Morgunblaðið - 05.11.1958, Page 18

Morgunblaðið - 05.11.1958, Page 18
18 MORCVNBLAÐIÐ Miðvik'udagur 5. nóv. 1288 West Bromwick varm Úlfana Yjrslit leika í ensku deildakeppninni í knattspyrnu sl. laugardag: 1. deild Arsenal — Newcastle 3:2 Birmingham — Portsmouth 2:2 Bolton — West Ham 0:2 Burnley — Nottm. Forest 0:2 Everton — Blackburn 2:2 Leeds Utd. — Manchester Utd. 1:2 Leicester — Blackpool 0:3 Luton Town — Aston Villa 2:1 Manchester City — Tottenham 5:1 Preston — Chelsea 2:0 West Brom. — Wolverhampton 2:1 2. deild Bristol Rovers — Bristol City 1:2 Derby County — Cardiff City 1:3 Fulham — Sheffield Utd 4:2 Ipswich — Charlton 3:1 Leyton Orient — Huddersfield 2:5 Lincoln — Brighton 4:2 Scunthorpe — Barnsley 1:0 Sheffield Wedn. — Rotherham 5:0 Stoke City — Liverpool 0:2 Sunderland — Grimsbv 1:0 Swansea — Middlesbro 5:2 3. deild Accrington — Q.P.R. 2:4 Bradford C. — Norwich 2:2 Brentford — Colchester 2:1 Chesterfield — Plymouth 1:2 Halifax — Rochdale 2:1 Hull City — Bournemouth 5:3 Mansfield — Stockport 2:1 Newport — Doncaster 3:1 Notts County — Tranmere 1:1 Southampton — Bury 4:2 Swindon — Reading 2:0 Wrexham — Southend 3:1 Á LAUGARDAG var mikið um óvænt úrslit í ensku deildar- keppninni. Neðsta liðið Manchest er City sigraði Tottenham með yfirburðum — fimm mörk- um gegn einu. Hægri innherjinn Barlow sýndi sérstaklega góðan leik, en hann skoraði þrjú mörk fyrir City. 62 þús. áhorfendur voru á leikvelli Arsenal, High- bury, og sáu mjög skemmtilegan leik, sem þótti jafnvel svo vel leikinn, að hann gaf ekki eftir landsleik Englendinga og Rússa á dögunum, eða svo tók einn fréttamanna BBC til orða. Vinstri útherjinn Henderson skoraði tvö mörk fyrir Arsenal, Groves skor- aði það þriðja. Allchurch sýndi afburðaleik fyrir Newcastle og skoraði annað markið, en Mc- Guigan hitt. Ungur leikfnaður, Gordon Hughes, að nafni vakti mikla athygli í leik þessum. f skemmtilegum og vel leikn- um leik nábúanna West Brom- wich og Englandsmeistaranna Wolverhampton, skoruðu „Úlfarn ir“ í fyrri hálfleik og var Deeley þar að verki, en í síðari hálfleik lék WBA mun betur og gerði hvert áhlaupið af öðru upp hægri kantinn. Varamarkvörður „Úlf- anna“. Sidebotham varði mikið af skotum frá Robson, Kevan og Horobin, en um miðjan hálfleik- inn jafnaði Campell fyr- ir West Brom. og Der- ek Kevan skoraði sigurmarkið er tvær mín. voru til leiksloka. — WBA hefur unnið fjóra síðustu leikina og er liðið einna sigur- stranglegast í keppninni. Bolton tapaði á heimavelli öðru sinni í haust. Bolton átti þó mikið í leikn um, en gekk mun verr fyrir fram- an mark andstæðinganna, en West Ham. — Síðan Manch. Utd. keypti hinn dýra leikmann Quixall hinn 19. sept. hefir félag- ið ekki unnið leik, en á’laugardag sigraði M.U. í Leeds og var Quixall bezti maður framlínunn- ar. Enda þótt flest ensku blöðin hefðu spáð Leicester sigri gegn Blackpool, sá hinn 43 ára „ungi“ Stanley Matthews um að Leicest- er beið sinn mesta ósigur á heima velli til þessa. Lék Matthews vörn Leicester grátt, sérstaklega var leikur hans goður í síðari hálf- leik. Sheffield Wednesday virðist ætla að leika þann leik enn einu sinni að vinna sig upp úr annarri deild eftir að hafa fallið niður úr fyrstu, árið áður. Þetta hefur félagið leikið 1951—2 og 1955—6. Sunderland vann sinn fyrsta sig- ur um nokkurra vikna skeið, á kostnað Grimsby. Suður-Afríku- maðurinn Don Kichenbrand skor- aði sigurmarkið er sex mín. voru til