Morgunblaðið - 22.12.1957, Síða 20
20
MORCVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 22. des. 1957
i
j
RAFSUÐUTÆKI
Innflytjendur:
Járniönaðarmenn!
Ötvegum beint og af-
greiðum af lager eft-
irtalið:
Sérbyggðar D.C. raf-
iuðuvélar, knúnar
3ja-fasa innbyggðum
rafmótor, ásamt inn-
Dyggðum stjörnuræsi
Einfasa rafsuðu-
straumbreyta.
Sérbyggða 3ja-fasa
rafsuðustraumbreyta
með straumjafna á
:afkerfinu, sem gef-
ar rafsuðu ýmsa
sosti framyfir venju-
iega traumbreyta.
Einkaumboðsmenn:
Everest Trading
Company
Garðastræti 4,
sími 10969
Erdo GjÖF
= ER
1 5LEÐI
\rr~
VERPARPJ
Lísa gerist skáti
144
NÝLEGA er komin út á vegum
„Úlfljóts“ skátasagan „Lísa ger-
ist skáti“, eftir enska rithöfund-
inn C. R. Mansell. Það er svo
sem ekki í frásögur færandi, þó
lítil telpa gerist skáti, slíkt er
orðið svo algengt að flestum mun
varla finnast orð á því gerandi
að minnast á það. En um Lísu
litlu er svolítið öðru máli að
gegna. Hún er aðeins 11 ára
gömul, en hefur þó öðlazt lífs-
reynslu á við marga, sem mun
eldri eru. Hún er fædd og upp-
alin í fátækrahverfi Lundúna-
borgar, þar sem ástandið er
þannig, að íslenzkir lesendur
eiga örðugt eða jafnvel ókleift
með að skilja það eins og það er
KARLMANNASKÓR
svartir — brúnir, úr mjúku skinni,
reimaðir og óreimaðir
Kven- karmanns- og barna- inniskór
— Gott úirval —
Skóverzlun Péturs Ándréssonar
Laugavegi 17 — Framnesvegi 2
TMMSElESna
og eiga þar af leiðandi bágt með
að setja sig í spor Lísu.
Móðir hennar er ekkja eftir
drykkjumann, sem látizt hefur
af slysförum sakir ölæðis.
Hún er að reyna að berjast
áfram með 6 börn og af þeim
er Lísa elzt. Lísa er mjög óvenju-
legt barn, því hún býr yfir þeim
þroska og skilningi á kjörum
móður sinnar, sem undravert er.
En líf hennar er líka fullt af
mótlæti, sorg og alvöru, alltof
lítið sólskin á vegi svo lítils
barns.
Þá heyrir hún sagt frá skáta-
hreyfingunni, og af því, sem hún
heyrir, öðlast hún fullvissu um
það, að með því að gerast skáti,
geti hún eignazt góða vini og
jafnvel ánægjustundir, sem
myndu létta henni áhyggjur hins
daglega lífs.
Hún kemur á skátafund. Það
liggur við að skátastúlkurnar
sýni henni tómlæti og sumar
jafnvel andúð, því hún er svo
óhrein og illa til fara. En skáta-
foringinn þaggar allt svoleiðis
niður, en segir Lisu að þvo sér,
áður en hún komi á næsta fund.
Vilji hún gerast skáti, þá skuli
henni verða hjálpað og svo er
hún tekin inn í „Sóleyjarflokk-
inn“.
Allir skátar eru jafnir, hvort
sem þeir eru rikir eða fátækir,
hreinir eða óhreinir. Það eru ekki
alltaf verstu óhreinindin, sem
utan á sjást, þau er hægt að
þvo af. Hin eru verri, sem innan
að frá koma, þar vérða skáta-
lögin að koma til sögunnar. Þar
dugar hvorki vatn né sápa, held-
ur það hugarfar, sem þroskast
fyrir áhrif góðs félagsskapar.
Þetta verða hinir ungu skátar
að læra. Endirinn verður auð-
vitað sá, að nú vilja allir hjálpa
Lísu og hún er sannarlega hjálp-
arþurfi, fátæk og umkomulaus.
