Morgunblaðið - 17.10.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.10.1957, Blaðsíða 2
2 M O F € í>’ V B l 4 Ð 1P Fimmtudagur 17. okt. 1957 24 börn dvöldust í bornu- heirailínn Gloumbæ í sumur Barnaheimilissjóður Hafnarfj. kemur upp sumarheimHi fyrir 6-8 ára börn BARNAHEIMILISSJÓÐUR Hafn arfjarðar, en stjórn hans mynda fulltrúar frá barnaverndarfélagi Hafnarfj., Rauðakrossd. Hafnfj., barnaverndarnefnd og kvenfélag- inu Hringurinn, keyptu á sl. vori húseignina Glaumbæ, suður í Hraunum, skammt frá Hafnar- firði. Eftir nokkra stækkun á hús- inu var þar rekið barnaheimili fyrir börn, á aldrinum 6—8 ára. Dvöldu þarna alls 24 börn um sex vikna skeið í sumar. Þyngdust öll börnin og sum um 4 kg. Heim- ilinu veitti forstöðu Guðjón Sigur jónsson, söng og íþróttakennari, en matráðskona var frú Steinunn Jónsdóttir, kona Guðjóns. Enn- fremur starfaði frú Ólöf Krist- jánsdóttir við heimilið. Þetta er fyrsta barnaheimilið, sem Hafn- firðingar eignast fyrir ofangreint aldursskeið. Barnaheimilissjóður Hafnar- fjarðar hefur það á stefnuskrá sinni, að kaupa hús og reka barna heimili fyrir hafnfirzk börn. Hafa fyrrgreind félög styrkt sjóðinn með myndarlegum fjárframlög- um, svo og margir einstaklingar, fyrirtæki og bæjarsjóður Hafnar- fjarðar. Stjórn sjóðsins skipa: Ólafur Einarsson, héraðslæknir, formað- ur, Hjörleifur Gunnarsson, gjald- keri og Vilbergur Júlíusson ritari. Rauðakrossdeild Hafnarfjarðar tekur þátt í samvinnu þeirra fé- laga, sem eiga og reka barna- heimilið í Glaumbæ við Óttars- staði. Lagði deildin þegar í upp- hafi fram 10 þús. krónur til þess að hrinda þessu máli í fram- kvæmd, en síðar flutti stjórn deildarinnar tillögu á aðalfundi Rauða kross íslands, að hann veitti deildinni 20 þús. króna styrk vegna barnaheimilisins í Glaumbæ. Var tillagan sam- þykkt. Mun þessi tillaga og sam- þykkt hennar verða jafnframt öðrum deildum í kaupstöðum landsins afdrifarík og verða til framdráttar barnaheimilum utan Reykjavíkur. Rauðakrossdeildin hefur nú afhent Barnaheimilis- sjóði fyrrgreinda fjárupphæð. Hefur þá deildin lagt alls fram 30 þús. krónur til barnaheimilis- ins í Glaumbæ. Hún á jafnframt tvo fulltrúa í stjórn Barnaheim- ilissjóðs. Stjórn Rauðakrossdeildarinnar skipa þessir menn og konur: Ólafur Einarsson, héraðslækn- ir, form. Hjörleifur Gunnarsson gjaldkeri, Björn Jóhannsson rit- ari, og meðstjórnendur, Haraldur Kristjánsson, Ingibjörg Jóns- dóttir, Ágústa Jónsdóttir og Elísa- bet Kristjánsdóttir. Kvenfélagið Hringurinn hefur árum saman styrkt börn úr Hafnarfirði til sumardvalar. Eru þau börn ótalin, sem dvalið hafa á vegum félagsins, víðs vegar um landið, á sumardvalarheimilum Rauða kross íslands, en þó stund- um á heimilum, sem félagið sjálft hefur rekið. Hefur formað- ur félagsins, frú Guðbjörg Krist- jánsdóttir, lagt mikið á sig í sam- bandi við þennan merka þátt í starfsemi félagsins. Á sl. vori var vitað að engin börn úr Hafnar- firði yrðu tekin á sumardvalar- heimili Rauða krossins. Sjórn Hringsins fagnaði því samvirmu félaganna í Hafnarfirði um að koma á fót eigin sumardvalar- heimili. Og stjórnin lagði fram 20 þús. krónur til styrktar þessu nauðsynjamáli. Stjórn kvenfélagsins Hringsins skipa þessar konur: Frú Guðbjörg Kristjánsdóttir form., Valgerður Jensdóttir