leiksloka og margir af áhorf- endum voru farnir að streyma út af vellinum. Fimm af neðstu liðunum í 2. deild unnu sína leiki á laugardag og er Sunderland enn í neðsta sæti. Fulham sigraði Sheffield Utd. — Seint í fyrri hálfleik missti Stoke hinn 16 ára Bullock út af velli vegna meiðsla, en leikar stóðu þá 0:0. Liverpool skoraði tvisvar í síð- ari hálfleik og Stoke fékk sitt fyrsta tap á heimavelli á þessu hausti. Swansea lék sér að Midd- lesbro, sem hefur ekki unnið leik síðan í byrjun sept. Mel Charles sýndi góðan leik og skoraði 3 mörk í síðari hálfleik. Cardiff — Utan úr heimi Frn. aí bls 10 tist einnig stefnu hans í þjóðmál- um öllu fremur en stefnu síns eigin frambjóðanda. Sigurinn veitti honum aukinn styrk og kjark, og er hann tók við embætti forsetans í annað sinn, var hann enn staðráðnari en áður í því að koma fram umbóta- áformum sínum. Hann kom brátt á enn strangara eftirliti með starfsemi járnbrautarfélaganna, og árið 1906 gengu í gildi lög- in um framleiðslu matvæla, en þau bönnuðu notkun hvers kon- ar skaðlegra efna og gerviefna við framleiðslu lyfja og niður- soðinna matvæla. Áætlun hans um þjóðnýtingu ófrjórra og þurra landssvæða hlaut samþykki þingsins. Einn helzti árangurinn af þessari á- ætlun var bygging Roosevelts- stíflunnar í Arizona, sem veitti vatni úr Saltánni yfir á geysi- víðáttumikla eyðimörk og gerði hana að einhverju frjósamasta húlandi í heimi. í kjölfar þessa fylgdu margar aðrar stíflur, sem sambandsstjórnin lét byggja til áveitu, til varnar flóðum, til skipasiglinga »g til framleiðslu raforku. Árið 1908 kallaði hann alla fylkisstjóra landsins á ráðstefnu í Hvítahúsinu, og skipaði hann nefnd, sem átti að rannsaka og gefa skýrslu um allar náttúru- auðlindir Bandaríkjanna. Var þetta fyrsta rannsókn þessarar tegundar, sem gerð hafði verið í nokkru landi. Hann beitti sér fyrir eflingu hervarna landsins og áleit, að öfl- ugar landvarnir væru ein ör- uggasta leiðin til þess að hindra það, að stríð brytist út. Hann hafði mikla þekkingu á hermál- um, enda skrifaði hann bók um það efni, sem gefin var út árið 1882. Einnig kom hann betri skipan á hermál landsins og jók virðingu og álit hersins inn á við og út á við. Roosevelt hafði mikinn áhuga á alþjóðamálum og gerði sér grein fyrir skyldu Bandaríkjanna gagnvart öðrum þjóðum heims. Árið 1905 hlaut hann friðarverð- laun Nóbels fyrir starf sitt sem sáttasemjari í stríðinu milli Jap- ana og Rússa. í ræðu þeirri, sem hann hélt við afhendingu verð- launanna, gerði hann það að til- lögu sinni, að athugaðir væru möguleikar á því að stofna þjóða- bandalag til verndar friðnum. Hann var einnig fyrstur manna til þess að senda alþjóða deilu- mál til úrlausnar alþjóða gjörð- ardómnum í Haag. Eitt höfuð- verkefni hans sem forseti Banda- ríkjanna var að hans dómi bygg- ing Panamaskurðarins, sem hófst árið 1904, og var tilgangur- inn með slíkum skurði að efla verzlunarviðskipti milli þjóð- anna. Þegar komið var að forseta- kosningum haustið 1908, stóð Roosevelt á hátindi frægðar og vinsælda. Hann hikaði þó við að brjóta þá meginreglu, að enginn forseti Bandaríkjanna eigi að gegna embætti sínu lengur en tvö kjörtímabil. Það er engum vafa bundið, að hann var fjöl- hæfastur þeirra, sem setið höfðu á forsetastóli fram að valdatöku hans, að Tómasi Jefferson . ein- um undanskildum. Auk þess var hann raunsýnn stjórnmálamaður, eldheitur þjóðernissinni og mik- ill umbótamaður, sem hafði bæði