Morgunblaðið - 20.03.1959, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.03.1959, Blaðsíða 4
MORCVNBLAÐIÐ Föstudagur 20. marz 1959 agbók 1 dag er 79. dagur ársins. Föstudagur 20. marz. Árdegisfiæði kl. 1:49. Síðdegisflæði kl. 14:27. Heilsuverndarstöðin er opin all an sólarhringinn. Læknavörður L.R. (fyrir vitjanir) er á sama stað frá kl. 18—8. — Sími 15030. Næturvarzia vikuna 15. til 21. marz er í Vesturbæjar-apóteki. — Sími 22290. Holts-apótek og Garðs-apótek eru opin á sunnudögum kl. eftir hádegi. Hafnarf jarðarapótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laugar daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi- dag kl. 13—16 og kl ‘9—21. Næturlæknir í Hafnarfirði er Kristján Jóhannesson, sími 50056. Kefiavíkur-apótek er opið alla virka daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16. Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9 er opið daglega kl. 9—20, nema laugardaga kl. 9—16 og helgidaga kl. 13—16. — Sími 23100. ■ Vegna breytingar á útkomu- tíma biaðsins um helgar, þurfa tilkynningar, sem birtast eiga í Dagbók á sunnudögum, framveg is að berast blaðinu í síðasta lagi fyrir hádegi á laugardögum. RMR — Föstud. 20. 3. 20. — VS — Fr. — Atkv. — Hvb. I.O.O.F. 1 = 1403208% = 9 0 St.: St.: 59593216 — VIII — St.: H: — H. St. V. « AFMÆLI ■:■ 80 ára e.r í dag Jónína Guðrún Jónsdóttir frá Smiðjuvík i Grunna víkurhr. Nú til heimilis að Elli- heimilinu Grund. 50 ára er í dag (föstudag) frú Svava Mathiesen, Austurgötu 30, Hafnarfirði. H Brúökaup Síðastliðinn sunnudag 15. marz, voru gefin saman í hjónaband í Fríkirkjunni í Reykjavík ungfrú Anna Birna Long, Álfhólsvegi 40, líópavogi og Charles Waldo, Forest Lake, Minnesota. Séra Þor- steinn Björnsson framkvæmdi at- höfnina. — Heimili ungu hjón- anna e.r að Kirkjuteigi 11, Kefla- vík. —■ Hjónaefni Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Þuríður Ida Jónsdótt- ir, Sogavegi 28 og Benedikt Eiríks son, vélskólanemi, Smáragötu 10. Skipin Eimskipafélag íslands h.f.: — Dettifoss kom til Reykjavíkur í gær. Fjallfoss fer frá Hamborg á morgun. Goðafoss fór frá Reykja- vík í fyrrinótt. Gullfoss er í Kaup mannahöfn. Lagarfoss fór fi-á Hamborg í fyrradag. Reykjafoss fer frá Reykjavík á morgun. Sel- foss fór frá Reykjavík í fyrradag. Tröllafoss fer frá Reykjavík á morgun. Tungufoss fór frá New York í fyrradag. Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er á Vestfjörðum. Esja er í Rvík. Herðubreið fer frá Reykjavík í kvöld. Skjaldbreið er í Reykjavík. Þyrill er væntanlegur til Rvíkur á morgun. Helgi Helgason fer frá Reykjavík í dag. Skipadeild S.l.S.: — Hvassafell er í Þorlákshöfn. Arnarfell er á Akureyri. Jökulfell fer væntanlega frá New York í dag. Dísarfell er væntanlegt til Kaupmannahafnár á morgun. Litlafell er á leið til Reykjavíkur. Helgafell losar á Eyjafjarðarhöfnum. Hamrafell fór frá Reykjavík 12. þ.m. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: Katla hefur væntanlega farið frá Tarragona í gær, til Ibiza. Askja er í Osló. ^Flugvélar Flugfélag íslands h.f.: — Hrím- faxi fer til Glasgow og Kaup- mannahafnar kl. 08,30 í dag. Vænt anlegur aftur til Reykjavíkur kl. 22:35 í kvöld. — Flugvélin fer til Oslóar, Kaupmannahafnar og Hamborgar kl. 08:30 í fyrramálið. Innanlandsflug: 1 dag er áætlað að fljúga til Akureyrar, Fagur- hólsmýrar, Hólmavíkur, Horna- fjarðar, Isafjar.ðar, Kirkjubæjar- klausturs, Vestmannaeyja og Þórs hafnar. — Á morgun er áætlað að fijúga til Akureyrar, Blönduóss, Egilsstaða, Isafjarðar, Sauðár- króks og Vestmannaeyja. 