Morgunblaðið - 07.05.1958, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.05.1958, Blaðsíða 1
20 síður 45. árgangur 102. tbl. — Miðvikudagur 7. maí 1958 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins: Einhugur um að standa saman um raunhæfar leiðir til samninga Sameiginleg yfirlýsing ráðherranna verður birt í dag KAUPMANNAHÖFN, 6. maí. — Utanríkisráðherrar Atlantshafs- líkjanna, sem nú sitja fund í Kaupmannahöfn, luku i dag raun- verulegum umræðum um tvö veigamestu mál fundarins, spurn- inguna um víðræður og samningsumleitanir við Rússa og vanc'a mál afvopnunar. Niðurstaða umræðnanna hefur orðið sú, að vest- rænar þjóðir séu reiðubúnar til viðræðna við Rússa, ef gerður sé raunhæfur og viðhlítandi undirbúningur slíkrar ráðstefnu. Það muni koma í Ijós af viðræðum vestrænna sendiherra í Moskvu við Gromyko utanríkisráðherra, hvort grundvöllur sé fyrir slíka ráð- itefnu. — Umræðum ráðherrafundarins lýkur á morgun með því, að ástandið við Miðjarðarhaf verð- ur tekið fyrir. Að því loknu mun fundurinn gefa út sameiginlega yfirlýsingu eins og venja er. Hvað vakir fyrir Rússum? Formælandi NATO sagði í dag, að ræðurnar sem haldnar voru á fundinum : morgun og eftir há- degið hefðu í stórum dráctum tjáð sömu sjónarmið og fram komu í gær hjá utanríkisráðherr um Breta og Bandaríkjamanna, nefnilega að Vesturveldir. verði að fá úr því skorið. hvað fyrir Rússum vaki í sambandi við ráð- stefnu æðstu manna. Fram- kvæmdastjóri NATO, Paul Henri Spaak. tók til máls að umræðum loknum og gaf í fáum orðum höf uðinntak þeirra sjónarmiða, sem iram hefðu komið. Veigamest þeirra væri það, að ráðstefna æðstu manna yrði tilgangslaus.ef hún væri ekki rækilega undir- búin og ef ekki væri fyrirfram ljóst hvað til umræðu yrði. Vest- urveldin væru fús að halda áfram undirbúningsviðræðum í Moskvu, ef Rússar samþykktu það. eftir hádegi átti Selwyn Lloyd utanríkisráðherra Breta viðræð- ur við von Brentano utanríkis- ráðherra Vestur-Þjóðverja í brezka sendiráðinu í Höfn. Haft I utanríkisráðherra Danmerkur er eftir góðum heimildum, að Framh. á bls 2 þeir hafi rætt um undirbúning að ráðstefnu æðstu manna og áætl- anir um fríverzlunarsvæði Evrópu. Sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu, Llewelyn Thompson, kom til Hafnar í dag til viðræðna við Dulles utanríkisráðherra í sambandi við undirbúningsvið- ræðurnar í Moskvu. 'Seinkaði honum mjög vegna þoku. Frá Höfn fer hann til Parísar til að taka þátt í fundi bandarískra sendiherra. Ekki ein, heldur margar ráðstefnur. Bæði Lange utanríkisráðherra Noregs og Hansen forsætis- og Njósnir í danska sendi- ráðinu í Bonn Einkaviðræður. Milli fundanna í morgun og Stanzlaust blóðbað ALSÍR, 6. maí. — Frakkar til- kynna að alls hafi 202 uppreisn- armenn í Alsír verið drepnir í fjórum bardögum víðs vegar í landinu síðasta sólarhringinn. í bardaga við Rumale í Suður- Alsír voru 100 uppreisnarmenn drepnir og Frakkar náðu jafn- framt miklum birgðum af vopn- um, m.a. tveimur skotstöðvum eldflauga. KAUPMANNAHOFN, 6. maí. — Danska og vestur-þýzka lögregl- an eru nú að vinna að því, að upplýsa víðtækt njósnamál, sem 62 ára gamall viðskiptafull- trúi í danska sendiráðinu i Bonn, Einar Blechingberg, er potturinn og pannan í. Hann mun hafa látið af hendi mikilvæg hernað- arleg leyniskjöl við embættis- mann rússneska sendiráðsins í Bonn, að því er mörg dagblað- anna í Kaupmannahöfn segja. Blechingberg er sagður hafa játað, að hann hafi tekið ýmis leyndarskjöl í danska sendiráð- inu og farið burt með þau. Hon- um hefur verið vxkið frá starfi sínu og mun verða yfirheyrður í lokuðum réttarsal í Kaupmanna höfn. Margvíslegar