Morgunblaðið - 24.05.1957, Side 2
s
MORGVNBLAÐIÐ
Fostudagur 24. maí 1957
Bílarnir eftir árekslurinn.
(Ljósna.: Mbl.)
Ók inn a aðalbrauf og
stórskemmdi lífinn bíl
MJÖG HARÐUR bílaárekstur
varð í gær á Hringbrautinni.
Roskinn maður kom akandi á gljá
fægðum Volkswagen, R-7629 eftir
Hringbrautinni, en er hann kom
á gatnamót Njarðargötu og
Hringbrautar kom leigubíllinn
R-7501 eftir Njarðargötunni á
fleygiferð og ók viðstöðulítið inn
á Hringbrautina, sem er aðal-
braut. Varð þarna mjög harður
árekstur. Leigubíllinn velti litla
bílnum á hliðina, um leið og
hann lagði inn vinstri hliðina,
einkum hurðina við stýri bílsins.
— Leigubílstjórinn var fljótur
að hlaupa út úr bíl sínum mann-
inum á VW-bílnum til hjálpar,
en hann hafði sloppið ómeiddur.
Litli bíllinn hafði snúizt við, við
áreksturinn. Þeir sem fyrstir
komu að réttu litla bílinn strax
við. Meðan á þessu gekk, hafði
leigubíllinn sem bílstjórinn stökk
út úr í skyndi þegar eftir árekst-
urinn, runnið af stað afturábak
og lent út í skurð við Njarðar-
götuna. Hann hafði ekki orðið íyr
ir neinum teljandi skemmdum.
Það mim kosta stórfé að gera
VW-bílinn jafngóðan.
Rannsóknarlögreglan hefur
Brezkur íslands-
vinur fimmtugur
HINN KUNNI brezki fræðimað-
lir og íslandsvinur Gwyn Jones,
prófessor í Wales, er fimmtugur
í dag. Prófessorinn hefur kom-
ið oft hingað og flutt hér fyrir-
lestra við Háskóla íslands og í
félagi enskumælandi manna
Anglia. Prófessorinn hefur þýtt
allmargar íslendingasögur á
ensku og er auk þess kunnur rit-
höfundur í heimalandi sínu.
Hingað kom prófessor Gwyn
Jones fyrst árið 1948 á vegum
félagsins Anglia, en síðan hefur
hann komið hingað fimm eða sex
sinnum og hefur hann eignazt
hér fjölda vina og kunningja,
enda er prófessor Gwyn Jones
skemmtilegur og fróður maður.
Er ekki að efa að vinir hans
hér munu minnast hans á
þessum merkisdegi.
beðið Mbl. að lýsa eftir sjónar-
vottum að árekstri þessum en
hann varð um nónbil í gær.
Canberra-flugvél í Keflavík
Reynir að selja heimsmet
★ snemma í gærmorgun Bilaði yiir Alaska oq snéri fil Fairbanks
kom við á Keflavíkurflugvelli
ensk flugvéi af gerðinni Can-
berra. Flugvélin hafði eins
stutta viðkomu og mögulegt
var, enda var ætlunin að setja
nýtt met í flugi kringum hnött
inn. Til Keflavíkur var flug-
vélin fimm mínútum á eftir á-
ætiun.
ic Canberra-flugvél þessari
stjórnaði flugstjóri að nafni
Hopkinson. Frá Lundúnum
lagði hann af stað kl. 7,10 og
áætlaði að vera kominn til
Keflavíkur eftir 2 klst og 15
mínútur, en varð 5 mínútum
lengur og ienti kl. 9,30.
•k Á Keflavíkurflugvelli tók
flugvélin benzín og var reynt
að flýta sem mest fyrir af-
greiðslunni. Flugvélin kom
ekki heim að flugafgreiðsi-
unni, heldur beið úti á flug-
Canberra-flugvélin fer á loft. Hún er búin varabenzingeymum á
vængbroddum til að auka flugþolið.
braut. Ekki höfðu flugmenn-
irnir sem voru þrir að tölu
heldur fyrir því að matast.
