Morgunblaðið - 26.03.1959, Qupperneq 2
MORCVNPr 4 fílf)
í’immtudagur 26. marz 1959
Kristmann er Ingi Vítalín
ALMENNA bókafélagið hefur
tilkynnt, að höfundur geim-
ferðasögunnar „Ferðin til stjarn-
anna“ sé Kristmann Guðmunds.
son skáld. Eins og kunnugt er,
kom bók þessi nýlega út á forlagi
AB og var höfundar ekki getið,
en hann sagður Ingi Vitalín.
Ýmsar getgátur voru uppi um
?að, hver Ingi væri og datt sum-
Vestmannaeyjabátnum Gulltoppi varð bjargað undan sjó án
' þess að á honum yrðu neinar skemmdir. Björgunarsveit á veg-
um Samábyrgðar íslands fór á strandstaðinn til þess að bjarga
bátnum. Var það gert með því að draga hann enn hærra upp
á sandinn. Þar á að „geyma“ hann unz veður til þess að koma
honum á flot aftur þykir hagstætt.
Sjálfstœðisfélag stofnað
í Höfnum með 52
félögum
t FYRRAKVÖLD var stofnað
Sjálfstæðisfélag í Hafnahreppi.
Mikill áhugi ríkti á fundinum
fyrir framgangi Sjálfstæðisstefn-
unnar og gerðust 52 stofnendur
félagsins.
Jón Ólafsson, setti fundinn og
lýsti tilgangi hans. L. g félagsins
voru samþykkt og síðan gengið
til stjórnarkjörs.
Formaður var kosinn Jón Ól-
afsson og meðstjórnendur: Jósef
Borgarsson, Jens Sæmundsson,
Jón Borgarson og Sigmundur
Jónsson. Varastjórn: Sveinn Jóns-
son og Júlíus Árnason.
ÞingmaSur kjördæmisins, Ól-
afur Thors form. Sjálfstæðis-
flokksins mætti á fundinum og
flutti ýtarlega ræðu um stjórn-
málaviðhorfið og einnig töluðu
Gunnar Helgason erindreki, Al-
freð Gíslason, bæjarfógeti og
Bogi Þorsteinsson, flugumferðar-
stjóri.
Að fundinum loknum var sam.
eiginleg kaffidrykkja og tók þá
til máls Konráð Pétursson kenn-
ari og ávarpaði sérstaklega þing-
mann kjördæmisins og þakkaði
honum síörf hans í þágu kjör-
dæmisins og þjóðarinnar allrar
og hylltu "undarmenn Ólaf Thors.
Ólafur þakkaði vinsamlega um-
mæli og vinsemd í sinn garð og
það traust sem sér ætíð hefði
verið sýnt í kjördæminu og ósk-
aði hinum nýstofnuðu samtökum
Ársliátíðar G.A.
Á MÁNTTDAGS- og þriðju-
dagskvöldið voru haldnar árs-
hátíðir í Gagnfræðaskóla Aust-
urbæjar. Var það nemenda-
félag skólans sem stóð fyrir þeim.
Skólinn var fallega skreyttur, en
nemendur höfðu, með aðstoð
teiknikennara síns, séð um skreyt
inguna. Árshátíðin hófst með því
að formaður árshátíðamefndar
setti hana. Þá voru flutt tvö á-
vörp. Annað þeirra hélt skóla-
stjórinn, Sveinbjörn Sigurjóns-
son, en hitt formaður nemenda-
félagsins. Gamanleikritið Óþokk-
inn eftir Anton Tsekov, í þýðingu
eins nemanda skólans, Andrésar
Indriðasonar, var sýnt af nem-
endum við leiktjöld sem þeir
höfðu sjálfir gert í fyrra.
Rak síðan hvert skemmtiatrið-
ið annað og lauk þeim með leik-
fimisýningu stúlkna. Var síðan
stiginn dans af miklu fjöri og
léku hljómsveitir Andrésar Ing-
ólfssonar og Svavars Gests fyrir
dansi. Fóru árshátíðirnar hið
bezta fram og voru hinar ánægju-
legustu. — b.
til heilla í því starfi, sem fram
undan væri.
Á fundinum ríkti mikill ein
hugur á því, að efla og styrkja
samtökin sem mest og gera þau,
sem áhrifaríkust í baráttunni fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn.
Kvikmyndc&hús-
in lokuð fram
á 2. páskadag
EINS OG venja er til munu kvik-
myndahúsin fella niður sýningar
yfir páskahátíðina eða fram á
annan páskadag. Þann dag frum-
sýna þau að venju nýjar mynd-
ir. Virðast páskamyndirnar yfir-
leitt vera léttar og líflegar mynd
ir.
Skemmtiíerðir
á Vatnajökul
ÞAR SEM margir ferðamenn hafa
látið í ljós ósk um að komast á
Vatnajökul, hefur Jöklarannsókn-
arfélagið í hyggju að efna til
þriggja ferða á jökulinn á vori
komanda og gefa fólki, sem ábuga
hefur á því, kost á að fara með.
