Morgunblaðið - 30.11.1958, Síða 24
VEÐRIÐ
Austan gola effa kaldi, skýjaff
orpjinIíiIaíjiií>
275. tbl. — Sunnudagur 30. nóvember 1958
Reykjavíkurbréf
er á bls. 13.
Hæstiréttur staðfesti
Stóreignaskatturinn
Dómur i stóreignaskattsmálinu i gær
HÆSTIRETTUR kvað síðdegist
í gær upp þann dóm, að stóreigna
skatturinn brjóti ekki í bága við
stjórnarskrá landsins, en að ólög-
legt sé að skipta eignum hlutafé-
laga á hluthafa.
Vísitala fram-
færslukostnaðar
219 stig
KAUPLAGSNEFND hefur reikn
að út vísitölu framfærslukostn-
aðar í Reykjavík hinn 1. nóv-
ember sl. og reyndist hún vera
219 stig.
Kaupgreiðsluvísitala fyrir tíma
bilið 1. desember 1958 til 28.
febrúar 1959 er 202 stig samkv.
ákvæðum 55. gr. laga nr. 33/1958,
um útflutningssjóð o. fl.
Viðskiptamálaráðuneytið,
Með þessum niðurstöðum í
Hæstarétti, hefur dómðrinn
staðfest héraðsdóm þann er kveð
inn var upp í ágústmánuði
síðastl. um þessi tvö atriði.
Útskrift á þessum dómi Hæsta-
réttar lá ekki fyrir í gærkvöldi,
en mun væntanlega birtast í
byrjun vikunnar. Við flutning
málsins og uppkvaðningu dóms-
ins viku tveir dómenda sæti
vegna fjölskyldutengsla við
skattgreiðendur. Tóku þeirra
sæti Kristján Kristjánsson borg-
arfógeti og próf. Snævarr.
í dómnum er mikið mál um þá
kröfu stefnanda um að skattlagn
ingin sé eigi heimil samkvæmt
stjórnarskrá landsins. Tveir dóm
enda skiluðu sératkvæði varð-
andi forsenduatriði þó þeir
ásamt öðrum dómendum hafi
orðið sammála um niðurstöðurn-
ar, sem voru þar að lögin um
stóreignaskattinn brjóti ekki í
bága við stjórnarskrána.
Þá var og staðfest að með öllu
sé ólöglegt að skipta eignum
löglegur
hlutafélaga niður á hluthafana.
Leggur Hæstiréttur því fyrir
skattayfirvöld að ákveða skattinn
að nýju og skuli miða hann við
sannvirði hlutabréfanna en ekki
nafnverð, svo sem hið opinbera
hafði gert kröfu til.
Aðilar í máli þessu, sem var
prófmál varðandi þessi tvö atriði
stóreignaskattslaganna voru Guð
mundur Guðmundsson í Tré-
smiðjunni Víði og fjármálaráð-
herra fyrir hönd ríkissjóðs.
Drengur fyrir bíl
á Laugaveginum
f GÆRDAG varð slys á Lauga-
veginum með þeim hætti, að lítill
drengur hljóp frá móður sinni,
út í hina miklu bílaumferð. Hann
slapp þó furðanlega lítið meidd-
ur.
Þetta gerðist milli klukkan
4 og 5 á Laugaveginum skammt
frá gatnamótum Frakkastígs.
Móðir drengsins hafði stigið út úr
bíl með drenginn, sem þegar tók
til fótana, trítlaði fram fyrir bíl-
inn og út á götuna, áður en móðir
hans fengi ráðrúm til að stöðva
hann.
Um leið og hann kom út í um-
ferðina, kom bíll. Bílstjórinn á
þeim bíl hemlaði svo hraustlega,
að bremsuvökvarörið sprakk og
rann billinn áfram nokkurn spöl,
drengurinn féll niður fyrir fram-
an bílinn, og svo heppilega vildi
til, að hann lenti milli hjóla bíls-
hjóla bílsins.
Farið var með drenginn í
snatri í slysavarðstofuna og kom
í Ijós að hann var viðbeinsbrot-
inn, hafði hruflast, en talið að
hann hefði sloppið við öll alvar-
leg meiðsl.
Litli drenguwnn heitir Brynj-
ólfur Bragason Hjarðarhaga 29
hér í bæ.