upplýsingar. Skjölin sem huriu eru m. a. sögð hafa að geyma leynilegar upplýsingar um flotasamvinnu Dana og Vestur-Þjóðverja á Eystrasalti, um NATO-áætlanir varðandi sameiginlegan markað Evrópu og upplýsingar í sam- bandi við Rapacki-tillöguna, sem gerir ráð fyrir svæði í Mið- Evrópu þar sem kjarna- og vetn isvopn verði bönnuð. Skjölin voru lánuð. Lögreglan álítur, að leyniskjöl in hafi verið lánuð rússneskum njósnurum með aðstoð miili- liða. — „Ekstrabladet" heldur því fram, að allmargir finnskir borgarar eigi hlut að þessu njósnamáli. „Aftenbladet“ skýrir frá því, að málið sé svo mikilvægt og víð- tækt, að vestur-þýzki utanrík- isráðherrann muni taka það til umræðu á NATO-fundinum, sem nú stendur yfir í Höfn. Gat ekki lagt skjölin fram. Það voru starfsmenn danska sendiráðsins í Bonn sem uppgötv uðu að skölin voru horfin. Var þá bæði dönsku lögreglunni og vestur-þýzku öryggislögreglunni gert aðvart. Konan, sem bar ábyrgð á skjalasafni sendiráðsins sagði, að Blechingberg hefði feng ið skjölin að láni, sem eru leyni- leg og mega alls ekki fara út fyr- ir veggi sendiráðsins. Bleching- berg var skipað að skila skjöl- unum þegar í stað, en hann gat ekki lagt þau fram, og þá kom strax skriður á málið. Danskir lögregluþjónar voru sendir til Bonn á sunnudaginn og reyndu að yfirheyra Bleching berg. Síðar var skýrt frá þvi, að hann yrði fluttur flugleiðis til Hafnar og yfirheyrður þar fyrir luktum dyrum. Réne Pleven Horfur Plevens batna PARÍS, 6. maí. — Þjóðiegi lýð- veldisflokkurinn ákvað í dag að eiga aðild að ríkisstjórn,. sem mynduð yrði af René Pleven, sem er í Frjálslynda flokknum. Stjórnmálafréttaritarar í París gera því ráð fyrir, að Pleven muni enn verða við beiðni Cotys Frakklandsforseta um að mynda nýja stjórn. Á föstudaginn gafst Pleven upp á tilraunum sinum til að leysa stjórnarkreppuna, en Coty bað hann að gera eina til- raun ennþá. Stjórnarkreppan hefur nú staðið í þrjár vikur. Joseph Laniel fyrrverandi for- sætisráðherra og einn af leiðtog- um íhaldsmanna hafði áður gefið þá yfirlýsingu, að Ihaldsflokkur- inn væri fús til að taka þátt í ríkisstjórn undir forustu Plev- ens. Hins vegar yrði endanleg afstaða flokksins ekki ákveðin fyrr en Pleven hefði ákveðið hvaða menn fengju embætti land varnaráðherra, utanríkisráðherra og Alsírmálaráðherra. I gær á- kvað Radikali flokkurinn að eiga samvinnu við Pleven með því skilyrði, að íhaldsmenn ættu ekki fulltrúa í stjórninni, en þeir átt.u stærstan þátt í að steypa stjórn Gaillards. Vantraust á U Nu RANGOON, 6. maí. — Forseti Burma, U Win Maung, hefur kvatt saman þing 5. júní n. k. til að ræða vantraustsyfirlýsingu á U Nu forsætisráðherra. Mun yfirlýsingin verða borin fram aí tveimur aðstoðarforsætisráðherr- um, U Kyaw Nyein og U Ba Swe, sem eru sagðir hafa stuðning 11 manna í ríkisstjórninni og rúm- lega helmings af öllum stuðnings- mönnum stjórnarinnar á þingi. U Nu mun eiga stuðning þriðja aðstoðarforsætisráðherrans, Tha- kin Tim, sem er leiðtogi hins volduga bændaarms í sósíalista- flokknum. Hins vegar hafa að- eins 8 menn í ríkisstjórninni heit- ir U Nu stuðningi. Sex aðrir ráð- herrar eru „hlutlausir", en þeir munu að líkindum styðja for- sætisráðherrann, ef til tíðinda dregur. Ennfremur er talið að U Nu eigi vísan stuðning frá ýms- um þjóðbrotum á þingi og frá róttækustu vinstriflokkunum í stjónrarandstöðunni. „Kosningarvalda glundroða44 PEKING, 6. maí. — í dag sendi Pekingstjórnin og stjórnin í Norður-Kóreu bréf til ríkis- stjórna þeirra 16 landa, sem eiga hermenn í varnarliði Sameinuðu þjóðanna í Suður-Kóreu. í bréf- inu er lagt til, að haldin verði ráðstefna til að finna friðsam- lega