Morgunblaðið - 17.10.1957, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.10.1957, Blaðsíða 19
Flmmtudagur 17. okt. 1957 MQRGVTSB l 4Ð1Ð 19 Hljómleikoi KK-sexlettsins — Krúsjeff Frh. af bls. 1. ræningjaaðstöðu sinni. Vissir stjórnmálamenn á Vesturlöndum byrja og enda allar ræður sínar með því að vitna til guðs, að guð færi mönnum frið og hamingju. En meðan þeir tala svo eru verkn aðir þeirra allt annars kyns. Hví- líkt guðlast! Enn síðar hélt Krúsjeff áfram og beindi nú máli sínu meir að Tyrklandi: — Bandaríska valdaklíkan vinnur ákaft að því að ýta Tyrkj- um inn á þessa hættulegu braut. Afleiðingarnar af aðgerðum þeirra Dullesar og Hendersons geta orðið alvarlegar. Ég vil aðeins segja, að það er auðvelt að koma af stað styrjöld, en miklu örðugra að stöðva hana. Ef Tyrkir byrjuðu hernaðar- aðgerðir gegn Sýrlandi gæti það haft alvarlegar afleiðing- ar í för með sér, líka fyrir Tyrki. Þessi neisti gæti kveikt hið stórkostlegasta bál al- heimsstyrjaldar. Við, fyrir okkar leyti, gerum allt sem við getum til að hindra að styrjöld brjótist út. En auð- vitað getum við ekki setið hjá aðgerðarlausir, þar sem nálæg Austurlönd eru í næsta nágrenni við Sovétríkin. Tyrkland er líka nágranni okkar og hefur sam- eiginleg landamæri við okkur á löngu svæði. Við viljum vara tyrknesku stjórnina við að fara út í nokkur ævintýri, þar sem Tyrkland getur hrapað niður í hyldýpisgjá styrjaldarinnar og átt erfitt með að sleppa þaðan. Gagnstætt okkur, er hin stríðs- æsta valdaklíka Bandaríkjanna, öll af vilja gerð að koma af stað styrjöld á þessu svæði og auð- vitað með fullu samþykki valda- klíkanna í Bretlandi og Frakk- landi. Það er hvort sem er vitað, að þegar Bretar, Frakkar og ísraelsmenn réðust á Egyptaland sl. ár, var það ekki án vitneskju valdaklíku Bandaríkjanna. Að vísu lét valdaklíka Bandaríkj- landi. Það er líka augljóst, henni á óvart. En enginn maður í allri veröldinni trúir því. Um Tyrkland sagði Krúsjeff einnig: — Ef styrjöld brytist út, þá erum við nálægt Tyrklandi, en þið Bandaríkjamenn eruð það ekki. Um leið og byssumar fara að skjóta geta eldflaug- arnir farið að fljúga og þá er of seint að iðrast. Nú þegar Tyrkir eru að safna herliði sínu við sýr- lenzku landamærin flytja þeir herinn frá rússnesku landa- mærunum og veikja varnir sínar þar. Það ættu þeir ekki að gera. Þegar James Reston lét í Ijós undrun sína yfir þessum skoðun- um og bað Krúsjeff að koma fram með einhverjar sannanir eða nánari upplýsingar um fyrir- ætlánir Loy Hendersons varðandi Sýrland, svaraði Krúsjeff aðeins: — Hvers vegna spyrjið þér ekki DuIIes? í ræðum sínum vitnar hann oft til guðs. Látið hann segja yður sannleikann og sverja við guð, að það sé satt sem hann segir yður. Krúsjeff vek einnig að því að Rússar vildu ekki vígbúnað, en þegar Reston spurði, hvort Rúss- ar ættu ekki sinn þátt í styrjald- arhættunni í nálægum Austur- löndum með vopnasendingum til Araba, svaraði hann: — Sovétríkin hafa ekki verið með neinar stríðsógnanir í Sýr- landi. Það er ekki einn einasti rússneskur hermaður í Sýrlandi. Þar er aðeins efnahagsnefnd, sem hefur með sér nokkra tæknilega ráðunauta. Það eru engir