Morgunblaðið - 18.05.1958, Qupperneq 24
Reykjavíkurbréf
er á bls. 13.
Ólafur Thors og
Ólafur Björnsson
frummælendur á
fundi i Sjálf-
stæðishúsinu
i dag kl. 2 er
Óla/ur T hors
Sjálfstæðisfélögin
ræda efnahagsmál
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Reykjavík, Vörður, Hvöt, Heim-
dallur og Óðinn, halda almennan fund í Sjálfstæðishúsinu
í dag kl. 2 síðd. Á fundi þessum verða tillögur ríkisstjórnar-
innar í efnahagsrnálunum teknar til meðferðar. Frummæl-
endur verða þeir Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokks
ins og Ólafur Björnsson prófessor.
Þessa dagana ræðir fólk ekki
annað meira en lillögur ríkisstjórn
arinnar í efnahagsniálunum, sem
lagðar voru fram á Alþingi síðast-
liðinn þriðjudag. Um langt s'keið
hafa aðgerðir ríkisstjórnarinnar
Óla/ur Björnsson
verið boðaðar og þjóðin hefur ekki
átí von á góðu. Þó mun fæsta
hafa grunað að ríkisstjórnin legði
fram önnur eins „hjargráð“ og nú
hefur orðið raun á. Með tillögun-
um er stefnl að meiri skattaálög-
um og kjaraskerðingu en menn
F undur í Kópavogi
annað kvöld
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Kópa-
vogs hefur fund annað kvöld kl.
8,30 I barnaskólanum á Digra-
neshálsi. Magnús Jónsson alþ.m.
flytur þar framsöguræðoi um ráð-
stafanir ríkisstjórnarinnar í efna-
liagsmálum.
óraði fyrir. Jafnframt er engin til-
raun gerð til að lækna hið hel-
sjúka ástand, sem ríkissljórnin hef-
ur komið efnahagsmálum þjóðar-
innar í. Þvert á móti er anað keint
út í foraðið.
Mjög mikilvægt er að alnienn-
ingur geri sér grein fyrir þeim
áhrifum sem tillögur ríkisstjórnar-
innar hafa á alla afkomu lians og
lífskjör og ájtand efnahagsmál-
anna í heild. Þess vegna efna Sjálf
stæðisfélögin til fundar í dag um
þessi mál. Mörgum mun áreiðan-
lega leika mjög hugur á að
heyra hvað frummælendur hafa
um þessi mál að segja. Má því bú-
ast við miklu fjölmenni á fundin-
um í dag og er allt Sjálfstæðisfólk
velkomið.
Siglufjarðartog-
arar afla vel
SIGLUFIRÐI, 17. maí — 1 gær
losaði togarinn Hafliði hér full-
fermi af þorski og karfa, alls
360 tonnum. Á morgun er von á
Elliða með fulfermi, bæði af Græn
lands- og heimamiðum. Allur þessi
afli fer til frysthúsanna hér. Línu
bátar eru nú að hætta, enda lítill
afli hjá þeim.
Gott veður er hér daglega, en
lítið hlánar, því frost er um næt-
ur. Svo lítið vatn »r hjá Skeiðs-
fossaflstöðinni, að mótorvélar rík
isverksmiðjanna eru alltaf keyrð-
ar með svo plássið geti haft raf-
magn. — Guðjón.
Handritamálið
ÞEIR Pétur Ottesen og Svein-
björn Högnason hafa á Alþingi
beint eftirfarandi fyrirspurn til
ríkisstjórnarinnar:
„Hvað hefur ríkisstjórnin gert
til að framfylgja samþykkt Al-
þingis um endurheimt íslenzkra
handrita, sem geymd eru í dönsk-
um söfnum, og hverjar horfur
eru um lausn þess máls?“
Hvítasunnuferð
Heimdallar
HEIMDALLUR FUS
efnir til ferðalags um hvítasunn-
una á Snæfellsjökul og nágrenni.
Lagt verður af stað kl. 2 e. h. á
laugardag. Gengið á jökulinn á
sunnudag og komið heim á mánu
dagskvöld. Þar sem búast má við
mikilli þátttöku í ferð þessari
eru væntanlegir þátttakendur
beðnir að láta skrá sig hið fyrsta
á skrifstofu félagsins í Valhöll,
við Suðurgötu milli kl. 5—7 dag
lega. — Upplýsingar í síma 17100
og 17102 eftir kJ. 5.
SÍÐASTI dagur hinnar almenna
listsýningar Félags íslenzkra
myndlistarmanna er í dag. Ættu
Reykvíkingar því að nota tæki-
færið til þess að skoða þessa fjöl-
breyttu sýningu. Sýningin er í
Listamannaskálanum í Kirkju-
stræti og er opin frá kl. 1 til
kl. 10 síðdegis. Myndirnar, sem
hér eru birtar, eru af flosofinni
ábreiðu eftir Vigdísi Kristjáns-
dóttur og málverkinu „Kaldir
morgnar“, eftir Eirík Smith.
Nokkrar myndir hafa selzt
á sýningunni. En þar sýna 29
listmálarar og 6 myndhöggvarar
verk sín.
Er langt síðan svo margir lista-
menn hafa haldið hér sarnsýn-
ingu. Sýningin hefur staðið í
réttan hálfan mánuð.
