Morgunblaðið - 05.05.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.05.1959, Blaðsíða 24
VEORIÐ NA-stinningskaldi, lygnandi í dag. 200. árfíð Thorkellíis Sjá bls. 13 99. tbl. — Þriðjudagur 5. maí 1959 Vorhret gengur yfir Norður- og Austuriand Blindhrið á Siglufirði i gær 1 GÆR var heldur ömurlegt um að litast víða á Norður- og Aust- urlandi, er menn komu á fætur. Var kominn hríðargarður, 4—6 vindstig, 5 stiga frost og snjó- koma á annesjum, frá Ísafjarðar- djúpi, austur og suður um land, alla leið í Hornafjörð, en vindur var hægari á Austurlandi. Náði þetta veður víða til innsveita, en var mildara þar. Á Akureyri og ísafirði var alhvít jörð í gær- morgun, en litið eða ekkert frost. ★ Fréttaritari blaðsins á Siglu- firði símaði í gær: Þegar Siglfirðingar risu úr rekkju í morgun, blasti við þeim ömurleg sjón, vetrarríki sem væri á miðjum þorra. Harrison ætlar að selja í dag MAÐUR nokkur hlustaði á sutt- bylgjunum kvöldið, sem brezki togarinn Lord Montgomery lét úr höfn í Vestmannaeyjum, heyrði hann í Harrison skipstjóra er hann var að tala við brezkt her- skip og aðra togara. Það var þá á Harrison að heyra, að hann myndi hraða för sinni heim til Fleet- wood með fiskinn, sem hann var búinn að fiska, er Ægir tók hann. Hafði skipstjórinn lagt áherzlu á, að frekari tafir á íslandsmið- um myndu hafa hafa það eitt í för með sér, að allur fiskurinn £ lestinni myndi eyðileggjast. í samtalinu bjóst hann við að geta selt í Fleetwood á þriðjudag þ. e. í dag. Það hafði verið á Harrison skip stjóra að heyra, að hann myndi aftur til íslands koma, til að taka út gæzluvarðhaldsdóminr. Hafði honum orðið tíðrætt um málaferlin, og það var á honum að heyra, að herskipið bæri alla ábyrgð á því að hann helði verið tekinn og færður til hafnar í Vest mannaeyjum. Kindurnar dráp- ust úr bráðapestj en voru ekki urðaðar KOMIÐ hefur í Ijós að frásögnin í blaðinu á sunnudag um að kind ur hefðu orðið hungurdauða aust ur í Grímsnesi, mun vera orðum aukin. Kindurnar munu hafa drep ist úr bráðapest, en þær ekki urðaðar og hræin látin liggja, sum nokkra mánuði. Þá mun dýralæknir, sem sendur var af sýslumannsembættinu á Sélfossi, til þess að athuga þetta mál, hafa komizt að þeirri niðursöðu, að ormaveiki væri í fénu og hún á mjög háu stigi. I alla nótt snjóaði nokkuð, Og mikið er kom fram undir morg- un, en þá herti veðrið að sama skapi. Hér hefur verið rok í oll- an dag og blindhríð, svo tæp- lega sér á milli húsa. Frost hefur verið 2—3 stig í al-lan dag. Hef- ur verið ófært veður til útivinnu í dag og bílarnir brjótast áfram eftir götunum með keðjur á hjól- um, en víða eru teknir að mynd- ast miklir snjóskaflar. Er þetta einn versti dagurinn sem komið héfur í yfirstandandi kuldakasti. KÓPAVOGUR SJÁLFSXÆÐISFÉLÖGIN í Kópa vogi efna til sumarfagnaðar í Fé- lagsheimili Kópavogs miðviku- daginn 6. maí. Aðgöngumiðar afhentir í skrif- sofu félaganna Melgerði 1 kl. 19 —22 í kvöld. Valtýr Blöndal látinn í FYRRADAG lézt að heimili sínu hér í bæ Valtýr Blöndal formað- ur bankaráðs Landsbankans. Hafði hann fyrir skömmu fundið til hjartabilunar og verið á sjúkra húsi, en var kominn heim, all- hress, að því er virtist, er hann lézt. Valtýr var fæddur 27. janúar 1896 í Hjörsey á Mýrum, sonur Hannesar Stephensen Gunnlaugs- sonar Blöndal, skálds og banka- ritara í Reykjavík og Soffíu Jóna- tanssonar frá Hjörsey. Hann varð stúdent 1916, og cand. phil í Kaup mannahönf ári síðar. Þá gerðist hann starfsmaður í Landsbank- anum í Reykjavík, en las jafn framt lög við Háskóla íslands og tók lögfræðipróf þar 1925. Full- trúi í lögfræðideild Landsbank- ans var hann 1925—1938, er hann var skipaður bankastjóri við Út- vegsbanka fslands. Af því starfi lét hann í júní 1957, og hefur síð- an verið formaður bankaráðs Landsbankans. Þetta kuldakast orsakast af lægð, sem gekk suðaustur yfir landið, en það er heldur óvenju- legt. Lítur út fyrir nokkuð þrá- láta norðanátt, sem væntanlega mildast þó fljótlega, þar eð farið er að hlýna norðurfrá og mild- ara loft væntanlegt þaðan. Á Suðurlandi var víða 4 stiga hiti í gær, en éljadrög í fjöllum. Fréttaritari blaðsins á Akranesi sagði, að þar hefði verið hélað á vatni á sunnudaginn, og snjó- að niður í miðjar hlíðar í fjöll- um aðfaranótt mánudags. Kalt og gróðurlítið í N.