Morgunblaðið - 05.05.1959, Blaðsíða 22
22
MORGVHBLAÐIE
Þriðjudagur 5. maí 1959
Guðmundur Gíslason setti enn
3 ísl. met á sunnudaginn
Hann vann 5 beztu afrekin á Sund-
meistaramóti ísl.
'Á SUNNUDAGINN lauk Sund-
meistaramóti Islands með keppni
í 1500 m skriðsundi karla. Kórón-
aði Guðmundur Gíslason ÍR þá
j glæsileg afrek sín á þessu móti
með því að bæta ísl. metið í 1500
m um 24 sekúndur og er hið nýja
imet hans annað bezta 1500 m met-
i ið á Norðurlöndum — aðeins hið
‘ sænska er betra, Guðmundur setti
)í sama sundi met í 800 m skrið-
jsundi og á 1000 metrum. Afrek
Guðmundar í 1000 og 1500 m eru
; svo góð, að þau koma inn í röð
hans beztu afreka á mótinu, svo
{að hann hefur unnið 5 beztu af-
rekin á þessu móti — og má því
l enn segja að hann sé vel að For-
I setabikarnum kominn.
Guðmundur Gíslason
Keppendur í 1500 m sundinu
voru tveir, Guðmundur og Pétur
Kristjánsson Á. Pétur hætti sund-
inu eftir 400 metra og Guðmund-
ur synti einn eftir það. Sund hans
var ákaflega jafnt, en þó má full-
yrða að hann hafi ekki vitað hve
mikið hann mátti bjóða sér, enda
hefur hann sjaldan keppt í 1500
Bikarkeppnin:
! metrum. Átti hann mikið eftir
og synti síðustu leiðina „á fullri
ferð“ og hefði án efa getað náð
betri tíma með jafnhraðara sundi.
En Guðmundur er aðeins 17 ára
og á því vonandi enn eftir mörg
1500 metra sund og þá þarf ekki
að efast um að hann nær betri
tímum.
Tími Guðmundar á 800 m, 1000
og 1500 metrum voru ný met. Öll
gömlu metin átti Helgi Sigurðs-
son Ægi. Hin nýju met eru (og
þau gömlu í svigum) 800 metrar
10:10,2 (10,26,9 mín) 1000 metrar
12:48,6 (13:09,2 mín) og 1500 m
19:273 (19:51,4).
öll eru hin nýju met Guðmund-
ar hin glæsilegustu eins og sjá
má af því hversu mikið hann bæt-
ir gömlu metin.
Með þessu sundi lauk Sund-
meistaramóti fslands. Guðmundur
hefur orðið meistari í 5 greinum
og auk þess í 4x200 m boðsundi
í sveit ÍR. Meistarastigin hafa
fallið þannig, að ÍR hefur hlotið
7 meistarastig, Ármann 3, fþrótta
bandalag Akraness 2 og KR 1. f
unglingasundunum hlaut ÍR 2
meistarastig, Sundfél. Hafnar-
fjarðar, KR og Á eitt hvert.
Hraðkeppni í handknattleik:
FH vann í karlaflokki KR
sigraði í kvennaflokki
UM helgina fór fram hraðkeppni
í handknattleik með mikilli þátt-
töku, m.a. þýzka lögreglumanna-
liðsins frá Hamborg, sem hér
dvelst á vegum Ármanns. Lauk
keppninni á sunnudagskvöld og
báru FH-menn sigur úr býtum í
karlaflokki en KR sigraði í
kvennaflokki.
Hin óvæntu úrslit létu ekki á
sér standa er keppni karlaflokks
hófst. Reykjavíkurmeistarar KR
voru „slegnir út“ af liði Ármanns.
Kom þetta mjög á óvart — en á-
stæðuna er sennilega helzt að
rekja til þess að í marki KR stóð
vara-varamarkmaður.
í fyrstu umferðinni var lið ÍR
einnig,, slegið út“ af Valsmönnum
sem áttu ágætan leik og vakti þó
mesta athygli leikur Sólmundar
Jónssonar í marki Vals.
