Morgunblaðið - 20.04.1958, Page 6
e
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 20. apríl 1958
Bonna Söndberg sem Leonora og Magnús Jónsson sem Manrico.
Að baki þeim stendur Niels Möller sem Luna greifi.
Það eykur gleðina að
foreldrar mínir og systir
voru á frumsýningunni
—segir Magnús Jónsson eftir söngsigur
sinn við Konunglega leikhúsið
Kaupmannahöfn í apríl 1958.
EINU SINNI fyrir meira en ald-
arfjórðungi hélt Sveinn Björns-
son, þáverandi sendiherra, ræðu
um framfarirnar á íslandi og
nefndi þá að gamni sínu, að við
værum jafnvel farnir að flytja út
tenóra. En hvað mætti ekki segja
nú? Ekki færri en 5 íslendingar
starfa við Konunglega leikhúsið
í Kaupmannahöfn. Eigum við þar
listafólk við allar þrjár list-
greinarnar, nefnilega Önnu Borg
við leiklistina, Stefán íslandi,
Einar Kristjánsson og Magnús
Jónsson við óperuna og svo Frið-
björn Björnsson við ballettinn.
Hvert sætí í Konunglega leik-
húsinu var selt á sunnudag-
inn var, þegar Magnús bættist
opinberlega við í hópinn — og
kom í fyrsta sinn fram á leik-
sviði dönsku óperunnar. Það var
auðheyrt, að áheyrendurnir voru
hrifnir af þessum unga söngv-
ara. Þeir klöppuðu honum mjög
lof í lófa. Friðrik konungur sat
ásamt dætrum sínum í konungs-
stúkunm og klappaði líka óvenju
lega mikið. Hann er maður, sem
hefur vit á tónlist.
Magnús söng þarna sem kunn-
ugt er hlutverk Manricos í „Tru-
baduren" eftir Verdi og hlaut
framúrskarandi góða blaðadóma,
þótt þetta hlutverk sé talið eitt
af hinum erfiðustu, sem til eru.
Það kemur sjaldan fyrir, að
svona mikið og vandasamt hlut-
verk sé lagt í hendur óperusöngv-
ara, sem kemur fram í fyrsta
sinn. Ber þetta vott um, að stjórn
óperunnar ber mikið traust til
Magnúsar.
Það er líka mjög sjaldgæft, að
byrjandi fái eins góða blaða-
dóma og Magnús fékk. Það er
ennfremur óvenjulegt, að óperu-
söngvari á byrjunarstiginu fái
hrós fyrir bæði sönglist og leik-
list.
Þessi ágæta frammistaða Magn
úsar hefur auðvitað glatt alla
landa hans. Þeir taka undir með
Stefáni íslandi, sem sagði við
Magnus eftir sýninguna: „Mér
þykir vænt um, hve vel þú hef-
ur kynnt ísland“.
Rauðar rósir stóðu á borðinu
í herbergi Magnúsar í hóteli ná-
lægt Konunglega leikhúsinu, þeg
ar ég hitti hann að máli. Þetta
var einn af mörgum blómvönd-
um, sem honum höfðu borizt.
— Eruð þér ekki ánægðir með
árangurinn í óperunni? spurði ég.
— Jú, mjög ánægður. Og það
eykur gleðina, að foreldrar mín-
ir og systir eru komin hingað og
/oru á frumsýningunni. Þetta
þótti mér mjög vænt um. Það
var gaman að sjá þau. Og það
hefur glatt mig, að mér hafa
borizt mörg blóm og skeyti frá
fólki heima. Bið ég yður að bera
kveðju til allra, sem hafa sýnt
mér vinarhug.
— Voruð þér ekki taugaóstyrk
ur á frumsýningunni?
— Því get ég ekki neitað. En
mér tókst að vinna bug á óstyrk-
leikanum. Mér fór að líða betur
eftir stóra hléið. Þá fór ég að
róast.
— Hvernig atvikaðist, að þér
komuð hingað?
— Poul Reumert heyrði mig
syngja í Kátu ekkjunni í Reykja-
vík. Hann benti Konunglega leik
húsinu á mig. Leikhúsið bauð mér
svo að koma hingað og syngja
til reynslu. Ég fór því til Kaup-
mannahafnar í janúar í fyrra.
