Morgunblaðið - 26.03.1959, Side 22
22
MORGVNBL AÐIÐ
Flmmtudagar 26. marr 195t
Ungtemplarar
Ársafmæli ungmennastúkunnar Hrannar nr. 9 verð-
ur haldið annan í Páskum í Góðtemplarahúsinu kl. 8.
Miðar seldir frá 6—8 e.h. í Góðtemplarahúsinu.
Góð skemmtiatriði. — Félagar fjölmennið.
NEFNDIN.
Til sölu
er Bolex H 16 kvikmyndaupptökuvél með þrem lins-
um, Cine Fader stativ og stativkerry. Tilboð í vél-
ina óskast send Morgunblaðinu merkt: „Bolex —
5425“.
Afgreiðslustarf
Unglingspiltur óskast til afgreiðslustarfa.
KJÖTBÚÐIN Langholtsvegi 17.
sími 34585 og 14598.
Opið alla hátíðisdagana
Heitur matur allann daginn
KJÖRBARINN
Lækjargötu 8
AUSTURBAR
( Austurbæ j asrbíó )
Veiðileyfi — leigulönd
4 leigulönd fyrir sumarbústaði ásamt stangaveiði-
réttindum til leigu um lengri tíma. Framtíðarstaður
ca. 250 km. frá Reykjavík. Upplýsingar í síma 16531.
Matveitingar
allan daginn á morgun (föstudaginn langa) frá ki.
6 f.h. til 11 e.h. eins og venjuiega.
Lokað páskadag.
Vitabar
Til leigu
Verzlunarhúsnæði
130 ferm. verzlunarpláss á bezta stað í Hálogalands-
hverfi. Húsnæðið leigist eins og það er, tilbúið undir
málningu.
FASTEIGNASALA & LÖGFRÆÐISTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl., Gísli G. Isleifsson, hdl.
Björn Pétursson: Fasteignasala.
Austurstræti 14, II. hæð. Símar 2-28-70 og 1-94-78.
T I L S O L U
Selfossbíó
ásarht tveim veitingasölum, íbúð og eldhúsi og öllum með-
fylgjandi taikjum sem eigninni fylgir. Húseignin er ein
hæð; um 600 íerm. og fylgir stór og góð eignarlóð. í bíóinu
eru nýjar sýningarvélar. Skipti á fasteignum í Reykja-
vík Ikóma til greina.
Nánari uþpl. gefur
IMýja Fasteignasalan
Bankastræti 7.
Sími 24300 og kl. 7,30—8,30 e.h. Sími 18546.
Guðmundur Hansson
bóndi — Minning
HANN andaðist á Dvalarheimil:
aldráðra sjómanna, þ. 18. þ. m.
Hafði hann dvalið þar aðeins
stuttan tíma. Banamein hans,
mun hafa verið hjartabilun. Hann
var fæddur í Reykjavík 20/12
1882. En ókunnugt er mér um ætt
hans. Þriggja mánaða gamall,
Frú María Gottsveinsdóttir
og Guðmundur Hansson
fluttist hann að Laxárnesi í Kjós,
og átti þar heima framyfir tvítugs
aldur. Voru fósturforeldrar hans,
þau hjónin Ingileif Jörundsdóttir,
og Magnús Jónsson. Áttu þau einn
son er Pétur hét var hann einu
ári yngri en Guðmundur. Og má
fullyrða, að eitt hafi verið látið
yfir þá báða ganga. Enda mun
Guðmundur hafa skoðað þau
sína eiginlegu foreldra. Árið 1905
giftist Guðmundur Maríu Gott-
sveinsdóttur, og hófu þau búskap
að Þúfukoti í Kjós. Og bjuggu
þar í full 40 ár. Eða þar til að
Sveinn sonur þeirra tók við búi.
Og býr hann þar nú, ásamt konu
sinni Svölu Guðmundsdóttur.
Guðmundur átti góða konu,
sem reyndist honum hinn bezti
förunautur, og var hún börnum
Utan úr heimi
Framh. af bls. 12.
nautaötum í vor og sumar.
