Morgunblaðið - 07.05.1958, Blaðsíða 12
12
MORCVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 7. maí 1958
Sigurður Jakobsson
Minningarorð
Vetrarnóttin er heið og stjörn-
um stráð. Hún andar til mín inn
um opinn glugga. Óravídd him-
insins blasir við og veikur nætur-
þytur raular lagið sitt við ups og
súð. Fjölbreytni á hann oft nóga,
þegar hann syngur. Og söngvar
hans eru aðrir í eyrum barna en
þeirra sem eldri eru. Ég veit
hvers Vegna allir söngvar hans
hafa í nótt sama stefið, ljóðlínu
úr gömlum sálmi: „Kynslóðir
koma, kynslóðir fara“. Það e.
vegna þess að í gær fylgdum við
fjölmargir Borgfirðingar og ýms-
ir lengra að komnir Sigurði
Jakobssyni á Varmalæk til graf-
ar. Og á andvökunóttum er gott
að minnast vina sinna og þakka
þeim fyrir liðin ár og daga.
Föður Sigurðar, Jakob Jónsson
bónda á Varmalæk man ég að-
eins sem barn, því að hann dó
árið 1912. Um hann var sagt, að
hann hefði aidrei neitað nokkr-
um manni um bón. Og hann var
einn mesti búhöldur þessa hér-
aðs og landsins alls um sína daga.
Konu Jakobs, Herdísi Sigurðar-
dóttur frá Efstabse varð ég aftur
á móti samferða langan veg. Því
að hún dó háöldruð árið 1947. Er
hún ein hin ágætasta kona se-n
ég hefi þekkt. Barn að aldri kom
ég á heimili hennar og sona henn
ar og eignaðist vináttu þeirra
svo, að þar hefur aldrei fallið
skuggi á, ekki svo mikið sem
eina stutta stund. Síðar var ég
part úr þremur vetrum á Varma
Austin 8
sendiferðabill
í góðu lagi til sölu.
Sími 15102.
læk og kenndi sonarsonum Her-
disar og fleiri börnum. Nú þegar
vetrarnóttin syngur saknaðar-
ljóð við gluggann minn um góða
soninn hennar Herdisar, Sigurð,
er ég ákaflega þakklátur fyrir
þessa daga og stundir. Þá sat ég
oft hjá þessari öldruðu konu.
Undraðist víðsýni hennar, sálar-
þrek og góðviid til alls sem var
og er. Dómar hennar voru svo
mildir sem blíðust móðurhönd og
þó var hún skaprík kona og hugs-
aði um flest milli himins og jarð-
ar. Góðar konur bera með sér svo
mikla göfgi og himneska fegurð,
að um margar aldir hafa menn í
mörgum þjóðlöndum falið konu
sál sína um eilífð og svo mun
enn verða.
Sveitir Borgarfjarðar eru dá-
samlega fallegar. Einhvern tím i
losna mennirnir við dægurþras
og brauðstrit líðandi stundar.
Vissulega er fegurð og vinátta
vel metin af mörgum nú í dag.
En þetta tvennt mun þó miklu
meira í heiðri haft, er ár og aldir
líða. Þegar æðsta þrá mannanna
allra verður að leita að hinu
fagra og góða og hlú að því. Þá
er gott ti’ þess að vita að önnux
ems fegurð cg sú, er Borgar-
fjörður á, skuii vera til. Og sú
fegurð fer vaxandi. Menmr íir
breyta auðn í fagrar lendur. Fén
aður er vel með farinn og frjáls-
legur. Eftir eina eða tvær aldir
mun stórskógurinn þekja hlíðar
dalanna og kuldanæðingur
kaldra vordaga verða að þyt í
toppi trjánna. Hér sem annars
staðar eru það ræktunarmenn-
irnir, sem lyfta grettistakinu.