Áhorfendapallar byggðir
Skeiðvellinum
á
Brautin mjog breikkuð
UNNIÐ er nú að því af kappi miklu að stækka og endurbæta
gagngert Skeiðvöllinn við Elliðaár. Eru það félagar úr hesta-
mannafélaginu Fák sem þetta starf vinna og er það allt sjálfboða-
liðavinna. Verða reistir þarna áhorfendapallar fyrir á annað þús-
und manns og völlurinn sjálfur breikkaður mjög mikið.
Brýna nauðsyn ber til þess að
gera þessar framkvæmdir inn á
Skeiðvelli sökum þess að óhag-
stætt var fyrir áhorfendur að
fylgjast meðkappreiðunum.Stóðu
Hundur bjargar lambi
frá drukknun
ÞAÐ bar til fyrir viku, að hund- &
ur bjargaði lambi frá drukknun.
Er slíkur atburður mjög fágætur
en sýnir hve mikið vit hundar
hafa. Atvik voru þau að tveir
fjárbændur, bóndinn í Nesi, Að-
alsteinn Þorgeirsson og Sigurður
Hallbjörnsson voru að flytja fé út
í Þerney. Fluttu þeir það á vélbát
og var með í förinni íslenzkur
fjárhundur Sigurðar.
Er alllangt var komið frá landi
féll eitt lambið útbyrðis. Urðu
mennirnir ekki við það varir fyrr
en þeir sáu að skyndilega steypti
hundurinn sér í sjóinn. Synti
hann til lambsins og svamlaði í
kring um það í sífellu og flæmdi
það þannig í áttina til bátsins.
Var síðan lambinu bjargað um
borð og hundinum emnig. Þykir
þetta verk hundsins bera vott um
mikla og einstaka skynsemi hans
vegna þess að hann átti frum-
kvæðið um að bjarga lambinu,
stökk ótilkvaddur í sjóinn, en
ella þykir einsýnt að lambið hefði
drukknað.
Heimsókn-
um lokió
KAUPMANNAHÖFN, 23. maí. —
Hinni opinberu heimsókn Júlíönu
Hollandsdrottningar og Bern-
hards prins í Svíþjóð lauk í dag.
Þá lauk einnig í dag hinni opin-
beru heimsókn Elísabetar Eng-
landsdrottningar og Filipps prins
í Danmörku. — Þau fara samt
ekki heim fyrr en á laugardag
næstkomandi. Þangað til verða
þau gestir dönsku konungshjón-
anna. — NTB.
,Allra veðra von‘
Smásögur eftir
Jóhannes Helga
þeir við girðinguna en engir á-
horfendapallar hafa til þessa ver-
ið á vellinum. Verða þeir nú reist
ir úr timbri og þannig að áhorf-
endur eiga að geta fylgzt með öll-
um sprettinurn frá þeim.
LOKIÐ UM HVÍTASUNNU
í ráði er að þessum fram-
kvæmdum verði lokið um hvíta-
sunnu, en þá fara fram veðreiðar
á vellinum að venju. Þá er verið
að byggja nýjan dómaraturn á
vellinum. Við þessar góðu fram-
kvæmdir batnar mjög aðstaða
þeirra, sem á kappreiðar horfa
hér í bænum og sjálfur völlurinn
til veðreiðanna.
Eftir 26 minútna dvöl á vell-
inum iagði hún aftur af staS
og stefndi nú þveit yfir Græn-
landsjökul til Fairbanks í
Alaska. Þangað ætlaði hún að
fljúga í 3000 feta hæð og áætl-
aði flugtímann 6 klst. og 23
mínútur.
Á Seinni fréttir í gærkvöldl
hermdu að Canberra-flugvélin
hefði orðið einni mínútu 4
eftir áætlun til Fairbanks. Á-
ætlað var að koma þangað kL
16,18, en varð kl. 16,19. Flug-
vélin dvaldist aðeins i hálfa
klst. í Fairbanks og hélt síð-
an tafarlaust áleiðis til
Tokíó. En er hún hafði flogið
í um 20 mínútur varð smá-
vegis vélarbilun hjá henni,
svo að Hopkinson flugstjórl
taldi rétt að snúa aftur til
Fairbanks og lenti þar kL
18,30. Var þegar hafizt handa
um að gera við biiunina, en
hætt er við, að vegna hennar,
verði örðugt að hnekkja gamls
metinu.