aðrir rússneskir borgarar í Sýrlandi en starfsmenn sendiráðsins. Það er ekkert leyndarmál, að við höf- um selt ákveðið magn af vopnum til Sýrlands, en aðeins til sjálfs- varnar. Þér hafið vænlanlega tek ið eftir því að Bandaríkjamenn hafa einnig selt öðrum þjóðum vopn. Bréf Krúsjeffs KAUPMANNAHÖFN, 16. okt. — Leiðtogar danskra jafnaðar- manna athuga nú bréf Krúsjeffs, er sent var út í gær. í bréfi þessu segir aðalritarinn, að Bandaríkja menn og Tyrkir hyggist ráðast á Sýrlendinga. Socialdemokraten segir í dag, að danskir jafnaðar- menn hafi alla tíð fordæmt hern- aðarárásir. Bréf Krúsjeffs, held- ur blaðið áfram, er áróðursbragð, en það er bíræfni af rússneskum kommúnistum að ræða um hern- aðarárásir. Þetta eru sömu menn- irnir sem lögðu blessun sína yfir árásina á Suður-Kóreu og Ung- verjaland, segir blaðið. Auk þess, segir blaðið ennfremur, er vert að minnast þess, að Rússar hafa stóraukið spennuna í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs með vopnasendingum sínum þangað. Leiðtogar brezka Verkamannafl,- ins athuga bréf Krúsjeffs, en það verður ekki tekið fyrir í mið- stjórn flokksins fyrr en í næstu viku. Þó hafa leiðtogar flokksins bent á, að ef Krúsjeff álíti að Sýr lendingum stafi hætta af Tyrkj- um, þá eigi hann að snúa sér til Öryggisráðsins, en ekki til jafn- aðarmannaflokka Vestur-Evrópu. Loks benda þeir á, að brezki Verkamannaflokkurinn sé ekki i neinum tengslum við rússneska kommúnistaflokkinn. Islcnzkt bókasafn ÁLASUNDI, 16. okt. — Ákveðið hefur verið að koma upp sér- stakri deild með íslenzkum bók- um í Bæjarbókasafninu í Ála- sundi. — Bækurnar, sem settar verða í þessa íslenzku deild, hafa flestar verið gefnar frá Akur- eyri. — Þetta mun treysta menn- ingarsamband Vestur-Noregs og íslands. Loffleiðir lækka farmgjöld verulega EFTIR miðjan þennan mánuð munu Loftleiðir Iækka farm- gjöld öll á flugleiðinni milli Reykjavíkur og New York, og er þessi lækkun mjög veruleg. Vöruflutningar hafa vaxið mjög með flugvélum Loftleiða síðöstu ár, og var aukningin á því magni ,sem flutt var í fyrra t .d. 185%, miðað við árið 1953, en nam þó ekki nema 237 tonn- um alls. Sjálf lækkunin, sem nú hefir verið boðuð frá og með 23. þ.m. er um 30%, en verður í reynd- inni miklu meiri, því að þau gjöld, sem kaupsýslumönnunum er gert að greiða frá því er var- an kemur til landsins og unz hægt er að selja hana, ákvarð- ast að verulegu leyti af upphæð greiddra farmgjalda, og nemur heildarlækkunin því í sumum til- fellum allt að 80%. Til dæmis má geta þess, að til fastra viðskiptamanna mun lækkunin nema 549 krónum fyr- ir hver 100 kg. af innfluttum bifreiðavarahlutum en 967 krón- um fyrir sama þunga vefnaðar- vöru. I. O. G. T. Sl. Andvari nr. 265 Fundur í kvöld kl. 8,30. Inn- taka. Kaffikvöld. Hagnefnd sér um skemmtiatriði. — Fjölsækið. — Æ.t. Sl. Frón nr. 227 Fundur í kvöld kl. 8,30 á Frí- kirkjuvegi 11. Vígsla nýliða, inn- setning embættismanna. — Karl Karlsson segir sögu. Kaffi eftir fundinn. — Æ.t. Saumaklúbburinn Fyrsti fundurinn á haustinu er í dag (fimmtudag), kl. 3 e.h. í Góðtemplarahúsinu. Systurnar eru | beðnar að fjölsækja. — K.K.