Á Varmalæk hefur síðan árið
1884 verið unnið að ræktun og
hvers konar jarðabótum, en það
ár hófu foreldrar Sigurðar, Jakob
og Herdís búskap sinn. Fátæk
voru þau í fyrstu og unnu hörð-
um höndum. En framsýni og fá-
gætur dugnaður til allra verka
gerði þau fljótt vel efnuð. Hjálp-
Iðnaðarhúsnæði óskast
á leigu sem fyrst.
Æskilegt að það væri á tveim hæðum, alls 50—80
ferm. að stærð. Má vera í fokheldu ástandi.
JÓN BJABNASON
Lækjargata 2 — Sími 11344.
Mafráðskonu
vantar okkur sem fyrst. Upplýsingar
í síma 24093.
ísbjörninn H.f.
Stúlkur
Starfsstúlkur óskast á veitingahús í
nágrenni bæjatrins. Uppl. í síma 11066.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir, er verða til sýnis föstud. 9.
• þ.m. kl. 1—3 að Skúlatúni 4.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama
dag.
Nauðsynlegt er að taka fram símanúmer í tilboði.
Sölunefnd Varnarliðseigna.
Varmalœk
uðu þar og til fimm ágæt börn,
fjórir synir og ein dóttir. Áhugi á
ræktun hefur um langan aldur
fylgt ættum Sigurðar. Má á það
minna í því sambandi, að fjöl-
margir af beztu bændum Borgar-
fjarðar eru frændur hans. Margir
af þeim hafa verið fjárgæzlu-
menn meiri en í meðallagi. Hitt
tel ég þó miklu meira virði, að
þar er mikill drengskapur ríkj-
andi í ættum. Hefi ég veitt því at-
hygli í mörg ár og er enginn
stundardómur.
Upp af sveitum Borgarfjarðar
rísa tignarlegir jöklar og há fjöll
Víðlendar grasi-vaxnar heiðar,
en líka auðnir og eyðisandar.
Þarna hafa frá ómunatíð verið
furðuheimar fegurðar og fágæt
beitilönd. Nú þykir ýmsum sem
gróðurlendur þessar fari halloka
og séu í hættu staddar vegna of-
beitar. Og það var maður af ætt
Sigurðar á Varmalæk, sem ég
vissi fyrstan benda á, að sjálf-
sagt væri að rækta heiðalöndin
og gera þau kjarnmeiri en þau
hefðu áður verið. .
Segja má, að Varmalækur sé
í miðju Borgarfjarðarhéraði. Er
það landnámsjörð. Byggði þar
fyrstur Óleifur hjalti. Gerði hann
svo að ráði Skalla-Gríms. Varma-
lækur kemur víða við sögur og
þar hafa búið margir merkir
menn. Til dæmis Glúmur og Hall
gerður, eins og lesa má í Njáls
sögu. LÖngu síðar Torfi í Ólafs-
dal og kona hans. En þau mann-
anna verk, cr þessa jörð prýða í
dag, eru svo að segja öll ein-
göngu unnin af sömu fjölskyld-
unni, þeirri, sem þar er enn í
dag. Nú eru þar tvö býli. Heitir
nýbýlið Hellur. Reist við heitar
lindir alllangt frá gamla bæn-
um. Á Varmalæk hefur lengi ver-
ið stórbýli. Nú byggist sá búskap-
ur á ræktun að sið hins nýja
tíma. Má fullyrða, að þar hefur
aldrei verið stærra bú síðan land
byggðist.
Sigurður Jakobsson var fædd-
ur á Varmalæk 7. maí 1888. Þeg-
ar faðir hans dó, tók hann ásamt
bróður sínum við bústjórn með
móður sinni. Var til þess vitnað
og þótti sérstök fyrirmynd, hve
mjög þessi systkini voru sam-
rýnd og ástúðlegt með þeim.
Þegar Herdís hætti búskap,
bjuggu þeir bræður Sigurður og
Fullorðin kona
•með 14 ára telpu, vantar litla
íbúð. Ráðskonustaða eða hús-
hjálp koma til greina. Upplýs
ingar í síma 13842.