Væntanlega verður fyrsta ferð-
in farin seint í maí og lýkur
fyrstu dagana í júní. Sú ferð verð
ur einkum fyrir þá jöklafara, sem
hafa tekið þátt í jöklaferðum und-
anfarin ár, og er ætluð til mæl-
inga og þess háttar. Hinar ferð-
imar, sem verða væntanlega í
byrjun júní og 10.—12. júní, eru
fyrir ferðafólk, og er gert ráð
fyrir að töknir verði 14 farþegar
í hvora ferð, auk faranstjóra og
bílstjóra.
Strax upp úr páskum mun fé-
lagið boða til fundar, þá sem
ætla má að hafi áhuga fyrir siik-
um ferðum og verður þá endán-
lega tekin ákvörðun um allt þar
að lútandi.
„Vogun vinnur...“
annan í páskum
NÆSTSÍÐASTI þáttur „Vogun
vinnur — vogun tapar“, verður
hljóðritaður á segulband í Sjálf-
stæðishúsinu 2. páskadag og síð-
an útvarpað um kvöldið. Upp-
takan hefst kl. 3 e. h., en húsið
verður opnað kl. 2,30 og leikur
hljómsveit frá þeim tíma. Einn
keppenda, Ólafur Jónsson, sjó-
maður, frá Keflavík, kemur nú
4. áfanga og keppir um 10.000
krónurnar. Hin þrjú, sem keppa,
?au Herborg Gestsdóttir, Stefán
Pálsson og Skúli Skúlason, reyna
öll við 5000 króna spurninguna.
Hægt verður að panta aðgöngu-
miða kl. 2—5 laugardaginn fyrir
páska í síma 19742, en sala hefst
kl. 1, annan páskadag við inn-
ganginn.
um Hjörtur Halldórsson í hug og
fleiri vorlu nefndir. Margir hafa
vafalaust gert sér ljóst, að Krist-
mann var höfundur bókarinnar,
Fram er ónýtur
FULLTRÚI Samábyrgðar Islandis,
Kristinn Einarssin, skipafræðing-
ur, fór suður í Grindavík þegar
eftir að vélibáturinn Fram úr
Hafnarfirði strandaði. Er Krist-
inn hafði skoðað bátinn kvað hann
upp þann únskurð að báturinn
væri orðinn svo brotinii að hann
væri ónýtur. Stjórnlborðshliðin var
öll úr bátnum að heita má, en á
hana lagðist báturinn er hann
strandaði. Hafði grjót gengið í
gegnum síðuna, einnig voru mikl-
ar skemmdir orðnar ofanþilja
þegar eftir fyrstu nóttina, en á
næturflóðinu braut mjög á bátn-
um. Um fjöru mátti ganga kring-
um hann.
Páskaferðir
f DAG leggur Páll Arason upp i
Öræfaferð þá, sem áður hefur
verið frá skýrt hér í blaðinu.
Verður farið á 7 bílum með 121
farþega.
Ferðamannahópar fara á veg-
um Guðmundar Jónassonar bíl-
stjóra á Snæfellsnes og á Lang-
jökul. Verður farið í Langajök-
ulsferðina á trukkum og með
beltisbíla aftan á. Verða þeir
teknir í notkun eftir að komið
er upp í snjó.
Krlstmann Guðmundsson.
enda hefur han löngum verið
mikill aðdáándi slíkrá bók-
mennta útlendra. Segist hann
hafa lesið 300—400 „vísindaskáld-
sögur“ að minnsta kostL
Lélegur afli í Vest-
mannaeyjum
UNDANFARIÐ hefur verið sár-
tregur afli hjá Vestmannaeyja-
bátum, að því er fréttaritari
blaðsins símaði í gærkvöldi. í
fyrradag fengu bátarnir mjög lít-
ið, eða frá 100 fiskum á bát.
Nokkrir fengu þó góðan afla, allt
upp í 30 lestir.
í gær var afli jafnari hjá bát-
unum. Þegar blaðið átti tal við
fréttaritara sinn um 8 leytið,
voru nokkrir bátar komnir að
með allgóðan afla.
Vestmannaeyingar vona að
fiskur fari nú að ganga á miðin,
og að í ár verði góð páskahrota
eins og oft áður.
Póstmtmnn-
félagið 40 óra
í dag
PÓSTMANNAFÉLAG íslands er
40 ára í dag, en það er stofnað.26.
dag marzmánaðar 1919. Stjórn fé-
lagsins skipuðu þeir Þorleifur
Jónsson, póstmeistari, O.P. BÍÖn-
dal, póstritari, og Páll Steingríms
son, póstfulltrúi.
Félagið hefur frá upphafi haft
það sem fyrsta mál á stefnuskrá
sinni, að vinna að hagsmunamál-
um póstmanna og orðið mikið
ágengt í því efni. Þá hefur það
einnig unnið að margvíslegri
menningarstarfsemi svo sem
blaðaútgáfu um f jölda ára.
Eftir páskana verður birt hér
í blaðinu ítarleg grein um Póst-
mannafélagið, sögu þess og verk
efni á 40 árum.
