Morgunblaðið - 24.05.1957, Qupperneq 4
4
MÓRCUJVBLAÐI9
FBstudagur 24. maí 195?
í dag er 144. dagur ársins.
Föstudagur 24. maí.
Árdegisflæði kl. 2,33.
Síðdegisflæði kl. 15,07.
Slysavarðstofa Reykjavíkur í
leilsuvemdarstöðinni er opin all-
tn sólarhringinn. Læknavörður L.
X (fyrir vitjanir) er á ama stað
rá kl. 18—8. Sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
ðunni, sími 7911. — Ennfremur
:ru Holts-apótek, Apótek Austur-
bæjar og Vesturbæjar-apótek op-
in daglega til kl. 8, nema á laug-
ardögum til kl. 4. Þrjú síðasttal-
in apótek eru öll opin á sunnudög-
tm milli kl. 1 og 4.
Garðs-apótek, Hólmgarði 34, er
■pið daglega kl. 9—20 nema á
augardögum 9—16 og á sunnudög
im 13—16. Sími 82006.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi
9, er opið daglega kl. 9—19 nema
i laugard. kl. 9—16 og á sunnu-
lögum 13—16. Sími 4759.
Hafnarf jarðar-apótek er opið
-dla virka daga kl. 9—21. Laug-
irdaga kl. 9—16 og 19—21. Helga
’aga kl. 13—16 og 19—21.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga frá kl. 9—19, laugar-
daga frá kl. 9—16 og helga daga
frá kl. 13—16.
Hafnarfjörður: — Næturlæknir
ar Sigursteinn Guðmundsson Sími
''745.
Akureyri: — Næturvörður er í
Stjörnu-apóteki, síimi 1718. Nætur
læknir er Erlendur Konráðsson.
Brúókaup
í dag verða gefin saman í hjóna
band af séra Jóni M. Guðjónssyni,
Akranesi, ungfrú Gígja Gunn-
laugsdóttir, kennari frá Siglufirði
og B.iörn H. Björnsson, skipstjóri,
Skagabraut 40, Akranesi.
1 dag verða gefin saman í hjóna
band af séra Árelíusi Níelssyni,
ungfrú Arnheiður Eggertsdóttir,
Samtúni 22 og Ingimundur Jóns-
son frá Húsavík. Bæði voru að
ljúka kennaraprófi.
Jakobína Hermannsdóttir og
Helgi Elíasson. Heimili brúðhjón-
\nna er að Ásvallagötu 51.
Ungfrú Sigrún Hjördís Eiríks-
dóttir, Grjótagötu 4, Rvík og
Gunnar Haraldsson, sjómaður,
Flókagötu 55, Rvík. Heimili ungu
hjónanna verður að Hlíðar-
hvammi 2, Kópavogi.
Afmæli
í dag er Jón Helgason, prent-
imiðjustjóri áttræður. — Jón er
flestum Reykvíkingum að góðu
kunnur. Hann stofnaði og rak
prentsmiðju, sem við hann er
kennd, um langt árabil, en nú
FERDIiMAND
Undanfarið hefur staðið yfir dýpkun Patreksfjarðarhafnar. Hefur
dýpkunarskipið Grettir unnið verkið. — Fyrir nokkrum árum
var ráðizt í þá framkvæmd, að gera vatn sem var á Vatnseyrarodd-
anum að höfn, þannig að grafinn var skurður úr því fram i sjóinn.
Höfnin reyndist fullþröng í upphafi, og hefir síðan verið unnið
að því á hverju ári að dýpka hana og stækka, þannig að stóru
strandferðaskipin geti komizt inn í hana án nokkurrar áhættu og
snúið sér í henni — Myndin sýnir Gretti við uppmokstur í höfn-
og pramma þá er flytja botnleðjuna út á fjörðinn.
(Ljósm.: Guðm. Ág.)
hafa synir hans tekið við henni.
Hann hóf útgáfu á tveimur vin-
sælum tímaritum fyrir börn og
ritstýrði þeim í mörg ár. Heimil-
isblaðið stofnaði hann 1912 og
Ljósberann 1921. Koma þau bæði
út enn. Jón Helgason hefur látið
sig bókaútgáfu miklu máli skipta.
