Morgunblaðið - 23.02.1958, Side 13

Morgunblaðið - 23.02.1958, Side 13
Sunnudagur 23. febrúar 1958 MORCVNBLAÐIÐ 13 REYKJAVIKURBREF Laugard. 22 febrúar Þýzka töluð Svo sem áður hefur verið drep- ið á hér í blaðinu var auðséð af bandarískum blöðum í vetur. að þarlandsmenn töldu Spútnik hinn rússneska meira áfall fyrir sig en flestir höfðu ætlað. Banda- ríkjamenn eru svo vanir því að vera fremstir í allri tækni, að þeim brá illilega við, þegar Rúss- ar fóru fram úr þeim í þessum efnum. Má segja, að Bandaríkja- þjóðin hafi ekki tekið á heilum sér fyrr en vísindamenn hennar höfðu komið Könnuði sínum á loft. Þá var mikill fagnaðardag- ur vestan hafs og er sýnu létt- ara yfir blaðaskrifum þar síðan. Er þar nú talað um þessi mál í mjög öðrum tón en áður var. Til merkis um það eru þessi orða- skipti, sem nýlega birtust í New York Times: . — Þegar Könnuður hitti Spútnik úti í himingeimnum, sagði hann: Úr því að við hitt- ustum loksins hérna einir, er þá ekki rétt að við tölum saman þýzku? Margir lærðu í Þýzkalandi Með þessum orðum viðurkenn- ir hið bandaríska stórblað á gam- ansaman hátt, að afrekin sem unnin hafa verið í Rússlandi og Bandaríkjunum í smíði geim- fara eru fyrst og fremst Þjóð- verjum að þakka. Ýmsir telja, að með geimferðunum verði meiri þáttaskil í sögu mannkyns- ins en við flesta merkisatburði aðra. Úr því mun reynslan skera og skal ekki fjölyrt um það hér. En ekki verður um það deilt, að mikill er hlutur Þjóðverja i þessum vísindaafrekum sem ýmsum öðrum á okkar tímum. Engir ættu að vera fúsari til að viðurkenna yfirburði Þjóð- verja í margs konar vísindum og menningu en þeir, sem í Þýzkalandi voru við nám æskuárum, eins og sá, er þetta ritar. Hann átti því láni að fagna að vera við framhalds- nám í lögfræði við Berlínarhá- skóla frá því seint á árinu 1930 og þangað til snemma árs 1932. Á þeim árum var Berlín ein af menningarmiðstöðvum heimsins, þó að síðar bæri skugga á. En einnig eftir að nazistar komust til valda snemma árs 1933 héldu margir þýzkir háskólar áfram að vera með fremstu fræðslustofn- unum í heimi. Bæði fyrir og eft- ir valdatöku nazista sóttu margir Islendingar menntun til Þýzka- lands, og hafa þeir síðan dreifzt á milli ailra íslenzkra stjórn- málaflokka eins og gengur. Helgi Sæmundsson seór frá dríiiimi o Hér skal þetta ekki rakið nán- ar, en þess vegna er á það drepið. að þeim er þetta ritar, er nú nær daglega brugðið um það í öllum blöðum stjórnarflokkanna, að hann hafi numið nazistisk fræði á æskuárum sínum í Berlín. Ótt- inn við þann lærdóm liggur eins og mara jafnvel á meinleysis- mönnum eins og Helga Sæm- undssyni. Hann segir sl. fimmtu- dag í blaði sínu frá draumi, svo sem frægt er orðið. Draumi, sem sá er dreymdi, sagði honum sjálf- ur frá „svo að þetta fer ekki milli mála“, eins og Helgi segir: „Honum þótti Bjarni Bene- diktsson vera einræðisherra á ís- landi. Hafði hann bækistöð í tvi- lyftri höll á berangri niður við sjó í Reykjavík. Neðri hæðin var salur einn mikill úr gleri. Var sögumaðurinn staddur á hæð skammt frá aðsetri einræðis- herrans og sá þaðan inn í gler- salinn“. r>- Hvorn á ég að skjóta fyrst?44 Helgi heldur áfram í Alþýðu- blaðinu: „Varð honum starsýnt á ei ræðisherrann, sem gekk um gólf í glersalnum og hafði skrítna tii- burði í frammi, æfði sig í handa- slætti og reigingi fyrir framan spegil, stefndi fólki á fund sinn og rak það svo brott, öskraði valdboð í síma og leit út eins Og hamstola væri. Allt í einu gekk sendiboði að sögumanni minum og mælti: „Nú kemur hann í heim sókn til Bjarna". Ætlaði sá, seni drauminn dreymdi að inna eftir nánari skýringu, en kom í sömu andrá auga á svartan bíl, er ók upp að bækistöð