Morgunblaðið - 21.11.1957, Síða 9

Morgunblaðið - 21.11.1957, Síða 9
Fimmtudagur 21. nóv. 1957 MORGrNM 4Ð1Ð 9 Fsru Ænsiee Nordal Afmæliskveðja NORSK skáldkona sagói víst einhvern tíma, að nóvember væri dapurlegasti mánuður ársins, því að þá væri myrkrið í algleymingi til beggja handa. En sumum dögum fylgir samt unaður og fegurð, jafnvel þó sé á þessum dimma árstíma. Og þannig hugsa ég mér 21. növ., af- mælisdag frú önnur Nordal frá Ólafsfirði. Hann ber svipmót hennar sjálfrar og allra þeirra minninga, sem ég á og geymi um þessa góðu og elskulegu konu. Þar er bjart um að litast, sól og vor, en ekkert skammdegi. Frú Anna er fædd 21. nóv. 1897 og nær því í þetta sinn merkum aldursáfanga. Hún er Húnvetn- ingur að ætt og voru foreldrar hennar Sólbjörg Jónsdóttir frá Hjallalandi í Vatnsdal og Jó- hannes Nordal frá Kirkjubæ í Vindhælishreppi. En hann varð kunnur maður, er hann sá um byggingu fyrsta íshússins í Reykjavík nokkru fyrir aldamót og veitti þvi forstöðu um tugi ára. Eru þau systkin, samfeðra, frú Anna og dr. Sigurður Nor- dal, prófessor. En þó að frú Anna sé Hún- vetningur að ætt, er hún Reyk- víkingur að uppeldi. Barnung var hún tekin til fósturs að Rauð ará, sem þá og lengi síðan var merkilegt höfðingjasetur, þar sem gömul íslenzk sveitamenn- ing tók sér stöðu í vaxandi borg. Þar ólst Anna upp hjá hinum þekktu ágætishjónum, Vilhjálmi bónda Bjarnarsyni frá Kaupangi og Sigríði Þorláksdóttur, og gengu þau henni algerlega í for- eldrastað, enda unni hún þeim mikið. Rúmlega tvítug, eða 6. nóv. 1920, giftist Anna Ingólfi Þor- valdssyni frá Krossum á Árskógs strönd, en hann var þá við há- skólanám í Reykjavík og tók embættispr'óf í guðfræði fám misserum síðar. Vígðist hann prestur að Þóroddsstað í Kinn vorið 1923 og fluttu þau hjónin þá þangað norður. En árið eftir fékk síra Ingólfur Kvíabekk og settist að í Olafsfirði, þar sem heimili þeirra frú önnu hefur staðið um 33 ára skeið. Eiga þau þrjá gervilega syni, sem allir eru búsettir í Reykjavík. Og nú hafa atvikin hagað því svo, að prestshjónin í Ólafsfirði eru einnig flutt þangað, a. m. k. um sinn, og setzt að á Hagamel 45. Og þar verður gestkvæmt á afmæli húsfreyjunnar, því að margt góðra og gamalla vina mun finna þangað leið. En hinir eru þó miklu fleiri, sóknarbörn síra Ingólfs og vinir þeirra hjón- anna hér fyrir norðan, sem verða að láta sér nægja að senda úr fjarlægð óskir sínar og kveðj- ur. Er þá margs að minnast frá langri samferð, bæði á björtum sólardögum og í dimmu skamm- degi. En hugir flestra munu staldra við heimilið, sem þau hjón að vísu byggðu upp saman og gerðu óvenju hlýtt jafnan og aðlaðandi, en þar sem húsfreyj- unnar naut þó að alveg sérstak- lega í öllum hlutum, frábærra hæfileika hennar, þekkingar og myndarskapar. Það gleymist eng- um, sem átti því láni að fagna að eignast vináttu þeirra prests- hjónanna í Ólafsfirði og með þeim fleiri eða færri samveru- stundir á farinni leið. En minnis- stæðast af öllu verður heimili þeirra og það allt, sem þar var boðið fram af svo hreinni alúð AOALFUIMDUR FLUGFÉLAGS ÍSLAIMDS HF. verður haldinn í Kaupþingssalnum í Reykjavík, föstudaginn 6. desember 1957 kl. 2 e.h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Aðgöngu- og atkvæðamiðar fyrir fundinn verða afhentir í skrifstofu félagsins, Lækjargötu 4, dag- ana 4. og 5. desember. Stjórnin. Símastúika Ein af elztu og stærstu heildverzlunum bæjarins vill ráða til sín símastúlku strax. Umsóknir með mynd umsækjanda, ásamt upplýsingum um síma- númer, menntun, aldur, fyrri störf og annað, sem máli skiptir, sendist afgr. Mbl. fyrir 25. nóvember. Vélritunarkunnátta æskileg. Umsóknir merkist: Símastúlka — 3349. Myndir verða endursendar. * og hjartanlegri gestrisni. Þar, sem hvað eina bar svo ótvíræð merki listræns þokka og rótgró- innar menningar. Má víst full- yrða, að einmitt þær minningar varpi nú, í vitund flestra, mest- um Ijóma yfir afmælisdag frú Önnu. En heimiU prestshjónanna í Ól- afsfirði stendur enn, þó að nú sé í nýju umhverfi, og hefur raunar vafalaust aldrei verið vistlegra að ytri sýnd en einmitt á þess- um tímamótum. Mættu ókunnug ir hæglega undrast, hve öllu heí- ur þar verið fljótt og fagurlega skipað. En í því hefur eigi hvað sízt, eins og fyrr, notið hand- bragðs og snilli húsfreyjunnar. Og þó er hitt mest um vert, að hjá þeim hjónum er allt enn þá, eins og vænta mátti, með sínum gamla og góða svip, sem við, vin- ir þeirra, þekkjum svo vel, hýrt og hispurslaust, aðlaðandi og elskulegt. Þar stendur allt á sín- um trausta grunni og — bjart til beggja handa. Erú Anna og síra Ingólfur! Við sendum héðan að norðan hug- heilar afmæliskveðjur, þökkum það liðna og óskum ykkur heilla og blessunar Guðs á komandi dögum. Sigurður Stefánsson. Röskan og ábyggilegan vantar okkur nú þegar, hálfan eða allan daginn. Guðiti. GaðmiindssoB & Cð. Hafnarstræti 19 Tvcer nýtízku 4ra herbergja íhúöir 115 ferm. hvor, báðar á fyrstu hæð í sambyggingu við Ljósheima, til sölu. Seljast fokheldar með mið- stöðvarlögn, vatns- og skolplögn. Húsið verður frágengið að utan. Tvennar svalir eru á hvorri íbúð. Nýja fasteagiiasalan Bankastr. 7, sími 24300 og kl. 7,30—8,30 e.h. 18546 DÖmur ! Þér getið veitt yður tvo jólakjóla fyrir einn með því að sauma sjálfar eftir Butteric k sniði Austursfrœti IMýkomnir ódýrir Kven kuldaskór úr gaberdin Verð kr. 189,00 og 198,00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.