Reynslusöngurinn tókst vel. Að
honum loknum var ég strax ráð-
inn, en þó með því skilyrði, að
ég væri fyrst í óperuskólanum
og fengi þar kennslu í nokkrum
greinum: dansi, skylmingum, leik
list o. fl.
I haust fór leikhúsið svo fram
á það við mig, að ég tæki að mér
þetta hlutverk, sem ég nú hef
sungið. Ég var þó hálfhræddur
við það, af því að það er mjög
erfitt. Mörgum fannst ég færast
þarna nokkuð mikið í fang. En
ég hafði sungið þetta hlutverk
við hljómleika heima.
— Ætlið þér að verða hérna
áfram?
— Líklega næstkomandi vet-
ur, en samningur um það hefur
ennþá ekki verið gerður. Ég er
búinn að æfa hlutverk konungs-
ins i„Grímudansleiknum“ eftir
Verdi. Geri ég ráð fyrir að
syngja það á næsta vetri.
— Gætuð þér hugsað yður að
verða hér til langframa?
— Ég veit það ekki ennþá. Ef
svo langt kemst heima, að Þjóð-
leikhúsið byrji að ráða fasta
Boðnir til íslands
LÖGBERG segir frá því fyrir
nokkru, að 3 Vestur-íslendingar,
þeir Sveinn Oddsson prentari,
Páll Bjarnason skáld og Jón Sig-
mundsson bílstjóri hafi verið
boðnir til íslands í sumar í til-
efni af því, að hinn 20. júní verða
liðin 45 ár, síðan þeir Sveinn og
Jón, sem seinna urðu mágar,
komu með fyrsta Ford-bílinn til
Reykjavíkur. Páll annaðist fjár-
hagshlið bílakaupanna.
„Mr. Oddsson hefur tjáð blað-
inu“, segir Lögberg, „að hann
muni við því búinn að taka boð-
inu, en óvíst sé um hina“.
söngvara, þá veit ég ekki, hvað
ég geri. En ég get þó sagt yður,
að ég er heimaelskur.
— Hvernig kunnið þér við
yður í Konunglega leikhúsinu?
— Ágætlega. Það er prýðilegt
fólk við óperuna, og það vill allt
fyrir mig gera. Ég hef verið svo
heppinn, að fá Önnu Borg sem
leikstjóra. Hún hefur hjálpað mér
mikið, m.a. með dönskuna, og þau
Reumerthjónin hafa verið mikil
stoð fyrir mig.
Anna Borg er mjög duglegur
leikstjóri, og allir, sem vinna
undir stjórn hennar, eru hrifnir
af henni.
— Farið þér ekki heim í sum-
ar?
— Jú, ég geri ráð fyrir því og
hef hugsað mér að halda hljóm
Þorleifur iónsson framkv.
sfjóri í Sfykkishólmi
STYKKISHÓLMI, 18. apríl —
Þorleifur Jónsson, sem undanfar-
in ár hefur verið framkvæmda-
stjóri „Austfirðings" á Eskifirði,
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri útgerðarfélagsins sem rek-
ur togarann Þorstein þorskabít.
Mun hann senn taka við því
starfi.
Togarinn kom til Stykkishólms
í gær með 240 lestir af fiski, sem
fór til vinnslu í hraðfrystihúsin
hér. Var þetta aðallega þorskur
og ýsa, mjög góður fiskur. Tog-
arinn fór aftur á veiðar í dag.
Það sem af er þessum mánuði
hafa gæftir verið góðar hér í
leika heima, ef einhverjir vilja Stykkishólmi og afli yfirleitt
hlusta á mig. En þetta eru slæm- ágætur, en þó nokkuð misjafn.
ir tímar. Ef til vill fer ég í síld-
arvinnu.
Páll Jónsson.
5 bátar stunda nú netaveiðar
héðan og koma daglega að landL
—Árni.
SKÁK
i X i
SKAKÞINGI ISLANDS lauk 15.
þ. m. með sigri Inga R., sem
hlaut 10 v. af 11 mögulegum.
