Morgunblaðið - 21.01.1958, Side 8

Morgunblaðið - 21.01.1958, Side 8
8 MORCVN JTtlÐ Þriðjudagur 21. janúar 1958 Glæsilegur Heimdallarfundur á sunnudaginn Æskan, Sjálfsfæ&isflokkurinn og Reykjavík eiga samleib t FYRRADAG EFNDI HEIMDALLUR til fundar ungs fólks, þar sem rætt var um æskuna og Reykjavík. — Átta ungir Reykvíkingar fluttu þar ræður um málefni borgar sinnar og störf og stefnu Sjálfstæðisflokksins í bæjarmálum. Fyrsti ræðumaður var fulltrúi æskunnar í bæjarstjórn, Geir Ilallgrímsson, formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Húsfyllir var á fundinum og hylltu fundarmenn Geir og aðra læðumenn með dynjandi lófataki. I ræðunum kom glögglega fram, hve ötullega Sjálfstæðis- menn í bæjarstjórn hafa unnið að hagsmunamálum unga fólksins í borginni, hve vel hefur verið búið að skólunum, að íþrótt- um, að heilbrigðisþjónustunni, og öðru því, er ungu fólki er efst í huga. Fjölmennið á fundinum og undirtektirnar sönnuðu, að ung- ir Reykvíkingar ætla að fela Sjálfstæðismönnum að vinna áfram að hagsmunamálum höfuðstaðarins. — Þeir munu á sunnudaginn fylkja sér um D-Iistann og veita ríkisstjórninni verðuga ráðningu. Gildi kosningaréttarins Fundarstjóri, Sverrir Her- mannsson, gaf Geir Hallgríms- syni, bæjarfulltrúa fyrstum orð- ið. Geir sagði m. a.: Við þessar bæjarstjórnarkosn- ingar gengur mikill fjöldi af ungu fólki í fyrsta sinn að kjör- borðinu. Það er hátíðleg stund og á undan þarf að hafa farið róleg íhugun um meginstefnur og einstök málefni. Traustur fjárhagur Á þessum kosningafundi Heim- dallar er mér Ijúft og skylt að gera nokkra grein fyrir því, hvernig unnið hefur verið í bæj- arstjórn Reykjavíkur á undan- förnum árum að því að fram- kvæma stefnumál Sjálfstæðis- manna. Víkjum fyrst að fjármálunum. Á kjörtímabilinu hefur hreia eign Reykjavíkurbæjar aukizt um 242 í 410 milljónir. Þetta er glögg sönnun þess, að hagur Reykjavíkurbæjar er traustur og góður. Það er staðreynd, að útsvör á fjölskyldufólki eru mun lægri í Reykjavík en í öðrum kaupstöð- um landsinsr. En hvað er það þá, sem Reykjavíkurbær hefur gert við þau útsvör, sem borgararnir greiða? Ráðstöfun um helmingsútsvars upphæðarinnar er ákveðin með lögum. Að því, sem þá er eftir, fer langmestur hlutinn, eða um 40% af heildartekjum bæjarins, til ýmissa verklegra fram- kvæmda; gatna- og holræsagerð- ar, íbúða, skóla, Bæjarsjúkra- hússins, íþróttasvæðisins í Laug- ardal, Sorphreinsunarstöðvarinn- ar o. s. frv. Húsnæðismál, hitaveita og heilsuvernd Athugum því næst húsnæðis- málin. Á síðasta kjörtímabili var úthlutað lóðum fyrir 3500—4000 íbúðir, eða fyrir allt að 18.000 manns. Á kjörtímabilinu voru 2690 íbúðir teknar í notkun og um áramótin síðustu voru um 1600 íbúðir í smíðum í borginni. Mörg ný hverfi hafa verið skipu- lögð. Bæjarfélagið hefur byggt 280 íbúðir í því skyni að útrýma heilsuspillandi húsnæði. Á síðasta kjörtímabili hófust einnig framkvæmdir við rafstöð- ina við Efra-Sog og unnið var að stækkun Hitaveitunnar. Gerðar voru boranir í bæjarlandinu og fékkst heitt vatn við Fúlutjörn og Höfða. Eru framkvæmdir hafn ar við hitaveitu í Höfðahverfi, þar sem þetta vatn var nýtt. — Einnig hefur verið unnið að lagn- ingu hitaveitu í Hlíðarhverfi. Á síðasta kjörtímabili var Heilsuverndarstöðin við Barnós- stíg vígð. Fjöldi heimsókna þang- að svarar þegar til þess, að hver