Morgunblaðið - 18.05.1958, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.05.1958, Blaðsíða 15
Sunnudagur 18. maí 1958 MORCVNBLAÐIÐ 15 Rommée Stallmann: Theodor Heuss, Þýzka I a nd sfo rseti HINN 12. september 1949, kom fyrsta þing Vestur-Þýzkalands saman í Bonn til áríðandi fundar. Þá átti að kjósa ríkisforseta. Allar útvarpsstöðvar í landinu voru þá á einni bylgjulengd, eða þeirri, sem venjulega er sent út á fyrir Norð-vestur-Þýzkaland. Úr öllum hátölurum landsins heyrðist eitt <yg hið sama. Raddir, ræskingar, hratt fótatak eða í stuttu máli öll þau hljóð, sem venjulega heyrast á fundi, þar sem 500 menn sitja í einum sal. En svo varð allt mjög hljótt. Það var talið upp úr fyrstu kjör- umferðinni. Þingforsetmn til— kynnti úrslitin. í fyrstu umferð- inni hafði ekkert forsetaefm hlotið nægilegan meirihluta, enda var það ekki að undra. þeg- ar athugað er, að forsetinn er kosinn án þess að á undan gangi reglulegt framboð, og heimilt að kjósa hvern sem vera skal. Nú kom aftur allskonar hljóða- gangur og aftur var kosið. Aft- ur urðu menn fullir eftirvænt- ingar á meðan á þessu stóð, og aftur kom blaðaskrjáfið og fátið, meðan verið var að telja upp. En loksins tilkynnti Hermann Ehl- ers, fyrsti forseti þingsins, nafn þess manns, sem í 5 ár átti ð vera þjóðhöfðingi ríkisns. 416 þingmenn höfðu greitt atkvæði sitt manni að nafni Theodoi Heuss, sem er prófossor og dokt- or í nafnbót, en hann sat meðai þingmanna og var foringi frjálsra lýðræðissnna. Þar nieð hafði hann fengið hreinan meirihiuta og kosnngin því gild. En nú bíða allir eftir því, hvort þessi mað- ur muni taka við kosnmgunni. Hann gengur fram að bekkjum þingmanna til sætis forsetans, og þegar hann er spurður um það, hvort að hann taki á móti kosn- ingunni, þá heyrist hann svaxa skýrt: ,,Já“. Síðan er eiðstafur- inn lesinn fyrir honum, og próf- essor dr. Heuss endurtekur með hinni djúp rödd sinni eiðstafinn, sem er um það, að hann skuli halda stjórnarskrána, en hana hafði hann samið ásamt með fleirum. Eiðstafurinn hljóðaði svo: Ég sver, að ég muni neyta allra krafta minna í þágu vel- ferðar hinnar þýzku þjóðar, til þess að auka velgengni hennar og bægja frá henni hættum, og að ég skuli verja og vernda stjórnarskrá og lög ríkisins, og uppfylla skyidur mínar samvizku samlega og með réttlæti gagnvart eiíium og öllum. Svo hjálpi mér guð“. Þegar eiðvinningunni var lok- ið, var ákaft fagnað í þinginu. Og fögnuðurinn var pkki einung- is þar. Með þessari kosningu var komið á föst skipan að nýju, tímí hins lausa millibilsástands var liðinn, og hinn nýi ríkislíkamj hafði nú fengið sitt höfuð. Já, og nú spurði hver annan: Hver er þessi maður? Margir þekktu hann. Ef til vill mundu menn eftir því, að hann hafði verið menntamálaráðherra í Thodor Heuss, Þýzkalandsforseti Wiirttemberg-Baden og að hann sat í þessu mbætti árið 1945— 46. Sumir minntust þess líka, að hann var þingmaður fyrir frjálsa lýðræðissinna, hafði verið próf- essor við háskólann í Stuttgart og margir höfðu lesið bækur hans. í skrám útgáfufyrirtækj- anna finnast líka margar bækur með nafni Theodors Heuss. Sá, sem ekki vissi úr hvaða héraði Þýzkalands Heuss var kominn, hann hlustaði vel eftir fyrstu orðum hans, og ef til vill brostu margir, því auðheyrt var á málfari prófessors Heuss hvað- an hann var kominn. Það var ekki um það að villast, að hann