Þýzka liðið varð að beita sér
gegn liði Aftureldingar og vann
með tveggja marka mun. Mjög
jafn varð leikur Víkings og Fram
og það var ekki fyrr en á síðustu
sekundum að Fram tryggði sér
sigurinn á heldur tilviljanakennd
an hátt. Var Víkingum dæmd víta
kast á Fram. Knötturinn fór í
markstöng og skoppaði fram gólf-
ið, þar náði Fram-maður knettin-
um og fékk skorað hjá Víking. Og
þar með var leiktíminn úti.
Það voru því Þjóðverjar, Ár-
mann, Valur og FH sem sigraði
Þrótt auðveldlega sem komust í
úrslit, ásamt Keflavík, sem sat
yfir.
Á sunnudagskvöldið voru úrslit
in. Þá gerðu Valsmenn sér lítið
fyrir og sigruðu Þjóðverjana auð-
veldlega og þar með voru Þjóð-
verjarnir úr keppninni. Fram sigr
aði Keflavík auðveldlega, og FH
„sló“ Ármann út.
Mættust nú Valur og Fram og
fóru Fram-menn með öruggan sig
ur af hólmi, enda náðu Valsmenn
ekki þeim góða leik sem þeir
sýndu gegn ÍR og Þjóðverjunum.
f úrslitaleik mættust svo ís-
landsmeistarar FH og lið Fram
sem féll í 2 .deild á nýloknu fs-
landsmóti. Framan af var það
jöfn viðureign, en síðan náðu
FH-menn yfirburðum 1 leik og
sigruðu með 7:3.
í kvennaflokknum báru lið KR
og Ármanns ægishjálm yfir önnur
lið. Er þau mættust varð um
harða og tvísýna keppni að ræða
sem einkenndist þó um of af
taugaóstyrkleik. KR stúlkurnar
fóru enn með sigur af hólmi með
2 marka mun, en jöfn eru þessi
tvö beztu kyennalið landsins.
Hraðkeppnin bauð því upp á
mjög óvænt úrslit í karlaflokkn-
um og sýndi hve tilviljanakennd
úrslit slíkra „hraðleikja" geta
verið. En þetta keppnisfyrirkomu
lag er vinsælt víða, enda standa
liðin þá jöfn að vígi í stuttan
leiktíma, þó annars skilji þau
breitt bil — og t.d. mætti ráða af
úrslitum leikja í íslandsmótinu
nýafstaðna.
Nottingham Forest sigr
aði Luton 2:1
Lék með 10 mönnum i 55 min.
J. Lárusson „glímu
Islands" í 7. sinn
tÍRSLITALEIKUR bikarkeppn-
innar fór fram sl. laugardag á
Wembley-leikvanginum í London
og léku til úrslita Luton Town og
Nottingham Forest fyrir 100 þús-
| und áhorfendum. Nottingham
sigraði með tveimur mörkum
gegn einu. Enn einu sinni var út-
islitaleikurinn knattspyrnuunn-
endum til vonbrigða, en ekki af
)Jjví að leikmenn Nottingham For
lest sýndu ekki góða knattspyrnu,
íheldur vegna meiðsla eins bezta
jleikmanns sigurvegaranna. f bik-
arkeppninni má ekki nota vara-
imenn í stað þeirra sem slasast.
) Strax í upphafi leiks náðu leik-
i menn N. F. góðum tökum á leikn-
I um og á 9. mín. skauzt v. útherj-
í inn Stuart Imlach upp kantinn
með knöttinn, lék á v. bakvörð
iiiutons, McNally, stormaði með
1 knöttinn upp að markalínu og
sendi hann fyrir markið og um
’leið aftur, beint fyrir fætur
i Dwights, h. útherja, sem skaut
j glæsilega í vinstra hornið. Bayn-
| ham markvörður Luton, sem var
i bezti maður liðsins í þessum
) leik átti enga möguleika að verja.
I I’imm mínútum síðar kom annað
) markið, v. innherjinn Billy Gray
, sendi knöttinn laglega til mið-
) herjans Wilsons, sem skallaði
j mjög fallega í mark. Þar sem að-
eins 15 mínútur voru af leik og
staðan 2—0, leit helzt út fyrir
að Forest myndu vinna stórsigur,
enda léku leikmenn Nottinghams
mjög vel um þessar mundir.
Framverðirnir, réðu lögum og
lofum, aðstoðuðu framherjana
vel og allt lék í lyndi. En á 33.
