Morgunblaðið - 24.05.1957, Síða 14
u
ÚORGUNBLAÐIÐ
Fðstud&gur 24. maf 195?
sem öll fjalskyldan hefir mœtur á
Smásteik
Saxbauti
Gulrætur
Rauðrófur
Lifrarkæfa
Grænar baunir
SLATURFELAG
SUÐURLANDS
Lóðir og húseignir
í hjarta bæjarins höfum við til sölu byggingarlóðir
og húseignir á eignarlóðum, t.d.
Þrjár lóðir við Laugaveginn.
Eina lóð við Holtsgötu.
Heila húseign við Miðstræti.
Litla húseign við Hverfisgötu.
Lóð við Hálogaland.
Lóðir og lönd á Seltjarnarnesi í Kópavogi og
Garðahreppi.
Ennfremur íbúðir af öllum stærðum í smíðum og
fullgerðar.
Sa3a & Samníngar
Laugaveg 29 — Sími 6916.
Sveinspróf í rofvirkjun
Sveinspróf í rafvirkjun í Reykjavík fara fram í júní-
mánuði n.k.
Umsóknum um próftöku, ásamt venjulegum gögnum
og prófgjaldi kr. 600.00, skal skilað í skrifstofu Iðn-
fræðsluráðs, Iðnskólanum við Skólavörðutorg, fyrir 1.
júní 1957.
Nánari upplýsingar veitir formaður prófnefndar, Ólaf-
ur Jensen, sími 7559.
Reykjavík, 22. maí 1957.
Prófnefndin.
Cuðlaug Ólafsdóttir
Minningarorð
Guðlaug Ólafsdóttir Blöndu-
hlíð 27 hér í bæ, er nú burt köll-
uð eftir nokkuð langan og stund-
um erfiðan starfsdag. Eins og
margir unglingar aldamótaár-
anna, varð hún að mæta erfiðum
kjörum og lífsbaráttu á barns-
aldri.
Hún var fædd 20. sept. 1890 í
Hólmsbúð Innri-Akraneshreppi,
dóttir Ólafs Ólafssonar og konu
hans Sigríðar Sigurðardóttur, en
föður sinn missti hún 7. apríl ár-
ið 1907 í þeim mikla mannskaða,
sem varð með þeim seglskútum
er fórust við Mýraskerin í ofsa-
veðri. Tvo bræður átti hún er
báðir voru yngri, þá Ólaf og Sig-
urbjörn, var það sameinuð fjöl-
skylda til lífsbaráttu þess tíma,
sem oft var hörð. Snemma vakn-
aði áhugi hjá Guðlaugu á
góðum bókum, og tileinkaði hún
sér líka oft manndygðarhetjur,
sögu og sagna, því sjálf vildi hún
þroskast með skilningi á því hvað
lífið er breytilegt og getur kennt
hverjum einstakling til hjálpar
í stöðu og starfi, með styrk frá
Guði í sál.
Árið 1912 giftist hún eftirlif-
andi manni sínum Ingólfi Helga-
syni frá Elínarhöfða í sömu sveit,
en 1914 fluttust þau til Reykja-
víkur, og 1916 misstu þau 2 börn
sín samtímis úr barnaveiki. En
síðan eignuðust þau mannvæn-
leg börn og vel gefin: Ólöfu, Ólaf,
Sigurð, Guðríði og Halldór, en
1923 misstu þau ungan son, sem
hét Helgi Steingrímur. 1 febrúar
1919 fórust báðir bræður hennar,
þeir Ólafur og Sigurbjörn með
mótorbát í Miðnessjó og var það
mikið áfall og tók hún sér það
nærri. Árið 1929 dó svo móðir
hennar sem alltaf var hjá þeim
hjónum eftir að þau stofnuðu
heimili. Þó að starf einnar hús-
móður sé oft ekki hægt að
meta til fulls, þá er það
samt ein af máttarstoðum
okkar þjóðfélags, sem allir virða
og oft er dáðst að, þegar fyrir-
vinnan er langdvölum á sjónum,
því að ráðstafa þarf ýmsu sem að
höndum ber við heimilishald og
barnauppeldi með leiðbeiningu
á betri máttarvöld í sál og sinni.
Þegar litið er yfir ævileið Guð-
laugar mætti segja líkt og skáld-
ið:
Henni mættu skin og skúr
með skugga og sólarvegi,
þó allt sé brot og eining úr
þeim einum, sama degi,
en sá sem þyngstar byrðar bar
fær bætur engu minni,
því Guð er allt og alls staðar
í allri veröldinni.
Eiginmaður, börn þeirra, tengda
börn og barnabörn, sem og vinir
þeirra kveðja nú Guðlaugu
og minnast alls þess góða sem
þau nutu af henni um leið og
þau þakka fyrir liðnar stundir
og senda beztu óskir til þeirrar
ódauðlegu sálar á land lifenda, í
Guðs friði. Kunningi.
Mlimbig: ÁrniSvan-
berg Jénsson
Hann er dáinn, er fréttin, þá
fyrst var ég hljóð
mér fannst eins og slöknuðu
bönd.
Er tengdi svo manfögur minn-
ingaglóð
við morguns og æskunnar lönd.
Frá bernskunnar leikum, á blóm-
skrýddri grund
með brosmildum ungmanna hóp.
Hve framtíðarbrautin var fögur
þá stund.
sem frjálslyndur hugurinn skóp.
En vordagar æskunnar vara svo
skammt.
Oft vallt reynist lukkunar hjól.
Með sökknuði kveðjum við sól-
skinið samt
því svöl eru oft fullorðnum skjól.
En nú er andi þinri frjáls, að
fljúga í geim
fagnandi um sólroðans lönd.
Þar lýsa mun honum leiðina
heim
hin líknandi alföðurhönd.
Nú breiðist vorið um beðinn hans
þar bernskunnar heimkynnið lá
þar smári og bláfjóla flétta hon-
um krans
og falla þeim daggir af brá.
Sigurunn Konráðsdóttir
Útför að Gröf
í Skaffártungu
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 22.
maí: 1 gær fór fram að Gröf í
Skaftártung-u, útför Sigríðar Sig-
urðardóttur húsfreyju að
Hvammi. Sóknarpresturinn séra
Valgeir Helgason jarðsöng.
Sigríður í Hvammi var tæplega
63 ára er hún lézt 9. þ.m. í Lands
spítalanum í Reykjavík. Hafði
hún verið flutt suður flug-
leiðis þann sama dag. Var hún
gift Sigurði Gestssyni. Hafa þau
búið í Hvammi undanfarna ára-
tugi við myndarskap og rausn.
Þau eignuðust 4 börn. Eitt þeirra
er Bárður sem nú býr í Hvammi
með föður sínum. Sigríður var
mæt kona og vinsæl. Var mikið
fjölmenni við útför hennar bæði úr
Skaftártungu og víðar að. — Gbr.
ogheiman••
Njótið leyfisins og fakið
niðursuðuvörur með í ferðalagið
Kindakjöt
Kindakæfa *
Kjötbúðingur
Bæjarapylsur
Kjötsoð
Svið
Allar venjulegar stœrðir
Fást í öllum betri
matar- og kjofverzlunum
SLÁTURFÉLAG
SUflURLANDS