Morgunblaðið - 10.04.1958, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.04.1958, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 10. april 1958 MORCDISBL 4 ÐIÐ 3 Þormóður goði. — 190 fet — 848 tonna togari. Ljósm. Mbl.: Ol. K. M. Ýmsar athyglisverðar nýjungar í „Þormóði goða" Stærsta skip islenzka fiskiflotans kom til Reykjavíkur i gær BJART veður og sólskin var, er Þormóður goði sigldi fánum skrýddur inn á ytri höfnina hér í Reykjavík um klukkan 11,30 f. h. í gær. Þá þegar lögðu margir leið sína niður að höfn til þess að sjá togarann, serh er allur hið glæsilegasta skip. Um kl. 1 síðd. lagðist togarinn að hafnarbakkanum undir kola- krananum. Var þar fyrir allmargt fólk. A nokkrum byggingum við höfnina var flaggað í tilefni af komu togarans. Um nónbil í gær bauð skipstjór inn Hans Sigurjónsson blaða mönnum að skoða togarann. Tók hanná móti gestum sínum í hinni glæsilegu skipstjóraíbúð. Þar voru þeir einnig Hafsteinn Berg þórsson framkv.stj. og Þorsteinn Arnalds skrifstofustjóri Bæjarút gerðarinnar. Skipstjórinn skýrði meðal ann- ars frá því, að í síðari reynsluför hefði togarinn náð 15 sjómílna hraða. Hann kvað enga reynslu enn komna á sjóhæfni togarans því ládauður sjór hefði verið alla leiðina. Þjóðverjar sögðu, að þó togað væri í 9 vindstigum, væri hvorki öryggi skipsmanna né skips teflt í tvísýnu. Á heimleið var komið við í Grimsby og tekin þ5r veiðarfæri og ýmislegt fleira. Eru í togaran um um 400 tonn af salti og á ann- að hundrað tonn af öðrum far- angri, svo að heita má að hann hafi verið ,á hleðslumerkjum', er hann kom. Hann var þrjá sólar- hringa frá Grimsby. Skipstjórinn sagði frá nokkrum nýjungum. Á stjórnpalli eru t. d. þrjú stýri, sem nota má til skiptis eftir þörfum. Það er stýri í miðri brúnni, hið venjulega stýri, skips ins, en svo eru stýri á hvorri síðu, sem notuð eru þegar togarinn er að veiðum. I brúnni sýndi skip- stjórinn blaðamönnum tvær fisk sjár. Er önnur þýzk, og er hún jafnframt dýptarmælir, en hin er Kelvin-Hughes fisksjá. Þá sýndi hann sérstakan lofthemlaútbún- að fyrir vörpuna, sem verða á til mikils hagræðis við „veiðar. Stjórnpallur skipsins er stór og bjartur. Sími er lagður um allt skipið, alls konar rofar og örygg- istæki, sem gripið er til, ef eitt Frá Alþingi FUNDUR hefur \?erið boðaður í Sameinuðu Alþingi í dag kl. 1,30. Minnzt verður látins fyrrver- andi alþingismanns. Á dagskrá er og fyrirspurn um félagsheimili, kosning í raforkuráð og 3 þings- ályktunartillögur: Gj aldeyrisaf- koma. Biskupsstóll í Skálholti. Lífeyrisgreiðslur. — Fundir voru ekki á Alþingi í gær. hvað óvænt ber að höndum, t. d. eld. Loftskeytamaðurinn, Guðmund ur Pétursson, sýndi gestunum hina miklu loftskeytastöð togar- ans. Sagði hann, að stöð skipsins væri það öflug að á stuttbylgjum mætti ná talsambandi við skipið nærri því hvar sem er á þeim sigl inga- og veiðisvæðum, sem ísl. togararnir kæmu á hér við land og við Grænland. Þá sýndi hann lítið tæki, sem er sjálfvirkur neyðarsendir og setja skal í sam- band, ef yfirgefa þarf skipið, hvort heldur er vegna strands eða óvæntra atvika á hafi úti. Þessi sjálfvirki neyðarsendir gerir það kleift fyrir önnur skip og strand stöðvar, að miða togarann ná- kvæmlega út. Gísli Jón Hermannsson, fyrsti stýrimaður, fylgdi blaðamönnun- um um skipið. Allar íbúðir og gangar eru klæddir að innan með ljósum harðviði.. Eru íbúðirnar hinar vistlegustu og rúmgóðar. Gísli Jón benti á ýmislegt af því, sem nýtt er í þessu skipi. Sér- stakur gangur er úr brú og aftur í skipið til mikils hægðarauka og öryggis fyrir skipsmenn. Þegar komið er í hásetaíbúðir, er fyrst komið í þurrkklefa, þar sem skips menn fara úr hhfðarfötum, en þar fyrir innan er hvítmálað, bjart snyrtiherbergi íbúðir eru allar hitaðar upp með rafmagni. Eru hásetaklefar ýmist 2 eða 4 manna og eru þar inni borð, koll- ar og bekkir. — Rafmagnselda- vél er í stóru og rúmgóðu eldhúsi og í matsalnum geta 26 skips- menn borðað samtímis. Athyglisvert er það og að klampar allir í fisklestinni eru úr aluminium og einangrun fisklest ar er jöfn í lofti sem gólfi lestar- innar. Sérstakur stigi er úr stiga- húsi við framsiglu, niður í fisk- lestar. Hafsteinn Bergþórsson framkv.