Morgunblaðið - 17.10.1957, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.10.1957, Blaðsíða 20
Ræða Magnúsar Jénss. Sjá bls. 11—12. Mynd þessi er af kirkjuráðinu. Sitjandi eru Gísli Sveinsson, fyrrv. sendiherra (t. v.) og Ásmundur Guðmundsson, biskup. Standandi. talið frá vinstri: Sr. Sveinn Yíkingur, ritari ráðsins, sr. Þorgrímur Sigurðsson, Gizur Bergsteinsson, hæstaréttar- dómari, og sr. Jón Þorvarðsson. Kirkjuráð vill að frumvarpið um biskupa þjóðkirkjurmar verði lagt fyrir Alþingi KIRKJURÁÐ hinnar íslenzku þjóðkirkju kom saman til fund- ar í Reykjavík hinn 11. þ. m. og minntist þá jafnframt 25 ára af- mælis síns, en fyrsti fundur ráðsins var haldinn 11. okt. 1932. Meðal þeirra mála, sem fyrir fundinum lágu, var frumvarp til laga um biskupa þjóðkirkjunnar, samið af nefnd þeirri, er skip- uð var fyrir tveimur árum af kirkjumálaráðherra til þess að endurskoða og samræma kirkju- lög landsins. Frumvarp þetta var ýtarlega rætt á fundum ráðsins báða fund ardagana ,og samþykkti ráðið, að rétt væri að leggja það fyrir Alþingi það, sem nú situr með lítils háttar breytingum, er það lagði til, að gerðar yrðu á frum- varpinu. Einnig afhenti Kirkjuráð Ás- geiri Magnússyni frá Ægissíðu Nýir skaliar eða gengislækkun Yfirlýsing kommúnista- ráðherrans ÞAÐ EINA sem athygli vakti í ræðu Hannibais Valdimars- sonar, fulltrúa kommúnista í útvarpsumræðunum í gær • kveldi, var sú yfirlýsing hans, að í dýrtíðarmálunum væri nú aðeins um tvær leiðir að ræða: Hækkaða skatta til þess að standa undir auknum stuðningi við útgerðina, eða gengisfellingu. Til annarrar hvorrar þessara leiða yrði að grípa, ef til launahækkana kæmi. Þá lýsti þessi fulltrúi komm únista því yfir, að stefna rík- isstjórnarinnar hefði þegar borið „gifturíkan ávöxt"! — Gjaldeyrisástandið kvað hann betra en í fyrra. í ræðu Emils Jónssonar, sem talaði fyrir hönd Alþýðu- flokksins, var sú yfirlýsing merkust, að „brúa bæri greiðsluhallabilið" á „venju- legan hátt“. Meira hafði for- maður Alþýðuflokksins ekki á takteinum um úrræði flokks síns til lausnar efnahags- vandamálanna. Guðbrandsbiblíu að gjöf, sem viðurkenningu fyrir frábærlega fagurt handrit af þýðingu Jobs- bókar í ljóð, er hann hafði gert og gefið biskupi. Er þessa áður getið í blöðum. Kirkjuráðsmenn og nokkrir gestir þeirra snæddu hádegisverð í kjallara Þjóðleikhússins til þess að minnast afmælis ráðsins. Þar tóku til máls auk biskups kirkju- málaráðherra Hermann Jónas- son, er þakkaði störf ráðsins á liðnum árum, og Vilhjálmur Þór fyrrv. kirkjuráðsmaður. í Kirkjuráði eiga nú sæti: Dr. Ásmundur Guðmundsson biskup, Gísli Sveinsson, fyrrv. sendiherra, Gizur Bergsteinsson, hæstaréttardómari, séra Jón Þor- varðsson, prestur, Reykjavík, séra Þorgrímur Sigurðsson, prest ur, Staðastað. Ritari ráðsins er séra Sveinn Víkingur. Heimskauta- flugmaður VÍÐKUNNUR heimskautaflug- maður og herflugmaður, Bent Balchen, ofursti úr flugher Bandaríkjanna er væntanlegur hingað til lands í þessari viku. Hér mun hann m .a. flytja fyrir- lestur í Flugmálafélagi íslands. Balchen ofursti er Norðmað- ur, sem á að baki sér langan og viðburðaríkan flugmannsferil. Hann fór í Norðurpólsleiðangur- inn með loftskipinu Norge. Þá flaug hann með hinum banda- ríska Suðurskautsfara