Morgunblaðið - 30.11.1958, Síða 1
24 siður
Ekki kemur til mála, að ríki
Þýzkalands verði 3
segir Nixon í brezka sjónvarpið
Borgarstjórn V-Berlínar mótfallin borg-
ríkishugmyndinni
Lundúnum, 29. nóv. —
TALSMAÐUR brezka utanríkis-
ráðuneytisins sagði í dag, að
nauðsynlegt væri, að hafnar yrðu
hið fyrsta viðræður vesturveld-
anna um Berlinarmálin. Einnig
yrði Atlantshafsbandalagið að
f jalla um málið. — Talsmaðurinn
sagði, að þetta mál hefði ekki
verið rætt af fyrrgreindum aðil-
um, enda er tillaga Rússa í athug-
un.
Nixon, varaforseti Banda-
ríkjanna, hefur verið í opin-
berri heimsókn í Bretlandi
Nýjar tillögur í kjarn-
orkumálum
Rússar segjast koma
til móts við vestur-
veldin
LUNDÚNUM, 29 nóv. — Á 15.
fundi kjarnorkuráðstefnunnar í
Genf, sem haldinn var í dag,
lagði rússneska sendinefndin
fram tillögu um, að lagt yrði
bann við tilaunum með kjarn-
orkuvopn. Talsmaður Rússa
sagði, að í hinum nýju tillögum
Rússa væri komið til móts við
vesturveldin í máli þessu. Tillög-
urnar hafa ekki verið birtar enn,
og eins og kunnugt er, fara við-
ræður fram fyrir luktum dyrum.
— Þessi 15. fundur stóð í rúma
klukkustund. Næsti fundur verð-
ur á mánudag.
Giftist alþýðu-
slúlku
TÓKlÓ, 28. nóv. — Michiko
Shoda, 24 ára gömul dóttir al-
þýðumanns, trúlofaðist í gær
Akihito, erfðaprins Japans. í
dag héldu foreldrar ungu stúlk-
unnar til hirðarinnar til þesis að
ræð-a væntanlega giftingu dóttur
sinnar. Þetta er í fyrsta sinn í
2618 ára sögu japönsku krúnunn-
ar, að erfðaprins giftist alþýðu-
stúlku.
,,Prinsessa" undir lög-
regluvernd
TÓKÍÓ, 29. nóv. — Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum, mun
Akihito, krónprins í Japan, giftast Michiko Shoda, sem er tuttugu
og fjögurra ára gömul stúlka af borgaralegum ættum. Er þetta í
fyrsta skipti í margar aldir, að slíkt gerist austur þar.
Hún brosti
I dag varð að setja strangan
lögregluvörð við heimili stúlk-
unnar, því tánungar höfðu safn-
azt saman fyrir utan það og
heimtuðu að sjá sína væntanlegu
keisarafrú. Létu þeir heldur
þegar krónprinsinn héldi upp á
25 ára afmæli sitt, 23. des. nk.
Fréttamenn segja, að kærustu-
parið sé á engan hátt ólíkt öðr-
um kærustupörum. Þau hittist
við öll möguleg tækifæri og
liggi í símanum þess á milli.
undanfarið. Hann kom fram
í sjónvarp í Bretlandi í dag.
Hann sagði m. a., að vestur-
veldin gætu ekki fallizt á til-
lögu Sovétstjórnarinnar um
Berlín, því í henni fælist
raunverulega, að þýzku ríkin
yrðu þrjú talsins. Það yrði að
leysa Þýzkalandsmálið í
heild, sagði Nixon. Loks sagði
Nixon, að Þýzkaland gæti
ekki verið hlutlaust.
Borgarstjórn V-Berlínar skor-
aði í dag á fjórveldin að hefja á
ný samninga um viðræður um
sameiningu Þýzkalands. Berlínar
málið yrði ekki leyst að öðrum
kosti. Þá sagði borgarstjórnin
einnig, að hún hafnaði algjörlega
tillögu Rússa um, að Berlín yrði
sérstakt borgríki.