einræðisherrans Út úr honum steig Adolf Hitler og gekk inn í glersalinn. Bjarni rann til móts við hann, féll um háls gestinum og fagnaði honum ákaflega og dansaði síðan i kringum Hitler, sem var gamal- legur orðinn, lotinn í herðum og tekinn í andliti. Fannst þá sögu- manninum hann snúa sér að hópnum, sem honum fylgdi og skipa: „Fáið mér byssuna". Vissi hann ekki fyrri til en í höndum hans var forláta riffill, kjörgrip- ur að allri smíð og vandlega fægður. Bar hann vopnið upp að -fundi var Adolf Hitler mun betur tekið, þegar hann byrjaði en er hann hætti. Verður þó ekki um það deilt, að á landa sína hafði hann stundum hrein sefjunar- áhrif, en það kom sem' sagt ekki fram á þessum fundi. Geta má samt þess, að þarna var einnig þriðji íslendingurinn, þó að ekki væri með hinum tveimur. Eftir á þótti honum mun meira til koma en þeim, og festist nazism- inn þó ekki rækilegar í honum en svo, að síðan hefur hann orðið einn skeleggasti baráttumaður kommúnista á íslandi. Boð, sem vini Helga hefði líhað Annað samband Bjarna Bene diktssonar við nazista en þetta mun ekki verða fundið, þótt leit- að sé með logandi ljósi. Þess má þó geta, að í ágúst 1939 skrapp hann örfáa daga til Berlínar eft ir sumardvöl í Englandi til að skoða fornar stöðvar. Þá hitti hann í hóp íslendinga þýzkan skiptistúdent, sem verið hafði á íslandi og sennilega hefur verið nazisti, því að hann hafði orð á því að leitt væri, að honum hefði ekki verið kunnugt um komu Bjarna, því að þá hefði hann getað boðið honum að vera viðstaddur aftöku, sem fram hafði farið þá um morguninn. Manninum var þökkuð einstök Voru síðar sannar spurnir af því, að gerður var út leiðangur til að fylgjast með ferðum hins tor- tryggilega borgarstjóra. öllu því flani lyktaði svo, að herstjórnin kunni betur að meta sannsögli rógberanna eftir en áður. Peron símaskráin og í símaskránni að staðsetja Vetr- arhjálpina í Valhöll. Þessi er flugufóturinn fyrir þvi að gera Bjarna Benediktsson að persónugerfing þeirra hjóna Ju- ans og Evu Peron. Vill Hermann Alþýðuflokkinn Af sjálfu málgagni forsætisráð herrans er raunar öðru hvoru svo að sjá, að ekki hafi þurft að bregða sér til Berlínar til að læra listir einræðisherrans. — Sunnudaginn 9. febrúar birtist í Tímanum forustugrein, sem hét: Heimilisfangið í símaskrá. Þai segir m. a.: „Þeir, sem halda að það sé fjar- stæða að Juan Peron og Bjarni Benediktsson hugsi svipað í þjóð- málum ættu að fletta upp í síma- skránni í Reykjavík, þeirri er gildir nú í dag og sjá með eigin augum að „Vetrarhjálpin" Reykjavik er staðsett í Valhöll, flokksheimili Sj álfstæðismanna. “ Er furða, þó að Tíminn spyrji eftir svo augljóst orsakasam- hengi: „Er til öllu gleggri sönnun um það að þessi angi af peronism- anum lifi góðu lífi innan Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík og þarna er í raun og sannleika sams konar vinnubrögð á ferðinni og notuð voru í hinni umfangsmiklu ,,líknarstarfsemi“ Evu og Juans Perons í Argentínu fyrir nokkr- um árum?“ Þarf frekari vitnana við? í gamla daga kenndi Ólafur íeig au „Fáið mér byssuna“ „— — — forláta riffill, kjör- gripur að allri smíð og vandlega fægður“. ' vanga sínum og miðaði á Hitler og Bjarna, þar sem þeir létu vei hvor að öðrum inni í glersalnum. Þóttist hann eiga allskostar við þá félaga enda skotfærið ákjósan- a legt. En sem hér var komið sög- unni og ekki annað eftir en hleypa af, sneri sögumaðurinn sér að förunautunum og spurði: „Hvorn á ég að skjóta fyrst?