var frá Schwaben. Hann fæddist 31. janúar 1884 í Brackenheim í Wurttemberg og hafði þessvegna fyllilega náð þeim 40 ára aldri, sem stjórnarskráin krafðist til þess að menn gætu orðið forset- ar. Rithöfundarferill hans byrj- aði þegar 1912, en áður hafði hann numið listsögu og hagfræði. Árið 1920 varð hann dósent við háskólann. í Berlín í stjórnmála- fræði og hélt þeim kennslustól þangað til 1933. Þá varð mjög kyrrlátt um Theodor Heuss. Honum var bannað að láta nokk- uð frá sér fara í bundnu máli, en ritaði þó talsvert fyrir Frank- furter Zeitung undir dulnefni, en árið 1936 tók hann að skrifa ævi- sögur ýmsra merka manna. Með- al þeirra eru bækur um Justus von Liebig og Robet Bosch. I dag er Heuss ekki aðeins metinn sem virðulegur fulltrúi og þjóð- höfðingi lands síns, heldur er hann einnig vel metinn sem rit- höfundur, og þegar menn minn- ast þeirra, sem standa í farar- broddi fyrir andlegu lífi Þýzka- lands, er nafn hans efst í hugum margra. Og hvernig lítur svo Theodor Heuss út? Af myndum þekkja menn þennan hávaxna, gráhærða mann, og ef til vill þekkja ýmsir mynd, sem málarinn Kokoschka gerði af honum að beiðni þings- ins. Þegar horft er á myndir af Heuss, fá menn strax þá hug- rnynd, að þarna sé um góðvilj- aðan og vitran mann að ræði. Órlögin hafa grafið ýmsar rúnir í andlit hans, en bros, sem oftast gægist fram, breiðir yfir þessar rúnir. Vissulega skortir Heuss ekki strangleika í svipinn, en það er velviljaður strangleiki og mild ur, sem þekkir sín takmörk. í ræðum Heuss er oft góðlátleg gamansemi, og hann kann mjög vel að koma fyrir sig orði Hon- um þykir vænt um vindlana sína, sem læknunum finnst vísa vera nokkuð sterkir. Hann kann líka vel að meta gott vín og góðan mat. En það er einmitt sagt, að það sé sameiginlegt með ó.'lum, sem frá Schwaben eru upprunn- ir, að þeir kunni vel að meta góðan mat og glas af góðu víni. Menn rekast á forsetann, þeg- ar hann er í fríi, sem hann venju lega tekur sér í Suður-Þýzka- landi, og er þá oft hægt að sjá hann sitja fyrir framan striga og halda á málarapensli, en það kann hann vel. Kona forsetans, frú Elli Heuss- Knapp var líka vel þekkt vegna afskipta sinna af menmngarmá!- um, áður en hún varð íorsetafrú ríkisins. Því miður gat hún ekki fylgt manni sínum langt á leið í embættinu, því hún andaðist þegar 1952 í Bonn. Þegar fregn- in um lát hennar barst út um landið, voru fánar alls staðar dregnir í hálfa stöng, nema i bú- stað fíkisforsetans, Villa Hamm- erschmidt. Þar blakti enginn fáni. Þar má enginn fáni blakta í hálfa stöng, nema ef svo skyldi að bera, að forsetinn létist i embættinu. Frú Heuss-Knapp hafði árið 1950 stofnað hina þýzku mæðranefnd, hafði haldið fyrirlestra og ferðast til þess að safna fé til þess að koma stofn- uninni á fót. Og hún hafði góðan meðbyr og í dag er mæðravernd- in stofnun, sem nýtur styrks úr mörgum áttum, enda hefur hún hjálpað margri móðurinni til þess að yfirstíga erfiðleika hversdags ins og veitt mörgum færi á að njóta betri daga í friði og ró. Albert \ Schweitzer sagði am dauða hennar: Vitur kona, með góðu og göfugu hjarta er frá okkur gengin. Og það mun eng- inn nafa efast um sanr.le.'ksgild? þessara orða. Embættistími Heuss forsota rennur út eftir rúmlega eitt ár. Þá hefur hann í 10 ár undirritað öll lög og þar með fe igíð þeim löggildi. Hann hefur þá st.aðfest skipun allra