Morgunblaðið - 23.02.1958, Síða 2
2
MORCTiNnr 4fíij)
Sunnudagur 23. febrúar 1958
Það er beðið effir frosileysu
svo galnagerð sé möguleg
GÖTUR bæjarins eru nú farnar
að láta ailmikið á sjá, einkum
þó þær sem mest umferð er um.
Sama máli gegnir um Hafnar-
fjarðarveginn. Einkum eru það
snjókeðjur bílanna sem þessum
stórfelldu gatnaskemmdum hafa
valdið. Eru bileigendur orðnir
óþolinmóðir eftir þvi að viðgerð
fari fram.
Að sjálfsögðu hefur það ekki
farið framhjá yfirmönnum gatna-
gerðar bæjarins hve göturnar
eru sumar hverjar orðnar holótt-
ar.
Malbikun á þessum skemmdum
er það eina sem dugar. En ekki
er framkvæmanlegt að malbika
í frosti, því ekki tekst að láta
hið nýja malbik bindast hinu
gamla. Það er meira að segja
illmögulegt að malbika í hláku
og rigningu, en það er þó gert
í neyðartilfellum, og víða fór
lagfæring fram í hlákukafla er
gerði fyrir nokkru.
f síðasta hlákukafla, er vatn
lá á malbikinu og snjókeðjur
bílanna lömdu blautt malbikið,
mátti sjá eftir daginn þau miklu
spjöll sem víða höfðu orðið. Við
þetta hefur ekki verið hægt að
gera. Gagnslaust er að bera ofaní-
burð í holurnar í malbikinu. Það
j Silfurmunum
stolið úr búð
1 FYRRINÓTT var innbrotsþjófn
aður framinn í minjagripa- og
smávöruverzluninni Orlofsbúðin
í Hafnarstræti. Innbrotsþjófurinn
lét þar greipar sópa um ýmis
konar silfurmuni, eyrnalokka,
hringi, armbönd víravirkis og
steypt. Er talið að alls hafi um
130 silfurmunum verið stolið og
er hér um að ræða tjón upp á
þúsundir króna fyrir verzlunina.
er sameiginlegt með starfsmönn-
um gatnagerðarinnar og Vega-
gerðar ríkisins, að þeir bíða eftir
þvi að frostlaust verði, þá munu
vinnuflokkarnir fara á stúfana í
bænum og suður á Hafnarfjarðar
arveg, sem verstur er í Fossvogi.
Verkfræðingar sem að þessum
málum starfa telja það höfuð-
nauðsyn að hefja allsherjar her-
ferð gegn því að menn aki með
snjókeðjur á bilum sínum þeg-
ar hláku gerir og vatnselgurinn
liggur á malbikinu. Það mun
kosta bæjarbúa stórfé að bæta
það tjón sem orðið hefur á göt-
unum í bænum nú í vetur, af
þessum sökum.
Hátíðafundur
Náttúrufræði-
félagsins
HIÐ íslenzka náttúrufræðifélag
heldur samkomu í hátíðasal Há-
skólans mánudaginn 24. febr. kl.
20.30. Sigurður Þórarinsson, jarð
fræðingur, flytur þar erindi, er
hann nefnir „Eifel—Hötting—
Öræfi“, og sýnir litskuggamynd-
ir. Fjallar erindið um Eifelhér-
aðið í Þýzkalandi og spréngigígj-
ana þar, um hið fræga Hötting
þursaberg nálægt Innbruch í
Austurríki, sem hefur að geyma
plöntuleifar frá lerigsta hlýviðris
skeiði jökultímans, og um þær
merkilegu plöntuleifar frá jökúl-
tíma, er funduzt í Öræfum sl.
FENEYJUM, 22. febr. — Fræg-
asta balletdansmey Júgóslava,
kom í dag yfir landamærin til
Ítalíu og baðst hælis sem póli-
tískur flóttamaður.
