Morgunblaðið - 07.05.1958, Qupperneq 13
Miðvikudagur 7. maí 1958
MORGVNBLAÐth
13
Aðalfundur Sumargjafar
AÐALFUNDUR Barnavinafélags
ins Sumargjafar í Reykjavík
haldinn miðvikudaginn 30 apríl
sl.
Formaður félagsins, Páll S.
Pálsson, hrl., gaf skýrslu um
störf félagsstjórnarinnar frá síð-
asta aðalfundi. Hann gat þess,
m. a., að styrkur frá Reykjuvíkur
bæ til starfsemi félagsins hefði
aukizt verulega á þessu ár Hins
vegar væri rekstrarkos^naður
hinna 7 barnaheimila féiagsins
mikill og vistgjöldin miklu lægri
en svo, að unnt væri að halda
þeim óbreyttum. Aðsókn að
barnaheimilunum væri me!ri nú
en nokkru sinni fyrr, og hefði
félagsstjórnin ákveðið, að reyna
að færa út starfsemi félagsms nú
á þessu ári og fjöiga heimiiunum.
Myndi kappkostað að kuma upp
nýjum leikskóla við Háteigsveg
í húsnæði, er Óháði fríkirkju-
söfnuðurinn í Reykjavík hefði
boðið Sumargjöf til leigu í þessu
skyni, með góðum kjörum. Húsið
Grænaborg, sem að nokkru leyti
hefur verið notað til æfinga-
kennslu fyrir Kennaraskólann.
muni Sumargjöf taka að öllu til
afnota fyrir starfsemi sína. Líkur
væru fyrir því að leikskólarekstri
verði hætt í Laufásborg, en dag-
heimilið stækkað sem því nemur.
Ýmislegt fleira væri í athugun
um bráðabirgða-úrlausnir vegna
hinnar miklu eftirspurnar eftir
vistrými á barnaheimilum, en of
snemmt væri að segja um það
með vissu, hvernig tækist að
leysa þann vanda.
Þá skýrði formaður frá því, að
fyrsta áfanga að byggingu nys
barnaheimilis við Fornhaga hefði
verið lokið á árinu 1957, eins og
fjárfestingarleyfi hrökk dl. Vor—
ir stæðu til, að leyft verði a. m. k.
að gera bygginguna fokhelda á
þessu ári.
Undirbúningur félagsins að há-
tíðahöldum Sumardagsins fyrsta
í Reykjavík 1958 hefðu gengið
mjög vel og hátíðahöldin haft góð
an blæ, enda eindæma veður-
blíða allan daginn. Þó að brúttó-
tekjur dagsins hefðu verið meiri.
en nokkru sinni fyrr, væri til-
kostnaðurinn mikill, og eftir
reynslu sl. árs, þegar nettótekjur
dagsins reyndust við uppgjör um
45 þús. krónur þá væri ljóst, að
bein fjáröflun fyrir félagið þenn-
an dag væri ekki svo veigamikið
atriði, sem margur ætlaði. Hirs
vegar væri þýðingarmeira, að
félagið vekur almenna athygli á
starfi sínu fyrir börnin og leggur
fram sinn skerf, til þess að dag-
urinn verði i höfuðborginni al-
mennur hátíðisdagur barnanna.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Bogi Sigurðsson, skýrði reikninga
félagsins. Hann gat þess í skýrslu
sinni, að á ferðalagi sínu um
Norðurlönd sl. sumar, til þess að
kynna sér rekstur barnaheimila
þar, hefði hann orðið þess vísari,
í Danmörku t. d., að ríki og bæjar
félag leggði fram lögbundið fram
lag til barnaheimila sem þessara,
35% af viðurkenndum heildar-
kostnaði við rekstur leikskóla og
dagheimila, 20% frá ríki og 15%
frá bæ. Framlag rikissjóðs til
barnaheimila Sumargjafar hefði
hins vegar á sl. ári verið á sama
mælikvarða og 5%, en framlag
Iðnaðarhúsnæði
eða verkstœðispláss, ca. 50—
100 ferm., á jarðhæð og með
innkeyrslu-dyrum, til leigu. —
Uppl. gefur Bílvirkinn, Síðu-
múla 19. — Sími 18580.