Byrd yfir Atlantshafið en tók þátt í Suður- skautsleiðangri hans á árunum 1928—’30. Síðar gerðist hann flugmaður í bandaríska flughern um. Árið 1935 hvarf hann heim til Noregs og vann þar að flug- málum m. a. var hann einn af forvígismönnum norska flugfé- lagsins meðan það var og hét. í síðari heimsstyrjöldinni barðist hann í norska flughernum um skeið, en gekk svo aftur í þjón- ustu Bandaríkjaflughers. Það var Balchen ofursti sem stjórn- aði uppbyggingu herstöðva Bandaríkjamanna á Grænlandi á styrjaldarárunum. Að því búnu var hann sendur til Bretlands þar sem hann stjórnaði vopna- fiutningum til Noregs og Frakk- lands undir hernámi Þjóðverja. Að lokinni heimsstyrjöldinni var hann gerður að forstjóra norska flugfélagsins og var hann það til ársins 1948, að hann enn á ný gekk í þjónustu banda- ríska flughersins og þar er hann starfandi. TF-ROK fauk á Kefla- víkurflugvelli KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 16. okt. — Sl. nótt fauk íslenzk einka flugvél á Keflavíkurflugvelli og gereyðilagðist. Flugvélin hefir einkennisstafina TF-ROK, og er af Ercoupe-gerð. Eigandi hennar er Sveinn Eiríksson, slökkviliðs- maður s Keflavíkurílugveili. Eigandi hafði komið flugvélinni fyrir í flugskýli, en vélin hafði verið tekin út úr skýlinu án hans vitundar. Vindur var allhvass af suð austri, allt að 47 hnútar. Mun flugvélin hafa fokið um þrjú leytið um nóttina af flugvéla- stæði út í grjóturð, sem er þar skammt frá. Kom hún niður á þakið. Brotnaði af henni annar vængurinn og skrokkur flugvél- arinnar allur undinn og beygl- aður. Flugvél af þessari gerð mun kosta 60—70 þús. kr. Áfengi fyrir 93 millj. kr. á 9 mánuðum FYRSTU níu mánuði ársins 1957 nam sala áfengis til neyzlu frá Áfengisverzlun ríkisins alls kr. 93.326.195.00, en á sama tíma í fyrra kr. 72.057.240.00. Allt árið 1956 nam salan kr. 98.123.474.00. Það skal tekið fram, að verð- hækkun varð á áfengum drykkj um 1. febr. sl., og nam hún 10— 15% á flestum tegundum, fyrir utan þá hækkun sem leiðir af gjöldum samkvæmt lögum nr. 86/1956 um útflutningssjóð o. fl. — í fyrra var héraðsbann á Ak- ureyri og ísafirði, en nú er það afnumið. Myndlistarmenn vilja byjijsja hús MEÐAL 45 erinda sem tekin voru fyrir á síðasta fundi bæjar- ráðs var umsókn frá 10 mynd- listarmönnum þar sem sótt er um lóðir til byggingar íbúða og vinnustofa. Var erindi þeirra vís að til skipulagsstjóra bæjarins. S&x MMasmma sieímtlÆta á Smstdi ssseð srikis- stjórsaisssii Ráðherrar í ríkisstjórninni voru ekki til viðtals 'í gærmorg- un. Var ríkisstjórnin á fundi, sem stóð a. m. k. frá klukkan 10 til hádegis. ★★ Um klukkan 10 í gærmorg- un sáust nefndarmenn í hinni svonefndu sex manna nefnd stjórnar Alþýðusamb. íslands og efnahagsnefndar sambandsins, ganga upp í Stjórnarráð. Það var þessi nefnd sem sat á fundi með ríkisstjórninni fram undii hádegi. ★★ Sex manna nefndin var kjörin til þess að eiga viðræður við ríkisstj. um efnahagsmálin, og undirbúa næsta fund efna- hagsnefndarinnar, sem sam- kvæmt tilkynningu frá stjórn A. S. í. mun verða haldinn ein- hvern næstu daga. llm 12% fjárins á Lcekj- arskógi sýkf af mœðiveiki Veikin finnst aðalfega í BÚÐAKDAL, 16. okt. — Lokið er nú slátrun fjárins á bænum Lækj arskógi, að undanteknum örfá- um