Morgunblaðið - 07.05.1958, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.05.1958, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 7. maí 1958 MORCinvm 4 ÐIÐ 3 Fyrirhugab sumarstarf nefndar Þióðkirkjunnar Sumarbúðir að Löngumýri i Skagafirði og æskulýðsmót i 8 skólum viða um land Æskulýðs- blað. Þannig er mál með vexti, að undanfarin 9 ár hefir æsku- lýðsblað verið gefið út á vegum Æskulýðsfélags Akureyrar- kirkju, og hafa þeir séra Kristján Róbertsson og séra Pétur Sigur- geirsson annazt ritstjórn blaðs- ins. Samkomulag hefir nú tekizt milli þeirra og Æskulýðsnefndar Þjóðkirkjunnar um, að blaðið komi framvegis út á vegum þess- arar nefndar. Við þessi þáttaskil í sögu blaðsins stækkar verksvið þess og miðast nú við heildar- samtök Þjóðkirkjunnar. Hefir blaðið verið stækkað í broti og aukið að síðufjölda. Einnig hefir blaðinu bætzt nýr ritstjóri, séra Sigurður Haukur Guðjónsson, sóknarprestur að Hálsi í Fnjóska dal, og mun hann vinna að rit- stjórn blaðsins auk tveggja fyrr- nefndra ritstjóra. Blaðið verður áfram gefið út á Akureyri, kem- ur út ársfjórðungslega og flytur fréttir af æskulýðsstarfinu og greinar um áhugaefni ungs fólks. August Strindberg ,Faðirinn' eftir Strindberg í Þjóðleikhúsinu Kysstu mig Kata flutt i mailok FORRÁÐAMENN Æskulýðs- nefndar Þjóðkirkjunnar ræddi í gær við blaðamenn um fyrirhug- að starf á sumri komanda. Á veg- um nefndarinnar verða í sumar haldin æskulýðsmót í átta skól- um víða um land, *bg eru mót þessi ætluð unglingum, sem ferm ast á þessu vori. Einnig verða sumarbúðir á vegum Þjóðkirkj- unnar að Löngumýri í Skaga- firði. Dr. Ásmundur Guðmunds- son, biskup, og formaður Æsku- lýðsnefndar, séra Bragi Friðriks- son, skýrðu nánar frá fyrirhug- uðu sumarstarfi. Æskulýðsmótin mun fara fram að Núpsskóla, Eiðaskóla, Skóga- skóla, Laugarvatnsskóla, Vatna- skógi, Bifröst, Laugaskóla og Hólaskóla. Verða . þau haldin helgina 7.-8. júní nema að Eiða- skóla og Núpsskóla, en þar verða mótin haldin helgina 5.—6. júlí. Hugmyndin er að gefa sóknar- prestum kost á að koma með fermingarhóp sinn og dveljast eina helgi á einhverjum þessara staða. Þegar er greinilegt, að þátt taka í þessum mótum verður mjög mikil, og farið getur svo, að ekki verði unnt að skjóta skjólshúsi yfir alla. Verður þá um tvo kosti að velja: Koma því svo fyrir, að hópar komi í heimsókn- ir án þess að gista eða hverfa að því ráði að koma upp tjaldbúð- um á staðnum. Nefndir starfa að undirbúningi mótanna á hverjum stað. Útileikir, kvöldvaka og erindi Efnt verður til ýmiss konar kynningar, t.d. með útileikum og kvöldvöku, sem haldin verður á laugardagskvöldið. Á kvöldvök- unni verður ýmislegt til skemmt- unar, og lögð verður áherzla á, að skemmtikraftanrnir séu úr hópi unglinganna. Síðar um kvöldið verða flutt erindi og lagt út af einkunnarorðum mótanna, orðum Jesú Krists: Ég er vegur- inn, sannleikurinn og lífið. Á sunnudagsmorgun munu prest- arnir ræða við unglingana með þessi orð í huga, og lýkur mótun- um með guðsþjónustu, sem hefst kl. 2 á sunnudag. 