Morgunblaðið - 25.02.1958, Side 19
ÞrifSinrtaeair 25. febr. 1958
MORGUNfíLAÐIÐ
19
— Halldór Kiljan
ITrti. af bls. 1.
af 16 af 21 konum Brigham
Youngs, sem var einn helzti trú-
arleiðtogi Mormóna.
__ Þér minntust á ættfræði-
safnið?
__ Já, það er stærsta ættfræði-
safn veraldar, t.d. er þarna ætt-
fræði allra íslendinga. Mormónar
hafa haft menn hér við Lands-
bókasafnið og hafa þeir safnað
öllum ættfræðiheimildum þar.
Við báðum um að fá að sjá okkar
ættir og tók aðeins 2—3 mínútur
að fá leyst úr því. — Mormónar
trúa því, að hægt sé að skíra
menn eftir dauða þeirra til Mor-
mónatrúar og af þeim ástæðum
hafa þeir lagt kapp á að grafa
upp nöfn á sem allra flestum
ættingjum sínum í gamla heima-
landinu. Höfðu þeir m.a. skirt
Egil Skallagrímsson og konu hans
til Mormónatrúar.
— Þér höfðuð sérstakan áhuga
á að fara til Utah?
— Já, ég héf hugsað dálítið
um þá íslendinga, sem gerðust
Mormónar og fluttust til Utah.
Mig hefur langað til að fá að
heyra meira um þá en kostur er
á hér á íslandi. Ég fékk forvitni
minni svalað að vissu leyti, enda
fékk ég tækifæri að kynnast af-
komendum þessara íslnzku land-
nema. Ég hafði sérstakan áhuga
á Þórði Diðrikssyni, sem hefur
skrifað ágæta bók um Mormóna-
trú og sína lífsspeki. Það hefur
verið erfitt að festa hönd á bók
þessari hér og hún er ekki til í
neinu opinberu bókasafni, en mér
hefur verið sagt, að Gunnar Hall
eigi hana. — Bók Þórðar er fram
úrskarandi vel skrifuð. Mormón-
ar vita ekkert, hvað i henni stend
ur, því hún er skrifuð á íslenzku.
Þórður var sveitamaður úr Land
eyjum, sem skrifaði klassískt mál
eins og við erum að reyna að
gera með misjöfnum árangri. En
hann hafði þetta í fingrunum.
— Ætlið þér að skrifa skáld-
sögu um Þórð Diðriksson?
— Nei, ég ætla ekki að skrifa
um hann skáldsögu, þótt ég skrifi
kannski eitthvað lítilsháttar um
hann. — Það er ekki hægt að
skrifa um hann skáldsögu, það
gerðist ekkert i hans lífi. Hann
stundaði bara venjulega bænda-
vinnu. Hann var hreinræktaður
alþýðumaður og tók upp þessa
trú, það er allt og sumt. Annars
hefir flökrað að mér að skrifa
um íslenzka Mormóna, hvað sem
verður.
— Þér sögðuzt hafa hitt niðjar
íslenzku landnemanna.
— Já. En þeir hafa yfirleitt
gleymt sinni arfleifð og eru út-
lendingar í okkar augum. Þeir
hafa enga upplýsingu, sem veit
að íslandi. Þeir hafa þó valizt
saman og búa í sérstöku byggð-
arlagi, Spanish Fork, og mynda
þar sterkan kjarna. Eru flestir
bændur og daglaunamenn. Þó
hitti ég þarna rúmlega sjötugan
bónda, sem talaði íslenzku all-
vel. Hann kom til Utah fjögurra
ára gamall með móður sinni.
Hann sagðist vilja deyja á fs-
landi: Ég er þaðan kominn, sagði
hann, þar á ég heima og þar vil
ég deyja. — Þessi gamli bóndi
sagði mér, að hann hefði verið
' borinn á handlegg vandalauss
manns yfir eyðimerkur miðvest-
ur-fylkjanna. Hann missti móður
sína ungur og átti erfitt uppdrátt
ar í æsku: Hún var svo fátæk,
sagði hann, að hún gat ekki reist
mig.
— Og svo fóruð þér til vestur-
strandarinnar?