Vilja halda
Olympíuleikana
BRÚSSEL, 29. nóv. — Yfirvöld-
in í Briissel hafa sótt um að fá
að halda Ólympíuleikana þar í
borg 1964. Aðrar borgir, sem
sótt hafa um að halda þessa
íþróttahátíð, eru Detroit í Banda-
ríkjunum, Tókíó í Japan og
Vínarborg í Austurríki.
Allir þekkja Skotasögumar góðu, sem yfirleitt fjalla um yfir-
drifna sparsemi þeirrar ágætu þjóðar. Það er sagt, að flestar
þessar sögur séu „heimatilbúnar" — í Skotlandi, og engir
kunna að segja þær jafnvel og Skotarnir sjálfir. Það er auðséð
á þessari mynd, að hann hefur ekki verið af verri endanum
„brandarinn", sem J. A. Fraser, yfirbiskup skozku kirkjunnar,
hefur verið að segja, því að þeir Filipus drottoingarmaður og
erkibiskupinn af Kantaraborg hlæja sannarlega af hjartns lyst.
Hrun kommúnista blasir
við í Frakklandi
Þeir höfðu 150 þingmenn' en fá þeir nú
aðeins 10 — 12?
PARÍS og A LGEIRSBORG, 28.
nóv. — Stjórnmálafréttaritarar
eru á einu máli um það, áð de
Gaulle og fylgismenn hans muni
fá mikinn meiri hluta á þingi eft-
ir áð kosningum lýkur áð fullu á
sunnudaginn, en kommúnistar
fari hinar mestu hrakfarir.
Á þingi munu sitja 584 fulltrú-
ar, þar af 465 -kjörnir í Frakk-
landi -sjá'lfu, 67 frá Alsír, 4 frá
Saihara og 48 frá öðrum lendum
Frakka.
Við kosningftrnar í Frakklandi
á sunnudag sl. hlutu einungis 39
þingmenn löglega kosning.u, því
að allir þingmenn verða að hafa
að baki sér hreinan meiri hluta
kjósenda. Um helgin-a verður því
gengið öðru sinni að kjörborðinu
og er þess vænzt, að fullnaðarúr-
slit fáist þá.
-—oOo—
Enginn vafi þykir leika á því,
að kommúnislar bíði herfilegait
ósigur í kosningum þessum. Þeir
höfðu áður 150 þingmenn og
voru fjölmennaslir á þingi. Búizt
er jafnframt við því, að aðrir
vinstri flokkar tapi fylgi, en mið-
flokkarnir og liægri flokkarnir
vinni á.
Stjórnmálafregnritarar eru marg
ir þeirrar skoðunar, að flokkur
Soustelle, sem styður de Gaulle
eindregið, fái 120—150 þingsæti
og verði Soustelle fyrsti forsætis-
ráðherra franska lýðveldisins. I>á
er gizkað á, ac jafnaðarmenn fái
100 þingsæti eða þar yfir, NRP
flokkkurinn 50—55, róttækir jafn
aðarmenn 15, kommúnistar 10
—12.
Þing ASÍ beið aögerðalaust
eftir að nefndir gæfu skýrslu
Tillaga kommúnista: Greiða skal niður
visitölu með greiðsluafgangi rikisins,
minni opinberum framkvæmdum og
auknum tekjum af einkasölu
FUNDIR á Alþýðusambandsþingi voru mjög slitróttir í gærdag.
Urðu langar biðir á þinghaldi, vegna þess að umræðuefni voru
ekki fyrir hendi.
A meðan voru stöðugir fundir í verkalýðs- og atvinnumála-
nefr.dinni um ,hvað ætti að gera í efnahagsmálunuin. Undir kvöld
mun kjörnefnd sambandsstjórnar hafa komið saman.
Þingfulltrúar komu saman í KR-húsinu kl. 9 í gærkvöldi sam-
kvæmt fundarboðun, en síðast þegar til var vitað, hafði þingheim-
ur fceðið aðgerðarlaus í nærri 2 klst. og fundur hafði ekki einu
sinni verið settur. Var allan tímann beðið eftir því hvort atvinnu-
má.'anefnd og kjörnefnd hefðu eitthvað fram að leggja.