ráðherra í fyrstu, öðru og þriðja ráðuneyti ríkis- ins og gefið út öll erindisbréf sendiherra lands sins. Hann hef- ur verið gestur margra ríkja, sem fulltrúi lands síns þó ekki haii hann að vísu farið jafnvíða og kanslarinn. Ekki verður annað sagt, en embættisferill hans hafi verið farsæll. Hann hefur varið Frh. á bls. 16 i LESRÓK RARNANNAf Strúturinn R \ S M U S Þegar Rasmus sá, hvernig fíllinn fór að því að fá sér steypibað, fannst hon- um það svo skrítið, að hann fór að skellihlægja. „Ert þú að hlægja að mér?“, spurði ííllinn og horfði reiðilega á Rasmus, „það skaltu sannarlega fá borgað“. Svo beygði fíllinn sig niður að pollinum, sem hann stóð við og fyllti ranann af vatni. Aum- ingja Rasmus varð dauð- hræddur og lagði á flótta. En það var um seinan. Fíllinn elti hann og spraut aði yfir hann öllu vatn- inu, sem hann hafði í ran- anum. Nú var það Ras- mus, sem fékk ærlegt steypibað. Eg ætlaði ofan hvort sem var EINU SINNI ætlaði karl- ing ofan lúkugatið og fram í baðstofu. En í stig- anum skriðnaði henni fótur, stakkst á höfuðið og hálsbrotnaði. En í fluginu heyrðu 1 menn til kerlingar: „Ég ætlaði ofan hvort sem var“. Þetta er síðan haft að máltæki, ef einhverjum ferst hrapalega, og læt- ur sér ekki bilt við verða: „Ég ætlaði ofan hvort sem var“. Ur þjóðsögum Jóns Árnasonar. Skrítla Tveir vinir hittast. Ann- ar er kengboginn og líður auðsjáanlega illa. — Þú verður að fara til læknis, sagði vinur hans. Hinn gerir það og kemur aftur eftir skamma stund í ljómandi skapi. — Jæja, hvað var svo að þér?, spurði vinurinn. — Það skal ég segja þér. Heldurðu ekki, að ég hafi hneppt nærbux- unum á flibbahnappinn. Þegar Brandur datt í brunninn ELLA hlakkar alltaf mest til sumarsins, því að þá fær hún að fara í sveitina til afa síns. Sagan, sem ég ætla nú að segja ykkur, byrjar, þar sem Ella er nýkomin heim á bæ afa. Það fyrsta, sem hún gerði, var að at- huga, hvort allt væri nú óbreytt frá því í fyrrasum ar. Hún heilsaði hlöðunni, vagninum og gamla brunn inum eins og lengi þráð- um vinum. Svo hljóp hún til afa síns og kallaði: En hvað það er gaman, að vera komin hingað. Allt er eins og í fyrra, þegar ég fór. Afi hló. — Ekki allt, vina min. Nú skal ég sýna þér nokkuð nýtt. Líttu hérna inn í skúrinn og sjáðu. I gamalli körfu lá uppá- haldið hennar Ellu, hún Flekka, og við hliðina á henni voru þrír kettling- ar. Ella settist á hækjur sér og gægðist niður í körf- una. — Afi, kallaði hún, sérðu þennan litla, brönd- ótta? Er hann ekki falleg- ur! — Langar þig til að eiga hann?, spurði afi. — Eiga hann! hrópaði Ella frá sér numin. — Já, eiga hann, svar- aði afi. Ella var orðlaus af fögn uði. Aldrei hafði hún átt neitt dýr sjálf. Og ekkert dýr hefði hún fremur ósk- að sér að eiga, en litla, bröndótta kettlinginn. — Eg ætla að kalla hann Brand, sagði hún. — Má ég fá að hafa hann núna? — Nei, ekki strax, svar- aði afi. — Brandur er svo lítill að það má ekki taka hann frá mömmu sinni. Það var leiðinlegt, því Ella átti svo erfitt með að bíða. Hana langaði svo að halda á Brandi, -klappa honum og strjúka. En Flekka var ekki á sama máli. í hvert sinn, sem Ella reyndi að taka Brand, varð Flekka reið og gerði sig líklega til að klóra. Ella reyndi að tala um fyrir henni. — Ég á Brand, sagði hún, — afi gaf mér ftann. Það vildi Flekka ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.