Jón félagsbúi um allmörg ár. Nú
búa á jörðinni tveir bróðursynir
Sigurðar, Jakob og Pétur. Sigurð-
ur kvæntist ekki. Oft verður það
hlutskipti þeirra manna að verða
einmana, þegar árin færast yfir.
Svo var ekki með Sigurð. Enda
var hann óvenju barngóður mað-
ur. Ætla ég, að hann hafi ekki
unnað bróðursonum sínum
minna en þó að þeir væru hans j
eigin börn. Og aldrei vissi ég eða
sá annað en að Sigurður á Varma
læk skildi barnssálina betur en
aðrir menn. Man ég það vel, hve
hann var mér góður, þegar ég
var lítill drengur.
Sigurður var hæglátur maður
og prúður. Hverjum manni vin-
fastari og einlægari. Vitur og ráð
hollur og nutu þess margir. Hann
tók mikinn þátt í félagsmálum
Borgarfjarðar og var oddviti
Andakílshrepps svo lengi sem
ég man. Enginn var hann mál-
skrafsmaður á mannfundum, en
fastur fyrir og trúr sannfæringu
sinni. Hann var gott að eiga að
vini.
Vetrarnóttin er heið og stjörn-
um stráð. Á andvökunóttu hefi
ég hugsað um vini mína. Sumir
segja, að sálir mannanna fari til
annarra hnatta og dvelji þar að
jarðlífi lóknu. Hvort svo er, eða
ekki læt ég mig litlu skipta. Hitt
skiptir miklu máli, hvort vinir
dvelja í nánd hver við annan eft-
ir dauðann. Þætti mér vænt um,
að aldrei yrði lengra á milli mín
og vina minna á Varmalæk en
verið hefur í þessu lífi.
7. marz 1958.
Björn J. Blöndal.
HINN 6. marz sl. var jarð-
sunginn frá Bæjarkirkju Sigurð-
ur Jakobsson oddviti og fyrrum
bóndi að Varmalæk í Borgarfirði,
en hann andaðist á sjúkrahúsi
Akraness þann 28. febrúar si.
eftir stutta legu, tæplega sjötugur
að aldri
Með Sigurði Jakobssyni er
genginn merkur og athafnasamur
forvígismaður í málefnum sveit-
ar sinnar, virtur og vinsæll heið-
ursmaður, sem allir harma, ex
hann þekktu. Ég hygg, að fyrir
fleirum en mér hafi n ynd Sig-
urðar staðið sem brimbrjótsins,
er öldur hms daglega lifs brotna
á, en fá ekkj bifað Slík var
skapfesta nans og góðlyndi. Hann
kvæntist aldrei og átti ekki börn,
en öllum börnum og unglingum
á heimilinu, skyldum og vanda-
lausum var hann sem faðir og
veit ég með vissu að stór er sá
hópur vandalausra, er með hon-
um dvöldu, sem elskuðu hann og
virtu.
Hart var á íslandi á árunum
eftir 1880, er þau Jakob og Herdís
hófu búskap á Varmalæk. Þá var
næsta lítill hluti heyskapar tek-
inn á túni, hitt varð að sækja
2 — 3 herbergi
og eldhús óskast til leigu. Er kaupandi að lóð.
Uppl. í síma 23695 milli 12—1 og 7—8.
i >
Aðstoðarráðskonu
vantar í Heilsuhæli Náttúrulækningafélagsins í
Hveragerði. — Upplýsingar á staðnum, hjá ráðs-
konunni frú Sigurlaugu Jónsdóttur.
Náttúrulækningafélag íslands.
Karl og kona
óskast til starfa í pylsugerð okkar.
SÍLD & FISKUR
Bergstaðastræti 37.
á engjar, víða um langan og erfið
an veg. Það sýnir m. a. stórhug
og framtak Jakobs á Varmalæk
að hann lagði veg á engjarnar
um tveggja km leið yfir blauta
mýri, til að auðvelda þaðan hey-
flutninginn. Þegar farið var að
leggja bílvegi um Bæjarsveit var
þessi vegur notaður óbreyttur um
nokkur ár, svo vel var hann úr
garði gerður. Að öllu voru þau
Herdís og Jakob annálað atorku-
og dugnaðarfólk. Mun Sigurður
því þegar í æsku hafa tamið sér
þær vinnudyggðir, er hann á-
stundaði ætíð síðan.