153! Félagsstörf Frá Guðspekifélaginu: — Dög- un heldur fund í kvöld kl. 8:30 í Guðspekifélagshúsinu, Ingólfs- sti-æti 22. — Þorsteinn Halldórs- son flytur kafla úr ritum P. Brun tons. — Sigvaldi Hjálmarsson flyt ur erindi: „Kristur og Búddha. — Kaffiveitingar í fundarlok. Utan- félagsfólk velkomið. Æskulýðsfélag Laugarnessókn- ar: — Fundur í kirkjukjallaran- um í kvöld (föstudag), kl. 8:30. Fjölbreytt fundarefni. Séra Garð- ar Svavarsson. |Aheit&samskot Konan, sem brann hjá í Her- skálacamp, afh. Mbl.: — Þ S kr. Hafnarbíó sýnir um þessar mundir efnismikla þýzka mynd, „Sögu kvennlæknisins". I myndinni sést gerður keisaraskurður á konu, sem getur ekki fætt. 100,00; H C 200,00; N N 200,00; V K 100,00; G Þ 50,00; Breiðfirð- ingur 100,00; S T J S 200,00; H 100,00; Hildur 100,00; kona 30,00; L J 100,00. Sólheimadrengurinn, afh. M'bl.: J J kr. 50,00; S J 50,00. Lamaða slúlkan, afh. M'bl.: — Ómerkt í bréfi kr. 50,00. Ymislegt Orð lífsims: — Og þeir sam- sinntu honwm og kölluðu á postul- ana og húðstrýktu þá, og fyrir- buðu þeim að tala í Jesú nafni, og létu þá lausa. Þeir fóru nú burt úr augsýn ráðsins, glaðir yfir jroi að þeir hófðu verið virtir þoss að líða háðung vegna nafnsins. — (Post. 5). — Mæðrafélagið heldur árshátíð sína í Tjarnarkaffi (uppi), sunnu daginn 22. narz. — Áríðandi, að vel sé mætt. & MiÉ hoíiA/íb Miföefi J/1 Niður við höfn leigði ég mér stærsta skipið, sem ég gat komið auga á. Lét flytja fjármunina um borð, létta akkerum og sigla til hafs, eins hratt og við gátum komizt. Vildi ég fyrir alla muni koma dýr- gripunum, sem mér höfðu áskotnazt, sem fyrst undan. Það fór eins og ég hafði búizt við. Fé- hirðirinn þaut á fund soldáns og sagði honum, hvað hefði gerzt. Hans hátign varð ofsareiður og sá mjög eftir því að hafa veðjað við mig. nu^ubkxiffUuv — Það er bezt að spyrja skip- stjórann, hvað farið kostar? Það gerðist á málverkasýningu í París. Ung, glæsileg stúlka hafði lengi horft á málverk af mjög Hann gaf yfirflotaforingjanum þegar ■kipun um að láta öll skip tyrkneska flot- ans elta okkur. Þó að ég hefði nokkurra sjómílna for- skot, leið ekki á löngu, þar til skip soldáns voru komin ískyggilega nærri. Mér var fullljóst, að hofuð mitt var í hættu í annað sinn. Ég kallaði strax á þjóna mína, benti þeim á tyrkneska flotann og sagði: „Hvað eigum við nú að taka til bragðs?“ f ERDIIM AND Éa rétti bara turninn cML ro Íijljlií!? - mi ri / fallegri og glæsilegri konu. Unga stúlkan sneri sér að vinkonu sinni og sagði: — Ég myndi vilja gefa mikið fyrir að hitta listamanninn, sem hefir málað þessa mynd. Svo vildi til, að listamaðurinn var einmitt staddur í salnum, stóð skammt frá stúlkunum tveim ur og heyrði, hvað þeim fór á milli. Hann hélt, að ef til vill væri möguleiki á að selja mynd- ina og gaf sig þegar fram: — Leyfist mér að kynna mig. Ég er sá, sem málaði myndina. — Það var dásamlegt að hitta yður, sagði unga stúlkan hrifin, Þér mynduð kannski vera svo góður að láta mig hafa heimilis- fang klæðskerans, sem saumar fötin á fyrirsætuna yðar. • Eins og kunnugt er hefir frönsk um þingmönnum verið bannað að tala öðruvísi en blaðalaust í þinginu. Fyrir nokkru átti Paul Reynaud tal við einn af hinum þeldökku þingfulltrúum frá frönsku nýlendunum og spjöll- uðu þeir um þessi nýju fyrir- mæli: — Haldið þér ekki, að yður muni reynast erfitt að tala blaða laust? spurði Reynaud. — Sei, sei, nei, svaraði hinn. Þetta hefir alltaf tíðkast heima hjá mér. — Eru menn svona mælskir 1 landinu yðar? — Nei — en aðeins mjög fáir af þeim eru læsir. Söngvarinn Mario Lanza hafði boðið vinum sínum til veizlu 1 villu sinni í Róm. Spilaði Mario fyrir þá margar hljómplötur, t.d. með Louis Armstrong, Perry Como, Bing Crosby og Frank Sinatra. — Það verð ég að segja, Mario, að þú ert maður hæverskur. Þú hefir ekki spilað eina plötu, sem þú hefir sjálfur sungið inn á, sagði einn af gestunum. Þá skellihló Mario og sagði: — Já,, en það er einmitt það, sem ég hefi verið að gera. Ég hefi sungið inn á allar þessar plöt ur og hermt eftir listamönnun- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.