— Já. Hana þekkti ég vel sem
unglingur og sá enga breytingu á
henni frá því ég var þar. Þetta
er yndislegt land. — Síðan lögð-
um við af stað til Austurlanda
og komum til Tókíó, þaðan til
Manilla á Filippseyjum og dvöld
umst þar í nokkra daga, en héld-
um síðan til Hong-Kong, Kanton
í S-Kína og loks til Peking. Frá
Kanton til Peking eru 2500____
3000 km. í Kína, eða Rauða-Kína
eins og það er kallað á okkar
dögum, vorum við allan desem-
bermánuð. Það er ákaflega fróð-
legt að koma í það land, þar sem
býr fjórði hver jarðarbúi, og
gaman að kynnast þeim mörgu
vandamálum, sem þeir þurfa að
glíma við. í Kina er ástandið að
vissu leyti betra en annarsstað-
ar í Austurlöndum, iðnvæðing-
in komin lengra en viðast hvar
í Asiu, enda leggja þeir höfuð-
áherzlu á hana. Eitt aðalvanda-
mál Austurlandabúans er að
hafa í sig og á, þótt erfitt sé fyr-
ir okkur að gera okkur grein
fyrir því. Kínverjar segjast hafa
nógan mat handa sinu fólki með
því að láta tveggja manna
skammt endast handa þremur.
Já, ástandið í Kína er mun betra
en t.d. í Indlandi og Arabalönd-
unum, þó að það sé ekki sam-
bærilegt við Vesturlönd. í Kína
eru allir í einhverjum fötum.
Það er meira en hægt er að segja
um flestar þjóðir í Austurlönd-
um.
— Þér hafið auðvitað kynnzt
kínverskri menningu?
— Já, eftir föngum. Það er
stórkostlegt að kynnast sögu, list
og menmngu þessarar merkilegu
þjóðar. Forn-kínversk menning á
ekki sinn líka. Nú er menning
þeirra að breytast. Áður snerist
allt um keisarann, en nú er reynt
að demókratísera þjóðfélagið.
— Þegar þér voruð í Kína,
fannst yður þá anda köldu til
Vesturlandabúans?
—Nei-nei. Kínverjar eru hátt
yfir slíkt hafnir. Flestir, sem
ég kynntist, höfðu hlotið vest-
ræna menntun. Kínverjar vita
lítið um ísland, enda líta þeir á
Evrópumenn sem heild. Þetta er
svo langt í burtu. Það eru bara
sérfræðingar, sem vita eitthvað
um Evrópu.
— Þér hafið minnzt á „Bókina
um veginn" í ritum yðar. Fannst
yður Rauða-Kína vera það land,
sem sú bók er sprottin upp úr?
— Já, stundum finnur maður
það, þegar talað er við Kínverja.
Þá koma allt í einu setningar úr
þessari bók, ósjálfrátt að vísu,
því að þeir játa ekki þá bók sem
stendur. En samt finnur maður,
að hún á ítök í þeim, einhvers
staðar undir niðri.
— Og svo var haldið áfram?
— Já, svo var haldið áfram,
til Singapore, Ceylon og Bombey.
í Indlandi var ég opinber gestur
og kynntist mönnum bæði af há-
um og lágum stigum, en þó eink-
um háum. Það voru hámenntað-
ir menn. Annars er stéttaskipt-
ingin svo óskapleg í Indlandi, að
við gerum okkur enga grein fyr-
ir henni. Hér er um að ræða helgi
stéttaskiptingM og lifa lægstu
stéttirnar í yztu myrkrum mann-
legs félags. En nú er unnið mark
visst gegn þessari skiptingu.
— Þér kynntust Nehrú?
— Jú, ég kynntist Nehrú lítil-
lega, var boðinn til hans í hádeg-
isverð. Hann er ákaflega aðgengi
legur og geðugur maður, létt-
ur og skemmtilegur og það var
eins og hann hefði nógan tíma.
Hann hafði gamansögur á hrað-
bergi — já mjög viðfelldur mað-
ur, það er óhætt að segja. Hann
sagði, að sér hefði verið boðið
til íslands, þegar hann var stadd
ur í Skandínavíu í fyrra, en hefði
því miður ekki getað þegið boð-
ið. Hann kunni talsverð skil á
íslenzkum bókmenntum og sagði,
að það væri eitt af undrum ver-
aldar, að þessi litla þjóð hefði
skrifað bókmenntir á heimsmæli-
kvarða og bað mig að gefa skýr-
ingu á því. Ég stóð auðvitað á
gati, sagði aðeins, að þetta væri
bara svona. — Að máltíð lokinni
fór hann með okkur út í garð og
gaf dýrunum sínum, sem hann
geymir þar og heldur mikið upp
á. Mesta rækt virtist hann leggja
við panda, sem í mínum augum
var hálfgert sambland af birni
og ketti. Hann spurði, hvort ég
vildi koma inn í búrið, en ég
þorði það ekki, sýndist þetta vera
hið ferlegasta villidýr, með
hvassar klær og beittar tennur.
Þá setti hann á sig vettlinga og
fór að gefa þeim, og var hinn
rólegasti.
— Hvert fóruð þér svo frá
Indlandi?