Fjölbreytt páska-
vaka Langholts-
safnaðar
HIN ÁRLEGA páskavaka kirkju-
kórs Langholtssafnaðar verður á
skírdagskvöld kl. 8,30 í Laugar-
neskirkju. Er þetta í fimmta sinn
sem slík páskavaka er haldin og
hafa þær allar verið fjölbreyttar.
Á efnisskrá páskavökunnar er
kórsöngur, einsöngur, ávarp, er-
indi og upplestur.
Prófessor Björn Magnússon
flytur að þessu sinni erindi páska
vökunnar, þrjú væntanleg ferm-
ingarbörn lesa upp og kórar og
einsöngvari syngja 14 lög eftir
innlend og erlend tónskáld. Vest-
uríslenzka kennslukonan Ingi-
björg Bjarnason mun syngja með
kórnum tvö lög eftir Vestur-
íslenzk tónskáld, þá Steingrím
K. Hall og H. S. Helgason, en þau
hafa ekki verið flutt hér áður.
Ingi R. og Ingvar efstir
Góður afli
Sandgerðisbáta
SANDGERÐI, 25. marz. — AfU
netjabátarma hefur verið mjög
góður undanfarna daga. Hefur
samanlagður afli þeirra verið
164—216 lestir síðustu þrjá dag-
ana — og róið hafa allt frá 13
upp í 19 bátar. Mesti afli í veiði-
ferð hefur verið 29 lestir. Mummi
hafði þan afla í fyrradag og Dux
einnig í gær.
Bátarnir, sem allir eru með net,
sækja frekar stutt. Þeir voru á
sjó í dag og róa aftur á morg-
un, en á föstudaginn l-ariga og
páskadag verður landlega. — A.
Lögregluþjónar
í heimsókn á Kefla
víkurflugvelli
KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 25.
marz. — í dag kom hópur lög-
regluþjóna úr Reykjavík í heim-
sókn á Keflavíkurflugvöll. Lög-
regluþjónarnir, 15 að tölu, eru úr
hópi hinna eldri lögregluþjóna í
Reykjavík og voru þeir að ljúka
námskeiði, sem haldið hefur ver-
ið á vegum lögreglunnar þar.
Erilngur Pálsson, yfirlögreglu-
þjónn var fararstjóri lögreglu-
þjónanna. en á flugvellinum tóku
á móti þeim Björn Ingvarsson
lögreglustjóri og Benedikt Þörar-
insson yfirlögregluþjónn. Lög-
reglumen- irnir skoðuðu flugvöll
inn og heimsóttu meðal annars
flugturninn og sjónvarpsstöðina.
— Að lokum sátu þeir kaffiboð
Björns Ingvarssonar, lögreglu-
4stjóra. —B.Þ.
— Macmillan
Framh. af bls. 1.
ig svo sem færi á ráðstefnu ut-
anrikisráðhernanna. Macmillan
ikvað það a. m. k. vera víst að
alþjóð krefðist slíks fundar æðetu
manna og vænti þess að hann yrði
haldinn. Hins vegar væri öllum
iljóst að dei/lurnar milli austurs og
vesturs væru alvarlegri en menn
thefðu haldið.
Mynd þessi var tekin á Skákþinginu í fyrrakvöld — og sýnir
að vel er fylgzt með. — (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
~®FJÓRÐA umferð í skákþingi fs-
lands var tefld í fyrrakvöld og
vann Ingi R. Jóhannsson Benoný
Benediktsson, Halldór Jónsson
vann Jón Guðmundsson, Ingvar
Ásmundsson vann Hauk Sveins-
son, Ingimar Jónsson vann Jón
Kristjánsson og Ólafur Magnús-
son gerði jafntefli við Kára Sól-
mundarson.
í gærkveldi voru telfdar bið-
skákir úx annarri, þriðju og
fjórðu umferð. Þegar blaðið fór
í prentun var þessum skákum
lokið. Úr þriðju umferð: Ingvar
Ásmundsson vann Kára Sólmund
arson, Ólafur Magnússon vann
Reimar Sigurðsson. Úr fjórðu
umferð: Þórir Sæmundsson vann
Reimar Sigurðsson.
Þá eru efstir ennþá Ingi R.
Jóhannsson og Ingvar Ásmunds-
son með 4 vinninga hvor, Ingi-
mar Jónsson með 3 vinninga og
biðskák og Halldór Jónsson með
3 vinninga.
Fimmta umferð verður tefld
kl. 2 í dag í Breiðfirðingabúð og
6. umferð kl. 8.
leiðrétting
f FRÉTT í blaðinu í gær, þar
sem sagt var frá borgarafundi á
ísafirði varðandi stofnun Mennta
skóla á staðnum, féll niður nafn
Rögnvaldar Jónssonar, fram-
kvæmdarstjóra, sem var í undir-
búningsnefnd.
Einnig átti að standa að þeir
Guðjón Kristinsson skólastjóri
og Björgvin Sighvatsson, form.
fræðsluráðs, hefðu haft framsögu
1 fyrir málinu á fundinum.