Kemur það aðallega í ljós, þegar
mamma hennar veikist sökum
skorts og ofþreytu og verður að
fara á sjúkrahús, en Lísa felur
sig með litla bróður sinn, af því
að hún gat ekki hugsað sér að
skilja hann við sig, en það átti
að tvístra systkinahópnum og
láta þau fara á barnaheimili. í
öllum þessum raunum Lísu, sýna
skátasystur hennar, hvað þær
eru henni góðir félagar.
„Lísa gerist skáti“ er góð bók
og getur áreiðanlega vakið hina
ungu lesendur sína til umhugs-
unar um það, hvað þeir eiga góð
heimili og umhyggjusama for-
eldra. Flest börn hérlendis
þekkja ekki, sem betur fer,
svona skuggahliðar lífsins. Við
lestur slíkra bóka læra þau að
meta gildi góðs heimilis. En fyr-
ir utan það, hvað efni bókarinn-
Hungarían Trading Company for Electrical Equipment and supplies
ar er alvarlegt, þá er létt yfir
henni, og hún er skemmtileg til
aflestrar.
Þorvaldur Þorvaldsson, kenn-
ari og skátaforingi á Akranesi,
hefur þýtt bókina.
Sem gamall skáti og skáta-
foringi um margra ára skeið, hef-
ur hann mjög góðan skilning á
efni bókarinnar.
Hjálpsemin og vináttan ganga
eins og rauður þráður gegnum
alla bókina og sanna, að hvar
sem við dveljum í heiminum, og
við hvaða aðstæður, sem við lif-
um, er eru „Allir skálar góðir
lagsmenn".
Hrefna Tynes.
Sýnirádánarbeði
Sir William Barrett
ÞAÐ er ótrúlegt að nokkur mað-
ur geti mótmælt því, að visinda-
legar rannsóknir fari fram um
framhaldslíf eftir hinn jarðneska
dauða. Ég hef að visu þekkt
nokkra góða og skyggna menn,
sem hafa sagt, að þetta atriði
skipti þá engu máli. „Um slíkt
fæst nú lífið ei meira við mig,
en máske tekst dauðanum betur“,
sagði Þorsteinn Erlingsson, en þó
í nokkuð annarri merkingu. Hann
mun hafa haft útskúfunarkenn-
inguna í huga. Ég fæ ekki betur
séð , en það sé mikilsverðasta
málið, sem varði alla, hvort unnt
sé að sanna það, að mannssálin
haldi sínu persónulega lífi eftir
burtförina af jörðinni, haldi
áfram að þróast og þroskast þar
til einhverju takmarki er náð,
sem alvitur Guð einn veit hvað
er.
Bók sú er hér um ræðir er eftir
William Barrett, brezkan aðals-
mann og viðurkenndan vísinda-
mann er lifði frá 1845 til 1926.
Hann var mjög strangur og alvar
legur vísindamaður. í greinargóð
um formála gerir dómprófastur
Jón Auðuns æviatriði hans og
starf að umtalsefni og er hafið
yfir allan efa að Sir William var
einlægur í leitinni að sannleikan-
um og laus við ofstæki og oftrú
á létt sönnuðum fyrirbiúgðum.
Þetta er falleg og góð bók, vel
frá henni gengið að öllu leyti.
Prentuð á góðan pappír með góðu
letri, þýðing vönduð og verð lógt.
Hún hefur mikinn boðskap að
flytja og heilnæman, frólegan og
huggunarríkan.
Sannleiksleitinni er ekki lokið,
mikið frekar má segja að sú leit
sé aðeins nýlega hafin, því hvað
eru nokkur þúsund ár hjá eilífð-
inni.
Þorsteinn Jónsson.
Af hverjum er myndin?
í Skrifaranum frá Stapa
segir: „Þorsteinn Helga-
son var systursonur
biskupsfrúarinnar í Laug
arnesi og hafði um skeið
verið heitbundinn Sig-
ríði dóttur hennar og
Hannesar biskups. Eftir
heimkomuna frá Kaup-
mannahöfn kynntist
hann Sigríði systur Páls
stúdents. Leiddu þau
kynni til, að Þorsteinn
hafði „Sigríðaskipti"
eins og Steingrímur
biskup orðaði það í
bréfi.“
í fórum Skrifarans frá
Stapa má finna fróðleik
og skemmlun.
Þorsteinn Helgason
RntfFPLLSÚTCÁFAN
Letters: Budapest 62, P. O. B. 377 Telegrams: Transelektro Budapest