gjald keri, Steinunn Sveinbjarnard. ritari og meðstjórnendur Björney Hall Grímsdóttir, Sigríður Eyj- ólfsdóttir og Matthildur Guð- mundsdóttir. (Frá Barnaheimilissjóði Hafnarfjarðar). Sýningorsalurinn opnnr sýningn ó verkum Kristjúns Duvíðssonur Sýningin sfendur yfir í 9 daga KLUKKAN 9 í gærkvöldi var opnuð sýning á lakk- og olíu- myndum Kristjáns Davíðssonar í Sýningarsalnum í Alþýðuhús- inu. Sýning þessi verður opin til Kristján Davíðsson 25. október frá kl. 10—12 og 2—10 daglega. Á sýningunni eru 24 mál verk og nokkrar teikningar. Allt eru það ný málverk, máluð á þessu ári. Kristján hefur áður haldið tvær einkasýningar, þá fyrri 1946 í International student house í Philadelphia og 1950 £ Lista- mannaskálanum. Hann hefur tek- ið þátt í öllum Norðurlandasýn- ingunum, Nordisk Kunstforbund, nema þeirri fyrstu, í Höstudstill- ingen í Kaupmannahöfn 1949, ís- lenzkri sýningu í Ósló 1951 og Briissel 1952. Þá hefur hann tek- ið þátt í samsýningum hér í Reykjavik, svo sem September- sýningunum og sýningum Félags islenzkra myndlistarmanna. Kristján Davíðsson stundaði nám hjá Barnes-stofnuninni í Bandaríkjunum um tveggja ára skeið frá 1945—1947. — Hlaut hann náms- og skólastyrk frá þeirri stofnun. Hinn 27. október hefst sýning í Sýningarsalnum á verkum Bat- Yosef. Mun hún sýna 25 myndir. Bat-Yosef hefur haldið sýningar á verkum sínum í París, en þar stundaði hún nám við Listahá- skólann, einnig í Róm og Mílanó. ,Húmoristi4 MAÐUR er alltaf að læra. — Nú hefur mér verið sagt, að þjóðleikhússtjóri sé húmoristi líka. Lengi skal manninn reyna, segir einhvers staðar. Sverrir Þórðarson. Fjárlagaumræð- urnar Hannibals og Emils um að Sjálf- stæðisflokkurinn hefði reynt að spilla fyrir lántökum ríkisstjórn- arinnar og staðið fyrir verkföll- um, benti Magnús á, að það hefði verið meginröksemdin fyr- ir að Sjálfstæðisflokkurinn gæti ekki leyst efnahagsvandamálin að hann réði engu í verkalýðs- félögunum. Ennfremur ætti Emil Jónssyni að vera kunnugt um, að Alþýðublaðið lýsti því yfir fyrir skömmu, að raunverulega hefði vinnufriður verið og aðeins rúmlega 500 menn gert verkfall. Það væri líka hin mesta firra, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði á nokkurn hátt sett fótinn fyrir ríkisstjórnina í hinni sífelldu leit hennar að lánum. Þá vakti Magnús athygli á því, að fjármálaráðherra teldi nú ekkert athugavert við að fallast á niðurgreiðslur svo milljóna- tugum skipti án þess að hafa nokkurt fé í kassanum, enda þótt hann neitaði í fyrra að fallast á tihögur Sjálfstæðismanna um að halda vísitölunni niðri með niðurgreiðslum. Hefði þeim til- lögum verið sinnt væri ekki við þann vanda að glíma, sem þjóð- in stæði nú andspænis. Loks benti Magnús á, að ríkis- srjórnin mætti gjarnan reyna að haga sér í samræmi við þá nauð syn raunsæis, sem fjármálaráð herra lagði áherzlu á í ræðu sinni og væri vel, ef stjórnin ætlaði hér eftir að fylgja þeirri stefnu. Ræða fjármálaráðherra f ræðu sinni rakti Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra fyrst afkomu ríkissjóðs árið 1956. Greiðsluafgangur varð 13 millj- ónir kr. og fóru bæði tekjur oog gjöld fram úr áætlun. Fjármálaráðherrann fór mörg- um orðum um gjaldahlið fjár- laganna og ástæður fyrir því, að hún færi fram úr áætlun. Taldi hann