“ Hcyrði Hitler einu sinni tala Gott er að vita það frá Helga Sæmundssyni, að hér skuli ekk- ert fara á milli mála. En víst væri Bjarna Benediktssyni feng- ur í því að það rættist úr draumn- um, að hann kynni að dansa, því að þá list hefur hann aldrei iðkað í vöku sjálfs sín, þótt skömm sé frá að segja. Sjálfsagt er nú að reyna, hvort þessi gáfa hefur gefizt honum fyrir draum- farir vinar Helga Sæmundsson- ar, svo að draumamaðurinn verði þó að einhverju leyti sannspár. Um kunningsskapinn við Hitl- er er það annars að segja, að á Berlínarárunum sótti Bjarni Bene diktsson tvisvar sinnum fundi naz ista og gerði sér mun tíðförulla á aðrar samkomur. Annar fund- urinn var nauðaómerkilegur stúdentafundur, svo leiðinlegur, að þá íslendinga, sem þangað fóru saman, fýsti ekki að sækja fleiri slíkar samkomur. En með Bjarna Benediktssyni mun þá hafa verið nafni hans Guðmundsson blaða- fulltrúi, einhver sannfærðasti lýðræðissinni á landi hér. Hinn fundurinn varð sögulegri, því að þar talaði sjálfur Hitler. í fylgd með þeim, er þetta ritar, var þar síðar ritstjóri Al- þýðublaðsins, nú einn af þing- mönnum Alþýðubandalagsins. Voru þeir báðir ámóta hrifnir af ræðumanni og töldu honum mjög hafa mistekizt. Enda var ekki um það að villast, að á þessum hugulsemi en tjáð, að gesturinn hefði hug á flestu öðru meira en að vera við slíkar athafnir. Sennilega hefur hinn þýzk: skiptistúdent verið svipaðs sinms og einkavinur Helga Sæmunds- sonar er lýsir svo fagurlega riffl- inum, sem hann ætlaði að skjóta Bjarna Benediktsson með. Hugar- fárið er furðulíkt hjá ofstækis- mönnum, hvort sem þeir teljast til nazistanna þýzku eða „frjáls- huga“ „vinslri manna“ á íslandi. Leiðangur norður í land Segja má, að þessar endur- minningar komi ekki öðrum við, en í þessum efnum er ekkert að dylja, og þegar koma á nazista- stimpli á stærsta stjórnmálaflokk íslenzku þjóðarinnar, þann sem lýðræðinu hefur verið tryggast- ur af öllum íslenzkum stjórn- málaflokkum, vegna þess, að ung • ur maður nam lögfræði í Berlín fyrir meira en aldarfjórðungi, þá er rétt að gera það að nokkru umræðuefni. Ókunnugir mundu t. d. af sumum skrifum stjórnar- blaðanna ætla, að Bjarni Bene- diktsson hefði verið þátttakandi í bruna þinghússins í Berlín 1933. þó að hann, er sá atburður gerð- ist, væri farinn að kenna lögfræði við Háskóla Islands og litillega farinn að skipta sér af íslenzk- um stjórnmálum með því að ganga í ekki brennufúsari félags- skap en Heimdall. Stjórnarherrunum til fróunar má segja, að það sé því alveg víst, að Bjarni var hvorki í boði Görings þegar þinghúsið brann né hafði hann brugðið sér í líki Lúbbe hins hollenzka það kvöld. Persónulega hefur nazistarógur inn aldrei skaðað Bjarna Bene- diktsson. En geta má þó þess, að er hann var borgarstjóri á stríðsárunum bar það við að hann brá sér í skemmtiferð með kunningja sínum norður í land. Það var í júlílok 1942. Þá skutu einhverjir góðviljaðir menn því að herstjórninni hér að þetta ferðalag væri mjög tortryggilegt. hjá liðin og það er algjör villa Dan í Menntaskólanum að setja fyrir neðan úrlausnir í flatar- málsfræði q. e. d., er útlagðist „quod erat demostrandum", þ. e. það, sem sanna átti. Er ekki al- veg auðséð af framangrejndu, að Bjarni Benediktsson er í senn holdi klæddur Juan Peron og hin látna eiginkona hans Eva? E. t. v kemur þar af hin nýfengna kunn- átta í danslistinni, sem Helgi Sæmundsson lýsir svo fagurlega Hermann í næsta húsi Segja má, að hér sé um of miklar fjarstæður að ræða til þess að því taki að fjölyrða um þær. Og vist er, að vitleysan er svo mikil, að erfitt er hönd á að festa. Er það t. d. rétt að Vetrar- hjálpin í Reykjavík sé staðsett í Valhöll, eins og Tíminn segir? Sjálfur hefur forsætisráðherrann Valhöll daglega fyrir augunum og getur mætavel fylgzt með manna- ferð þangað. Hann þarf a. m. k. ekki að bregða sér nema í næsta hús til að fullvissa sig um, að