— Við fórum til Arabaland-
anna, t.d. Egyptalands, þar sem
við dvöldumst í nokkra daga. Þar
skoðaði ég stóra grjóthrúgu, sem
heitir Píramídinn mikli og er í
miklum metum hjá dultrúar-
mönnum.
— Og niðurstaðan af ferðalag-
inu?
— Ég hef sennilega haft til-
hneigingu til að hafa þröngsýnar
og fáfróðar skoðanir um þessi
lönd, en fékk nú tækifæri að
ryðja þeim burt. Þetta var eins
og að fara í hressandi bað.
Dýravinir móimæla
meSferS á 15 steSa-
hundum
TOKYO, 24. febr. — Suður-
skautsleiðangur Japana gaf í dag
upp alla von um að hægt yrði að
bjarga 15 sleðahundum leiðang-
ursins, sem eftir hafa orðið á
óbyggðri eyju við strönd Suður-
sknutslandsins.
Hundarnir voru skildir eftir á
Onguleyju þann 11. febrúar og
hjá þeim mánaðarfæða. Ætlunin
var að hinn japanski rannsókna-
leiðangur kæmi til eyjarinnar áð-
ur en fæðu hundanna þryti.
En nú vildi svo illa til, að
stormur og hrið hindruðu að leið
angurinn kæmist til eyjarinnar
og japanski ísbrjóturinn Soya
sem var þar í nánd neyddist til
að snúa frá, þar sem hætta þótti
á, að hann frysi inni. Er því nú
talið vonlaust að hundum verði
bjargað.
Síðan þetta gerðist hefur bréf-
um rignt yfir skrifstofu leiðang-
ursins í Japan, þar sem hunda-
vinir mótmæla meðferðinni á
vesalings dýrunum.
Stykkisliélms-
menn afla vel
STYKKISHÓLMI 24. febr. Að
undanförnu hafa 5 bátar róið frá
Stykkishólmi að staðaldri. Alla
sl. viku gaf á sjó og fengust þá
198 þonn í 30 róðrum, — eða 6,6
tonn að jafnaði í róðri. Má segja,
að þessi afli hafi verið mjög jafn
og góður. Mestan afla hafði mb
Svanur, 41 lest. Skipstjóri er
Eyjólfur Ólafsson.
Undanfarna daga hefur verið
góðviðri, og vegir eru færir til
Reykjavíkur. —Árni.
— Egyptar
Framh. af bls. 1
að hörundslit *g eru merki ætt-
flokks hans skorin í húðina á
andliti hans. Helzti keppinautur
hans er Ismail Azhari, foringi
Sambandsflokksins, sem vill sam-
einingu Súdans og Egyptalands
Uminæli Khalils um Nasser
og Egypta cru harðasta árás
sem forsætisráðherra Súdans
hefur gert á þessa nágranna
sína. Hann sagði, að innrásin
í norðurhéruð Súdan hefði
verið einn þátturinn í afskipt-
um Egypta af innanlandsmál-
um Súdans. En þar hefðu
Súdanar staðið fastir fyrir og
sameinaðir gegn ofbeldi
Egypta, svo að ráðagerðir
Nassers fóru út um þúfur.
Kostnaðarsamur áróður
Nú hefur Nasser fallizt á að
fresta aðgerðum á landamærun
um, sagði Khalil, en þeir halda
enn uppi stöðugum kosninga-
áróðri í Súdan gegn Umma-
flokknum. Þeir hafa varið miklu
fé til áróðurs og gert bandalag
við kommúnista.
Khalil kvaðst viss um að
afskipti Egypta af innanríkis-
málum Súdans hefðu ekki til-
ætluð áhrif. Áróðurinn hefði
ekki orðið til að styrkja fyig-
ismenn Egypta í landinu. —
Þvert á móti hefði hann vakið
andúð þjóðarinnar á öllu þvi
sem egypzkt er. Kvaðst Khalil
öruggur um sigur í þingkosn-
ingunum.
nnflulningsskrif-
slofur ufan
Reykiavíkur
KOMIÐ er fram á Alþingi laga-
frumvarp um, að rikisstjórninni
skuli heimilt að ákveða, að sett-
ar skuli á stofn allt að 3 skrifstof
ur utan Reykjavíkur, er hafi með
höndum — með þeim takmörk-
unum, sr ríkisstjórnin kann að
setja — útgáfu leyfa, er nú eru
veitt í innflutningsskrifstofunni
í Reykjavík. Ekki eru í frumv.
ákvæði um staði, er skrifstofurn
ar skuli vera á, en ekki má þó
vera nema ein slík skrifstofa í
hverjum landsfjórðungi. Leyfi
þau, er innflutningsskrifstofan
veitir, varða gjaldeyri, innflutn-
ing og fjárfestingu.