Hann var einn -f stofnendum og
aðalhvatamönnum Kristilegs bók-
menntafélags; hann hefur gefið
út fjöldann allan af kristilegum
bókum sjálfur. Jón hefur tekið
virkan þátt í bindindishreyfing-
unni og var einn af stofnendum
UMFÍ, en mestar tíma hefir hann
helgað margvíslegu kristilegu
starfi, bæði í KFUM og kristni-
boðshreyfingunni. Jón fór austur
að Eyrarbakka í gær og mun þar
eiga kyrrláta daga á þessum
merku tímamótum í lífi sínu.
Skipin
Eimskipafélag íslands h.f.: —
Brúarfoss er í Reykjavík. Detti-
foss fór frá Hamborg 22. þ. m.,
til Reykjavíkur. Fjallfoss er í
Rotterdam. GoÖafoss fer væntan-
lega frá Reykjavík í kvöld til New
York. Gullfoss er í Kaupmanna-
höfn. Lagarfoss fór frá Reykja-
vík 20. þ.m. til Hamborgar, Bre-
men, Leningrad og Hamborgar.
Reykjafoss fer frá Vestmannaeyj-
um í dag til Lysekil, Gautaborgar
og Hamina. Tröllafoss fór frá
Siglufirði í gærkveldi til Sands,
Ólafsvíkur og Reykjavíkur. Tungu
foss væntanlegur til Reykjavíkur
á hádegi í dag. Drangajökull er í
Reykjavík.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er í
Reykjavik. Esja fór frá Reykja-
vík í gærkveldi vestur um land í
hringferð. Herðubreið fer frá
Reykjavík í dag austur um land til
Þórshafnar. Skjaldbreið fer frá
Reykjavík kl. 17 í dag til Snæfells
nesshafna og Flateyjar. Þyrill er
á leið frá Noregi til Hamborgar.
Flugvélar*
Flugí’élag Islands h.f.: — Milli-
landaflug: Gullfaxi fer til Glas-
gow og Kaupmannahafnar kl.
08,30 í dag. Flugvélin er væntan-
leg aftur til Reykjavíkur kl.
22,50 á morgun. Sólfaxi fer til
Kaupmannahafnar og Hamborgar
kl. 08,30 í fyrramálið. — Innan-
landsflug: 1 dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Egilsstaða, ^agurhólsmýrar, Flat
eyrar, Hólmavíkur, Hornaf jarðar,
ísafj arðar, Kirkjubæj arklausturs,
Vestmannaeyja (2 ferðir) og þing
eyrar. — Á morgun er áætlað að
fljúga til Akureyrar (3 ferðir),
Blönduóss, Egilsstaða, Isafjarðar,
Sauðárkróks, Vestmannaeyja (2
ferðir), Þórshafnar og Skóga-
sands.
LoftleiSir h.f.: — Leiguflugvél
Loftleiða er væntanleg kl. 08,15
árdegis í dag frá New York. Flug
vélin heldur áfram kl. 09,45 áleið-
is til Osló og Stafangurs. — Edda
er væntanleg í kvöld kl. 19,00 frá
Hamborg, Kaupmannahöfn og
Gautaborg, heldur áfram kl. 20,30
áleiðis til New York. Hekla er
væntanleg kl. 08,15 árdegis á
morgun frá New York, heldur á-
fram kl. 09,45 áleiðis til Glasgow
og Luxemburg.
greiðsla sótt til þeirra er þeé»
óska. — Afgreiðsla happdrættis-
ins í Sjálfstæðishúsinu er opin til
kl. 6 daglega, sími 7100.
Kvennaskólinn í Kcyk javík: —
Skólanum verður slitið á morgun
(laugardag), kl. 2. e.h.
KVEÐIZT Á
A. sagði:
Finnst mér vera af flestu sneitt
fornar dygðir víkja,
á nú stjórnin ekki neitt
eftir til að svíkja?
B. svaraði:
Á því verðui ekkert hik,
eitthvað þó að lcyrri,
alltaf koma önnur svik
ofan á þéssi fyrri.
Hver vill taka „fóstnrbarn“. —
Kópurinn litli á Húsavík, sem
tekinn var með „keisaraskurði"
fyrir nokkrum dögum, er frem-
ur einmana og aðhlynningarlítill,
þar sem eigandi hans stundar
sjóróðra og er lítið í landi. Blaðið
hefur nú verið beðið að koma
því á framfæri, hvort einhver
hjartagóður maður vildi ekki taka
að sér að annast hann. Kobbi litli
er tannlaus ennþá og nærist að-
eins á mjólk sem þarf að gefa
honum nokkuð oft.