þekkingu og baráttuþrek til þess að koma félags-, efahags- og stjórnmálum landsins í betra horf. í ræðu þeirri, sem Eisen- hower forseti hélt við opnun há- tíðahaldanna um landið í tilefni af aldarafmæli Roosevelts, taldi hann það ekki ósennilegt, að fyr- irrennari hans hefði önnur og ef til vill dýpri áhrif á Bandaríkja- menn í dag en hann hafði á sam- tíðarmenn sína. Lokaorð hans í þessari ræðu voru: „Ættjarðarástin svall í æðum hans .... Hann var spámaður, sem áminnti okkur um að upp- fylla skyldur okkar, ekki aðeins vegna lands okkar og þjóðar, heldur vegna þeirra um gervall- an heim, sem leita stuðnings okk- ar og hafa trú á framtak okkar og forystuhlutverk". City hefur staðið sig vel undan- farið. Liðið sigraði í Derby og hef ur unnið 5 af síðustu 6 leikum sín um. Leyton Orient tapaði illa heima gegn Huddersfield. Hinn 18 ára Dennis Law, sem leikur v. innh. hjá Huddersfield vekur mikla athygli um þessar mundir. Hann var valinn í landslið Skota gegn Wales á dögunum og átti hvað mestan þátt í sigri Skota. Þrjú lið í 1. deild eru ósigruð á heimavelli en þau eru Arsenal, Luton og Blackpool, en Sheffield Wedn. er eina liðið í 2. deild, sem ekki hefur tapað heima á þessu hausti. 1. deild L U J T M st. Arsenal 16 9 2 5 44:26 20 Preston 16 8 4 4 30:22 20 West. Brom. ., 15 7 5 3 38:23 19 Luton Town .... 15 6 7 2 28:19 19 W olverhampton 15 8 2 5 32:21 18 Bolton 15 7 4 4 27:20 18 Newcastle 15 8 1 6 33:29 17 West Ham Utd. 15 8 1 6 32:29 17 Nottm. Forest .... 15 7 2 6 28:22 16 Blackpool 15 5 6 4 18:17 16 Blackburn 15 5 5 5 35:27 15 Manchester U. 16 5 5 6 32:27 15 Chelsea 15 7 1 7 36:38 15 Burnley 15 5 4 6 23:23 14 Tottenham 15 5 3 7 34:38 13 Portsmouth 15 4 5 6 26:33 13 Manchester C. 15 4 4 7 26:38 12 Everton 15 5 2 8 27:43 12 Leeds Utd 15 3 6 6 16:25 12 Birmingham .... 15 4 4 7 19:31 12 Aston Villa 16 4 3 9 23:40 11 Leicester 15 3 4 8 24:40 10 2. deild L U J T M St. Sheffield Wedn. 15 12 1 2 48:15 25 Fulham 15 11 3 1 43:21 25 Stoke City 16 9 2 5 29:27 20 Bristol City .... 15 9 1 5 36:24 19 Liverpool 15 8 2 5 30:24 18 Bristol Rovers 15 7 3 5 29:25 17 Charlton 15 7 3 5 33:31 17 Huddersfield .... 15 6 3 6 28:18 15 Cardiff City .... 14 7 1 6 25:24 15 Sheffield Utd. 15 5 4 6 22:18 14 Barnsley 15 6 2 7 25:29 14 Swansea Town 14 5 3 6 29:27 13 Leyton Orient 15 4 5 6 22:26 13 Ipswich Town.... 15 5 3 7 21:25 13 Grimsby Town 15 4 5 6 25:34 13 Derby County 16 4 5 7 21:30 13 Middlesbro 15 4 4 7 27:23 12 ! Brighton 15 3 6 6 21:39 12 Rotherham 15 4 3 8 19:37 n 1 Scunthorpe 15 3 5 7 20:31 11 1 Lincoln City .... 15 4 2 9 30:35 10 I Sunderland 15 4 2 9 18:3« 10 'Ingi R. Jóhannsson íslandsmeistari í skák tefldi fjölskák á vegum Heimdallar sl. sunnudag. Sézt hann hér við töflin. Góður árangur hjá Fram á liðnu ári AÐALFUNDUR félagsins var haldinn 23. okt. sl. og var hann fjölsóttur. Formaður Fram, Har- aldur Steinþórsson, flutti skýrslu stjórnarinnar. Félagsstarfsemi var mikil, og má þar geta skemmti- og fræðslufunda, kaffi- kvölda, borðtennis og skákiðkana. Þá var á árinu stofnað fulltrúa- ráð, skipað eldri félagsmönnum. í tilefni af 50 ára afmæli félags ins var gefið út afmælisblað, hald in afmælishóf fyrir eldri og yngri félagsmenn og einnig fóru fram afmælisleikir í knattspyrnu og handknattleik. Þá var Lúðvík Þorgeirsson, kaupmaður kjörinn heiðursfélagi Fram. Bárust fé- laginu margar gjafir og heilla- óskir vegna afmælisins. Hingað komu á vegum félagsins tveir