áætlanir „útgjaldaráðuneyt- anna“ vera illa úr garði gerðar og þyrftu þau og forstöðumenn ríkisfyrirtækja að vanda betur fjárhagsáætlanir sínar. Bætti ráð herrann því við, að það gæti ekki blessazt, að fjármálaráðuneytið tæki að sér allan ríkisreksturinn. Um horfurnar í efnahagsmál- unum sagði Eysteinn Jónsson m. a., að ríkistekjurnar hefðu á þessu ári orðið minni en gert var ráð fyrir Ráðherrann hélt því fram, að verðmæti framleiðslunnar væri nú minna en áður miðað við úthaldsdaga veiðiflotans. Þá minnti ráðherrann á, að varn- arliðsframkvæmdir hafa dregizt saman. Til nánari skýringa á erfið- leikunum sagði ráðherrann, að orðið hefði að takmarka innflutn inginn og hefði það bitnað á vör- um, sem af er greitt hátt gjald til hins opinbera. Niðurstaða ræðumanns var sú, að hættulegt væri að byggja ríkisbúskapinn á innflutningi. Þá kom ráðherrann að fjárfest i.ngarmálunum. Taldi hann, að fjárfesting hér á landi væri mun meiri en ' nági annaiindunum Árið 1955 hefði hún verið 32,5% af þjóðartekju .um hér á landi, 28,9% í Noregi og mun lægri í öðrum nálægum löndum. Taldi hann, að framkvæmdir og spenna settu svip sinn á allt þjóðlifið. Eftir stríðið hefði fram kvæmdum verið haldið uppi með eigin fé fyrst, en síðan Marshall hjálp og annarri erlendri aðstoð. Eftir efnahagsráðstafanirnar ár- ið 1950 hefði verðbólgan stöðvazt, en aðeins um stund. Nú á þessu ári hefur, að sögn ráðherra, verið unnið að raforku framkvæmdum og byggingu sem entsverksmiðju, að undanförnu fyrir bráðabirgðalán frá bönkum út á væntanleg lán. Togarakaup og hafnargerðir eru hins vegar enn ekki komnar til fram- kvæmda. Ræktunarsjóð og Fisk- veiðasjóð vantar fé. Ráðherrann minnti á, að stór- kostlegur lánsfjárskortur væri í heiminum og okkur skorti mikið fé. Lán úr Alþjóðabankanum hefði ekki fengizt um nokkurra ára skeið m.a. vegna ósamkomu- lags við bankann. Taldi ráðherr- ann hina mestu nauðsyn á, að er- lent fjármagn fengizt eftir öðr- um leiðum en lánaleiðinni, en það yrði varla nema með stefnu- Norski rithöfundurinn Sigurd Hoel segir, að hann geti nefnt fjölmarga norska höfunda, sem hafa verið ákærir fyrir ritstuld. Sumir hafa notað setningar úr verkum annarra höfunda, aðrir hafa orðið fyrir áhrifum af anda verkanna. Sumir rithöfundar sjá þetta sjálfir, en aðrir taka ekki eftir þessum áhrifum fyrr en BONN, 16. okt. — Vestur- þýzka stjórnin hefur beðið fastaráð Atlantshafsbanda- lagsins að fjalla um þá ákvörð un júgóslavnesku stjórnarinn- ar að taka upp stjórnmála- samband við austur-þýzku kommúnistastjórnina. — í Bonn er álitið, að þessi á- STOKKHÓLMI, 16. okt. — Aftenbladet skýrir frá því, að franski rithöfundurinn Albert Camus muni fá bókmenntaverð- laun Nóbels að þessu sinni. Sænska Akademían kemur saman á morgun til að kjósa Nóbelsverðlaunahöfundinn og segir blaðið, að af umræðunum í akademiunni að undanförnu megi sjá, að Camus eigi engan skæðan keppinaut um verðlaun- in. — Camus er þekktastur fyrir verk sitt „Plágan“. Fréttamenn segja, að akadem- Maðurinn, sem bjargaði Frakklandi 1952 PARÍS, 16. okt. — Antoine Pinay átti síðasta fund sinn í dag með frönskum stjórnmálaleiðtogum, áður en hann gefur Coty forseta skýrslu um árangurinn af við- ræðunum við flokksleiðtogana. Vinir Pinays segja, að hann hafa fullan hug