Morgunblaðið - 05.05.1959, Blaðsíða 15
Þriðjudagur maí 1959
MORGUNBLAÐIÐ
15
Anna M. Olgeirsdóttir
— kveðja trá ástvinum
Fædd 14. jan. 1904.
Dáin 26. apríl 1959.
Hinzta kveðja frá ástvinum.
Blessuð minning björt og fögur,
brosir nú sem vor-sól heið,
ofar liðnum æfidegi,
yfir glæstri þroska leið.
Göfug kona, gullið stærsta
geymdir trú í hjartans sjóð,
ávöxt þess í orði og verki,
öðrum veittir mild og góð.
Ung þú stórar fórnir færðir
fyrir þína vini hér,
dugur þinn og dáð í verki
dæmi öðrum fagurt er.
Kærleikurinn heiti og hreini
hann var ljós í þinni sál,
veita, gleðja, verma og hugga,
var þitt æðsta hjartans mál.
Hann, sem ástar helgumböndum
hér í æsku tengdist þér,
átti með þér unað lífsins,
engan sem á skugga ber.
Hans við hlið í stóru starfi
stóðust traust og rík af ást,
honum sönn að hinzta degi,
heilladís, er aldrei brást.
f samleik varstu mikil móðir,
milda og hlýja höndin þín,
allt í kærleik færði að fórnum,
farsæl leysti hlutverk sín.
Ljúf á kyrrum kvöldsins
stundum,
kenndir göfug, barnsins sál,
hjartans íþrótt himni vígða,
hreint og fagurt bænarmál.
Bjargi í Ytri-Njarðvík. Er ég nú
lít yfir æfi þessarar kæru sam-
ferðakonu, þá finnst mér að hún
hafi átt hamingju að fagna í líf-
inu. Hún bar gæfu til að hljóta
lífsförunaut, sem var af heilum
hug hennar stoð og styrkur,
einnig eignast og koma til
manns 7 mannvænlegum börn-
um þeirra, sem voru henni allt-
af svo mikils virði, og nú að
síðustu, þola og margsigrast á
erfiðum veikindum síðastliðin
10 ár, sem að lokum eftir óskilj-
anlegt þrek lömuðu lífsorku
hennar, og leiddu hana til dauða.
Anna var mjög félagslynd kona,
og stóð framarlega í mörgum fé-
lagssamtökum, þótti hennar sæti
jafnan vel skipað. —
Anna — fyrir hönd Kvenfé-
lagsins Njarðvík, þar sem þú
sast í formannssæti á annað ár,
og veiktist frá því starfi, svo og
í stjórn frá stofnun þess vil ég
nú flytja þér margfaldar þakkir
fyrir öll störf þín þar, unnin af
heilum hug, og þínum næma fé-
lagsskilningi. Við félagskonurn-
ar hörmum nú að þú skulir vera
horfin sjónum okkar, en hugur
okkar fylgir þér gegnum móð-
una miklu inn í hin eilífu ljóss-
ins lönd.
Vertu sæl vina, Guð styrki
anda þinn í þínum nýju heim-
kynnum á meðal þinna áður
horfnu ástvina.
Guð blessi eiginmann þinn,
börn ykkar og aðra ástvini, hann
gefi þeim skilning og styrk til
þess að yfirstíga hinn mikla
skugga, ég sendi þeim öllum mín
ar innilegustu samúðarkveðjur.
S. M.
I BUÐ
3—5 herbergja íbúð óskast. Upplýsingar í síma
5. maí skemmfun
1 kvöld verður haldin 5. maí skemmtun í Sjálfstæðis-
húsinu.
Kabarett og dans tii kl. 1.
Miðasala við innganginn.
Foreningen Dannebrog.
3jo herb. íbúð
mjög vel útlítandi, til sölu í Vesturbænum. íbúðin er
á fyrstu hæð með svölum. Hitaveita. Rúmgóðar
geymslur.
STEINN JÓNSSON, hdl.
lögfræðiskrifstofa — fasteignasala
Kirkjuhvoli símar 14951 — 19090
Hæð ú Melunum
Nýtízku 4ra herb. íbúðarhæð, ásamt 3 góðum herb.
og 2 litlum í risi við Hagamel til sölu. Sérinngangur
í risið. Sérhitaveita. Bílskúrsréttindi. Ræktuð lóð.
STEINN JÓNSSON, hdl.
lögfræðiskrifstofa — fasteignasala
Kirkjuhvoli símar 14951 — 19090
Alltaf gaztu í önnum dagsins
átt með þínum börnum stund,
til að glæða hið góða og sanna
gleðja og verma þeirra lund.