Ordonez mun hins vegar berjast
77 sinnum á sama tíma — en það
hlálega í þessu sambandi er, að
fyrir hvern af sjö leikum, sem
fram fara nú um páskana, hefir
hann krafizt 375.005 peseta
greiðslu, en það er 5 pesetum
(eða um kr. 3,00) meira en Dom-
inguin fær. — Þessar krónur 3,00
eiga sem sagt að sýna og sanna,
að hann sé „sá bezti“-
Dominguin er að sjálfsögðu
öskuvondur. Og hann hefir „svar
að“ með því að kynna nýjan
mann í „faginu“, sem hann telur
eiga mikla framtíð fyrir sér. Það
er er Jaime Ostos, sem er 25 ára
gamall. — Ordonez hefir snúizt
þanig við þessu, að hann
hefir tilkynnt opinberlega, að
hann muni ekki taka þátt í neinu
því nautaati, þar sem Ostos komi
fram.
★
Spánverjarnir harma síður en
svo þessa misklíð hinna miklu
nautabana sinna. Þeir bíða í of-
væni eftir því, hvað garast muni
— eitthvað merkilegt hlýtur að
gerast, þegar þannig er í pott-
inn búið. — Og þeim býður í
grun, að sumarið muni vart líða
svo, að annar hvor hinna miklu
nautabana mæti ekki dauða sín-
um á leikvanginum — allt vegna
einna 5 peseta . . .
síum og uppeldisbörnum, hin
ágætasta móðir. Var hún vel
greind og víst nokkuð hagmælt,
þó að hún flíkaði því ekki við
hvern, sem var. Hún andaðist í
júlí 1954. Auk Sveins, sem áður
er getið, áttu þau 2 börn önnur,
Loft Guðmundsson rithöfund, og
Petreu Ingileif sem hefir haft
aðalumsjón með saumastofu á
Reykjaíundi. Tvö fósturbörn ólu
þau upp. Sólveigu Einarsdóttur,
er hún búsett í Reykjavík. Og
Gunnar Aðalstein Ragnarsson.
Fluttist hann til Vestmannaeyja,
en fórst þar af slysförum fyrir
fáum árum. Þessum börnum
reyndust þau hjónin, sem beztu
foreldrar. Ásamt fleiri unglingum
er þar dvöldu, um lengri eða
skemmri tíma. Fyrstu árin höfðu
þau hjónin heldur lítið bú, meðan
ræktun var skemmra á veg kom-
in en nú er. Enda jörðin ekki
stór. Þó að nú sé um skipt.
Guðmundur fór því á sjó, enda
mjög hneigður fyrir sjóinn. Svo
að segja má, að hann hafi verið
fæddur sjómaður. Fyrst var hann
á skútum, og síðar á togurum.
Um nokkurt skeið sigldi hann
með mági sínum, hinúm alþekkta
dugnaðarmanni, Indriða Gott-
sveinssyni, sem mun hafa verið
Vilborg Hróbjarts-
dóttir áttræð
EIN sæmdarkona á Bergstaða-
strætinu verður áttræð á morg-
un, 27. marz. Það er Vilborg Hró-
bjartsdóttir, Bergstaðastræti 4.
Þótt Vilborg sé fyrir löngu
orðin Reykvíkingur í húð og hár,
man hún það vel, að hún er Ár-
nesingur að uppruna. Hún er
fædd í Oddgeirshóla-Austur-
koti í Flóa árið 1879, dóttir Hró-
bjarts Jónssonar -bónda þar og
konu hans, Elínar Jónsdóttur.
Þau Hróbjartur og Elín áttu 13
börn. Flest þeirra komust upp
og urðu dugandi fólk.
Vilborg fluttist árið 1910 til
Reykjavíkur og réðst skömmu
síðar í vist á heimili Páls Magn-
ússonar járnsmíðameistara og
konu hans Guðfinnu Einarsdótt-
ur. Þar hefur hún starfað alla
tíð síðan og verið bústýra hin
síðari árin, eftir fráfall húsmóð-
urinnar.