1 DAG er fynsti sunnudagur í jóla
föstu og þá er fyrsta jólaljósið
Kveikt er á fyrsta kertinu í jól-a-
föstu- eða Aðventukransinum.
Þessi iskemmtilegi siður er að
verða útbreiddur hér og er það
vel. Hann gefur fólkinu tækifæri
til þesis að njóta jólaljósanna í
ró og næði, löngu áður en sjálft
jólahaldið byrjar í algleymingi.
Þegar fólk er einu sinni búið
að eignast Aðventukrans er því
borgið, því hægt er að nota sömu
kiansana ár eftir ár en að isjálf-
sögðu verður að endurnýja gren-
ið. —
■—oOo—
Ef þið hafið ekki munað eftir
að finna kransinn fram til þese
að kveikja á fyrsta kertinu skulið
þið koma því í verk fyrir næstu
helgi þegar við kveikjum á tveim
kertum. —
Engin tilkynning frd ríkis-
stjórninni eltir vnntrnustið
EKKERT fréttist af þrí í gær, hvaða ályktanir ríkis-
stjórnin myndi draga af vantraustsyfirlýsingu Al-
þýðusambandsþingsins í fyrrinótt. Vitað er að fundur
var haldinn í ríkisstjórninni í gær, en engin tilkynning
var gefin út að honum loknum. Fregnir voru á kreiki
um það, að forsætisráðherra hefði látið berast hótan-
ir um það til samstarfsflokka sinna, að hann hefði í
hyggju að biðjast lausnar fyrir ráðuneyti sitt.
En samstarfsflokkarnir munu ekki hafa tekið
þessar hótanir mjög alvarlega, þar sem svipuð skila-
boð hafa borizt þeim áður frá Hermanni Jónassyni
án þess að til nokkurra tíðinda drægi.
Glegilega jólaföstu.
Úrslit nálgasf í hand-
knattleiksmótinu
Athugaðir möguleikar á
útflutningi á sardínum
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á
Akranesi halda spilakvöld í hótel
Akranesi, sunnudaginn 30. nóv.
kl. 8,30.
Bazar Sóknar
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉL-
agið Sókn í Keflavík, heldur
bazar í Sjálfstæðishúsinu mánu-
daginn 1. des. kl. 9 síðdegis og
verður á boðstólum margt ágætra
muna. Allur ágóðinn rennur til
góðgerðarstarfsemi fyrir jólin.
Fjöltefli Friðriks
FRÍÐRIK Ólafsson tefldi fjöltefli
í fyrrakvöld í Sjómannaskólan-
um við 37 skákmenn. Halldór
Karlsson vann Friðrik, en jafn-
tefli gerðu Björn Þórðarson, Karl
Sigurhjartarson, Njörður Njarð-
vík og Gylfi Baldursson. Friðrik
hlaut 34 vinninga af 37 möguleg-
um.
Frá Haustmóti
Taflfélagsins
EFTIR 11. umferð í meistarafl.
í haustmóti Taflfélagsins er Jón
Pálsson efstur með 8 vinninga
og 1 biðskák, og næstur Reimar
Sigurðsson með 7% vinning og
eina biðskák. Næsta umferð verð
ur tefld í Breiðfirðingabúð kl. 8
á mánudagskvöld.
AKUREYRI, 29. nóv. Undanfarin
ár hefir starfað hér í bænum Nið-
ursuðuverksmiðja K. Jónssonar &
Co. Hefir hún framleitt smásíld
í dósum, þ. e. sardínur, sem svo
eru nefndar. Á þessu ári gerði
verksmiðjan tilraun til að athuga
möguleika á útflutningi þessarar
framleiðsluvöru. og voru 30—40
þús. dósir sendar til Tékkósló-
vakíu.
Maður féll niður
af þaki í gær og
slasaðist mikið
í GÆR vildi það slys til, að Odd
leifur Þorsteinsson, Bárugötu 22,
slásaðist mikið, er hann féll nið-
ur af þaki. Fallið var 7—8 m, og
meiddist Oddleifur mikið í baki
og brotnaði á báðum fótum. Slys-
ið vildi til um fjögurleytið. Var
Oddleifur að vinna á þaki vöru-
skemmu, sem verið er að byggja
við Héðinsgötu. Steig Oddleifur
á járnplötu, sem hann hélt, að
væri föst. Platan sporðreistist, og
Oddleifur missti fótanna. Var
hann þegar fluttur í slysavarð-
stofuna.