- stjóri, upplýsti aðspurður, að þessi stóri togari, sem er eign Reykvíkinga, hefði kostað um 14 milljónir króna. Þormóður goði hefur meiri út- haldsmöguleika en nokkur annar íslenzkur togari. Hann getur ver ið að veiðum án þess að koma til hafnar og endurnýja vatns- eða olíubirgðir samfleytt 45 daga. Hafsteinn sagði að togarinn myndi í fyrstu veiðiförinni veiða fisk til söltunar. Lestarrýmið er það mikið, að ef vel gengur, get- ur togarinn komið með um 550 tonn af saltfiski úr þessari veiði för. Það er nær 100 tonnum, méira en „methafinn“ Þor- steinn Ingólfsson, hefur landað eftir eina veiðiför. Hafsteinn Bergþórsson sagði, að nú ætti eftir að reyna það, hversu vandað skip Þormóður goði væri. Hið ytra væri svo að sjá, sem allt væri sérlega vand- að og vandvirknislega af hendi leyst. Skipasmíðastöðin Seebeck í Bremerhaven hefur ekki fyrr smíðað jafnstóran togara. Aðal- vél skipsins er 1650 hestafla Krupp vél. Sagði skipstjórinn frá því að í reynsluförinni hefði ekki orðið vart neins titrings, þó snún ingshraðinn næði hámarki. Nú þegar er búið að ráða um 30 menn á Þormóð goða. í gær- dag komu um borð nokkrir sjó- menn til þess að falast eftir skip rúmi. Væntanlega heldur Þor- móður goði til veiða um helgina. Togarinn verður til sýnis fyrir almenning milli kl. 5 ög 9 síðdegis í dag. ★ Síðdegis í gær skoðuðu borgar- stjóri, bæjarstjórn og nokkrir gestir skipið. Formaður útgerð- arráðs, Kjartan Thors, flutti við það tækifæri eftirfarandi ræðu: „Virðulegir gestir Bæjarútgerð Reykjavíkur er það mikil ánægja að bjóða ykk- ur hjartanlega velkomna um borð í þetta nýjasta og stærsta skip útgerðarinnar. Vissulega er slík viðbót við fiskiflota lands- manna merkur og gleð.ilegur við burður. Ög efast ég ekki um að flestir íbúar þessa bæjar óski þess af heilum hug að gæfa og gengi megi ætíð fylgja hinu fagra skipi og áhöfn þess. í fljótu bragði virðist einnig, að ástæðu- laust ætti að vera að óttast að slíkar óskir rættust ekki. Þormóður goði mun vera stærsta og fullkomnasta fiski- skip, sem til þessa dags hefir komið í eigu íslendinga. Það er byggt í einhverri þekktustu og beztu togarasmíðastöð, sem starf- rækt er í Evrópu, undir umsjón ágætra manna. Ekkert hefir heldur verið sparað til þess að það geti gegnt því forustuhlut- verki í veiðiflota íslendinga, sem vonast mætti til af svo stóru og vel búnu skipi. Gera verður einnig ráð fyrir að skiprúm verði eftirsótt og í það veljist úrval ágætis manna. Dagleg stjórn í landi verður einnig í höndum hinna valinkunnu framkvæmda- stjóra Bæjarútgerðarinnar. Tvennt er þó það, sem varpar dálitlum skugga á gleði mína. Má þar fyrst nefna hina ískyggi- legu aflatregðu, er nú um langt skeið hefir verið á veiðisvæðum togaranna. Og í öðru lagi mjög svo ófullnægjandi starfsgrund- völlur, sem þessum veiðiskipum er búinn. Aflabrestinn ráðum við ekki við, en með bjartsýni útvegsmannsins er sífellt vonað að úr rætist. Ég held að allir séu mér sammála um að starfs- grundvöllur sá, er togararnir búa við, er allsendis óviðunandi. Og þarf þar skjótra úrbóta, ef forða á vandræðum. Hefi ég ástæðu til að ætla, að bráðlega vei'ði gerð- ar ráðstafanir til.lagfæringar. Að lokum vil ég biðja ykkur, góðir gestir, að rísa úr sætum og sameinast um þá ósk, að þetta nýja skip megi ætíð verða sann- kölluð' happafleyta. — Guð