Eftir lát Jakobs árið 1912 tók
Sigurður við búsforráðum með
móður sinni, og rak síðan ásamt
Jóni tvíburabróður sínum og
konu hans, Kristínu Jónatansdótt
ur, stórbú að Varmalæk allt fram
til síðustu ára. Hófu þeir bræður
fljótlega upp merki föður síns,
og skipuðu sér í fremstu fylkingu
framfaramanna í íslenzkum land
búnaði. I búnaðarháttum þeirra
og framkvæmdum öllum fylgdust
að atorka og ráðdeild ásamt
snyrtimennsku, langt umfram
það sem títt er. Heimilisbragur
og sambúð húsráðenda á Varma-
læk var einnig til fyrinnyndar
í alla staði, og voru þeir bræður
samhentir svo sem bezt verður
kosið. í höndum þeirra varð
Varmalækur eitt hið glæsilegasta
höfuðból, og mun handaverka
þeirra Sigurðar og Jóns lengi
sjá þar stað í túnrækt og öðrum
jarðabótum.
Varmalækur stendur um þjóð-
braut þvera Fyrr á tímum þegar
menn ferðuðust á hestum, var
Varmalækur griða- og gististaður
langferðamanna. Nú um langt
árabil héfur verið þar póst- og
símstöð og miðstöð samgangna
hér um næsta nágrenni. Öll þjón-
usta í sambandi við þetta hefur
verið innt af höndum af svo mik-
illi lipurð og góðvilja að eins-
dæmi mun vera og seint ful’-
þakkað. Hefur allt heimilisfólkið
á Varmalæk átt þar hlut að rnáli.
Sigurður bar hag sveitar sirmar
mjög fyrir brjósti, og vann mikið
og óeigingjarnt starf í he.nnar
þágu. Hann varð ur.gur oddviti
Andakílshrepps og hafði gegnt
því starfi á fimmta tug ára, er
hann lézt. Fleiri trúnaðarstörf
voru honum einnig falin fyrir
sveit og hérað, þótt ekki verði
þau hér rakin. Öll störf sín í
almannaþágu rækti Sigurður af
þeirri ósérplægni, réttsýni og góð
vild, sem honum var eiginleg.
Honum var ljúft að leggja fram
krafta sína í annarra þágu. og
góðar meðfæddar gáfur og styrk
skaphöfn öfluðu honum óbland-
I ins trausts og virðingar samferða
, manna. Því fylgja Sigurði ein-
lægar þakkir sveitunga hans og
annarra vina fyrir mikil og óeig-
ingjörn störf. Við þökkum honum
samfylgdina, og biðjum honum
Guðs blessunar og varðveizlu á
eilífðarbraut.
Jón Guðmundsson.
Hvítárbakka.
Aðalfundur Sam-
bands veitinga- og
gistihúsaeigenda
AÐALFUNDUR Sambands veit-
inga- og gistihúsaeigenda var ný-
lega haldinn í Reykjavík.
Lúðvíg Hjálmtýsson, fram-
kvæmdastjóri, var endurkjörinn
formaður sambandsins.
Meðstjórnendur voru kjörnir
Þorvaldur Guðmundsson, Ragnar
Guðlaugsson og Pétur Daníels-
son, en varamenn Halldór Grön-
dal og frú Helga Marteinsdóttir.
Á aðalfundinum voru rædd
fjölmörg hagsmunamál veitinga-
og gistihúsaeigenda, m.a. skatt-
ar og verðlagsmál, en veitinga-
rekstur hefur að undanförnu átt
mjög erfitt uppdráttar vegna
geysihárra skatta og strangra
verðlagsákvæða. — (Frá Samb.
I veitinga- og gistihúsaeigenda).