lausn á Kóreu-vandanum eftir að allar erlendar hersveitir hafi verið kallaðar heim frá Suður-Kóreu. Bréfið var svar við orðsendingunni frá ríkjunum 16 hinn 9. apríl s.l. Segir í bréf- inu að þessi ríki séu að leitast við að valda glundroða varðandi Kóreu-vandamálið með því að leggja til, að haldnar verði al- mennar kosningar í Norður- og Suður-Kóreu undir umsjá Sameinuðu þjóðanna. Crivas sakar kommúnista um samvinnu við Breta AÞENU, 6. maí. — Dighenis (Georgos Grivas ofursti), foringi EOKA-samtakanna á Kýpur, hef- ur sakað AKEL, kommúnista- flokkinn á Kýpur um „náið sam- starf við brezku stjórnina“ gegn EOKA. Stjórnarheiinn sækir nð síðastn vigi uppreisnarmonna ó Súmötru DJAKARTA, 6. maí. — Herstyrk ur Djakarta-stjórnarinnar, sem tók aðalstöðvar uppreisnarmanna Bukit Tinggi, í gær, er nú á leið til Batu Sangar, síðustu borgar- innar á Mið-Súmötru, sem upp- reisnarmenn hafa á valdi sinu. Frá þessu var skýrt í Djakarta- útvarpinu í dag. Almennt er talið að flestir for- ingjar uppreisnarmanna séu nú staddir í Batu Sangar, og mun getur til að ná borginni á sitt vald. Forsætisráðherra Djakarta- stjórnarinnanr, dr. Djuanda, hélt útvarpsræðu í dag og sagði, að stjórnin væri nú að endurskipu- legga allt stjórnmála- og við- skiptalíf á Vestur-Súmötru og koma stjórn mála þaríbetra horf. Þegar stjórnarherinn hefur unnið fullnaðarsigur á Súmötru, mun hann snúa sér gegn uppreisnar- mönnnum á Norður-Celebes, stjómarherinn gera allt sem hann sagði ráðherrann. tvússar skipta um skoðun PARIS og LONDON, 6. maí. — Formælandi franska utanríkis- ráðuneytisins sagði í dag, að það merkilegasta við síðustu orðsend ingu Rússa væri, að þeir hefðu nú horfið frá fyrri sjónarmiðum að því er tæki til ýmissa stór- mála. Nú hefðu þeir gengizt inn á það viðhorf Vesturveldanna, að ýmis mikilsverð mál, sem tek- in verða fyrir á ráðstefnu æðstu manna, verði fyrst rædd af sendi- herrunum í Moskvu. Formælandi brezka utanríkis- ráðuneytisins lét í ljós undrun sína yfir því, að Grómýkó lætur í ljós vonbrigði yfir því, að Vest- urveldin hafi hafnað tillögunni um sameiginlega ráðstefnu sendi herra. í fyrri orðsendingu sinni lagði Grómýkó til, að umræðurn- ar færu annað hvort fram við sendiherra Vesturveldanna þriggja, Frakka, Breta og Banda- ríkjamanna, hvern í sínu lagi, eða á sameiginlegum fundi þar sem sendiherrar Tékka og Pólverja yrðu líka með. Grómýkó lét í ljós óskir um að fyrrnefndi hátturinn yrði hafður á viðræðunum, og féllust Vesturveldin á það. Það er því dálítið skrýtið að hann skuli harma þetta núna, sagði formælandinn. MOSKVU, 6. maí. — Rússneska Tass-fréttastofan skýrði frá því, að Grómýkó utanríkisráð- herra hefði í dag átt viðræður við sendiherra allra kommúnistaríkj- anna ásamt sendiherrum Svía og Indvei’ja i sambandi við ráðstefnu æðstu manna. I dag birti Aþenu-blaðið „Apogevmatini“ hina „svörtu bók“, sem Dighenis er sagður hafa skrifað. Heldur hann því fram, að griski kommúnista- flokkurinn hafi fengið brezkum yfirvöldum í hendur ljósmynd af honum og lýsingu á honum. „Svarta bókin“ ber heitið „EOKA — forusta kommúnista í andstöðunni við baráttu Kýpur- búa, 1958“. Segir m.a. í bókinni, að Rússar hafi gert það sem i þeirra valdi stóð til að eyðileggja baráttu Kýpurbúa. Loftárás á Jenien A D E N, 6. maí. — Brezkar sprengjuflugvélar gerðu í kvöld loftárás á nokkra staði í Jemen nálægt landamærum verndar- svæðisins Aden. Gerðu flugvélarn ar árásir á fallbyssustæði og önn- ur virki þaðan sem skotið hafði verið inn á landsvæði Adens. Tvær flugvélar löskuðust litils- háttar af vélbyssuskothrið Jem- ensbúa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.