Vetrarhjálpin hefur aldrei haft aðsetur í Valhöll. Vitnisburð hans þyrfti og ekki til. Um þetta hefði Tíminn getað fullvissað sig með einni upphringingu. Hvernig stendur þá á þessu torrtyggilega heimilisfangi j símaskránni? Til þess liggur einföld saga og hún er sú, að þegar Sjálfstæðis- menn opnuðu félagsheimili sitt í Valhöll fyrir tæpum tveimur ár um, var mikill skortur á símum hér í bæ. Þá var það, að um nokkra mánaða skeið fengu þeir lánað símanúmer Vetrarhjálpar- innar, sem ekki starfaði á því tímabili. Deila má um, hvort þetta hafi verið smekklegt eða ekki, en öruggt er, að það gerði engum tjón. Vetrarhjálpin fékk sitt númer jafnskjótt sem hún þurfti á að halda. Ef enginn flokkur hefði misnotað aðstöðu sína í íslenzku þjóðlífi meira en Sjálfstæðisflokkurinn með því að fá þetta símanúmer lánað, vær' lítil ástæða til að tala um spill- ingu í íslenzku þjóðlífi. Hvað sem um það er, þá er notkun flokks- ins á númerinu nú fyrir löngu Hér að framan var vikið að því, að Sjálfstæðisflokkurinn væri ekki einungis stærsti flokk- ur íslenzku þjóðarinnar heldur sá, sem tryggastur hefur verið lýðræðinu fyrr og síðar. Sjálf- stæðisménn hafa enga unun af því að bera andstæðingum sínum á brýn einræðistilhneigingar. En af marggefnu tilefni frá Alþýðu- blaðinu, sem þó er málgagn þess flokks, sem er næst Sjálfstæðis- flokknum, eindregnasti lýðræðis- í flokkur landsins, verður ekki komizt hjá því að minna á, að í þessum efnum er skjöldur Ai- þýðuflokksins langt frá því að vera svo hreinn sem skyldi. Alþýðublaðið hefur fært þau rök að því að Sjálfstæðismenn „vilji Alþýðuflokkinn feigan", að þeir hafi á sínum tíma tekið höndum saman við kommúnista gegn Alþýðuflokknum í verka- lýðshreyfingunni hér á landi. Með þessu er átt við það, að á árunum fyrir seinna stríð, vildu andstæðingar Alþýðuflokks- manna í verkalýðssamtökum ekki lengur una því að Alþýðuflokks- menn hefðu forréttindi innan Al- þýðusambandsins. Þau tengsl, sem þá voru milli- Alþýðuflokksins, og Alþýðusambandsins voru gersamlega ólýðræðisleg. Þetta urðu Alþýðuflokksmenn sjálfxr að viðurkenna. Það var einmitt einn þáttux;inn í myndun þjóð- stjórnarinnar 1939, undir forustu Hermanns Jónassonar, að Alþýðu flokksmenn lofuðu því að gera á þessu nauðsynlega breytingu. Alþýðublaðið spyr: „Var það gert af umhyggju fyrir Alþýðuflokknum eða með hag og heill íslenzkrar alþýðu fyrir augum?“ Um þetta ætti það að spyrja Hermann Jónasson, sem þá beitti sér fyrir þessari breytingu, mann inn, sem nú lætur málgagn sitt á Akureyri segja, að Alþýðu- flokkurinn sé á „hröðu undan- haldi og niðux-leið". Hræðslubanda- lagið ógæfa Alþýðuflokksins Þá er það hitt atriðið, sem Al- þýðublaðið segir um: „Sjálfstæðisflokkurinn reyndi eftir síðustu kosningar að gera Alþýðuflokknum þann „greiða" að svifta hann fjórum af átta réttkjörnum þingmönnum sín- um.“ Það sem allt veltur hér á er þetta: Voru þessir þingmenn rétt- kjörnir eða ekki? Sjálfstæðismenn og mikill meirihluti landsmanna með þeim er sannfærður um, að þessir þingmenn hafi ekki verið rétt- kjörnir. Þess vegna sitji þeir ranglega á Alþingi Islendinga. Annað mál er, að Alþýðuflokkn um var lítill greiði gerður með þessum fjórmenningum. Sumir þeirra eru beinlínis launaðir er- indrekar Framsóknar innan Al- þýðuflokksins. Jón Pálmason hef- ur nýlega sýnt fram á, að ef rétt hefði vei-ið að öllu farið, hefði Alþýðuflokkurinn að öllum lík- indum fengið 7 þingmenn kosna við síðustu Alþingiskosningar. Hann græddi því einungis einn þingmann á Hræðslubandalags- svindlinu en tapaði þúsundum kjósenda. Með þessum hætti komust inn í þingið menn, sem Framh. á bls. 14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.