Nú vill blaðið beina þeirri
spurningu til unglinga hér í höf-
uðstaðnum, hvort nokkrir þeirra
vildxi ekki stofna með sér félag
til þess að annast uppeldi kóps-
ins móðuidausa. Einhver þeirra
býr vafalaust það nærri sjónum
að handhægt væri að lofa kópn-
um að baða sig, t.d. í Skjólunum
eða í Skerjafirðinum. Kópurinn
þarf ekki annað en mjólk í pela
fyrsta mánuðinn en síðan fer
hann að borða lítils hátar fisk.
Hann mun verða mjög fljótur
að verða sjálfbjarga. Þeir, sem
vilja taka kópinn í fóstur geta
snúið sér beint til Sigurðar P.
Björnssonar á Húsavík, en einn-
ig mun Dagbók Morgunblaðsins
veita nánari upplýsingar.
Merkajsala til ágóða fyrir vænt-
anlega Kópavogskirkju verður
n.k. sunnudag.
JAheit&samskot
Til gistiskýlis drykkjumanna:
Afh. af sr. Jóni Auðuns: N N kr.
100; frá stúlku kr. 100; frá fjór-
um dótturbörnum til minningar
um afa þeirra kr. 1000,00; Guðm.
/Jónsson baðvörður kr. 100,00;
! Jón Kristófersson kr. 100,00;
|Félagsstörf
Stúdenlar fré M.A. ’42 halda
fund í Þjóðleikhúskjallaranum kl.
3,30 e.h. á morgun (laugardag). —
Ái-íðandi fundur.
Vorþing Umdæmisstúkunnar nr.
1 hefst í Goodtemplarahúsinu í
Hafnarfirði laugardaginn 25. þ.
m. kl. 2 e.h.
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík heldur fund mánudag-
inn 27. maí kl. 8,30 síðdegis, í
Iðnó, uppi.
Ymislegt
OrS lífsins: — Og tiann steig út
í bát og fór yfir um og kom í sína
eigin borg. Og sjá menn færðu til
hans lamaðan mann, sem lá í
rekkju, og er Jesús sá trú þeirra,
sagði hann vic lamaða manninn:
Vertu hughraustur, bamið mitt,
syndir þínar eru fyrirgefnar. —
(Matt. 8, 1—2),
Lífsbaráttan er hörð. — Þess
vegna þurfa menn ætíð að vera
alls gáðir. — Umdæmisstúkan.
Barnaheimil Vorboðans, Rauð-
hólum. — Tekið á móti umsóknum
fyrir böm í skrifstofu verka-
kvennafélagsins í Alþýðxxhúsinu,
25. og 26. maí, kl. 2—6.
K.F.U.M. og K., Hafnarfirði: —
Nokkrum drengjum er hægt að
bæta við t-' dvalar í Kaldárseli í
sumar. — Uppl. í síma 9630.
Ófeigur J. Öfeigsson, fjarver-
andi til 30. júní. Staðgengill:
Gunnar Benjamínsson.
Happdrætti Sjálfstæðisflokksins:
Það eru vinsamleg tilmæli til
þeirra sem fengið hafa senda heim
liappdrættismiða frá Happdrætti
Sjálfstæðisflokksins, að þeir geri
skil svo fljótt sem þeir frekast
geta. Einkum er nauðsynlegt, þar
sem svo fá númer eru gefin út, að
endursendir miðar berist afgr.
happdx-ættisins sem allra fyrst. —
Miðar verða sendir heim til þeirra
sem þess óska, sömuleiðis verður | Kona kr. 500,00; J A kr. 500,00.
1 fornbókaverzlun nokkurri stóð
einu sinni eftirfarandi auglýsing:
„Komdu inn og kauptu þér ein-
hverja bók sem þú veizt að amma
þín vill ekki lesa“.
★
Skólapiltar í sænskum skóla
fengu einu sinni það ritgerðarefni
skrifa um Múhamed. Einn
að
þeirra
þetta:
skrifaði meðal annars
Arður af striti dagsins
.... og svo fór Múhamed út á
eyðimörkina og tók aðeins það
nauðsynlegasta með sér, einn úlf-
alda og fjóx-ar konur....
★
— Geturðu sagt mér, hvað það
er sem er í senn auðmýkjandi og
gleðilegt.
— Já, brottrekstur.
/ír---
ÞaS er alveg eins og ég hélt. Nýi
hatturinn minn þolir ekki riguingu