danskir knattspyrnuflokkar. Unglingalið frá Roskilde Bold- klub lék hér fjóra leiki, vann tvo en tapaði tveimur. Úrvalsiið frá Sjællands Boldspil Union lék einnig fjóra leiki, vann þrjá en tapaði einum. Af ferðalögum má geta þess, að meistaraflokkur Fram fór til Dan merkur og lék fjóra leiki á Sjá- landi, sem töpuðust allir. Þá fór 60 manna hópur úr III. og IV. flokki til Norðurlands, léku par 7 leiki og unnu alla. Á afmælishátíð félagsins af- henti borgarstjóri samþykkt bæj- arráðs um, að Fram fengi íþrótta- svæði í Kringlumýri, sem það hafði sótt um. Endanlegri skipu- lagningu og holræsagerð á svæð- inu er ekki lokið á vegum bæjar- ins, en vænta má, að útmæling þess fari fram um næstu áramót. Handknattleiksþjálfari félags- ins var Tryggvi Malmquist. 8 flokkar tóku þátt í handknatt- leiksmótum og unnust 5 mót. A — og B lið II. fl. unnu Reykja. víkurmót og íslandsmót og B — lið III. flokks vann Reykjavíkur- mót. Afreksbikar í. B. R. fyrir bezta frammistöðu í handknatt- leik hlaut Karl Benediktsson. Ár- angur einstakra flokka í hand- knattleik var sem hér segir: L U J T Mörk Meistarafl. karla ... 7 2 9 287- -269 1. flokkur karla ... 4 1 1 68- - 52 II. fl. A karla 7 6 1 0 79- - 46 II. fl. B karla 3 2 I 0 22- - 19 III. fl. A karla 3 1 3 62— - 50 III. fl. B karla 3 0 4 56- - 49 Meistarafl. kvenna . 7 3 2 2 54- - 57 II. fl. kvenna 1 0 7 22- - 61 Alls 63 29 8 26 650— -603 Aðalþjálfarar í knattspyrnu voru Haukur Bjarnason með eldri flokkana, en Guðmundur Jóns- son með yngri. 11 flokkar tóku þátt í 30 knattspyrnumótum. Unnu Framarar helming þeirra, eða alls 15 mót. 7 flokkar unnu Reykjavíkurmót, 4 flokkar unnu fslands- eða Miðsumarsmót og 4 flokkar unnu Haustmót. Framar- ar munu hafa hlotið flest heildar- stig í öllum flokkum eftir suinar- ið. Á árinu hlutu Framarar af- reksmerki K. S. í. fyrir knatt- þrautir, sem hér segir: 15 brons- merki og 5 silfurmerki. Afreks- bikar fyrir góða frammistöðu hlaut Rúnar Guðmannsson og III. fl. A hlaut afreksbikar, sem bezti knattspyrnuflokkur félags- ins. Árangur einstakra flokka í knattspyrnu var sem hér seg'.r: L U J T St. Mörk Unn. mót Meistarafl................. 13 6 2 5 14 34—22 I. flokkur.................. 9 4 3 2 11 18— 7 2 II. fl. A.................. 10 5 1 4 11 19—16 II. fl. B................... 6 0 1 5 1 7—16 III. fl. A ................ 14 12 1 1 25 51— 6 3 III. fl. B ................. 6 5 0 1 10 26— 3 2 IV. fl. A ................. 8 6 1 1 13 20— 5 2 IV. fl. B................... 10 9 1 0 19 42— 3 3 * IV. fl. C .................. 9 1 2 6 4 9—29 V. fl. A................... 12 10 1 1 21 40—11 2 V. fl. B.................... 6 2 1 3 5 7— 6 1 Alls 103 60 14 29 134 273—124 15 Aðrir leikir voru 20 og af þeim unnust 11. Að skýrslu stjórnarinnar lok- inni voru samþykktir reikningar félagsins, sem sýndu góðan fjár- hag. Síðan var kosin stjórn, og skipa hana þessir: Haraldur Steinþórsson, for- maður, Sæmundur Gíslason, vara formaður, Jón Þorláksson, form. knattspyrnunefndar, Guðni Magn ússon, form. handknattleiksnefnd ar, Hannes Þ. Sigurðursson, gjaldkeri, Sveinn Ragnarsson, ritari og Sigurður Hannesson, fjármálaritari. í varastjórn eru: Gylfi Hinriks- son, Björgvin Árnason og Inga Hauksdóttir. Evrópumet í tug- þraut 8042 stig RÚSSINN Vassily Kuznetsov setti um síðustu helgi Evrópu- met í tugþraut. Hann hlaut 8042 stig. Gamla metið átti hann sjálfur. ---

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.