; mín. skeði óhappið, Roy Dwight,
— sem hafði átt mjög góðan leik
fram til þessa — og v. bakvörður
Lutons, Brendan McNally skullu
saman með þeim afleiðingum að
Dwight fótbrotnaði og var borinn
út af vellinum.
Jafnvel eftir að leikmenn N. F.
voru orðnir 10, léku þeir oft
í skemmtilega sóknarknattspyrnu
Iog mark Lutons komst í hættu
í nokkur skipti það sem eftir var
fyrri hálfleiks.
í seinni hálfleik virtist Luton
)Há meiri tökum á leiknum, en þó
náði framlínan aldrei saman svo
heitið gæti. Eftir að framvörður-
inn Pacey skoraði fyrir Luton á
62. mín fóru leikmenn Notting-
ham Forest að gefa sig og meira
bar á fumkenndum spyrnum og
mark þeirra komst oft í hættu,
sérstaklega þegar h. innherjinn
Alan Brown skallaði utan á
stöng á stuttu færi. Nottingham
Forest tókst að halda markinu
hreinu og eru vel að sigrinum
komnir. Forest hefur einu sinni
áður unnið bikarkeppnina, en þá
var „öldin önnur" nefnilega árið
1898, er félagið sigraði Derby
County 3—1. Luton Town hefur
aldrei áður náð svo langt í keppn
inni.
From vann Vík-
ing 7 gegn 0
Á S'unnudaginn var Reykjavikur-
mótinu í knattspyrnu haldið á-
fram og léku þá Fram og Vík-
ingur. Leikar fóru svo að Fram
vann með 7 mörkum gegn engu.
Þetta var fyrsti leikur Fram í
ár og má með sanni segja að vel
sé af stað farið hjá félaginu. Átti
liðið á köflum ágætan leik og
var vel að þessum sigri sínum
komið. í hálfleik stóðu leikar 4
gegn engu.
Nú hafa öll Reykjavíkurliðin
komið fram í mótinu. Ekki bend-
ir fyrsta umferðin til að bylting
verði í knattspyrnuíþróttinni hjá
okkur í ár, en alllífleg er þó byrj-
unin hjá sumum félaganna. Víst
má telja að baráttan um sigurinn
í þessu móti verði jafnari en t. d.
í fyrra og eftir fyrstu umferð-
inni koma þrjú lið sterklega til
greina til sigurs, Fram, KR og
Valur. Hins vegar hefur reynzlan
kennt, að ekki skuli um of tekið
mark á fyrstu leikjum félaganna,
og því ber að taka alla spádóma
varlega um sinn.
Armann
kóngur
S.L. sunnudag, hinn 3. maí, var
háð í íþróttahúsinu að Háloga-
landi 49. Íslandsglíman. Skráðir
voru níu keppendur en sjö mættu
til leik frá tveim félögum, Glímu
félaginu Ármanni og Ungmenna-
félagi Reykjavíkur. Vegna inflú-
enzufaraldurs þess er nú geng-
ur varð þátttaka minni en annars
hefði orðið og eins af þeim sök-
um mættu ekki allir til leiks er
skráðir voru. Forseti íþróttasam-
bands íslands, Benedikt G.
Waage, setti mótið með stuttri
ræðu. — Úrslit urðu þau, að Ár-
mann J. Lárusson, U.M.F.R., varð
Glímukóngur íslands 1959. Lagði
hann alla keppinauta sína. Annar
varð bróðir hans, Kristján Heim-
! ir Lárusson, sama félagi, með
fimm vinninga. Þriðji varð Hálf-
dan Jensson, einnig frá U.M.F.R.,
með þrjá vinninga. IV.—VI. urðu
þeir Gunnar Pétursson,. UMFR,
Hannes Þorkelsson, UMFR, og
Sigmundur Ásmundsson, Ár-
manni allir með tvo vinninga. —
Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ,
afhenti glímukónginum Grettis-
beltið, sem keppt er um á hverri
Íslandsglímu, svö og afhenti
hann verðlaunapeninga I., II. og
III. manni. Benedikt G. Waage,
sleit síðan mótinu með nokkrum
orðum. Sagði hann, að þetta væri
AUSTURRÍSKI skíðagarpurinn
Egon Zimmertmann hefir undan-
farna daga æft skíðamenn í Skála
felli. Dvalizt var í KR-skálanum.