Verfíðin var betri
en í fyrra
Aflahæsti báfur með 1399
skippund
SANDGERÐI, 17. maí. — Allir
bátar eru nú hættir á vertíð hér
í Sandgerði og flestir byrjaðir
síldveiðar í reknet. Hefur veiði
verið frekar treg, almennt frá
30 til 70 tunnur, en sumir hafa
ekki fengið neitt. Heildarafli 2. til
15. maí hefur verið 539 tonn í 101
róðri. Mestur afli í róðri var 2.
maí hjá Pétri Jónssyni, 32 tonn
í net. Sama dag hafði Svanur 31
tonn og Hrönnin 21 tonn. Bezti
línudagur var líka 2. maí. Þá
fékk mb. Hamar 9 tonn, en 10.
maí hafði Steinunn gamla sama
aflamagn.
Þessi vertíð hefur verið tölu-
vert betri en sl. ár og stafar það
aðallega af því, að nokkrir
bátar hafa róið með net. Heildar-
afli á vertíðinni er 9.068 tönn á
móti 7.221 tonni í fyrra. Afli í
róðri á þessari vertíð er 6,6 tonn,
en varð 5,4 tonn í fyrra. Afla-
hæstu bátar eru mb. Guðbjörg
með 1.399 skippund í 90 róðrum
á línu. Pétur Jónsson með 1.290
tonn í 88 róðrum. Hann rær bæði
með línu og net. Þriðji er Víðir
II með 1.284 skippund, aðeins í
net og fjórði Særún með 1.105
skippund í net. —Axel.
L. í. Ú. krefst sömu uppbóta
fyrir allar síldar- og fiskafurðir
Fulltrúaráð hefur fjallað um bjargráðin
FULLTRÚARÁÐ Landssambands
íslenzkra útvegsmanna hélt fund
á föstudag. Var þar samþ. álits-
gjörð, sem síðan var send fjár-
hagsnefndum beggja deilda
Alþingis, en þar er ýms-
um atriðum „bjargráðanna" mót
mælt. Sagt var t. d. að verði ekki
sömu uppbætur greiddar á síld-
arafurðir þá sé fyrirsjáanleg
stöðvun. Þá telur fulltrúaráðið
að útflutningsuppbæturnar þurfi
að vera 85 prósent.
Fundurinn gerði þá kröfu, að
yfirfærslugjald það, sem lagt
verður á nauðsynjavörur samkv.
frumvarpinu, verði ákvarðað hið
lægsta, sem lagt verður á inn-
fluttar vörur, og útflutningsupp-
bætur síðan ákveðnar samkvæmt
því.
Með hliðsjón af þeim athug-
unum, sem gerðar hafa verið,
taldi fulltrúaráðsfundurinn að
útfl.uppbætur á allan fisk annan
en síld, þurfi að nema 85% á fob-
verðmæti útflutningsins, til þess
að afkoma sjávarútvegsins verði
ekki rýrð frá því, sem samið var
um milli L.Í.Ú. og ríkisstjórnar-
innar 30. des. sl. Jafnframt benti
fundurinn á, að þessar athuganlr
hafa leitt í ljós, að uppbætur á
síldarafurðir þyrftu að vera all
rniklu hærri en á aðrar fiskaf-
urðir miðað við meðaltals af-
komu undanfarinna ára. Var það
ein krafa fundarins, að frumvarp
inu verði breytt á þá lund, að
sömu uppbætur verði greiddar á
síldarafurðir og greiddar verða á
aðrar fiskafurðir. Að öðrum kosti
er fyrirsjáanleg stöðvun þessara
framleiðslugreina.
Þá hafði fulltrúaráðsfundur L.
I. Ú. gert ýmsar athugasemdir við
frumvarpið. Það var t. d. sett
fram krafa um skýlaus ákvæði
um greiðsluskyldu útflutnings-
sjóðs á útflutningsuppbótum
þannig, að við gjaldeyriskil skuli
greiddar 55% útflutningsbætur
af reikningsinnstæðu útflutnings
sjóðs hjá viðkomandi banka, eins
og lagt er til um yfirfærslubætur
skv. 22. gr. frv., síðan greiði út-
flutningssjóður eftirstöðvar út-
flutnigsbótanna eigi síðar en
einum mánuði eftir gjaldeyris-
skilin. Þá er gerð krafa til þess
að ríkissjóður beri ábyrgð á skuld
bindingum útflutningssjóðs. —
Einnig voru gerðar ályktanir
varðandi greiðslu nettógjalda
vátryggingaiðgjalda o. fl.
Síðan segir, að með frumvarpi
þessu, ef að lögum verður, eru
gerðar vítækar og margbrotnar
ráðstafanir, sem erfitt er að átta
sig á, hve áhrif muni hafa á af-
komu sjávarútvegsins, fyrr en
þau koma til framkvæmda. Þess
vegna áskilur fundurinn sjávar-
útveginum allan þann rétt, sem
hann nú hefur samkvæmt gild-
andi samningum.
í sambandi við ályktun þessa
er rétt að geta þess, að þær at-
huganir og útreikningar, sem um
ræðir í henni, voru miðaðar við
þá eina hækkun á aðflutnings-
gjöldum af nauðsynjum útvegs-
ins, að lagt yrði á 55% yfirfærslu
gjald, en ekki að tollar og fieiri
gjöld legðust þar á ofan.