í öðru sæti var Ingimar Jónsson
með 8 v. Þetta mun vera bezta
frammistaða Ingimars til þessa,
enda er hann vaxandi skákmaður,
sem hefur marga eiginleika, er
góðum skákmanni eru nauðsyn-
legir. 3.—4. urðu þeir Jón Krist-
jánsson og Páll G. Jónsson með
6¥z v. Frammistaða þeirra fé-
laganna, er með ágætum. þegar
þess er gætt að á eftir þeim
koma kempur eins og Lárus
Johnsen, Ólafur Magnússon,
Haukur Sveinsson og E. Gilfer
Sú nýbreytni að hafa skákþingið
um páskana er áreiðanlega spor
í rétta átt, þó húsnæðisskortur-
inn skyggði nokkuð á ánægju
manna í keppninni.
Skákþing Júgóslavíu er nú
yfirstandandi og leiðir B. Ivkov
eftir 8. umferð með 7 (1) næstir
koma 2.—3. Gligoric og Ciric með
7. Ciric er aðeins 20 ára og er
þetta í fyrsta skiptið, sem hann
kemst í úrslit í Júgóslavíu, en
hann sigraði í B-riðli á heims-
meistaramóti imglinga 1955 I
Antverpen.
f eftirfarandi skák leggur Ciric
sferifar úr i
daglega lifinu j
Spillið ekki trjágróðri
V ELVAKANDI hefur átt tal
við mann, sem sagði heldur
ljóta sögu af aðförum einhverra
gesta í garðinum við hús hans.
Gestirnir hafa ráðizt á tré í
garðinum, reynt að rífa greinar
af þeim og snúið þær af eða
skemmt, ef ekki hefur tekizt að
kippa þeim af með einu átaki.
Maðurinn telur óliklegt, að hér
séu litlir krakkar að verki, þar
sem talsverða krafta þarf til
þessarar iðju. Sennilegra er, að
um unglinga sé að ræða. Þeir
ættu að hafa náð þeim þroska, að
þeir geti séð, að svona nokkuð ér
skelfing fúlmannlegt. Á örfáum
andartökum geta þeir eyðilagt
margra ára starf þeirra, sem
garðinn erú að gera. Það getur
varla verið sérstakt ánægjuefni.
Og mikið ósköp munu ungling-
arnir líta þessa skaðlegu fávizku
illu auga, þegar þeir fara sjálfir
að smna trjárækt á síhum tima.
M
Misskilningur varðandi
skyldusparnað
AÐUR, sem látinn er greiða
skylduspamaðarfé, skrifar og
kvartar undan því, að nokkuð
harkalega sé að sér farið. Hér
kemur saga hans:
„Ég fór niður á pósthús, hafði
tal af manni þeim, er afhendir
bækur undir sparimerki og sagði
honum, að ég væri giftur og þar
að auki 26 ára gamall. Hann
reyndist mjög almennilegur og
vanizt hafa kosningaáróðri af
öðru tagi.
„Greiðið atkvæði með PEAR-
hjálpfús og sagði mér, að ég ætti SON SKIPULAGNINGU“ segir í
ekki lögum samkvæmt að vera
undir ákvæðum um sparimerki.
Ég varð allundrandi yfir þessu.
Ég vinn hjá opinberu fyrirtæki
og mjög svo þekktu, þar sem
hundruð manna starfa, og bjóst
fastiega við, að þeir, sem vinna
þar við endurskoðun, hefðu vit á
öðru eins og þessu. En raunin
var önnur. Þegar ég sagði þeim
frá þvi, sem við mig var sagt í
pósthúsinu, veifuðu þeir framan
í mig plöggum frá skattstofunni.
Ég fór á skattstofuna og fékk
þær uppiýsingar, að ég væri und
anþeginn þessum sparnaði.
Hringdu þeir fyrir mig til end-
urskoðunarinnar, eins gerði
hjálpsami og vingjarnlegi mað-
urinn á pósthúsinu. En það virð-
ist varla hafa haft nokkur áhrif
í rétta átt. Er hægt að láta svona
lagað viðgangast til lengdar?"
Nýstárlegar auglýsingar.
V ELVAKANDI var að líta á
tvö nýkomin Lögbergsblöð. Þau
komu út fyrir þingkosningarnar,
sem fram fóru i Kanada fyrir
nokkru, og í þeim birtust auglýs-
ingar frá flokkunum. Eru slíkar
auglýsingar nokkuð nýstárlegar
i augum hérlendra lesenda, sem
Lögbergi, og svo koma útskýring-
ar í nokkrum liðum og mynd af
Pearson. Tekur auglýsingin yfir
mikinn hluta 2. síðu blaðsins.
