bjarnasonar bæjar-
stjóra til þess að rabba við hann
stutta stund um hag Sauðárkróks
í dag og framtíðarvonir þess
fólks sera hann byggir.
Björgvin Bjarnason er enn
maður ungur að árum, rúmlega
fertugur. Hann hefir verið bæjar-
stjóri á Sauðárkróki frá því bær-
inn fékk kaupstaðarréttindi eða
I sl. 10 ár. Hann er því manna
kunnugastur högum og háttum
staðarins eins og þeir gerast í
dag.
Þetta er höfnin á Sauðárkróki og mannvirkin er
að henni liggja, tvö frystihus og tvær beina-
mjölsverksmiðjur. Á þessum mannvirkjum
byggja íbúarnir hvað mest framtið sína á sviði
atvinnumálanna. Snáðinn t.v. er maður framtíð-
arinnar á Sauðárkróki — hngsar þungt um
fækkað á síðustu árum, heldur
fjöldinn hajdist nokkuð eðlilega
í horfinu. Fólkinu þykir vænt um
staðinn. Það unir þar vel hag
sínum og lífskjör almennings má
yfirleitt telja góð. íbúabygging-
ar hafa verið miklar á síðustu
árum og enn eru mörg hús í
smíðum. Árið 1952 var svo kom-
ið að útrýmt hafði verið öllum
heilsuspillandi íbúðum, þ. e. a. s.
þeir sem í slíku húsnæði höfðu
búið til þess tíma, áttu þess allir
kost að fá betri vistarverur.
AXVINNUMÁLIN
EINI VANDINN
Atvinnumál Sauðárkróksbúa
eru þeirra höfuð vandamál.
Kaupstaðarbúar eiga % í togar-
anum Norðlendingi, ásamt Hús-
víkingum og Ólafsfirðingum. Hef
ir hann verið staðnum allmikil
lyftistöng, því marga fiskfarma
hefir hann flutt á land hér. Tvö
frystihús eru hér á Sauðárkróki
og tvær beinamjölsverkverk-
smiðjur sem eru í eigu frysti-
húsanna. Hraðfrystihús þessi eru
í eigu tveggja félaga, Hraðfrysti-
stöðvarinnar h.f. og Kaupfélags-
ins. Er hið síðarnefnda rekið af
félaginu Fiskiðjan h.f., sem er
eign bæjarins og kaupfélagsins.
Síðastliðið ár gekk starfræksla
þessara fyrirtækja allvel og má
þá telja að atvinnuástandið í
kaupstaðnum hafi verið gott. En
síðan í ágúst sl. hefir íshús Hrað-
frystistöðvarinnar ekki verið
starfrækt. Þetta er staðnum mjög
bagalegt vegna þess að ekki er
hægt að taka á móti heilum tog-}
araförmum af fiski nema bæði
frystihúsin séu í gangi. En eins
og kunnugt er er illmögulegt að
fá togarafyrirtæki til þess að láta
skip sín landa aðeins hluta af
farminum á hverjum stað.
Um 20—30 trillubátar eru gerð-
ir út frá Króknum og 2 dekkbát-
ar. Veita þeir ekki mikla at-
vinnu öðrum en þeim, sem með
þá eru.
HÖFNIN ÞARF ÚRBÓTA
Höfnin hefir lengi verið vanda
mál Sauðárkróksbúa. í fyrra-
sumar var hún grafin upp og geta
nú allir togarar lagst að hafnar-
garðinum svo til hvenær sem er,
ennfremur minni skip, svo sem
fellin og minni fossarnir. Fram-
undan er stórátak sem sé að
koma höfninni í gott horf, svo
að öll skip geti lagst þar við
bryggju. Það er að sönnu mjög
ekki verið starfrækt, en það er
lífsskilyrði staðarins að öll at-
vinnutæki hans séu rekin.
Að öðru leyti vinna Sauðár-
króksbúar aðallega að verzlun,
og handverki alls könar. Tré-
smíðaverkstæði eru þar góð og
þess dæmi að þaðan séu seld
t. d. húsgögn til Reykjavík-
ur. Bíla- og vélaverkstæði eru
stór. Kvikfjárrækt er mikil. Hér
eiga menn um 2000 fjár. Hins
vegar fer kúm fækkandi og eru
þær nú ekki nema um 50 talsins.
Á Sauðárkróki er bæði hita-
veita og nægilegt rafmagn. Stað-
urinn þyrfti að geta eflt ein-
hvers konar iðnað, þannig að at-
vinnuástandið gæti verið örugg-
ara en það er nú. Gönguskarðs-
árvirkjun var tekin í notkun 1950
og er rafmagn allt lagt í jörðu,
en sjálf rafstöðin stendur inni í
bænum. Er í þessu fólgið mikið
öryggi, þegar veður eru ótrygg
á vetrum. Sími liggur einnig all-
ur í jörðu.
Allstórt Mjólkurbú er á Sauð-
árkróki og mjólkuriðnaður tals-
verður. Munu menn þekkja Sauð
i árkróksostana að góðu.
Hér sést hin nýlega rafstöð. Hún stendur inni í sjálfum bænon
og þarf því ekki að óttast bilanir á háspennuleiðslum. Kafmagn&-
leiðslur eru allar lagðar í jörðu.
óhagkvæmt að þurfa að skipa
þaðan út og í land úr uppskipun-
arbátum, en slíkt er nauðsynlegt
þegar stærri skip eru þar til
afgreiðslu.
Um þessar mundir er verið að
leysa úr vandamálum þess frysti
hússins, sem að undanförnu hefir
NÝTT SJÚKRAHÚS
Hafin er smíði nýs sjúkráhúss,
en eins og fyrr segir. í þessari
grein var gamla sjúkrahúsið
reist 1906. Er það því orðinn hinn
argasti hjallur og vart vansa-
Framh. á bls. 15.