einasti Reykvíkingur komi þang- að tvisvar sinnum á ári. Einnig hefur verið unnið að fram- kvæmdum við BæjarsjúkrahúsiS í Fossvogi. Tekin hefur verið ákvörðun um að koma upp fæð- ingarheimili 1 húsum bæjarins við Eiríksgötu og Þorfinnsgötu. og framfarir hafa orðið að því er varðar heilbrigðiseftirlit og hrein lætismál. Æskan, Sjálfstæðisflokkurinn og Reykjavík Það, sem hér hefur verið stutt- lega rakið, sýnir, að Reykjavík byggir dugmikið fólk, sem hefur af því, hvernig hinn sundurleiti hópur vinstri flokkanna verzlar sín á milli um velferðarmál Reykvíkinga. Athafnir núverandi ríkisstjórn- ar gefa glöggt til kynna, hvernig fara muni í bæjarstjórn Reykja- víkur, ef vinstri flokkarnir ná þar yfirhöndinni. Skráin um lof- orðasvik ríkisstjórnarinnar er ærið löng. í varnarmálum var um það tal- að, að betra væri að vanta brauð en að hafa her í landi. Það var fyrir kosningar. Herinn er enn l landi, og það hefur komið fyrir að undarlega skammt væri milii yfirlýsingar ráðherra um, að her- inn yrði ekki látinn fara, og þess, að íslendingar fengju stór pen- ingalán erlendis. Þannig mætti lengi telja. Ofsóknir gegn Sjálfstæðis- mönnum Þótt stjórnarflokkarnir hafi starfsskilyrði verknámsskólans bætt og styrkir veittir til ýmissar annarrar skólastarfsemi. Þetta eru framkvæmdir Reykjavíkur- bæjar á sl. árum. En greiðslur á framlögum rík- isins, sem vera eiga jöfn því, sem bærinn leggur fram, dragast a langinn. Skuld ríkissjóðs við Reykjavíkurbæ vegna skólabygg inga var 8,3 millj. kr. við síðustu áramót og hækkar á þessu ári í 15 millj. kr. Sýnir þetta glögg- lega þann hug, er stjórnarvöldin bera til Reykjavíkur. Er það þvx undarlegt, er jafnvel Framsóknar menn þykjast nú fullir áhuga á málum Reykjavíkur. Annað er þá orðið uppi á teningnum en var, er Reykvíkingar og aðrir kaup- staðabúar voru aldrei nefndir annað í málgögnum þeirra en „Grimsby-lýður“ eða „Malar- skríll“. Reykvíkingar láta ekki blekkjast, þeir vita hverjir það eru, sem unnið hafa af mestum dugnaði að velferðarmálum þeirra á undanförnum árum. Sókn lýðræðissinna í verkalýðsfélögunum Næsti ræðumaður var Guðjón Sigurðsson, iðnverkamaður, for- maður Iðju. Hann ræddi um verkalýðsmál og minnti á, að i fyrravetur féllu 2 vigi kommún- ista í verkalýðssamtökunum, Frá HeimuallaríunaL.uin á ^uuiiudagiun undir forystu Sjálfstæðisflokks- ins leitazt við að skapa sér sifellt betri skiiyrði fyrir blómlegt at- hafna- og atvinnulíf og heilbrigt fjölskyldu- og félagslif. þar sem hver einstaklingur fær að njóta lifshamingju sinnar og hæfi- leika. Æskan, Sjálfstæðisflokkurinn og Reykjavík hafa löngum átt samleið. Eignarréttur einstakl- inga, framtak þeirra, von þeirra um laun í hlutfalli við vinnu- framlag og óskir þeirra um að ná því marki, sem þeir hafa sett sér. hefur alltaf verið grundvöllur allra framfara mannkynsins. — Þegar um er að ræða sífelld ríkis afskipti og ríkisrekstur, síhækk- andi skattaálögur, velur fólkið fremur iðjuleysi en vinnu, öryggi frekar en áhættu og eyðslu frek- ar en sparnað. Áframhaldandi framfarir byggjast á því, að ein- staklingarnir geri sér grein fyr- ir, að það eru ákvarðanir þeirra sjálfra, sem ráða um velferð þeirra, en -ekki forsjá hins opin- bera. Átján mánaða stjórnarstörf vinstri flokkanna hafa sýnt, að þar sem þeir ráða, á æskufólkið þess ekki kost að vera sinnar eigin gæfu