Lára Bartlett (Margrét H. Jóhannsdóttir), Jack Weeler (Einar Kristjánsson), Harrigan (Guðjón
Hjartarson), Billy Bartlett (Viggó Valdimarsson), Pets (Janus Eiríksson) og liggjandi, Blanny
Weeler (Arndís G. Jakobsdóttir). (Ljósm.: Þorv. Ág.)
Græno lyfton
í Hlégnrði
LEIKSÝNING ungmennafél. Aft
urelding í Mosfellssveit var í
Hlégarði sl. föstudagskvöld. Verk
efnið að þessu sinni var „Græna
lyftan“ eftir Hopwood í þýðingu
Sverris Thoroddsens.
Leikurinn er í 3 þáttum og
fjallar um hjónabands vandamál
og gerist nú á dögum í fjölbýlis-
húsi. Frú Weeler, eitt aðalhlut-
verkið, leikur Arndís Jakobsdótt-
ir, og ber hún af öðrum leikend
um, einkum þar sem vandinn er
mestur, er frú Weeler er útúr
drukkin. Viggó Valdimarsson
leikur hr. Bartlett ágætlega, en
honum hættir við ofleik er hr.
Bartlett er drukkinn, enda er hlut
verkið erfitt í þeim kafla. Önnur
hlutverk eru yfirleitt vel leikin,
einkum frú Bartlett, sem leikin
er af nýliðanum Margréti Jó-
hannsdóttur. Henni hættir þó við
að tala of hratt, en það getur hún
lagað. Einar Kristjánsson, sem hr.
Weeler og Þuríður Hjaltadóttir,
fara mjög þokkalega með hlut-
verkin, en önnur hlutverk gefa
ekki tileíni til sérstakrar umsagn
ar.
Leikstjóri er Klemens Jónsson
og er áberandi handbragð hans
í leiknum í heild. Honum hefir
tekizt það vel, að áhorfandinn
gleymir að taka tillit til þess, að
á leiksviðinu er óvant fó!k.
Leiktjöld málaði Magnús Pálg-
son. — í leikslok var leikstjórinn
kallaður fram með löngu lófataki,
enda hefir hann unnið athyglii-
vert starf. — Leikhússtjóri var
Guðjón Hjartarson og smíðaði
hann einnig leiktjöldin og heíir
lagt mikla vinnu í leikinn.
Græna lyltan verður sýnd aft-
ur í dag og naun marga eflaust
fýsa að sjá þennan spennandi
gamanleik.
J. O.
; í f W'líÍd'Á’klliMlL Ö3?fð!l <1r7/JÍ"J
ÍR vann IKF 54:43
og IS vnnn KR 62:34
A FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ hófst
að Hálogalandi meistaramót Is-
lands í körfuknattleik. Benedikt
G. Waage setti mótið með stuttri
ræðu. Bar hann körfuknattleiks-
mönnum kveðjur bandaríska
þjálfarans Norlanders, sem
dvaldi hér í haust og leiðbeindi
leikmönnum og þjálfurum félag-
anna hér.
Sú nýbreytni er viðhöfð á þessu
móti, að einungis tveir meistara-
flokksleikir fara fram á hverju
leikkvöldi í stað þrikkja leika áð-
ur. Er þetta mjög til bóta, því
annars líkur leikunum ekki fyrr
en eftir miðnætti.
KR—ÍS
Fyrri leikur kvöldsins var á
nilli KR og Iþróttafélags stúd-
enta og unnu peir síðarnefndu
með 62 stigum gegn 34.
Var leikurinn nokkuð fjörugur,
þó stúdentar væru aldrei í tel]-
andi hættu. Anægjulegt er hversu
KR-liðinu hefur farið mikið fram
frá síðasta móti. Félagið hefur
mörgum ágætum leikmönnum a
að skipa, t. d. fyrirliðanum, Sig-
urði Gíslasyni, Gunnari, Birgi
Helgasyai og Guðmundi Péturs-
syni.
Með meira sjálfsöryggi og festu
mun liðið verða mótherjum sui-
um erfiður kcppinautur.