Á sunnudaginn var æfingamót í
svigi, hliðin voru 40, veður var
hagstætt og færi gott. Úrslit urðu
sem hér segir:
1. Jóhann Vilbergsson, Siglufirði
(36 + 35,3=71,3)
2. Guðni Sigfússon IR
(37 + 37,7=74,7).
í sjöunda sinn sem Ármann J.
Lárusson ynni Grettsibeltið, og
hefði enginn unnið það jafn oft
til þessa. Hafði hann unnið beltið
fyrst 1952 og aftur 1954 og síðan.
Mótið fór hið bezta fram í alla
staði en áhorfendur voru nokkuð
fáir. Glímustjóri var Guðmundur
Keflvíkmgar
<7
sigruðu
Akiirnesinga
AKRANESI, 4. maí. — Bæjar-
keppni í sundi milli Keflavíkur
og Akraness hér í Bjarnarlaug
lauk þannig, að Keflvíkingar
sigruðu Akurnesinga í fimmta
sinni og hlutu hinn fagra bikar
til fullrar eignar. Bikarinn gaf á
sínum tíma Sundfélag Akra-
ness.
Fararstjóri Keflvíkinganna,
Guðmundur Ingólfsson, lýsti því
yfir að Keflvíkingar mundu gefa
nýjan bikar til að keppa um
næsta ár. Næsta bæjarkeppni
verður háð í Keflavík að ári
liðnu. Núna hlutu Keflvíkingar
48 stig og Akurnesingar 40 stig.
— Oddur.
3. Valdimar Örnólfsson lR
(37,9 + 37,5=75,4).
4. Sigurður R. Guðjónsson Á
(39,5 + 39,3=78,8).
5. Ásgeir Úlfars90n KR
(40 + 40=80).
6. Leifur Gíslason KR
.vv—
(41 + 40,2=81,2).
Ennfremur var keppt í drengja
flikki. Þar varð fyrstur Einar
Gunnlaugsson KR (31.6+31,1=
62,7).
Ágústsson, fyrrverandi glímu-
kóngur (1943—1947), og yfirdóm
ari Ingimundur Guðmundsson,
einnig fyrrverandi „kóngur"
(1939—1940). — Glímufélagið Ár
mann sá um mótið.
Astoíi Villa féll
niður í 2. deild
SÍÐUSTU leikir deildarkeppninn
ar voru leiknir í sl. viku. 1 1.
deild sigraði Manohester City
Leicester City 3:1, en Aston Villa
gerði jafntefli við West Brom-
widh 1:1. Aston Villa, sem hlaut
30 stig hefur fallið niður í2.deild
og leikur ásamt Portsmouth í
þeirri deild næsta tímahil. Manch-
e9ter City hlaut 31 stig og Leioesí
er City 32. Sheffield Welneslay og
Fuiham flytjast i staðinn upp í 1.
deild, en niður í 3. leild falla
Barnsley og Grimsby Town.
Aflafréttir
NESKAUPSTAÐ, 2. m«.. =
Hólmanes, útilegubátur hrað-
frystihússins á Eskifirði, landaði
þar rúmum 50 tonnum í fyrra-
dag. Hefur báturinn þá fengið
4550 tonn af slægðum fiski á
rúmum 2 mánuðum. Togarinn
Austfirðingur hefur landað fyrir
nokkru á Eskifirði um 80 tonn-
um og batnaði atvinnuástandið
þar talsvert við þessar fiskland-
anir.
Vélbáturinn Reynir fékk í síð-
ustu viku 100 skippund af væn-
um þorski í tveim veiðiferðum
á Langanesmið. Aflinn fékkst í
net. Togarinn Gerpir landaði síð-
asta vetrardag 174 tonnum af ís-
fiski af A-Grænlandsmiðum.
Nýja togskipið Hafþór landaði
25. apríl 74 tonnum af Norður-
landsmiðum. Bæði skipin eru nú
á veiðóum og hefur frétzt um dá-
góðan afla hjá Gerpi, 80 tonn
eftir tvo daga. Nokkur bátafisk-
ur er farinn að berast.
— Fréttaritari.
Jóhann Vilbergsson vann
í œfingamóti skíðamanna