Morgunblaðið - 07.05.1958, Side 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 7. maí 1958
bj5kaþátj_ur±
Sjávarföll
JÓN DAN: Sjávarföll. Skáld.
saga. 158 bls. Almenna bóka-
félagið, Reykjavík 1958.
Jón Dan gat sér gott orð fyrir
smásögur sínar sem komu út fyrir
hálfu öðru ári undir nafninu
„Þytur um nótt“. Höfðu ein-
hverjar þeirra verið verðlaunað-
ar í tímaritum. Mér féllu nokkr-
ar sögurnar mjög vel, einkum sög
urnar sem fjölluðu um börn. Virt
ist höfundurinn hafa sérstakt lag
á að lýsa hugsunarhætti og við-
brögðum barna, gera sálarlif
þeirra ljóst og trúverðugt fyrir
lesandanum.
Þetta kemur enn fram í fyrstu
skáldsögu Jóns Dan, „Sjávarföll-
um“, sem var apríl-bók Almenna
bókafélagsins. Að mínu viti tekur
hún fram öllum smásögum hans.
Þó er ekki svo að skilja að sagan
fjalli fyrst og fremst um börn.
Drengurinn Hvatur er ekki „sögu
hetjan“ en samt fer furðumikið
fyrir honum í bókinni, og sumir
beztu kaflarnir eru tengdir hon-
um, t. d. kaflinn um „sáninguna“.
Hin eiginlega söguhetja er aft-
ur á móti faðir Hvats, Þorri,
ungur maður og óstýrilátur, dá-
lítið skrýtilega „innréttaður11 og
kannski minnisstæður fyrir þá
sök.
Sagan er skemmtilega byggð.
Henni er skipt í þrjá meginkafla:
Aðfall—Útfall—Aðfall. Hún
hefst í dögun og henni lýkur
um miðnættið sama dag.í þessnm
þrönga ramma kemur höfundur
fyrir miklu efni: myndin hefur
dýpt og mikil litbrigði. Það er
stígandi' í frásögninni allt fram
Husgögn
Borðstofuhúsgögn, hentug fyrir stórt heimili eða
veitingahús til sölu, einnig sófasett. Til sýnis í skála
við Ingólfsgarð í dag og á morgun kl. 1—3.
Upplýsingar í síma 13511.
ÍBÚÐ TIL SÖLU
Ný rúmgóð 3ja herbergja risibúð til sölu.
Upplýsingar í síma 3-35-47.
Piltur eða stúlka
óskast til afgreiðslustarfa
Verzl. Kjöt & Alegg
Grensásveg 26 — sími 32947
Byggingafélag
Alþýðu, Hafnarfirði
Ein 3ja herb. íbúð í 3. fl. er til sölu.
Uppl. hjá formanni og gjaldkera.
Stjórnin.
Ráðskona
óskast i veiðihús við Þverá, nálægt Norðtungu
í ca. 3 mán. frá 8. júní n.k.
Nánari uppl. gefur:
Óli Hialtested, læknir,
í símum 14U«6 og 22400.
á síðustu blaðsíðu. Hún er í raun-
inni spennandi aflestrar þótt efn-
ið sé ekki sérlega tilþrifamikið.
Stíllinn er mjög hófsamur og
vandaður, kannski heldur hátíð-
legur á köflum og á stöku stað
flúraður óþarflega fornfálegum
orðum og orðatiltækjum. Sam-
töiin eru yfirleitt eðlileg nema
hvað Þorra hættir til hátíðlegs
Jón Dan
tungutaks, einkum þegar har.u
talar við Gróu. Hann er þó ungur
nútímamaður þrátt fyrir allt!
Sagan er ákaflega fallega og
nærfærnislega sögð. Höfundurinn
gætir hvarvetna hófsemdar, segir
ekki meira en hann getur staðið
við. Það er einn af stærstu kost-
um bókarinnar hve vægilega er
farið með allar lýsingar: oftast
er meira gefið í skyn en sagt
er beinum orðum. Þetta gefur
sögunni aukna vídd, opnar les-
andanum ný sjónarsvið.
Ég dreg mjög í efa að til séu
í nýrri íslenzkum bókmenntum
margir kaflar, sem um stíltöfra
og næstum áþreifanlega náttúru-
lýsingu taki fram upphafskaflan-
um í þessari bók. Yfirleitt eru
umhverfislýsingar höfundar sér-
lega myndrænar og lifandi. Sag-
an angar af gróðri og frjómagm
jarðarinnar.