smiður. Æskan vill sjálf skapa örlög sín, og því mun æskan, Sjálfstæðisflokkurinn og Reykjavík hér eftir sem hingað til ganga saman til góðs, götuna fram eftir veg. Reynslan af ríkisstjórninni Næsti ræðumaður var Höskuld ur Ólafsson, sparisjóðsstjóri. — Hann sagði meðal annars: Næsta sunnudag verður um það kosið, hvort í bæjarmál- um höfuðstaðarins á að ríkja þróttmikil frámfarastefna, eða stjórn bæjarfélagsins á að mótast ekki gert mikið til að efna þau fyrirheit, er þeir gáfu þjóðinm fyrir síðustu kosningar, hafa þeir verið athafnasamir við ofsóknir gegn pólitískum andstæðingum sínum og tilraunir sínar til að lama einstaklinginn. í þvi sam- bandi mætti nefna varðlags- ákvæði, bankalöggjöf c kosn- ingalöggjöf. Kosningalöggjöfin var sett til þess að i.1 að lama Sjálfstæðisfl-1 ' í Reykjavík. Fyrst var áð fyrir því, að það gæíi ilt að 4000 kr. sekt við þv , ona segði manni sínum, hvv,. . hún hefði kosið eða ekki. Þessu fárán- lega ákvæði var að vísu breytt í þinginu, svo að nú varðar það engum viðurlögum að spyrja, eða segja frá, hvort menn hafa kosið eða hvetja aðra til að fara á kjör- stað. En aðalatriði frumvarpsins voru knúin í gegn með meiri- hlutavaldi stjórnarflokkanna á Alþingi. Reykvíkingar vilja samhenta og heiðarlega bæjarstjórn, er fjalli um málin af frjálslyndi, vel vilja og festu. Nú er kosið um glundroða og upplausn vinstri flokkanna og stefnu Sjálfstæðis- flokksins. Það val er auðvelt. Miklar skólabyggingar Þá tók til máls Hörður Einars- son, menntaskólanemi. — Hann ræddi um skólamál og sagði m.a.: Á síðasta kjörtímabili voru teknir í notkun í Reykjavík 5 nýir skólar og framkvæmdir hafnar við 2 aðra. Gerð var rann- sókn á húsnæðisþörf skólanna og kom þá í ljós, að byggja þyrfti um það bil 25 almennar kennslu- stofur árlega til að fullnægja þörf vegna aukins fjölda nem- enda. Á kjörtímabilinu voru Iðja og Trésmiðafélag Reykja- víkur, í hendur lýðræðissinna. I Iðju hafði stjórn kommúnista set ið lengi að völdum, og kom margt furðulegt í ljós ,er hún skilaði af sér plöggum félagsins. Meðal annars hafði hún misnotað sjóði þess í þágu kommúnista, og t. d. lánað þeim % af sjóðum félags- ins! Kommúnistar berjast nú þessa dagana með tilstyrk Fram- sóknar gegn lýðræðissinnum i ýmsum verkalýðsfélögum. Hvatti Guðjón unga Sjálfstæðismenn sem í félögunum eru til að vinna ótrauðir að sigri lýðræðisaflanna. Og þegar kosið er til bæjar- stjórnar í Reykjavík, sagði ræðu- maður, fylkjum við liði, svo að borgin okkar falli ekki í hendur vinstri fylkingunni, þar sem „Gengislækkunarflokkur alþýðu, gervitunglsflokkurinn", er í far- arbroddi og hefur nú sett shock- lækni í 2. sæti á lista sinn. Á ungum Sjálfstæðismönnum hvíiir mikil ábyrgð, og þeir verða að vinna svo sem þeir framast mega. Ungir Sjálfstæðismenn eru og hafa verið i fararbroddi í stjórn- málabaráttunni og úr röðum þeirra hafa kornið þeir ínenn, sem hæst ber á sviði stjórnmála, félagsmála og atvinnumála í bæn um. Tómstundastörf og íþróttir Skúli Möller, verzlunarskóla- nemi, minnti á stofnun Æsku- lýðsráðs Reykjavíkur 1955. Það hefur komið upp mörgurn tóm- stundaheimilum víðs vegar um bæinn, þar sem ungt fólk á þess kost að sinna hugðarefnum sín- um. Æskulýðsráðið hefur einnig efnt til námskeiða, átt hlut að æskulýðstónleikum og unnið á annan hátt að þvi að þroska unglingana og beina huga þeirra