ófriðlega, þegar ekki var orðið
við óskum þeirra og átti lög-
reglan fullt í fangi með að
stöðva þá í að troðast inn í hús-
ið. — Það er augljóst, að Japön-
um geðjast vel að því að fá þessa
stúlku fyrir keisarafrú og er hún
nú þegar orðin ákaflega vinsæl
af alþýðu manna. Þegar hún
heimsótti unnusta sinn nú ný-
lega, höfðu um 8000 Tókíó-búar
safnazt saman í kringum bíl
hennar. Hún brosti og vinkaði í
allar áttir.
Þess má og geta, að Akihito
krónprins er vinsæll af öllum
þorra manna í Japan, enda
alþýðlegur og blátt áfram.
Langur tími!
Hirðmeistari skýrði frá því í
dag, að ungfrú Shoda yrði fyrsta
stúlkan af borgaralegum ættum,
sem giftist inn í kéisaraættina
japönsku þau 2618 ár, sem hún
hefur setið að völdum. — Hann
skýrði einnig frá því, að hún
mundi ekki fyrst um sinn taka
þátt í neinum boðum við hirð-
ina, en þó yrði hún viðstödd,
Hvernig afla skal fjár til
niðurgreiðslna
Það helzta, sem gerðist á þing-
inu í gær, var að miðstjórn Al-
þýðusambandsins lagði fram
svonefnd „Drög að ályktun um
efnahagsmál“. Munu það vera
tillögur þær sem kommúnistar
hafa borið fram innan ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálun-
um.
Aðalefnið í þessum drögum
er, að kaupgjaldsvísitalan
verði stöðvuð við 185 stig með
því að greiða hana niður.
Þær leiðir sem bent er á til að
afla fjár til niðurgreiðslnanna
eru þrjár:
1) Sparnaður í rekstri ríkis-
ins og að frestað verði nokkr-
um fjárveitingum á vegum
hins opinbera sem minni þýð-
ingu hafa í rekstri þjóðarbús-
ins. (Mun þar vera átt við t.
d. byggingar skóla, rafvæð-
ing sveitanna o .fl.)
2) Að verja greiðsluafgangi
ríkissjóðs til niðurgreiðslu á
verðlagi. (Það mun talið að
greiðsluafgangur ríkissjóðs
nemi milli 20 og 30 millj. kr.)
3) Að auka tekjur af einka-
Framh. á bls. 2.
•k-------------------------★
JRiprðmtslklafrifr
Sunnndagurinn 30. nóv. 1958
Efni blaðsins er m.a. :
Bls. 3: Kirkjuþáttur (Óskar J. i>or-
láksson).
Úr verinu (Einar Sigurðsson).
— 6: Rabbað við Eggert Stefánsson.
— 8: Sitt af hverju tagi.
— 10: Fólk í fréttunum.
— 11: Gistivinátta (Jóh. Kjarval).
— 12: Forystugreinin: Vantraust á
ríkisstjórnina.
Fjögurra ára listmálari (Utan
úr heimi).
— 13: Reykjavíkurbréf.
— 15—16 Lesbók barnanna.
— 22: Frá umræðum á ASÍ-þingimf.
★
Með þessu blaði er borið út .1. des-
ember-blað Mbl. Efni þess er m. a.:
Bls. 1—5 40 ára afmæli fullveldisins.
(Samtal við Þorstein M. Jóns-
son).
— 7: Frá Sviss.
— 8: Forystugreinin: 1. desember.
Bókmenntaþáttur Kristmanns
Guðmundssonar.
Kvikmyndir.
— 9: Samtímafrásögn Mbl. af full-
veldishátíðinni 1918.
Vísindafélagið 40 ára.
— 10: Jólabaksturinn (Kvennasíða).
— 15: Guttormur J. Guttormsson.
— 16: Nýjungar um borð í Selfossi.
★--------------------------*