Hetja sönn í sjúkdómsraunum
sendir öðrum styrk og þor.
Guð í hjarta, guð í starfi
gjörði líf þitt fagurt vor.
Þú varst ljós og leiðarstjarna
lífs á braut, sem fegurst er.
Hjartans þakkir orðum æðri
ástvinirnir færa þér.
Heilög minning hjörtun vermir
hrein og göfug, björt og hlý,
nú er lífsins leiðir skilja,
ljómar gegnum sorgarský.
Kveðja, þökk, og bænir blíðar,
berast upp til himins nú,
öllum vissu um endurfundi,
örugg gefur lífsins trú.
Drottins hönd á ljóssins landi
leiði þig um nýjan stíg.
Guðs í faðm um eilífð alla
ástvinirnir fela þig.
I. J.
*
„Það er svo oft í dauðans
skuggadölum
að dregur myrkur fyrir
lífsins sól“.
JÁ — enn einu sinni hefur
skugga dregið fyrir lífssólina,
eða svo finnst okkur, sem erum
ekki meira en svo fullkomin að
skilningi, er við nú fylgjumst
í hinzta sinn með látinni konu, frú
önnu Olgeirsdóttur, síðasta spöl
inn í þessum jarðneska heimi.
Anna Margrét Olgeirsdóttir
var fædd 14. jan. 1904, að Gríms-
húsi á Hellissandi, en lézt í
sjúkrahúsi Keflavíkur 26. apr.
1959. f dag verða jarðneskar leif
ar hennar jarðsettar að Ingjalds
hóli á Sandi, að aflokinni
kvenðjuathöfn í Keflavíkur-
kirkju.
Ung að árum missti Anna föð-
ur sinn, en mesta þrá og mikil
orka var henni í blóð borin, og
þrátt fyrir erfiðar aðstæður, sem
voru í uppvexi hennar brauzt
hún til mennta af eigin getu og
dvaldi tvo vetur við nám, en
vann fyrir sér á sumrin.
Það er ekki ætlun mín með
þessum fátæklegu orðum að
rekja einstök æfiatriði Önnu,
það gera eflaust aðrir mér fær-
ari.
Árið 1928 hinn 14. apr. giftist
Anna eftirlifandi manni sínum
Karvel ögmundssyni útgerðar-
manni, einnig ættuðum frá Hell-
issandi, bjuggu þau lengst að
13953 kl. 2—4 í dag.
G Ó Ð U R
sumarbústaður
í nágrenni bæjarins óskast til leigu í sumar. Tilboð
merkt: „Góð umgengni — 9630“ skilizt til af-
greiðslu Morgunblaðsins.
SIMI
1-2-3-4-5
FÖT - JAKKAR - BIJXIJR
Mikið úrval
ESTRELLA
NOVIA
MINERVA
AFERÍSKAR
SP0RT
SKYRTUR ENGUSH HATS
H ER R A P E I L I
íbúð til sölu
Góð 4ra herb. risíbúð til sölu. Laus 14. maí. Til
greina kemur að taka 4ra manna bifreið upp í út-
borgun.
EIGNASALAI
• REYKJAVÍK •
Ingólfsstræti 9 B. Sími 19540.
Opið alla virka daga frá kl. 9—7
eftir kl. 8 sími 32410 og 36191
Nýtízku íbúð til sölu
Á II. hæð um 100 ferm. 4 herb. eldhús og bað ásamt
einu herb. í rishæð og geymslu og fl. í kjallara í
sambyggingu við Kleppsveg. Svalir móti suðri. Hæðin
er innréttuð með harðviðarhurðum og harðviðarkörm
um.
IXIýja fasteignasalan
Bankastræti 7. Sími 24300
og kl. 7,30—8,30 e.h. 18546.
A
SKYRTUR
DOUBLE TWO — ENSKAK
Strauning óþörf
Auka flibbi
SÍMI
1-2-3-4-5
HERRADEILD
rramhaldsaðalfundur
í húseigendafélagi Reykjavíkur
verður haldinn í Skátaheimilinu við Snorrabraut,
föstudaginn 8. maí n.k. kl. 8,30 e.h.
Fundarefni:
Stjórnarkosning o. fl.
Félagsmenn, sem skulda félagsgjöld frá síðastliðnu
ári, svo og nýir félagsmenn, sem óska að mæta á
framhaldsaðalfundi, eru beðnir að gera skil til skrif-
stofu félagsins, Austurstræti 14 III. hæð, fyrir n.k.
föstudagskvöld. Inntökubeiðnum og félagsgjöldum er
veitt móttaka í skrifstofu félagsins virka daga kl. 1
til 7 síðdegis.
•' 'lagsstjórnin