Um persónusköpun er það að
segja, að flestar sögupersónurnar
standa lesandanum Ijóslifandi fyr
ir hugarsjónum, þó þær séu ekki
allar jafnskiljanlegar eða trú-
verðugar. Bezt finnst mér gömlu
hjónin, foreldrar Þorra, og Hvat-
ur litli sonur hans. Drengurinn
er bráðlifandi og lýsingin á sam-
bandi hans við afa sinn er tærasti
skáldskapur og sérstæður kafli
í íslenzkum bókmenntum, ekki
sízt þegar gamli maðurinn fer
„að hnýsast í sál drengsins" (bls. I
84). Gömlu hjónin eru klassískarj
íslenzkar sveitapersónur, en þaul
hafa ótvíræð einstaklingsein-1
kenni og lifa sjálfstæðu lífi, hljóð
látu en sterku.
Þorri er ekki eins skýr persóna,
m. a. vegna þess hve órólegur
hann er og óöruggur í
áformi sínu þangað til á
úrslitastundinni. Þá er mér ekki
grunlaust um, að hinar löngu
orðræður hans og skýringar a
sjálfum sér skyggi á hann sem
einstakliog. Ennfremur finnst j
mér átökin sem eiga sér stað hið :
innra með honum ekki nægilega
undirbyggð. Mér var aldrei full-
ljóst hvers vegna Sæunn átti
þessi sterku ítök í honum, eftir
allt sem undan var gengið. Ást
hans á koti foreldra sinna er
naumast nægileg ástæða enda
hrekkur sú stoð í sögulok. Þetta
er líklega eina alvarlega glufan
í sögunni.
Sæunn kemur lítið við sögu, en
er samt einkennilega lifandi per-
sóna. Stafar það að veruiegu
leyti af lýsingunni á heimsókn
hennar til fávitans í fjósinu Það
er lystilega gert hvernig lesand-
inn er látinn sjá þessa torræðu
og illvígu manneskju með aug-
um fávitans. Fávitinn er líka
furðuskýr, enda þótt hann sé
ekki tiltakanlega frumleg per-
sóna.
Ólafur, faðir Sæunnar, og bræð
ur hennar tveir eru hins vegar
dálítið ósennilegt mannfólk. Ég
áttaði mig alls ekki á hörku
þeirra við Þorra, en þrælsótta
þeirra við Sæunni. Hér er veila
í orsakasamhenginu, og það dreg-
ur úr þunga og spennu sögunnar
hve Ólafur er laus í reipunum,
þótt lýsingin á heimsókn hans í
kotið sé mjög fagmannlega gerð.
Kannski er meginorsökin á list-
rænum göllum Ólafs sú, að höf-
undurinn hefur enga samúð með
honum. Jafnvel örgustu þorparar
verða að eiga samúð skapara
síns, ef þeir eiga að lifna við.
Lýsingin á Gróu (,,Góu“) er
Kjot- OCJ
rkýlenduvoruverzlanir
Maður vanur afgreiðslustörfum í kjötbúð og ný-
lenduvöruverzlun óskar eftir að komast í samband
við verzlun sem vantar mann til starfa. Margra ára
reynsla.
Tilb. merkt: Kjöt og nýlenduvara, sendist Mbl.
fyrir 10. þ.m.
Duglegur og
reglusamur maður
eða piltur óskast til verzlunarstarfa. Góð rithönd,
reiknikunnátta og dálítil vöi upeKKing æskileg.
Þarf að hafa bílpróf.
KAUPFÉLAG KTAUARNESÞINGS
(Sími um Bruanand)
RÖSK
stúlka óskast
til afgreiðslustarfa. Upplýsingar á
skrifstofunni, Garðastræti 17.
r
XiDOAB'dt)
Atvinna
Stúlka með stúdentspróf úr Verzlunar-
skólanum, óskar eftir góðri atvinnu strax.
Br vön skrifstofustörfum. Góð ensku-
kunnátta. Tilb. merkt: 21 — 8192, send-
ist afgr. blaðsins fyrir 12. þ.m
nærfærin og sannfærandi. Sam-
band hennar við Þorra er ákaf-
lega eðlilegt, þrátt fyrir fortíðma.