Vilborg er óvenjulega tápmikil
kona, sem elli og sjúkdómar virð
ast lítt bíta á. Hún er kvik í
spori og henni fellur tæpast verk
úr hendi. En tryggð hennar og
trúmennska ber þó af. Engan
skal því undra, að Vilborg á
marga vini á öllum aldri og ekki
sízt meðal yngstu kynslóðarinn-
ar.
Tilkynning
trá Hitaveitu Reykjavíkur
Ef alvarlegar bilanir koma fyrir um hátíðarnar,
verður kvörtunum veitt móttaka í síma 1 53 59 kl.
10—14.
Hitaveita Reykjavíkur. j
með hinum fyrstu íslenzku togara
skipstjórum, ©g munu margir af
hinum eldri skipstjórum kannast
við Indriða. Einnig sigldi Guð-
mundur með Nikulási skipstjóra,
um nokkurt skeið. Heyrði ég því
viðbrugðið, hvað Guðm. hafði
verið duglegur að vaka. Og stóð
þá flesta félagana af sér. Enda
þurftu menn á því að halda á
þeim árum, á aseðan engin vöku-
lög voru til.
Á þessum sjóferðum sókti Guð-
mundur mikla björg í bú. Og varð
því oft að leggja á sig aukaerfiði
við að hirða það sjávarfang, sem
annars hefði verið fleygt í sjóinn
aftur. Við vorum aldrei sjófélag-
ar. En síðar átti ég þess kost, að
vinna með honum í landi. Aðal-
lega hjá Sláturfélagi Suðurlands,
því þar vann hann í allmörg
haust, um sláturtíðina. Og þess
má ég minnast nú, er leiðir skilj-
ast, hvað honum var umhugað
um, að reyna að hlífa mér, sér-
staklega við að vaka. Þegar við
skiptum vöktum á millum okkar,
við að taka á móti fé, sem oft var
að bérast fram á nætur. Að láta
mig þá hafa betri vaktina. Lengst
af mun Guðmundur hafa verið
heilsugóður, þar til að heilsu
hans fór að hnigna þegar kom
fram á þennan vetur. Og að sjálf-
sögðu fór starfsþróttur hans smá
minnkandi, sem vonlegt var. En
ég held, að fúllyrða megi, að hann
hafi verið trúr því starfi, sem
honum var falið að sjá um. Og
finnst mér að þeirri dyggð hafi
heldur hrakað, nú hin síðari árin.
Og vil ég þó á engan halla.
Ég kveð svo góðan og gamlan
sveitunga, og samstarfsmann,
með einlægri þökk fyrir gömul og
góð kynni. Og bið honum farar-
heilla yfir hið mikla haf. Þar
sem ástvinirnir bíða á ströndinni
hinum megin, til þess að brýna
báti hans í naijst. Börnum hans
og nánasta skylduliði, sendi ég
mína beztu samúðarkveðju.
St. G.
Jón Eyjólfsson
fimmtugur
A páskadag, 29. marz,
verður Jón Eyjólfsson, leikhús-
starfsmaður 50 ára.
Frá opnun Þjóðleikhússins hef-
ir Jón verið starfsmaður þess,
eða 9 ár, en áður hafði hann
verið starfsmaður Leikfélags
Reykjavíkur í tugi ára. — Jón
er því orðinn vel kunnugur starfi
leikhúsanna í bænum og þykir
honum vænt um þau bæði. Auk
þess starfaði hann talsvert við
revíusýningar á yngri árum.
Jón er sérstaklega samvizku-
samur starfsmaður, vinnur af al-
úð og áhuga við öll þau störf
sem honum er trúað fyrir, þó
launin hafi oftast verið lá fyrir
langan vinnudag.
Ég þakka vini mínum Jóni fyr-
ir gott samstarf og vel unnin
störf í þágu leiklistarinnar á liðn
um árum.
Ég tel víst að margir muni
gleðja Jón á þessum fimmtug-
asta afmælisdegi hans með hlýj-
um kveðjum og heillaskeytum.
— B.J.