FLATEYRI, 22. mai. — Undan-
farið hefur verið hér norð-aust-
anátt og kuldi. Hefur gróðri lít.
ið farið fram og erfiðleikar hafa
verið hjá bætidum sökum kulda
nú um sauðburðinn.
Menn eru nú óðum að byggja
að nýju garða sína og önnur
mannvirki sem skemmdust í stór
flóðinu hér í janúar sl. — B.S.
í DAG kemur út hjá Setbergi
fyrsta bók eftir ungan höfund,
Jóhannes Helga, er nefnist „Allra
veðra von“.
Eru þetta smásögur sex að tölu.
Nefnast þær: Stormur, Blóð í
morgunsárinu, Róa sjómenn,
Nikolja, Svarti sauðurinn og Hlið
himinsins. Einnig skrifar höf-
undur formála að bókinni.
Jón Engilberts listmálari hefir
myndskreytt sögurnar, en bókin
er tileinkuð minningu Helgu
Vigfúsdóttur og Jóhannesar Jóns
sonar, trésmiðs.
FÆREYINCAR SENDA LAND-
HELGISNEFND TIL BRETLANDS
Þórshöfn, Færeyjum.
Á ÐUR en Lögþing Færeyinga lauk störfum í vor, samþykkti það
11 að láta kjósa nefnd til að takast á hendur samningaumleitanir
við brezk stjórnarvöld, í þeim tilgangi að fá breytt gildandi ákvæð-
um um landhelgi við Færeyjar, eftir að Englendingar hafa raun-
verulega viðurkennt 4ra mílna landhelgina, sem íslendingar settu.
Var landsstjórninni ætlað að velja nefndarmenn, sem eiga að vera
þrír fulltrúar úr félagssamtökum atvinnuveganna og einn úr lands-
stjórninni.
FJÖGURRA MANNA NEFND
Landsstjórnin hefur nú valið í
nefndina, og eru nefndarmenn
fjórir.
Fulltrúi Lögþingsins verður
Jóhann Djurhuus, skrifstofu-
stjóri þingsins.
Nefndin mun fara frá Tórs-
havn seinna í þessum mánuði,
setur hún sig í samband við ut-
anríkisráðuneytið í Kaupmanna-
höfn, til þess að hafa samréð við
það um væntanlegan samning við
hlutaðeigandi brezk stjórnarvöld.
AKRANESI, 23. maí: — Mokafli
var hjá netjabátunum hér í
dag. 10 bátar fengu alls um 1000
tunnur síldar. Aflahæstir voru
Höfrungur með 200 tunnur, Ver,
Fylkir og Sveinn Guðmundsson,
hver með 150 tunnur og Svanur
með 115 tunnur. Fjórir snéru
aftur vegna stormsins en lögðu
þar sem þeir voru staddir er
Jyngdi, en fengu litla síld.
Sjö til átta trillubátar réru
héðan í gær. Tveir voru með hand
færi, Sigursæll, sem fékk tvær
lestir og Happsæll, er fékk eina
lest. Hinir fóru með línu og
fiskuðu 6—800 kg. — Oddur.
GJÖGRI, Ströndum, 23. maí. —-
Lítil grásleppuveiði hefur verið
á Gjögri í vor. Eru sjómenn vel
búnir að fiska fyrir útgerðar-
kostnaði. Rauðmagaveiði er vel
í meðallagi. Það gleður sjómena
mikið hér í hrepp, að þeir eru
imdanfarna daga að fá greidda
uppbót á grásleppuhrogn frá
Kaupfélagi Strandamanna frá ár-
unum 1955 og 1956, er það 1.70
á hvem lítra. Geta má þes»
að kaupfélagið greiðir 2 kr. á
hvern lítra við móttöku.
Rauðmagi hefur mikið lækkað
í verði hjá SÍS á síðastliðnu ári.
— Regína.