og gæfa fylgi ætíð skipi og óhöfn þess. Það lifi“. Gunnlaugur Briem, ráðuneyt- isstjóri þakkaði af hálfu gesta og árnaði skipinu heilla. Ljósmyndari Mbl. tók í gær þestw . x...okkrum af yfirmönnum togarans Þormóðs goða. Efst til vinstri er Guð- mundur Pétursson loftskeytamaður, en til hægri Hans Sigur- jónsson, skipstjóri, sem er þrítugur að aldri. Hann byrjaði í þjónustu Bæjarútgerðarinnar árið 1952 og var nú síðast skip- stjóri á bv. Jóni Þorlákssyni. Að neðan er Pétur Gunnarsson, vélstjóri, og með honum vélaeftirlitsmaður frá Kruppverk- smiðjunum, sem fer í fyrstu veiðiförina með skipinu. Ljósm. Mbl.: Ól. K. M. SMSTEINAR Hefur Sjálfstæðisflokk- urinn „einangrazt“? Málgögn vinstri stjórnarinnar, nú síðast Alþýðublaðið, fjölyrða mjög um það, að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi „einangrazt i íslenzknm stjórnmálum". Er þessu í raun og veru þannig farið? Ástæða er til þess að at- huga það lítillega. Sjálfstæðisflokkurinn er um þessar mundir í stjórnarand-. stöðu, hann á ekki fulltrúa í rík- isstjórn og harmar það lítt. Hin margumtalaða vinstri stjórn hef- ur fengið sitt tækifæri og þjóðin hefur fengið gott tóm til að kynnast stefnu hennar og úrræð- um. En meðal þjóðarinnar er Sjálf- stæðisflokkurinn síður en svo ein angraður. í síðustu alþingiskosn- ingum jók hann kjósendafylgi sitt úr rúmlega 37% í 42,4%. Og í bæjar- og sveitarstjórnarkosn- ingunum í vetur fékk hann yfir 50% atkvæða meðal þeirra 80% kjósenda, sem þá gengu að kjör- borðinu. Við næstu bæjarstjórnar kosningar þar á undan hafði hann fengið um 45% atkvæða. Sá fiokkur, sem þannig er á vegi staddur meðal þjóðarinnar er vissulega ekki „einangraður í íslenzkum stjórnniálum'“, eins og vesalings Alþýðublaðið heldur fram í forystugrein sinni í gær. Flokkur án fylgis En Alþýðufiokkurinn er allt öðru vísi á vegi staddur. Hann á að vísu fulltrúa í ríkisstjórn og ótal ráðum og nefndum, sem vinstri stjórnin er afkastamikil við að unga út. En meðal þjóð- arinnar hangir hann á nástrái. Miðað við úrslit bæjarstjórnar- kosninganna í vetur myndi hann hvergi fá mann kosinn hjálpar- Iaust á þing. Hér í Reykjavík er fylgi hans komið niður í 2800 atkvæði, sem er f jarri því að duga til þess að fá einn þingmann kos- inn hér. Á ísafirði, þar sem flokkurinn fékk fyrir örfáum árum á áttunda hundrað atkvæða er fylgi hans nú komið niður í um það bil 350 atkvæði, ef miðað er við síðustu bæjarstjórnarkosningar. í öðru aðalvígi flokksins, Hafnarfirði, fær Sjálfstæðisflokk urinn nú fleiri atkvæði en Al- þýðuflokkurinn í bæjarstjórnar- kosningum. í Neskaupstað er Al- þýðuflokkurinn í heild genginn i kommúnistaflokkinn, í Kópavogi fær hann rúm 100 atkvæði, í Keflavík og Vestmannaeyjum hefur hann stórtapað fylgi og á Sauðárkróki hefur hann nærri þurrkazt út. Alþýðublaðið á aðeins eina huggun gegn þessum áföllum: „Sjálfstæðisflokkurinn er ein- angraður í íslenzkum stjórnmál- um“. Þetta er fávísleg huggun, en það er gott ef hún nægir leiðtog- um Alþýðuflokksins. Sjálfstæðis- mönnum finnst það hins vegar betra hlutskipti að vera í stjórn- arandstöðu og njóta sívaxandi trausts og fylgis þjóðarinnar en að vera í ríkisstjórn, hafa svikið öll sín loforð og hafa bókstaf- Iega ekkert fylgi bak við sig. En það er hið ömurlega hlutskipti Alþýðuflokksins. „í r»æstu viku“ Nú er helzt gert ráð fyrir aS „bjargráð" ríkisstjórnarinnar verði lögð fyrir Alþingi „í næstu viku“. Um áramótin var sagt að þau kæmu fram „að loknum bæj- arstjórnarkosningum". Síðan var sagt að þau kæmu „fyrir páska“. Þar næst voru þau boðuð „strax eftir páska“. Og nú er rætt um að þau líti dagsins ljós „í næstu viku“. Vinstri stjórnin er af- kastamikil, samhent og skjótráð. Það má nú segja!!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.