10—15 dagar fyrir hvern flokk í sumarbúðunum Sumarið 1954 var í fyrst sinn sumarskóli á vegum Þjóðkirkj- unnar að Löngumýri í Skagafirði, og stýrði séra Glafur Skúlason skolanum. Skolinn var einnig Léttur vetur á Ströndum ÞÚFUM, 5. maí. — Jakob Krist- jánsson, bóndi í Reykjarfirði á Ströndum í Grunnavíkurhreppi, tjáir mér, að á Ströndum hafi verið einn hinn allra léttasti vet- ur, sem hann man eftir, og hann hefur búið þar myndarbúi í 45 ár. Sauðfé gekk úti fram í janúar og hestar voru teknir á hús í marz og hefði ekki þurft. Hinn 20. janúar heimtist þar tvílembd ær, sem aldrei hafði sézt allt haustið og veturinn. Var ærin og lömbin í hinu ágætasta ásigkomu lagi. Lítið heyfóður þurfti fyrir fénað í vetur. Tveir synir Jakobs búa nú í Reykjarfirði og hafa á þriðja hundrað fjár. Stunda þeir mikið sögun á rekavið og tófuveiðar, en mikil einangrun er nú orðin þar, þar sem allir bæir í nágrenni Reykjarfjarðar eru komnar í eyði nema Drangar, Sfem löng leið er til. Nú eru bátar frá Djúpi og víðar farnir að sækja rekavið á hin víðlendu rekasvæði á Strönd um. —P. P. starfræktur sumarið 1955 undir stjórn Ingibjargar Jóhannsdótt- ur, forstöðukonu, og var aðal- kennari Ásgeir Ingibergsson, þá stud. theol. S.l. sumar var þessu starfi haldið áfram en í nokkuð breyttri mynd, þar sem ekki var lengur um sumarskóla að ræða heldur sumarbúðir. í sumarbúð- unum dveljast börnin í flokkum 10—15 daga í senn. Tímabilið frá 30. júní til 12. júlí er ætlað drengjum á aldrinum 9—11 ára, frá 14. til 26. júlí drengjum 11 ára og eldri, frá 28. júlí til 9. ágúst telpum 9—11 ára, frá 11. til 23. ágúst telpum 11 ára og eldri. Ákveðið hefir verið, að þátttöku- gjald verði 450 kr. Börnum og unglingum sunnanlands verður séð fyrir' ódýrum ferðum frá Reykjavík. Umsóknir skulu sendast sóknarprestum eða biskupsskrifstofunni í Reykjavík fyrir maílok. í sumarbúðunum munu börnin taka þátt í biblíu- lestri, söng, íþróttum, gönguferð um, föndri, garðyrkju og jurta- söfnun, sundi og ýmsum leikum. Þess má geta, að forstöðukona skólans að Löngumýri, Ingibjörg Jóhannsdóttir, hefir boðið Þjóð- kirkjunni húseign skólans ásamt nokkru jarðnæði, og er það mál í athugun. ★ • ★ Æskulýðsnefnd Þjóðkirkjunn- ar var skipuð í fyrrasumar af biskupi, og i henni eiga sæti auk formanns þeir séra Árelíus Níelsson, séra Jón Þorvarðsson, séra Magnús Runólfsson, séra Jón ísfeld á Bíldudal, séra Pétur Sigurgeirsson á Akureyri og séra Erlendur Sigmundsson á Seyðis- firði. Einn af varamönnum nefnd arinnar hefir setið alla fundi hennar, og er það séra Garðar Svavarsson. ★ • ★ Æskulýðsnefnd var þegar frá upphafi Ijóst, að mjög æskilegt væri, að á vegum Þjóðkirkjunnar væri gefið út sérstakt æskulýðs- STJÓRNARFRUMV. um breyt- ingar á liigunum um samvinnu- félög var til 1. umr. á f'undi efri deildar Alþingis í gær. Eysteinn Jónsson fjármálaráð- herra flutti ræðu og kvað frumv. þetta flutt til að létta þeirri skyldu af samvinnufélögum að leggja 1% af sölu aðkeyptra vara og afurða í varasjóð, enda hvíldi slík skylda ekki á öðrúm félögum. Jón Kjartansson spurði, hvort samþykkt frumv. myndi hafa í för með sér, að breytingar yrðu á skattgreiðslum samvinnufélaga til ríkisins. Ef svo væri, kvaðst hann óska upplýsinga um, hverj- ar þær breytingar væru. Eysteinn Jónsson sagði, að frumv. þetta væri ekki skat'tamál. Ef það yrði samþykkt, og einnig annað frumv., sem nú er til með- ferðar í neðri deild ,og fjallar um Hraðskákmót Keflavíkur HRAÐSKÁKMÓT Keflavíkur fór fram s.l. sunnudag. Þátttak- endur voru 12. Sigurvegari varð Páll G. Jónsson með 10 vinninga, annar Ragnar Karlsson með 9Vz vinning og þriðji Sigfús Krist- jánsson sem hlaut 9 vinninga. —B. P. NÆSTA laugardag verður leik- ritið „Faðirinn“ eftir Strindberg frumsýnt í Þjóðleikhúsinu, að því er þjóðleikhússtjóri tjáði frétta- mönnum í gær. Þýðandi leikrits- ins er Loftur Guðmundsson, en leikstjóri Lárus