inn á heilbrigðar brautir. Á sviði íþróttamála hefur einnig mikið verið unnið í Reykja vík. Hinn fagri leikvangur í Laugardal var tekinn í notkun á siðasta sumri. Þá hefur verið byrjað á sundlaugarbyggingu á Laugardalssvæðinu, svo og á Sundlaug Vesturbæjar. Reykja- víkurbær hefur einnig styrkt íþróttafélögin til þess að koma sér upp íþróttasvæðum á 8 stöðum í bænum. Þar er góð aðstaða til starfs, og hún hefur verið notuð af ýmiss konar menn ingarfélögum. — Bæjarstjórn Reykjavíkur hefur einnig látið bæta Melavöllinn og komið á samningum um byggingu íþrótta- og sýningarhúss. Þetta eru nokkur dæmi, sagði Skúli Möller, um það, sem Reykjavíkurbær hefur gert til þess að vinna að velferðarmálum ungra Reykvíkinga. Æska Reykja víkur kann að meta þá aðstöðu, sem henni hefur verið búin og hún mun í kosningunum á sunnu daginn kemur efla Sjálfstæðis- flokkinn. Veitið ríkisstjórninni áminningu! Ragnhildur Helgadóttir alþm. sagði, að á sunnudaginn yrði ekki aðeins kosið 1 bæjarstjórn Reykja víkur. Þá gæfist einnig tækifæri til að segja álit á stefnu ríkis- stjórnarinnar og veita henni þá áminningu, sem dygði, til að hún færi sér hægar hér eftir en hing- að til við framkvæmd á óheilla- stefnu sinni. Ragnhildur rakti ýmsar að- gerðir rikisstjórnarinnar, sem miðað hafa að því að mismuna borgurunum eftir stjórnmálaskoð unum eða búsetu. Ræddi hún m. a. um húsnæðismálin og ýmsar ráðstafanir til að skerða frelsi og umráðarétt einstaklinga yfir íbúðum. En stjórnln hefur haft enn frekari ráðagerðir á prjónunum, svo sem fram hefur komið í hinni frægu „gulu bók“ Tillögunum, sem í henni eru, átti að koma í framkvæmd í vetur, en óttinn við Sjálfstæðisflokk- inn og fylgi hans meðal almenn- ings olli því, að stjórnarliðið þorði ekki að bera þau lagafrum- vörp sín fram fyrir bæjarstjórn- arkosningar. Úrslit kosninganna valda vafalaust miklu um það, hvað til bragðs verður tekið síð- ar í vetur á þessu sviði. Fjandskapur ríkisstjórnarinn- ar gegn höfuðborginni hefur kom ið fram á ýmsum fleiri sviðum, sagði Ragnhildur. Við afgreiðslu fjárlaganna nú á haustþinginu var réttur Reykjavíkur fyrir borð borinn og tillögur, er Sjálfstæðis- menn báru fram til að koma fram leiðréttingum, voru að engu hafðar. Tillögur um framlög til heilbrigðisstofnana í Reykjavík voru felldar, einnig tillögur um aukin framlög til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði, um fé til leikvangsins í Laugardal og til skóláhúsa. Á sunnudaginn kemur kjósa Reykvíkingar gegn þeirri ríkis- stjórn sem kann ekki önnur úr- ræði en að setja lög um skyldur og höft, lögskipa skyldusparnað og tekur peningana af æsku- fólkinu. Æskan kýs þann flokk, sem vill byggja á lýðræði og frelsi. Æska Reykjavíkur kýs D-listann gegn ráðleysi, sundr- ungu og stöðnun — með frelsi, einingu og framförum. Framsóknarflokkurinn og Reykjavík Þá tók til máls Birgir ísL Gunnarsson, stud jur., formaður stúdentaráðs Háskólans. Hann sagði meðal annars: Þau sjónarmið, er ráða því, hvernig menn skiptast í fylking- ar stjórnmálaflokkanna. mótast fyrst og fremst af grundvallar- kenningum þeim, er flokkarnir fylgja. En afstaða flokkanna til hinna einstöku mála, sem eru ofarlega á baugi hverju sinni, hljóta þó einnig að ráða hér miklu um. Því er það að fólk úr öllum flokkum hefur á und-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.