Söluturn
Vantar stúlku til afgreiðsl'U.
Vaktaskipti. Uppl. í síma
32041, frá 7—8 næstu kvöld.
Páll S. Pálsson
bæjarfélagsins 38%. Heildarút-
gjöld Sumargjafar 1957 voru
3. 853.000,00.
Lögum Sumargjafar var breytt
þannig á fundinum, samkvæmt
tilmælum áður frá bæjarstjórn
Reykjavíkur, að Reykjavíkur-
bær tilnefnir einn fulltrúa í
stjórn félagsins af sjö, sem eiga
sæti þar.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga að þessu sinni Páll S.
Pálsson, hrl., Helgi Elíasson,
fræðslumálastjóri, og sr. Emil
Björnsson.
Af hálfu Reykjavíkurbæjar var
Páll S. Pálsson tilnefndur í fé-1
lagsstjórnina, samkv. ályktun frá
bæjarráði, en aðalfundurinn end-
urkaus þá Helga Elíasson og sr.
Emil Björnsson, til næstu þriggja
ára.
. Auk of&ntaldra fulltrúa eiga
nú sæti í stjórn Sumargjafar frú
Valborg Sigurðardóttir, skóla-
stjóri, Þórunn Einarsdóttir for-
stöðukona, Jónas Jósteinsson, yf-
irkennari, og Sveinn Ólafsson,
forstjóri.
í varastjórn eiga sæti 3 félags-
menn, Bjarni Bjarnason, kennari,
Arnheiður Jónsdóttir, kennari,
og Guðm. M. Þorláksson, kennari.
Verkamaður óskast
Blikksmiðjan Grettir
Brautarholti 24
Stúlka
óskast í matvöruvm'zlun strax, helzt vön.
Uppl. í síma 11313 frá kl. 2—5 e.h.
Byggingasamvinnufélag
SXAKP SMANNA RblndAv iKc KJBÆJAB
Til sölu er Vá hluti af eigninni Ásgarður 10—16
eins og hún er nú óskipt. Eignarhiutinn selst á
kostnaðarverði.
Þeir félagsmenn B.F.S.R., sem hafa áhuga á að
ganga inn í sameignina, sendi stjórn félagsins um-
sókn sína eigi síðar en 14. maí n.k.
Stjórnin.
Byggingasamvirmufélag
SlARf 8MAi> N A lvr. V ivj Av nvi iíis. L.J AR
Þeir félagsmenn B.F.S.R., er hafa í hyggju að
sækja um byggingalán úr lífeyrissjóði starfsmanna
Reykjavíkurbæjar, sendi umsóknir á þar til gerð-
um eyðublöðum, er fást hjá 'stjórn félagsins.
Umsóknum ber að skila til stjórnar félagsins eigi
síðar en miðvikuöaginn 16. maí n.k.
Eldri lánsbeiðnir þarf ekki að endurnýja.
Stjórnin.
ORÐSEIMDIIMG
frá Bólsturgerðinni
Erum flutt með húsgagnaveiziun oKKar úr Braut-
aiholti 22 í Skipholt 19.
Hinumegin götunnar
Ýmsar gerðir úrvals húsgagna ávallt á boðstólum.
Greiðsluskilmálar okkar gera öllum kleift
að verzla við okkur.
Bólsturgerðin hf.
Skipnolt 19 — Sími 10388
Baðker
Tékknesk baðker nýkomin
A. Johannsson & Smith hf.
B»rautarholti 4 — sími 24244, tvær línur
I
I
I
i
!
TIL SÖLU ER
húseignin
Laufásvegur 42
Laus til íbúðar strax. Eignarlóð.
Upplýsingar gefur:
HILMAR GARÐARS hdL
Gamla Bíó — Sími 11477
Saumastúlkur
Nokkrar stúlkur vanar saumaskap geta
fengið atvinnu. Upplýsingar í verk-
smiðjunni, Rrautarholti 22 í dag
og á morgun.
Verksmiðjan Dúkur hf.
Það er aðeins eitt,
sem gefur hressandi
vellíðan eftir rakst-
urinn ...... það er
Blátt Gillette
Látið nýtt blátt
Gillette blað
í viðeigandi
Gillette rakvél
og ánægjan er yðar
10 blöð kr.: 17.00.