Pálsson. Lárus Ingólfsson hefur gert leiktjöld. Faðirinn er eitt af þekktustu leikritum Strindbrgs. Það var fyrst frumsýnt í Kaupmannahöfn 1887, en hefur síðar verið sýnt víða m.a. í öllum helztu leikhús- um Svíþjóðar. Leikritið er fjöl- skyldudrama og fjallar um hina margvíslegu erfiðleika hjóna- bandsins. Til þeirra erfiðleika þekkti höfundur vel því hann var þrígiftur og þrískilinn. Nokkuð hefur dregizt að sýn ingar hæfust á þessu leikriti. Þjóðleikhúsið hafði fengið loforð frá Olaf Molander, leikstjóra við Dramaten í Stokkhólmi, þess efn- is að hann kæmi hingað og setti leikinn á svið, en sífellt dróst að breytingar á lögunum um tekju- og eignarskatt, myndi sami skatt- stigi gilda um samvinnufélög og önnur félög. — Hann kvað and- stöðu við frumv., sem til umræðu var, vera „kala, andstöðu og jafn- vel fjandskap við samvinnufé- lögin“ og spurði, hvort Jón Kjart- ansson vildi e. t. v. leggja til, að hlutafélög yrðu látin hlíta sömu reglum um varsjóðsframlög og samvinnufélögin nú. Jón Kjartansson kvað ráðherr- ann hafa smeygt sér undan því að svara spurningunni, sem til hans var beint. Sér virtist meg- inatriði málsins vera það, að varasjóðir samvinnufélaga hefðu algera sérstöðu að því leyti, að framlög í þá væru grundvöllur fyrir álagningu skatts til ríkis- ins. Með þessu frumv. væri ætl- unin að láta félögin ráða því sjálf, hvort þau legðu nokkuð í vara- sjóði sína annað en hagnað af viðskiptum við utanfélagsmenn. Þetta þýddi, að skattar á félögin yrðu ákveðnir af þeim sjálfum að verulegu leyti og gæti svo farið, að skattarnir yrðu alls engir, ef ekki væri um viðskipti við utan- félagsmenn að tefla. Jón sagði, að þetta yrði að segjast undan- bragðalaust, enda væri ekki sæm- andi að fara í felur með tilgang frumv. Nokkur frekari orðaskipti urðu um málið, en að því loknu var frumv. vísað til 2. umr. og alls- herjarnefndar. af því yrði. Þá hafði og verið áformað að hinn frægi leikari við Dramaten, Lars Hansen, færi með aðalhlutverkið. Þar sem það dróst einnig að hann kæmi, ákvað Þjóðleikhúsið að færa leikinn upp með innlendum kröft um undir stjórn Lárusar Páls- sonar. Aðalleikendur eru Valur Gíslason, sem leikur föðurinn og Guðbjörg Þorbjarnardóttir, sem leikur konu hans. Arndís Björns- dóttir leikur fóstruna, Jón Aðils lækninn og Haraldur Björnsson prestinn. Dótturina leikur Ása Jónsdóttir og er það fyrsta hlut- verk hennar. Með smærri hlut- verk fara þeir Erlingur Gíslason og Klemens Jónsson. Leikritið er í þremur þáttum og gerast þeir allir á heimili riddaraliðsfor- ingjans (föðurins). Leikurinn verður aðeins sýnt fimm sinnum nú í vor. Faðirinn er fyrsta sænska leikritið, sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. í maílok verður færð upp í Þjóðleikhúsinu óperettan Kysstu mig Kata og eru æfingar á henni þegar í fullum gangi. Stjórnandi er Svend Ove Larsen, en auk hans kemur hingað hljómsveitar- stjóri frá Bandaríkjunum, Saul Schechtman að' nafni. Gat þjóð- leikhússtjóri þess að Kysstu mig Kata væri fyrsta ameríska óper- ettan, sem sett væri á svið í Þjóðleikhúsinu. Sænska óperettu söngkonan Ulla Sallert syngur aðalhlutverkið. Þjóðleikhúsið hefur nú sýnt Dagbók Önnu Frank 22 sinnum, oftast fyrir fullu húsi. Gauks- klukkan er sýnd í tíunda sinn í kvöld. Þá hefur Þjóðleikhúsið ákveðið leikför um Norður- og Vesturland með Horft af brúnni í byrjun júní. Deild úr norræna féiaginu slofnuð í Sfykkishólmi STYKKISHÓLMI, 5. maí. - í gær var stofnuð í Stykkishólmi deild úr Norræna félaginu. Magnús Gíslason, erindreki félagsins, mætti á stofnfundinum, sem haldinn var í samkomuhúsinu, og gerði grein fyrir tilgangi félags- ins og starfsemi. í félagið gengu um 40 manns. 