í næsta blaði birtist svo önnur
álíka stór auglýsing. Er þar geysi
stór mynd af Diefenbaker og með
henni þessi orð:
„Til minna Canadisku sam-
borgara, lesenda Lögbergs.
Ég flyt yður hér með alúðar-
þakkir fyrir það fylgi, er þér haf-
ið veitt mér á liðnum árum, og
óska yður góðrar heilsu, lífs-
ánægju og velmegunar.
John G. Ðiefenbaker
The Progressive Conservative
Party of Canada."
í sama blaði er önnur auglýs-
ing, þar sem kjósendur í SelkirK-
kjördæmi eru hvattir til að kjósa
Eric Stefanson, , birtar myndir
af honum og Diefenbaker og síð-
an „tíu gildar ástæður fyrir því
að greiða Progressive CoCnserva
tive atkvæði 31. marz'1. — Einnig
eru í blaðinu augslýsingar frá
frambjóðendum annarra flokka.
Og fyrst á annað borð er fanð
að tala um auglýsingar í Lög-
bergi verður að geta um eina enn,
þar sem vikið er að elliheimili
einu í íslendingabyggðum vestra.
1 blaðinu stendur:
„Minnist BETEL í erfðaskrám
yðar".
hinn fræga stórmeistara Matano-
vic að velli. Ég styðst að nokkru
við skýringar V. Pirc.
Hvítt: Ciric
Svart: Matanovic
Sikiley j arvörn
1. e4, c5; 2. Rf3, d6; 3. d4, cxd4;
4. Rxd4, Rf6; 5. Rc3, a6; 6. Bc4,g8;
Drachenafbrigðið hentar ekki vel
með a6 leiknum. 7. 0-0, Bg7;
8. Bg5, Rc6?; Slæmur leikur eins
og við þekkjum úr mörgum
stöðum. Sjálfsagt var 8. —, 0-0;
9. Rxc6, bxc6; 10. e5!
ABCDEFGH
1 M n
2 Í i i i i SL i & i |§
Hf '3 f|f
X WM i§ ii w*
ÉÉIi ip
m á É! ■ 4i
m um
ABCDEFGH
Sönnun á athugasemd við 8. —
leik svarts. 10. —, dxe5; Svartur
á ekki annarra kosta völ. 11.
Dxd8t, Kxd8; 12. Bxf7!, Kc7;
Ef 12. —, e6; þá 13. Re4, Ke7;
14. f4, Kxf7; 15. fxe5. 13. Hael,
e6; 14. Hxe5, Rd5; 15. He2 Ein-
falt var 15. Rxd5t, en með síðasta
leik sínum heldur hvítur öruggu
frumkvæði í endatafli. 15. —,
Bxc3; 16. bxc3, Rxc3; 17. He3,
Rd5; 18. Hd3, e5; Matanovic reyn
ir peðsfórn til þess að komast í
endatafl með mislitum biskup-
um, en 18. —, Hf8; 19. Hf3, og
síðan c4 hefði verið vonlaust
fyrir hann. 19. c4. Sterkara en að
leika samstundis 19. Bxd5. 19. —,
e4; 20. Hb3, Hhf8; 21. Bxd5, cxd5;
22. cxd5, Hf5; Vinnur peðið aftur,
en í staðinn fær hvítur mátsókn.
23. Hclt, Kd6; 24. Hb6f, Kd7;
25. h4, Hxd5; 26. Hb4, Kd6; Til
máts leiðir 26. —, He5; 27. Hd4f,
27. Hxe4, Hc5; 28. Bf4f, Kc6;
29. Hdl, Hd5; 30. Hdel, Bf5;
31. Hc7, h5; 32. Hclf, Kb6;
33. Hec7, Had8; 34. Hclc6f, Kb5;
35. a4!f, Kxa4; 36. Hxa6f, Kb5;
37. Hcc6, Hgd7; 38. Hab6f, Ka5;
Skárra var Ka4. 39. Hb2, Ka4;
40. Ha6f gefið.
IRJóh.
P. S.
Úrslit hafa nú borizt frá Júgó-
slavíu. Efstir urðu 1.—2. Ivkov
og Gligoric IIV2, 3. Matanovic 11.
Þungavinnuvélar
Sími 34-3-33
PÁLL S. PÁLSSON
hæstaréttarlögiiiaðui.
Bankastneti 7. — Sími 24-200.