-SEXTETTINN hélt tíu ára afmælishljómleika sína í Aust- urbæjarbíói fimmtudaginn 10. >.m., fyrir réttri viku síðan. í fyrstu mun ekki hafa verið ætl- un hljómsveitarinnar að leika nema þessa einu hljómleika, en vegna mikillar aðsóknar voru þeir endurteknir á sunnudags- kvöldið var, og verða enn haldnir í kvöld klukkan 11,15 á sama stað og mun alveg einsdæmi, að íslenzk danshljómsveit haldi ein síns liðs svo marga hljóm- leika í röð hérlendis fyrir fullu húsi. Það finnst þó skýring á þessu, að áliti undirritaðs, sem var viðstaddur fyrstu hljómleik- ana, en hún er sú, að K.K.-sext- ettinn og söngvararnir Sigrún Jónsdóttir og Ragnar Bjarnason stóðu sig þar með slíkri prýði, að fullyrða má, að hver einasti viðstaddra hafi fengið þar að heyra og sjá eitthvað við sitt hæfi, og haldið ánægður heim- leiðis að hljómleikunum loknum. Á fyrrihluta efnieskrárinnar voru vinsæl dægurlög, sungin af þeim Sigrúnu og Ragnari, t. d. „Close your eyes“ og „Anastasia“, sungin af Ragnari og „Cry me a river“, sem Sigrún söng, en öll þessi lög eru vinsæl mjög um þessar mundir. Þá léku Kristján Kristjánsson, Jón Sig- urðsson, Árni Scheving, Kristján Magnússon og Ólafur Gaukur hver sitt einleikslagið, og má segja, að þeim hafi tekizt vel upp, enda einleikslögin vel val- in. Ekki er þó því að neita, að vart varð við nokkurn tauga- óstyrk í fyrstu, sem þó jafnaði sig þegar fram í sótti. Ástæða er einnig að geta kvartett- og kvintettsöngs hljómsveitar og söngvara í nokkrum lögum, sem tókst með ágætum. Samkomur K.F.U.M. — Ad. Fundur í kvöld kl. 8,30. Bjarni Eyjólfsson talar. — Allir vel- komnir. — Hjálpræðisherinn 1 kvöld kl. 20,30. Almenn sam- koma. Söngur og hljóðfærasláttur. Fíladelfía Almenn samkoma kl. 8,30. — Ræðumenn: Hertha Magnússon og Tryggvi Eiríksson. — Allir vel- komnir. — Frímerki Stærsti frímerkjaklúbbur Norðurlanda býður 50 íslendingum að gerast meðlimir klúbbsins. Ekkert með- limagjald. Skrifið til „Djursland“ Skæring pr. Hjortshöj, Danmark. Frímerkjaskipti óskast Læt nýrri merki frá Svíþjóð, Noregi og Ungverjalandi. — Kaj Norling, Lároverksgt. 41C, Bollnás, Sverige. Óskum að kaupa mikið magn af notuðum og ónotuðum íslenzkum frímerkjum. Bernt von Knorring, Box 63, Alvdalen, Sviþjóð. Frimerkjaskipti Við óskum sambanda við ís- lenzka frímerkjasafnara og frí- merkjasala. Einkum óskum við eftir bréfaafklippum, nýjum útgáf um, útgáfu dagsumslögum ásamt öllum myndafrímerkjum. — Við bjóðum í skiptum dýr, dönsk frí- merki, frímerki í kilóatali frá póstþjónustunni, nýjar útgáfur og útgáfudagsumslög. Ef þér ósk- ið þess að selja frímerki gegn greiðslu út í hönd í reiðu fé, þá skuluð þér senda okkur upplýsing- ar um hvaða merki þér viljið selja og við munum gera yður gott tilboð. Síðari hluti hljómleikanna hófst á trommusóló Guðmundar Steingrímssonar. Enda þótt trommusólóar falli ekki sérlega í smekk þess, sem þetta ritar, er ómögulegt að neita því, að þessi var í sérflokki, ekki að- eins tæknileg tilþrif, heldur einnig leikur, og heildarsvipur- inn með þeim hætti, að lófatak- inu ætlaði aldrei að linna, er Guðmundur lauk leik sínum. þessu loknu hófst rokkið, og var greinilegt ,að margir hinna yngri í salnum höfðu beðið þeirrar stundar. Færðist nú fjör mikið í tuskurnar og linnti ekki lát- um til loka hljómleikanna. — Hljómleikunum lauk svo á tveim vinsælustu lögunum þessa dag- ana, „Freight train“ og „Water, water.