'Stjórn deildarinn- ar skipa eftirfaldir menn: Ólafur Haukur Ólafsson, skólastjóri for- maður, Halldór Jónsson fra.c- kv.stjóri, Magnús Sigurðsson verzlunarmaður, Kiistján Halls- son kaupfélagsstjóri og Guðm. Hansen kennari. —Árni. Eiga samvinnufélögin að ákveða skatfa sina? STAK8TEIHAB ,,Orð uglunnar“ Alþýðublaðið birtir öðru hverjn spekiyrði undir þessari fyrirsögn í þætti, sem heitir „Gaman og alvara“. í gær hljóðtuðu þau svo: „Bjargráðin, já . . .“ Meira var ekki sagt, enda e. t. y. ekki meira um „varanlegu úr- ræðin“ að ‘segja af hálfu stjórn- arsinna eins og sakir standa. En sýnu minna er yfirlætið nú en var fyrir röskum mánuði, þegar Alþýðublaðið boðaði „tímamót í íslenzkri stjórnmálasögu" — eft- ir páska. Segja má, að þeim sé ekki alls varnað, sem getur gert gaman að eigin eymd. En hætt er við, að almenningi þyki „bjargráð- unum“, þegar þau loks koma, frekar fylgja alvara en gaman. A. m. k. mun margri húsmóður- inni finnast svo, þegar nýjn álögurnar bætast við alla dýr- tíðina, sem fyrir er. ,,Sjaldan ríkari nauðsyn“ Daginn fyrir 1. maí lauk aðal- greininni á forsíðu Þjóðviljans með þessum orðium: „Verkalýðsfélögin vænta þess að alþýða Reykjavíkur geri 1. maí að eftirminnilegum baráttu- degi í ár. Hefur sjaldan verið ríkari nauðsyn en nú að verka- lýðssamtökin sýni styrk sinn og einhug í verki“. Þessi er þá árangur af nær tveggja ára starfi V-stjórnarinn- ar, að verkalýðurinn þarf slíkra brýninga við, að dómi Þjóðvilj- ans. Reykvískir verkamenn sýndu og „einhug sinn í verki“ og skilning á því hvaðan hættan stafar með hinum frábæru und- irtektum, sem þeir veittu hinni hvössu ádeiluræðu Bergsteins G'uðjónssonar á ríkisstjórnina og allt hennar athæfi. Þær undir- tektir voru svo einhuga, að Þjóð- viljinn hefur ekki náð upp í nef- ið á sér af ótta og reiði síðan, heldur birt hverja níðgreinina eftir aðra um þann ræðumann, sem talaði svo sem þúsundirnar vildu mælt hafa. „Fyrirlitlegustu eigin- leikarnir“ • Þjóðviljinn hefur enn ekki átt- að sig á því, að lítt stoðar að nota stóryrði um athæfi stjórnarinn- ar og skora á verkalýðinn að fyikja liði gegn því, sem hann telur óhæfu, þegar blaðið sjálft tekur ábyrgð á því, sem það for- dæmir harðast. í gær segir Þjóð- viljinn t. d. í forystugrein: „Þeir tímar eru löngu liðnir að hernámsmenn reyni að færa rök fyrir afstöðu sinni; þeir vita að þaoi rök eru engin til. Það eru aðeins tregðan og þýlyndið og skeytingarleysið sem helga afstöðu þeirra, þeir eiginleikar sem fyrirlitlegastir eru í fari manna. Hversu lengi ætla ís- lendingar að una því að örlög þeirra séu ráðin af slíkum hvöt- um?“ Öll þessi stóryrði hitta fyrst fyrir Þjóðviljann og þingmenn kommúnista. Þeir bera nú stjórn- skipulega ábyrgð á dvöl varnar- liðsins hér. Aðrir, sem ábyrgðin hvílir á, segjast telja nauðsyn- legt að hafa liðið. En Þjóðvilj- inn og aðstandendur hans hafa ekki þá afsökun, heldur taka á sig ábyrgðina einungis til að geta lafað í ríkisstjórn. Þess vegna er afstaða þeirra „fyrirlitlegri“ en allra annarra. Sá, sem lýsir „hernámsmönn- um“ á framangreindan veg, hlýt- ur að tapa bæði æru og áliti, þeg- I ar hann sjálfur eflir þá til valda j eins og kommúnistar gera nú á íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.