Atriðið í sögunni þegar hún hverf
ur til Þorra (bls. 129) og allur
undanfari þess er sérstaklega
áhrifaríkt. Eins eru samtal þeirra
og hugrenningar á bls. 49 til 60
skemmtilega unnin, þótt tungu-
takið mætti að skaðlausu vera
eðlilegra.
Aftur á móti kann ég ekki að
meta nafna-sýmbólismann i sög
unni, og þá einkanlega nöfnin
Þórri og „Góa“. Það kemur ekki
nægilega skýrt fram, hvaða sam-
band er milli söguefnisins og
þessara óvenjulegu nafna, sem
eiga greinilega að hafa táknræna
merkingu.
Sagan er í heild samfelld og
„hröð“. Höfundur kastar hvergi
höndum til verksins né slakar tök
sín á frásögninni. Atburðir eru
allir ljóslr og sérkennilega mynd-
rænir. Það á ekki sízt við um
síðasta úrræði Þorra, þegar hann
rær Ólafi út í Klettinn, þótt það
sé með skringilegra móti. Sömu-
leiðis stappar eltingaleikur og
áflog bræðranna við Þorra nærri
ólíkindum.
En þessar aðfinnslur eru í þe:m
skilningi út í hött, að þær eru
miðaðar við okkar daglega líf.
Um söguna er það hins vegar að
segja, að hún lifir svo sterku og
sjálfstæðu lífi, að hún réttlætir
í rauninni alla viðburði sína.
Spurningin er ekki hvort skáld-
skapurinn sé ósennilegri en lífið,
því það getur hann strangt tekið
aldrei orðið, heldur hvort atburð
ir og lýsingar skóldverksins pjóni
þeim tilgangi að gera það sterkara
og óhrifameira. Hvert skáldverk
skapar sinn eigin heim, sem lytur
sjálfstæðum lögmálum Sé verkið
sveigt undir þessi lögmál og látið
hlýða þeim skilyrðislaust, þá hef-
ur það heppnazt vel.En sé skáld-
ið stöðugt með annað augað á
„lífinu“, er hætt við að því íatist
flugið.
Mér yirðist Jóni Dan hafa tek-
izt að skapa skáldsögu smni hin
liauðsynlegu og óháðu lögmái
sltáldverksins, og það sem ég hef
helzt gagnrýnt er það, að sumar
persónurnar. og þá einkanlega
Ólafur og synir hans, eru ekki
nægilega „löghlýðnar". Hegðun
þeirra á ekki nægilega sterkar
stoðir í lögmálum verksins.
En mér er óhætt að fullyrða,
að „Sjávarföll" sé með betri
skáldsögum, sem hafá komið frá
hendi yngri höfunda hér. Frá-
gangur bókarinnar er einstaklega
vandaður og smekklegur.
Sigurður A. Magnússon.
F járöf 1 unardagur
Hraunprýði
HAFNARFIRÐI. — Á föstudag-
inn kemur, 9. maí, efnir slysa-
varnadeildin Hraunprýði til sinn
ar árlegu kaffi- og merkjasölu
í sambandi við lokadaginn, sem
að vísu er ekki fyrr en 11. maí,
eins og kunnugt er, en þar eð
hann ber upp á sunnudag, þótti
deildinni hentugra að hafa söluna
á virkum degi. Hafa fjölmennir
vinnuhópar frá ýmsum fyrirtækj
um í bænum jafnan fjölmennt i
Alþýðu- og Sjálfstæðishúsið, þar
sem kaffið er selt, og styrkt
þannig hið góða málefni. Er þess
að vænta að svo verði einnig nú.
Annars hafa bæjarbúar ávallt
sýnt slysavarnadeildinni mikinn
skilning og styrkt hana af mikl-
um myndarskap þennan fjáröfl-
únardag með því að kaupa kaffi
í húsunum og bera merki dags-
ins.Verða merkin afhent börnum
til sölu frá kl. 8,30 á föstudags-
morgun, og eru foreldrar hvattir
til að fá börn sín til að selja þau.
Þá eru konur, sem ætla að
styrkja deildina með kökugjöf-
um, beðnar að koma þeim í Al-
I þýðuhúsið eftir kl. 8 á fimmtu-
dagskvöld. — I báðum kvik-
myndahúsunum verða sýningar
á vegum Hraunprýði kl. 9 á fjár-
öflunardaginn. —G. E.