Flutningsmenn frumv. eru
Björn Jónsson, Friðjón Skarphéð
insson og Bernharð Stefánsson.
Brefar móffallnir
12 mílna landbelgi
LONDON 24. febr. — Fulltrúi
brezkra togaareigenda, T. Boyd,
lýsti því yfir í dag, í sambandi
við byrjun ráðstefnunnar í Genf,
að ef heimilað verði að víkka
landhelgi í 12 mílur, eins og
mörg ríki óska eftir, þá væri það
hættulegra en styrjöld fyrir
brezkar fiskveiðar.
Slík ákvörðun, sagði fulltrú-
inn, myndi þýða að við yrðum
sviptir beztu fiskimiðum okkar á
norðurslóðum, og verð á fiski
myndi tvöfaldast eða þrefaldast
á skömmum tíma. —NTB
TUTTUGU mál voru á dagskrá
Nd. í gær. Eitt þeirra var tekið til
umr.: frv. til nýrra umferðarlaga.
Allmargar brtt. hafa komið fram
og urðu nokkrar umr. um þær.
Umr. var frestað og verður síðar
sagt frá breytingartillögunum.
Churchill hress
oy reykir vindii
ROQUEBRUNE, Cap Martin 24.
febrúar (Reuter). — í dag settist
Churchill upp í rúmi sínu, reykti
vindil og rabbaði við vini sína,
sem heimsóttu hann. Þeir sögðu
á eftir, að þeim hefði virzt öld-
ungurinn hinn hressasti. Er hann
nú talinn úr allri hættu að
minnsta kosti í bili og þykir það
dæmalaust að 83 ára gamall mað
ur skyldí svo skjótt fá bata eftir
jafnalvarlegan sjúkdóm og
lungnabólgu og snert af brjóst-
himnubólgu. í dag fékk Churc-
hill skeyti frá Píusi páfa ásamt
fjölda annarra skeyta.
Uppsagnarfrestur
verhafólks
FRUMVARPIÐ um rétt verka-
fólks til uppsagnarfrests o. fl.
var til 2. umr. í Ed. í gær. Björn
Jónsson flytur till. um að verka-
menn, sem ekki hafa vinnu
vegna hráefnaskorts hjá atvinnu
rekanda eða vegna annarra hlið-
stæðra ástæðna, séu ekki bundn-
ir við að segja upp starfi sínu
með 1 mánaðar fyrirvara. Hald-
ast skal hinsvegar það ákvæði, að
atvinnurekandinn þurfi að segja
upp með þessum fyrirvara. Till.
var tekin aftur til 3. umr.
í umr. tók Jón Kjartansson til
máls, og lagði áherzlu á, að ó-
heppileg vinnubrögð hefðu verið
höfð við undirbúning frv.
Til Ns&ri deildar
FRUMVARPIÐ um ráðstafanir
til að draga úr kostnaði við rekst
ur ríkisins var afgreitt til Nd. á
fundi í Ed. Alþingis í gær. Breyt-
ingartill. Sigurðar Ó. Ólafssonar,
sem áður hefir verið sagt frá hér
í blaðinu, var felld af stjórnarlið-
inu.
Öllum þeim, er sýndu mér vinarhug með heimsóknum,
skeytum, gjöfum og á margvíslegan hátt gerðu mér dag-
inn ógleymanlegan á fimmtugs afmæli mínu 10. þ. m.,
færi ég ykkur öllum innilegustu þakkir.
Ásgeir Þorláksson.
Jarðarför
GÍSLA G. ÁSGEIRSSONAR
frá Álftamýri fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudag-
inn 26. þ.m. kl. 2 e.h.'Jarðsett verður í Fossvogskirkju-
garði.
Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeir, sem vildu minnast
hans láti líknarstofnanir njóta þess. Athöfninni í kirkj-
unni verður útvarpað.
Börn, fósturbörn, tengdabörn.
Innilegar þakkir til allra, er auðsýndu samúð og vinar-
hug við fráfall eiginkonu minnar, móður okkar og tengda-
móður
MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR
Björn Björnsson, börn og tengdabörn.
Hugheilar þakkir til allra er auðsýndu samúð við frá-
fall og jarðarför mannsins míns
ÁSGEIRS ÁRNASONAR
yfirvélstjóra
Fyrir hönd barna og tengdafólks.
Theodóra Tómasdóttir.
Þökkum af alhug alla vinsemd og samúðarkveðjur við
andlát og jarðarför mannsins míns og föður okkar
JÓNS JÓNSSONAR
Efralandi. Þá færum við sérstakar þakkir til stjórnar
Hraðfrystihúss Þorkötlustaða og starfsfólks fyrir gjafir
og hjálpsemi okkur til handa.
Guð blessi ykkur öll.
María Jónsdóttir og börn.