Síld þessi er öll veidd hér á
Eyjafirði, enda hér talinn vera
einn hagkvæmasti staðurinn til
veiða á hráefni til slíkrar niður-
suðu. Forráðamenn fyrirtækisins
telja þó, að verð á þessari síld
sé of lágt vegna þess mikla
vinnslukostnaðar, sem hér er um
að ræða. Einnig mun fyrirtækið
vanhaga um nýjustu vélar til
þess að geta hafið framleiðslu í
stórum stíl á þessari vöru. Hins
vegar mun nægilegt hráefni vera
í Eyjafirði, til þess að hægt sé
að halda áfram slíkri framleiðslu,
enda munu fróðir menn telja hag
kvæmast að finna þessa vöru hér.
f FYRRINÓTT var framinn stór-
þjófnaður hér í Reykjavík, er úra
og skartgripsiverzlun við Lauga-
veginn var rænd. Var miklu af
armbandsúrum, hringum, úra-
armböndum og skartgripum stol-
ið. Er tjónið talið nema tugum
þúsunda króna.
Þessi þjófnaður var framinn í
Úra- og skartgripaverzlun
Magnúsar Baldvinssonar að
Laugavegi 12.
Þjófurinn hafði mölvað rúðu
í aðaldyrum verzlunarinnar,
íarið inn að sýningarkassa, sem
NÚ er aðeins þrjú leikkvöld eft-
ir í Handknattleiksmóti Reykja-
víkur, en mótið hefur staðið und
anfarnar vikur. Óvæntur sigur
Fram yfir ÍR gerði það að verk-
um að minni spenningur er í loka
átökunum í meistaraflokki karla.
KR-ingar hafa enn engum leik
tapað, en mæta ÍR síðasta leik-
kvöldið, 8. des. Þegar ÍR og KR
mættust síðast vann ÍR, en nú
hafa KRingar tryggt sig svo með
Svavar framlengir
SVAVAR Guðnason listmálari
hefur ákveðið að framlengja sýn-
ingu sína í Listamannaskálanum
um einn dag. Verður hún því opin
í dag frá kl. 2 til 10. — Þess má
geta, að aðsók* að sýningunni
hefur verið óvenjugóð. Um 3000
manns hafa séð hana og helming-
ur myndanna er seldur.
í voru úrin og skargripirnir. Möl-
braut hann kassann og hreinsaði
út úr honum það sem þar var.
Voru þar t.d. upp undir 40
dömu- og herraarmbandsúr, sem
Magnús Baldvinsson úrsmiður
segir að kostað hafi frá 1100—
2000 krónur og jafnvel þar yfir,
stykkið. Stolið var þar og gifting
arhringum, mörgum víravirkis-
krossum, steinhringum og fleira.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar hefur Magnús orðið fyrir
miklu tjóni, því ekki hafði varn-
ingur þessi verið vátryggður.
hagstæðu markahlutfalli að jafn-
vel þó ÍR vinni leikinn gegn KR,
ganga KR-ingar með sigur af
hólmi í mótinu. En víst verður
þetta skemmtilegur leikur og
lokapunktur á skemmtilegu móti.
í kvöld fara hins vegar þessir
leikir fram.
KR gegn Þrótti, og má telja
KR öruggt með sigur. Þá mætast
Fram og Ármann og skal hér
Fram spáð sigri. Þá mætast Vík-
ingur og Valur.
Keppnin í yngri flokkunum er
mjög hörð og jöfn. í kvöld mæt-
ast 2. fl. kvenna KR gegn Ár-
mann og Fram gegn Þróttur. í 3.
fl. karla mætast í B-riðli ÍR—
Víkingur og í A-riðli Ármann—
Þróttur.
Hálogalandshúsið er nú orðið
vistlegt eins og kostur er á og
hefur það oftast verið fullskipað
að undanförnu, er hin spennandi
keppni mótsins fer fram.
Aðalfundur Sjálf-
stæðisfélagsins
í Njarðvíkum
AÐALFUNDUR Sjálfstæffisfé-
lagsins* Njarffvikings verffur
haldinn í samkomuhúsi Njarff-
víkur í dag kl. 3.30.
Fundarefni: Venjuleg affal-
fundarstörf og vetrarstarfiff. —
Einnig verffur sýnd kvikmynd
um starfsemi barnaheimilisins í
Kumbaravogi.
Stórþjófnaður framinn í
úra og skartgripaverzlun