Stúdentar, sem eru núverandi
Keykjavíkurmeistarar, léku með
miklu öryggi allan leiHnn. Flest-
ir leikmenn liðsins eru gamiii'
nemendur Menntaskólans að
Laugarvatni, og kynntust þar
íþróttinni fyrst. Körfuknattleiks
menn frá Laugarvatni setja mik-
inn svip á mótið sem endra nær.
Fjórir leika með stúdentum, þrír
í liði KFR og tveir háfa leikið
með KR til þessa.
Beztu menn stúdenta voru sem
endranær, Þórir Ólafsson og
Kristinn Jóhannsson, einnig mið-
herjinn, Hilmar Sigurðsson, sem
skoraði 21 stig.
ÍR — ÍKF
Síðari leikur kvöldsins var á
milli IR og ÍKF.
Var beðið eftir þessum leik
með mikilli eftirvæntingu, því
þessi lið hafa löngum elt grátt
silfur saman um meistaratit.ilinn
í íslandsmótinu. Taugaóstyrks
gætti mjög í byrjun leiksins.
enda mikið í húfi íyrir bæði lið-
in. Keflvíkingar voru fyrri til að
átta sig á hlutunum, og áttu
meira í leiknum framan af, þó
þeir nýttu ekki yfirburði sína
sem skildi. ÍR-ingar jöfnuðu sig
samt og tóku að leika með meiri
festu. Með snöggum gagnáhlaup-
um sköpuðu þeir sér mörg tæki-
færi, og með meira öryggi hefðu
þau átt að gefa fleiri stig.
Leikurinn var mjög spennandi
og vel leikinn, þótt nokkurrar
hörku gætti í seinni hálfleik.
ÍR-ingar komu heilsteyptir í
þennan leik og sigurvilji liðsins
óvenjumikill. Nafnarnir Helgi
Jónsson og Helgi Jóhannsson
voru beztu menn liðsins og skoi •
uðu 25 stig félagsins. Nýliðinn
Steinþór Árnason sýndi mjög
góðan leik og er hér mikið efni
á ferðinni.
Úr liði Keflvíkinganna voru
Friðrik og Magnús virkastir. Páll
og Hjálmar voru eitthvað miður
sín í þessum leik. Yfirleitt olli lið
ið miklum vonbrigðum með leik
sínum. Öryggi og baráttuvilji liðs
ins, sem hefur einkent leik liðs-
ins til þessa, brást algjörlega. —
Ástæðan er eflaust sú, að liðið
er þreytt eftir meistaramót, sem
haldið var á Kefl'avíkurflugvelli,
fyrir vallarstarfsmenn og varnar-
liðið.
Mótið heldur áfram á morgun
og leika þá KFR-Blið gegn stúd-
entum og ÍR gegn KR. — G. K
Enn setur
Jón litli met
MELBOURNE, 22. febr. — Jón
litli Konrads, 15 ára snáðinn frá
Eistrasalti, sem bætt hefur eitt
sundmetið af öðru undanfarna
daga, setti fjögur ný heimsmet í
dag. Er það eitt glæsilegasta
sund frjálsrar aðferðar, sem
nokkru sinni hefur sézt, sögðu
fréttaritarar. Jón litli synti 1,640
yarda á 17 mín. 28,7 sek. Milli-
tímar vo*u teknir á 800 yördum
og 1,500 metrum — og var alls
staðar um heimsmet að ræða. Að
sundinu loknu kvartaði afreks-
maðurinn um dálítinn höfuðverk,
„en hann batnar strax“, sagði
i hann.
Goðaborg — sérverzlun moð
íþrótfavorur opnar á Laugavegi
I GÆR opnaði verzlunin Goðaborg að Laugavegi 27. Selur hún alU
kyns íþróttavörur, en fyrst um sinn eru þar einungis skotvopn af
ýmsu tagi og veiðistengur. Það er Niels Jörgénsen seih rekur verzl*
ur. þessa, en hann er að góðu kunnur fyrir verzlun siiia ineð sama
rafni á Freyjugötu.
í Goðaborg á Laugavegi eru nú
fáanlegar allar þær tegundir aí
byssum sem hægt er að fá inn-
fluttar. Það eru finnskar og tékk-
áhöld.
