Morgunblaðið - 10.04.1958, Qupperneq 9
Fimmtuctegur 10. aprfl 1958
WORCVNBLAÐIÐ
s
Dr. Victor tlrbancic hljómsveitarstjóri
IUinningarorð
DR. VICTOR URBANCIC, hljóm
sveitarstjóri og tónskáld, andað-
ist að heimili sinu, Kambsvegi 9
á föstudaginn lapga (4. apríl).
Við þessa sorgarfregn setti menn
hljóða. Kom hún mjög á óvart
þar sem hann virtist vera í fullu
fjöri, nýkominn úr ferðalagi um
Bandaríkin og var nú glaður yfir
því að geta aftur tekið til ó-
spilltra starfa í Tónlistarskólan-
um og Þjóðleikhúsinu. En enginn
má sköpum renna, og er hér stórt
skarð höggvið í hóp þeirra tón-
listarmanna, sem unnið hafa að
þróun og uppbyggingu tónlistar-
lífs á íslandi á síðustu tveim ára-
tugunum.
Dr. Urbancic var fæddur 9.
ágúst 1903 í Vínarborg. Faðir
hans var frægur skurðlæknir og
prófessor, og námu nokkrir ís-
lendingar læknislist hjá honum,
meðal þeirra Gunnlaugur heit-
inn Einarsson. En í ætt dr.
Urbancic eru einnig margir tón-
listarmenn og tónskáld. Dr.
Urbancic var nemandi Músíkaka
demiunnar í Vínarborg og var
aðalkennari hans hinn frægi
hljómsveitarstjóri Clemens
Krauss. Doktorspróf tók hann við
háskólann, en þar var Guido
Adler kennari hans. Taldi Adler
dr. Urbancic einn sinn allra snjall
asta nemanda í tónvísindum. í
Vínarborg var dr. Urbancic organ
leikari við Votivkirkjuna um
tima og stjórnaði auk þess hljóm
sveitum. Þá vann hann einnig
við leikhús Max Reinhards (Jós-
efsstadt Theater). Samdi hann
einnig mikið af tónverkum á þess
um árum, sem síðar voru gefin
út hjá Doblinger og viðar, þar á
meðal píanóverk, sönglög, cello-
sónata o. m. fl.
í borginni Mains starfaði dr.
Urbancic um 7 ára skeið við óper
una og stjórnaði þar fjölda ópera
og söngleika. Þá var hann um
tíma stjórnandi við óperuna í
Belgrad, unz hann var kallaður
til Graz í Austurríki, þar sem
hann varð kennari bæði við tón-
listarskólann og háskólann, en
stjórnaði jafnframt hljómsveitar-
tónleikum.
Dr. Urbancic var snjall píanó-
leikari og prýðilegur organleik-
ari. Hélt hann mikið af tónleik-
um víðs vegar á bæði þessi hljóð-
færi við mikinn orðstír. Á þessu
má sjá, að hann hefur verið mjög
fjölhæfur og mikill listamaður,
enda efaðist enginn um það, sem
kynntist honum, en segja má
að flest léki í höndum hans, sem
að músík laut og var tónheyrn
hans jafnan viðbrugðið.
Hingað til lands fluttist dr.
Urbancic í ágústmánuði árið 1938.
Hann gerðist kennari við Tónlist
arskólann og stjórnandi hljóm-
sveitarinnar, er dr. Mixa lét af
því starfi. Mikið starf beið hans
hér, og gekk hann ótrauður til
verks. En hann var með afbrigð-
um mikilvirkur að hverju sem
hann gekk. Þeir sem helzt þekkja
til, vita, við hversu mikla örðug-
leika er að etja hér, þegar um
tónlist er að ræða. Svo má heita,
að allt starf á sviði tónlistar til
þessa sé brautryðjendastarf. Það
er lýjandi, en það skapar einnig
gleði þeim, sem af einlægum hug
tekur þátt í því. Og það gerði dr.
Urbancic. Við Tónlistarskólann
hafa frá byrjun starfað afbragðs
erlendir kennarar við hlið okkar
eigin ágætu manna. Hefur það
verið mikið lán hversu vel hefur
til tekizt um val þessara manna.
Einn hinn ágætasti þeirra var dr.
Urbancic. Hann sameinaði í rík-
um mæli þekkingu, gáfur og
mannkosti. Hann vildi jafnan
leysa vanda hvers manns er til
hans leitaði, og gerði það með
sinni einstöku ljúfmennsku og
skyldurækni.
Af öllum þeim störfum sem dr.
Urbancic innti af hendi fyrir ís-
lenzkt tónlistarlíf, minnist ég
sérstaklega flutnings hans á óra-
torium Hándels og Jóhannesar-
passíunni eftir Bach og Requiem
Mozarts. Þar sem sameinaðist kór
og hljómsveit í hinum voldugu
verkum meistaranna,þar varhans
heimur, og undir handleiðslu
hans varð Tónlistarkórinn á þess
um árum einn af beztu kórum
Norðurlanda, eins og fram kom
á söngmótinu í Kaupmannahöfn
árið 1948. Þá flutti hann einnig
fjölda klassískra verka með Sin-
f óníuhl j ómsveitinni.