“ Hljóðfæraskipan í þeim var óvenjuleg — mátti sjá gítara allmarga, mandólín og hið þarfa tæki, þvottabretti, sem mun þó hingað til hafa meira verið not- að á öðrum vettvangi en hljóm- leikahaldi. Þarf ekki að fjölyrða um, að útkoman af þessu öllu var hin skemmtilegasta og er full ástæða til að hvetja fólk til að leggja leið sína í Austurbæjar- bíó í kvöld, en þar fara fram síðustu hljómleikar K.K. sex- tettsins og söngvaranna Sigrúnar Jónsdóttur og Ragnars Bjarna- sonar að þessu sinni. J. S. Félagslíf Fimleikafélag Hafnarfjarðar Aðalfundur félagsins verður haldinn sunnudaginn 20. nóv., kl. 2 e.h. í Skátaskálanum. Venjuleg aðalfundarstörf. — Stjórnin.__ íþróltafélag kvenna Munið leikfimina í bvöld kl. 8, í Miðbæjarskólanum. Fylgist með frá byrjun. — Stjórnin. íþróttasalur K.R. er opinn til æfinga. Frjálsíþróttadeild K.R. Æfingar eru nú hafnar innan- húss og verða fyrst um sinn sem hér segir: — Á mánudögum og föstudögum kl. 8—9 í íþróttahúsi Háskólans. — Á þriðjudögum kl. 7,40—8,30 í K.R.-húsinu. F.K.R. FARFUGLAR Fyrsta tómstundakvöld vetrar- ins verður í kvöld kl. 9 að Lindar- götu 50. Spiluð verður féiagsvist. Fjölmennið. — Nefndin. D A G S K R Á fyrir bandaríska þjálfarann í körfuknattleik, hr. John S. Nor- lander. — Fimmtudagur 17. þ.m. Kl. 5,30—7,00: Æfing hjá íþrótta- félagi Stúdenta, Háskólinn. Kl. 9,00—10,30: Fyrirlestur og kvik- myndasýning, Laugav. 13, 5. hæð. BEZT AÐ AUGLÝSA l MORGUNBLAÐIHU DANISH STAMP Co. Stjórnin. i Mysundegade 1,5 Köbenhavn V. Hjartanlega þakka ég þeim vinum og vanda- mönnum, dætrum og tengdasonum, sem glöddu mig með heimsóknum, góðum gjöfum og skeytum á sjötugsafmæli mínu 7. okt. sl. Guð blessi ykkur öll. Guðný Bjarnadóttir, Borgarnesi. Útför móður minnar JÓHÖNNU INGIMUNDARDÓTTUR frá Tannanesi, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. þ. m. kl. 3,30 síðdegis. Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna Fanney Guðmundsdóttir. Eiginkona mín og móðir okkar VALBORG KARLSDÓTTIR frá Seyðisfirði, verður jarðsett frá Fossvogskirkju föstu- daginn 18. þ. m. kl. 2 e. h. Húskveðja verður að Hjarðarhaga 64, kl. 1,15 e. h. Athöfninni verður útvarpað. Michael Sigfinnsson og börn. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður minnar og systur okkar BIRGITTU GUÐMUNDSDÓTTUR Fyrir mína hönd og systkinanna Jón Sveinbjörnsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför mannsins míns og föður okkar SÍMONAR STURLAUGSSONAR Kaðlastöðum, Stokkseyri. Viktoría Ketilsdóttir, börn og tengdabörn. Hjartanlega þökkum við öllum þeim hinum mörgu, nær og f jær, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og jarðarför móður okkar og systur VALGERÐAR RUNÓLFSDÓTTUR, Syðri-Rauðalæk. Lára Púlsdóttir, Haraldur Halldórsson, Gunnar Runólfsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför ELÍSABETAR EGILSON Erla Egilson María Egilson Ólafur Geirsson Friðjón Skarphéðinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.