í framtíðinni er ætlunin að á
boðstólum verði allt það sem
nauðsynlegt er til íþróttaiðkana,
ekki einungis á sviði skot og veiði
mennsku heldur og til knattleika
og yfirleitt allra íþrótta.
neskar byssur. Verð þeirra og
gæði eru mlsjöfn. Þær kosta frá
600 krónum upp í 5000 kr. Þá er
þar að finna veiðistengur af ýma-
um gerðum og ýmisleg veiði-
I gær voru margir gestir hjá
kaupmanninum í tilefni opnunar
verzlunarinnar. Þeir er skyn báru
á söluvörurnar, sögðu að í þesí-
ari verzlun fengjust beztu fáah-
leg vopn og þetta væri eina verzl
unin sem tæki gömul vopn i
skiptum, þ. e. a. s. sæi um end-
urnýjun vopna og viðgerðir. Þó
Á Siglufirði:
Samviuna lýðræðisflokka um kjor
bæjarstjóra og bæjarstjJorseta
SIGLUFIRÐI, 22. febrúar. — í
rúmar 3 vikur hafa vinstri flokk-
armr í bæjarstjórn Siglufjarðar,
sem eiga 6 fulltrúa af 9, reynt að
berja saman meirihluta í bæjar-
stjórninm án minnsta árangurs.
Sl. föstudag var boðaður bæj-
arstjórnarfur.dur samkvæmt sér-
stakri ósk bæjarfulltrúa Alþyðu-
bandaiagsins, og á dagskrá var
m.a. kjör forseta og bæjarstjóra.
Þrjár umsóknir höfðu borizt um
bæjarstjórastarfið, frá þeim Ár-
manni Jakobssyni, Halldóri Guð-
mundssyni og Sigurjóni Sæm-
undssyni. Fram kom tillaga um
frestun á kjöri bæjarstjóra og
forseta, er flutt var af fulltrúum
Alþýðu- og Framsóknarflokks.
Var sú tillaga felld að viðhöfðu
nafnakalli með 6 atkv. Sjálfstæð-
isflokksins og Alþýðubandalags
iris, en hlaut 3 atkv. miðflokk-
anna. Síðan var gengið til bæjar-
stjórakjörs. Hlaut Sigurjón Sæ-
mundsson, sem er jafnaðarmað-
ur, 6 atkvæði Sjálfstæðis-, Al-
þýðu- og Framsóknarflokks. En
Ármann Jakobsson hlaut 3 atkv.
kommúnista. Forseti bæjarstjórn
ar, Baldur Eiríksson, bæjarfull-
trúi Sjálfstíeðisflokksins, var
endurkjörinn forseti bæjarstjórn
arinnar með 5 atkv. Alþýðu- og
Sjálfstæðisflokks. Bæjarfulltrúar
kommúnista óskuðu þá eftir að
varaforsetar væru kosnir hlut-
bundinni kosningu, skv. ákvæð-
um þar um í fundarsköpum bæj-
arstjórnar. Tveir listar bárust, A,
með nöfnum þeirra Kristjáns Sig
urðssonar og Ragnars Jóhannes-
sonar, en sá fyrri er jafnaðarmað-
ur en síðari Framsóknarmaður.
Á B-lista var nafn Þórodds Guð-
mundssonar. Hlaut A-listinn 5
atkvæði, en B-listinn 3 og einn
seðill var auður. Varaforseti bæj
arstjórnar er því Kristján Sig-
urðsson, em annar varaforseti
Þóroddur Guðmundsson.
Eftir þessum úrslitum að dæma
virðist eðlilegt að lýðræðisfiokk
arnir myndi meirihluta innan
\ bæj arstj órnarinnar og komi sér
saman um málefnasamning. Þessi
endir í langvarandi stjórnar-
kreppu innan bæjarstjórnar hef-
ir vakið fögnuð flestra bæjarbúa
nema að sjálfsögðu kommúnista,
sem dæmdu sig úr leik á fundi,
sem haldinn ýar samkv. sérstakri
ósk þetrra sjálfjta.
— Stefán.