á því að mynda stjórn, þar eð hann telji, að þing- ræði Frakklands sé í veði, ef það takist ekki hið fyrsta. Stjórnmálafréttaritarar í Par- ís segja, að Pinay hafi mikla möguleika á því að mynda stjórn. J af naðarmenn segja ,að þeir muni ekki taka þátt í stjórn, sem hann myndar, en ólíklegt þykir, að þeir greiði atkvæði gegn hon- um í þinginu, eins og málin horfa nú. Þess má loks geta, að í Frakk- landi gengur Pinay undir nafn- inu: Maðurinn, sem bjargaði Frakklandi 1952. Síðari fréttir í gærkvöidi hermdu, að Pinay hafi ákveðið að fara þess á leit við þingið, að það leggi blessun sína yfir, að hann myndi stjórn. Mun at- kvæðagreiðslan fara fram á föstudag. breytingu i fjármálum. Rakti hann það mál ekki frekar. Ráðherrann rakti síðan fjár- lagafrumvarpið, sem nú liggur fyrir og breytingar á fjármálum ríkisins síðan 1952. Af hálfu stjórnarflokkanna töl- uðu auk Eysteins Jónssonar þeir Hannibal Valdimarsson og Emil Jónsson. þeim hefur verið bent á þau. Hoel segir ennfremur: ,,Ég get vel ímyndað mér, að Mykle hafi lesið bækur Wolfes á æskuárum sínum orðið hrifinn af þeim og ekki get- að gleymt sumum setningunum. Svo hafa þessar setningar skotið upp kollinum, þegar Mykle skrif- aði Roðasteininn, en þó án þess að hann væri sér þess meðvitandi." kvörðun Títós sé móðgun við Vestur-Þjóðverja. Sumir vilja slíta stjórnmálasambandi við Júgóslava, en ekki verður tek in nein ákvörðun í málinu fyrr en á föstudag. Þess má geta, að í fyrra lánuðu V-Þjóðverjar Júgó- slövum 175 millj. marka. ían hafi aðallega rætt um eftir- farandi rithöfunda, sem væntan- lega Nóbelsverðlaunamenn: Frakkann Andre Malraux og Grikkjan Kazantzakis. Asíu-flensan r £1 '1 • r \ 1 ðvipjoo STOKKHÓLMI, 16. okt. — Asíu- inflúenzan fer eins og eldur í sinu yfir alla Svíþjóð. 1 dag er áætlað, að 70 þús. Svíar liggi í veikinni. Ileimsóknir hafa verið bannaðar í sjúkrahús í Stokk- hólmi nema með sérstöku leyfi sjúkrahúslækna. Meðal sjúklinga eru 19 þús. skólanemar í Stokkhólmi og Gautaborg. — Bakteríurannsókna stofa ríkisins hefur framleitt 30 þús. skammta af bóluefni við veikinni, en til viðbótar komu 15 þús. skammtar frá Hollandi í gær. — Jón. 1/3 liggur í Asíu-flensu ÁLASUNDI, 16. okt. — Svo að segja hvert einasta heimili £ Sogndal hefur orðið fyrir barð- inu í Asíu-veikinni og þriðji hluti íbúanna hefur lagzt veikur. Aðeins örfáir nemendur sækja skóla og atvinnulífið er lamað. — Flestir sjúklingarnir komast á fætur aftur eftir 4—5 daga og ekki hefur orðið vart við nein alvarleg tilfelli af veikinni. Vikið úr flokknum VARSJA, 16. okt. — Ritstjórum pólska stúdentablaðsins Pro Prostu hefur verið vikið úr pólska kommúnistaflokknum. Til kynning þessa efnis var gefin út tí Varsjá seint í kvöld. Si«urd Hocl kemur Mykle til aðstoðar Mykle er í góðum féSagsskap, segja aðdáendur hans ÓSLÓ. — Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum hefur Mykle, höf • utidur bókarinnar um Roðasteininn, verið ákærður fyrir að hafa stolið frá bandaríska rithöfundinum Thomas Wolfe. En verjendur Mykles taka þessum ákærum með jafnaðargeði. Þeir segja, að hann sé í góðum félagsskap, þegar hann er ákærður um ritstuld. Slitur Ádenauer stjórnmála- sambandi v/ð Tito Fær Camus Nobelsverðlaunin ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.