Undravert var það, hversu vel
dr. Urbancic tókst að samræma
t. d. sálma Hallgríms Péturssonar
passíu Bachs, en hann kynnti sér
þá til hlítar og valdi þá af mik-
illi þekkingu og smekkvísi hins
næma listamanns. Því miður lögð
ust uppfærslur þessar niður, og
var það mikið tjón fyrir músik-
líf okkar.
Jafnframt því að vera heims-
borgari í list sinni, með alhliða
þekkingu og kunnáttu, leit hann
brátt á sig sem íslending, ekki
aðeins sem ríkisborgara, en það
varð hann strax og tíminn leyfði,
heldur vildi hann tileinka sér það
bezta af arfi okkar íslendinga og
aflaði hann sér meiri og meiri
þekkingar á sögu okkar og
menningu. Ekki var ótítt að
heyra hann láta í ljós, að hann
vildi vera trúr Islandi og helga
því alla krafta sína, og gerði
hann það áreiðanlega af heilum
hug, meðal annars í frábærum
raddsetningum sínum á íslenzk-
um þjóðlögum.
Síðustu árin var dr. Urbancic
ráðinn hljómsveitarstjóri við
Þjóðleikhúsið. Kom sér þar vel
fyrri reynsla hans. Má fullyrða,
að um margt hafi hann verið frá-
bær leikhúsmaður, og munu sam
starfsmenn hans sakna vinar í
stað, því einnig þar gætti hans
miklu mannkosta í allri um-
gengni við listamennina; lipurð
hans og natni við æfingar var
viðbrugðið og prúðmennskan
brást aldrei.
Með miklum dugnaði og þraut
seigju flutti hann óperur fram til
sigurs í Þjóðleikhúsinu. Vil ég
sérstaklega tilnefna „Rigoletto“
og „La Traviata" eftir Verdi,
„Tosca“ eftir Puccini, Bajazzo
eftir Leoncavallo, Cavaleria
rusticana eftir Mascagni og
Töfraflautuna eftir Mozart, sem
mikilvægar uppfærslur. En
margt fleira mætti nefna.
Dr. Urbancic var einnig organ-
leikari við Kristskirkju í Landa-
koti um tuttugu ára skeið og
rækti það starf með ágætum.
Við Tónlistarskólann hafði dr.
Urbancic sögukennsluna með
höndum hin síðari ár, eftir að
hann tók til starfa við Þjóðleik-
húsið. Hann er öllum kennurum
skólans og nemendum harm-
dauði, og höfum við margs að
minnast og margt að þakka er
hann hverfur af sjónarsviðinu.
En sárast sakna kona hans, dr.
Melitta Urbancic, mikilhæft
skáld og listakona, og börnin
fjögur, sem eiga nú á bak að
sjá hinum ástúðlegasta heimilis-
föður.
Dr. Urbancic er kvaddur með
virðingu og þökk af öllum sem
hann þekktu.
Páll ísólfsson.
TIL LEEGL
Fjögurra herbergja íbúð í Hlíðunum til leigu nú
þegar. Tilboð sendist afgreiðslu Morgunblaðsins
merkt: „Ibúð — 3 — 8445“.
Saumakona
Vön saumakona óskast í ca. 2 mánuði. Vinna eftir
hádegi kemur til greina. Tilboð sendist Mbl. merkt:
„Vandvirk — 8447“
s
li
BEVlAN KEVlAN
Árshátíð
Skipstjóra og Stýrmannafél.
Aldan
Árshátíð félagsins verður haldin í Sjálfstæðishús-
inu mánudaginn 21. apríl 1958.
Skemmtiatriði:
Revían: „Tunglið, tunglið, taktu mig“ verður
leikin.
Áskriftarlistar liggja hjá:
Hróbjarti Lútherssyni, Akurgerði 25, sími 10031,
Gunnari Valgeirssyni, Hrísateig 24, sími 34121,
Guðmundi H. Oddssyni, Drápuhlíð 42, simi 11045,
Guðjóni Péturssyni, Höfðavík v/Borgart. sími 15334
Kolbeini Finnssyni, Vesturgötu 41, sími 13940.
Skemmtinefiulin.
TIL SÖLU
Til sölu er gott hns á hitaveitusvæði (Túmmum)
A hæðinni er 2 stofur, 1 herbergi og eldhús. Á ris-
hæðinni 2 herbergi og bað. — Svalir. 1 kjailarr eru
2 herbergi, eldhús og bað. Stór bíiskúr. Girt og rækt
uð lóð. Allt sérstaklega vandað og í góðu standi.
Málflutningsstofa Sigurður Keynir Pétursson hrl..
Agnar Gústafsson hdl., Gísli G. Isleifsson hdl.
Austurstr. 14, símar: 1-94-78 og 2-28-70.
Thorvaldsensbazarinn
Austuorstræti 4
verður lokaður frá 14. aprfl n.k. um óákveðinn tíma
vegna breyunga á 'búðinni.
Verzlunarmaður
okkur vantar lipran og ábyggilegan, ungan mann tll
afgreiðslustarfa
Aðeins reglumenn koma til greina. — Upplýsingar
ekki gefnar í síma.
CEYSIR H.F.
Skrifstofan — Aðalstræti 2
Fermingargjafir
Skíði m/stálköntum
Skíðastafir
Skíðafoindingar
Ennfremur:
Raksett í
Ferðasett
(4 Verð samtals:
| ca. kr. 600.00
leðurhylkjum
— töskur með
matarílátum