Morgunblaðið - 24.05.1957, Blaðsíða 20
115. tbl. — Föstudagur 24. maí 1957
Vormót 5.U.S. á
Akranesi annað kvold
SAMBAND ungra Sjálfstæðismanna gengst fyrir vormóti á Akra-
nesi annað kvöld. Fer það fram að Hótel Akranesi og hefst kl.
8,30 e. h. Sambandið hefur áður gengizt fyrir mótum sem þessu og
hafa þau öll verið fjöisótt og tekizt vel.
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ
Efnisskrá vormótsins á Akra-
hesi annað kvöld verður mjög
fjölbreytt. Það hefst með því,
að Jón Ben. Ásmundsson form.
F.U.S. Þórs á Akranesi, setur
það. Stuttar ræður flytja Gunnar
G. Schram lögfræðingur og Pét-
ur Ottesen alþm.
Þá mun Kristinn Hallsson
synga með undirleik Fritz Weiss-
happel. Þá flytur Brynjólfur Jó-
hannesson leikari skemmtiþátt
og loks verður dansað.
Tveir bslstjórar tepptir
á Skeiðarársandi
Kirkjubæjarklaustri, 23. maí.
UNDANFARNA tvo sólarhringa hefur verið hér látlaus rigning
og samtals hefur úrkoma numið 80 mm á Kirkjubæjarklaustri
og enn meiru á Fagurhólsmýri í nótt sem leið.
Þessu úrfelli hefur fylgt mikill vöxtur í öllum ám og eru þær
nú með mesta móti og enn vaxandi.
í gær fóru tvær bifreiðir frá mundur Gunnarsson og Þorsteinn
Kaupfélagi Skaftfellinga í Vík
austur yfir Skeiðarársand. Ferð-
in gekk vel austur og vegna úr-
komunnar hröðuðu bílstjórarnir
för sinni og ætluðu að komast
vestur yfir sandinn í gærkvöldi.
Gekk þeim vel yfir Skeiðará. Var
hún þó í örúm vexti. Ennfremur
komust þeir með herkjum yfir
Gígjukvísl, sem er allmikið vatns
fall vestarlega á sandinum og oft
með miklum sandbleytum. En
þegar þeir komu að Súlu var hún
orðin með öllu ófær og urðu bíl-
stjórarnir að láta fyrir berast í
bifreiðunum í nótt, og eru þeir
innikróaðir milli stórvatnanna á
Skeiðarársandi. Þeir höfðu tal-
símaáhald meðferðis og gátu
tengt það við símalínuna og lát-
ið vita af sér í morgun. Ekki
hafa þeir útvarp í bifreiðunum.
Þar sem búast má við, að tals-
verður tími líði þangað til svo
minnkar í vötnunum að þau
verði akfær, hefur verið rætt við
Björn Pálsson um að sækja bíl-
stjórana strax og flugveðurgefur.
Segja bílstjórarnir að góður flug-
völlur sé á sandöldunni austan
við ána.
Bílstjórar þessir eru Krist-
Guðlaugsson, báðir búsettir í
Vík í Mýrdal. Þegar samband var
haft við þá seinnihlutann í dag,
létu þeir vel af líðan sihni. Að
vísu voru þeir lítt búnir að nesti,
en munu þó ekki líða neinn skort.
—G.Br.
. ' - * 4 — «
Kraninn nieð sleggjuna rekur niður staurana við stokkinn í Miklu-
brautinni. — (Ljósm.: Mbl.)
Skipf um jarðveg undir Mikiu-
braufinni vegna galnagerðar
GATNAGERÐARDEILD Reykja-
víkurbæjar er nú að láta fram-
kvæma stórkostlega gatnagerð
á Miklubrautinni og er þar
beitt hinum stórvirkustu tækj-
um til þess að flýta verkinu, en
það er að gera nýjan jarðveg
undir þessari fjölförnu götu, sem
liggur yfir gamlar mómýrar, og
gerði það að verkum að útilokað
var að vegurinn gæti þar orðið
til nokkurrar frambúðar.
Það sem gert verður á Miklu-
brautinni milli Gunnarsbrautar
og Stakkahlíðar, en sá kafli er
Listkynning Morgunblaðsins
Þessi mynd er af einu málverka Kristjáns Davíðssonar, listmál-
ara, sem sýnir verk sín þessa viku á vegum listkynningar
Morgunblaðsins.
um 1 km á lengd, er að skipt
verður um jarðveg.
Mómýrinni undir götunni verð-
ur ekið burt. Stórvirkar vélskófl-
ur grafa djúpt niður í jarðveginn
og 15 tonna flutningavagnar
flytja móinn út á Klambratún, en
þar er lítil ýta, sem jafnar ruðn-
ingnum jafnóðum.
Síðan verður komið með möl
og sand og annað heppilegt efni
til undirstöðu götunnar. — Er
þetta mikið verk og það sem
grafa þarf upp og síðan flytja að
aftur, skiftir þUsundum tenings-
metra.
Áður en hægt verður að ganga
að þessu með oddi og egg verður
að ganga tryggil. frá steinsteypt-
um stokk, sem liggur í miðri göt-
unni, en í hinum liggja háspennu-
strengir frá Rafmagnsveitunni. í
gær var verið að skorða stokk-
inn því ekki má hann raskast
neitt þótt unnið verið með stór-
virkum vinnuvélum við hann. —
Reknir voru niður á rúmlega
metersdýpt sverir staurar, gaml-
ir rafmagnsstaurar, fast upp við
stokkinn beggja vegna. —
Var notuð við þetta rúmlega
1300 kg. þung „sleggja", sem var
við krana einn mikinn. — Var
sleggjan látin falla úr nokkurri
Lcndsliðið 2:0
1 GÆRKVÖLDI fór fram leik-
ur landsliðsins og liðs er í-
þróttafréttamenn blaðanna
völdu. Landsliðið sigraði með
2:0. Það gefur þó vart rétta
hugmynd um gang leiksins,
því „pressuliðið“ átti ágæta
leikkafla og góð tækifæri.