kindum sem ekki hafa komið fram ennþá við leitir. Er féð hátt á þriðja hudrað. Svipað mörg mæðiveikitilfelli fundust í dag og í gær, sem þýðir, að um 12% Gunnar Guðjónsson, form, Verzlunarráðs Islands Á FUNDI stjórnar Verzlunarráðs íslands, sem haldinn var í gær, var Gunnar Guðjónsson, stór- kaupmaður, kosinn formaður þess. Sigurður Ágústsson, alþingis- maður, var kosinn fyrsti vara- formaður og Magnús J. Bryn- jólfsson, kaupmaður, annar varaformaður. Framkvæmdastjórn ráðsins skipa þessir menn: Gunnar Guð- jónsson, stórkaupmaður; Ingólf- ur Jónsson, alþingismaður; ís- leifur Jónsson, kaupmaður; Magnús J. Brynjóifsson, kaup- maður; Páll Þorgeirsson, stór- kaupmaður; Sigurður Ágústsson, alþingismaður og Sveinn Guð- mundsson, iðnrekandi. 5—6 vetra gömtum ám fjárins hafi verið með veikina. Aðallega fannst mæðiveiki i 5—6 vetra gömul ám. Á Þorbergsstöðum er búið að slátra um 100 kindum. Ekki hef- ur fundizt nein mæðiveiki í því sem búið er að slátra ennþá, að undantekinni þeirri einu kind sem veikinnar varð fyrst vart, hjá. Haldið verður áfram að slátra fénu á Þorbergsstöðum á morgun. — Elís. Vænsfi dilkurinn 27 kg KÓPASKERI, 8. okt. — Hér er búið að slátra um 15 þús. fjár. Dilkar eru heldur vænni en í fyrra; meðalvigt er tæpu kg meiri en þá, eða nálæga 15 kg. Þyngsti dilkurinn, sem komið hefir til þessa vó 27 kg. Eigandi hans var Eiður Guðlaugsson, Hólsseli. Þyngsti ærskrokkur, er komið hefir í haust vó 44 kg. og var Kristján Benediktsson, Þverá eigandi hans. Heyskapartíðin er alltaf jafn erfið, rigning flesta daga. Þó hafa bændur náð nokkru af heyjum nú síðustu daga. Heimtur á fé úr afrétt eru tald ar mjög slæmar og halda bænd- ur að tófan hafi ráðið þar mestu um. — Jósep. Listasafn ríkisins opnað að nýju í dag Var lokað vegna sýningar Júlíönu Sveinsdóffur í DAG verður Listasafn ríkisins opnað að nýju, en það hefur ver- ið Iokaö í einn og hálfan mánuð, þann tíma sem listsýning Júlí- önnu Sveinsdóttur stóð yfir. — Safnið verður framvegis opið á sama tíma og áður, þriðjudög um, fimmtudögum og laugardög um milli kl. 1 og 3, en á sunnu- dögum milli 1 og 4. var illa farin og þurfti lagfær- ingar við. í sumar gerði svo lista- maðurinn sjálfur við höggmynd- ina og hefur henni nú verið kom- ið fyrir meðal annarra listaverka Sigurjóns í safninu. Símabilun í Vesturbœnum ÞAÐ ÓHAPP varð í fyrradag, þegar verið var að grafa skurð vegna leiðslna, sem leggja á í Fornhaga, að símastrengur með 200 línum kubbaðist í sundur. Viðgerð þarna er erfið, og var ekki búizt við, að henni lyki fyrr en einhvern tíma sl. nótt. Voru því á annað hundrað símar sam bandslausir rúman sólarhring. Tvö ný listaverk Listasafni ríkisins hafa nú bætzt tvö ný listaverk, sem ekki hafa verið þar til sýnis áður. Er það málverk eftir Júlíönu Sveinsdóttur, sem hún gaf safn- inu að aflokinni sýningu, „Sjálfs- mynd“, síðan 1932, og „Verkamað urinn“, höggmynd eftir Sigurjón Ólafsson, síðan 1930. Fyrir þá höggmynd hlaut Sigurjón gull- pening Listaakademíunnar í Kaupmannahöfn 1930. Verið lagfærð „Verkamaðurinn" hefur verið í vörzlu Listasafns ríkisins um hríð. Myndin hefur ekki verið Ihöfð til sýnis vegna þess, að hún Barnaheimilið Glaumbær eftir stækkunina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.