Mesta athygli vakti leikur
öftustu varnar „pressuliðsins“
þeirra Ragnars Jónssonar mið
framvarðar, bakvarðanna
Magnúsar Snæbjörnssonar og
Kristins Gunnlaugssonar og
Einars Sigurðssonar fram-
varðar.
hæð ofan á staurana, sem ekki
þurftu nema fáein högg til þess
að ná dýptinni 150 sm.
í Lönguhlíðinni sunnan verðri
verður einnig skipt um jarðveg
undir götunni og miðar því
verki allvel áfram. Á öðrum
helmingi götunnar er „búið að
skipta um“á alllöngum kafla.
Þrjú móf ungra Sjálf-
ifæðismanna í Eyjaf.
um næstu heigi
FÉLÖG ungra SjálfstæðiS-
manna í Eyjafjarðarsýslu og
Ólafsfirði, halda þrjár kvöld-
samkomur nú um helgina.
1 Ólafsfirði verður samkoma
í kvöld, 24. maí og stend-
ur F.U.S. Garðar fyrir henni.
Á Dalvík verður svo samkoma
annað kvöld og í Sól-
garði sunniudaginn 26. maí og
sér félag ungra Sjálfstæðis-
manna í Eyjafjarðarsýslu um
þær samkomur. Öll hefjast
mót þessi kl. 8,30 síðd.
Sama dagskrá verður á öll-
um þessum mótum. Magnús
Jónsson, alþm., mrun flytja
ræðu, en auk þess er söngur og
aðrir skemmtiþættir, sem þeir
annast listamennirnir Sigurð-
ur Ólafsson, Skúíi Halldórs-
son og Baldur Hólmgeirsson.
Fundur í laganefnd
Norðnrlandaráðsins
BJARNI Benediktsson flýgur í
dag utan á fund í laganefnd
Norðurlandaráðsins. Mun hann
koma heim aftur næstkomandi
sunnudag.
-------------------- (
Forsalan genur vel
FORSALA aðgöngumiða að
Iþróttarevíunni á sunnudaginn
gekk mjög að óskum í gær og
tryggði þá margt manna sér miða
svo sem vænta mátti. Forsalan
heldur áfram í dag við Útvegs*
bankann og hefst kl. 5 síðd.
Stjórn VR heimilað að
boða verkfall 3: júní nkj*
SSóð á samningsviðurkenningu SSS
IGÆRDAG sendi Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Mbl. tréOmr-
tilkynningu þess efnis, að félagsstjórninni hefði verið heii«tU«fl
að boða til vinnustöðvunar 3. júní n. k., hafi ekki tekizt sanvatÍMfl-
ar við vinnuveitendur fyrir þann tíma. Var þessi samþykkt gwfl
á fundi trúnaðarmannaráðs félagsins síðastl. þriðjudag. — Siflfll
segir á þessa leið í fréttatilkynningunni:
Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur vill gera eftirfarandi grein
fyrir þessari ákvörðun.
Ástæðan fyrir því, að VR býr
sig undir svo róttækar ráðstaf-
anir er sú, að vinnuveitendur
hafa neitað að ræða samninga við
félagið. Jafngildir það neitun á
samningsrétti félagsins og mun
hliðstæð dæmi aðeins að finna
frá árdögum verkalýðshreyfing-
arinnar á íslandi.
Verzlunarmenn búa við ein
lökustu kjör, sem þekkjast á ís-
landi í dag. Nægir í því sam-
bandi að benda á, að byrjunar-
laun afgreiðslumanna í verzlun
eru kr. 8.08 í grunnlaun á klst.,
en grunnlaun Dagsbrúnarverka-
manna eru lægst kr. 10,17 pr.
klst. Grunnlaun afgreiðslu-
stúlkna kr. 5,25 pr. klst., en
stúlkur í Verkakvennafélaginu
Framsókn hafa lægst kr. 7.83 í
grunnlaun pr. klst. Þetta eru ó-
mótmælanlegar staðreyndir.
Þegar svo verzlunarmenn fara
fram á bætt kjör vilja vinnuveit-
endur ekki við þá ræða heldur
neita þeir samningsrétti VR, sem
þó er tryggður með vinnulög-
gjöfinni.
Verzlunarmenn í Reykjavík
eru ákveðnir að standa fast á
rétti sínum og fylgja sanngjörn-
um kröfum um kjarabætur
til sigurs.
® ® ®
RÉTT eftir að framangr«fc«fl
fréttatilkynning barst Mbl, sawflj
VR út viðbótar-fréttatilkynnlm^
þar sem segir að málið hafl aS
tekið þá stefnu að allt virSÍSB
benda til að vinnuveitendtafl
hyggist nú ganga til samningfl*
viðræðna við VR.
® ® ®
Mbl. hefur sannfrétt aS flft
aðili, sem stóð á móti VÍSHfl-
kenningu samningsréttar VH
hafi verið Samband íslenzkpt
samvinnufélaga. Er ánatgtfl;
legt að það skuli nú hafa
sig um hönd.
Brauðið ekki frá
Rúgbrauðsgerðinni
STJÓRN RúgbrauðsgerðarinnflK
h.f. hefir beðið Mbl. að geta
að brauð það, sem mynd birtifl
af hér í blaðinu fyrir nokkrum
dögum, þar sem hetta af gos-
drykkjaflösku sat föst inni í
miðju brauði, hafi ekki verið
bakað í brauðgerðarhúsi Rúg-
brauðsgerðarinnar.