-ís. ÞÚFUM, N-ís., 4. maí. — Veðrátt- an er alltaf köld, gróðri fer ekk- ert fram. Óvíða er farið að sleppa geldfénaði. Ær eru alls staðar í húsi við gjöf. Annars er snjólaust að kalla í byggð. Von er að við- gerð á vegum byrji um miðjan mánuðinn. — P. P. Kjördæmamáiinu vís- aðtil nefndarí Efrideiid FYRSTA umræða um kjördæmafrumvarpið hélt áfram í Efri deild Alþingis í gær. Hófst fundur í deildinni kl. 1,30 og stóð hann til kl. 4. Var fyrstu umræðu um málið þá lokið. Var samþykkt að vísa málinu til 2. umræðu með 8 atkv. gegn 4. Ennfremur var samþykkt með samhljóða atkvæðum að vísa málinu til sér- stakrar stjórnarskrárnefndar, sem kjörin var á fundinum og í eiga sæti fimm þingmenn. I nefndina voru kosnir þeir Gunnar Xhoroddsen, Eggert Þorsteinsson, Björn Jónsson, Ilermann Jónas- son og Karl Kristjánsson. Frá umræðunum í gær. í umræðunum í gær tók Sig- urður Bjarnason, þingmaður Norður-ísfirðinga, fyrstur til máls. Rakti hann sögu þeirra breytinga, sem gerðar hafa verið á kjördæmaskipun og kosninga- tilhögun hér á landi allt frá því að Alþingi var endurreist árið 1845. Ennfremur gerði hann sér- staklega grein fyrir þróun hlut- fallskosninga hér á landi. Síðan svaraði hann ræðu þeirri, sem Hermann Jónasson flutti í Efri deild síðastliðinn laugardag. Ræðu Sigurðar Bjarnasonar, sem var hin ýtarlegasta, verður nánar getið hér í blaðinu síðar. Páll Zophaníasson fyrri þing- maður Norð-Mýlinga, talaði næstur og ræddi aðallega um nauðsyn þess, að sérstakt stjórn- lagaþing fjallaði um endurskoð- un stjórnarskrárinnar í heild. Síðastur talaði Karl Kristjáns- son, þingmaður Suður-Þingey- inga, sem fyrst og fremst gerði störf stjórnarskrárnefndar að umtalsefni. Forstjórarnir í verkalýðsforingjagerfi sáust hvergi Kommúnistarnir i Neskaupstoð gleymdu 7. mai NESKAUPSTAÐ, 2. maí. — Móð- ir náttúra skartaði sínu fegursta til að fagna hátíð verkalýðsins 1. maí. Norðfirzkir verkamenn og aðrir gengu niður á torg og litu í glugga Pöntunarfélags alþýðu, þar sem venjulega getur að líta stórar auglýsingar um hátíðahöld dagsins. En viti menn, þar sást engin auglýsing um að þessi dag- ur væri neitt frábrugðinn öðrum drottins dögum ,engin tilkynning um hvenær kröfuganga hæfist eða hver myndi ávarpa á fólkið á hátíðisdegi þess á útifundi á torg- inu. Þeir, sem fram að þessu höfðu haldið að þeir byggju í ríki verka lýðsins og borg kommúnisma, urðu ráðvilltir og hugsuðu: Hvar eru okkar ástsælu kommúnisku verklýðsforingjar? Hví hafa þeir yfirgefið okkur á hátíðisdegi verkalýðsins? Hátíðisdags verka lýðsins var nefnilega alls ekki minnzt á neinn hátt hér í Nes- kaupstað í fyrsta skipti í áratugi. Norðfirðingar máttu skemmta sér við að hlýða á hálftíma lestur auglýsinga útvarpsins um hátíða- höld og kröfugöngur hvaðanæfa að af öllu landinu nema frá Nes- kaupstað. Hvað veldur? Kannske kommúnistar vilji gera hátíðis- dag verklýðsins eingöngu að há- tíð heimilanna, einskonar jólum? Ef til vill óska forstjórarnir, sem telja sig vera foringja verk- Aflinn í Sandgerði 1600 fonnum meiri en í fyrra Inflúenzan ekki enn írenun BLAÐIÐ spurðist í gær fyrir um það í skrifstofu borgarlæknis, hvort farið væri að bera á því að inflúenzan væri í rénun í bæn- um. Svo mun ekki vera. Aftur á móti er ekki hægt að segja neitt um það hvort flensufarald- urinn hefur náð hámarki. í skólana vantaði í síðustu viku 20—25% af börnunum, og munu veikindaforföll álíka mikil enn. Hefur flensan gengið mjög mis- jafnt yfir í bekkjunum, í suma vantar helming nemenda, en allir verið mættir í öðrum. Inflúenzan virðist yfirleitt taka börnin í efri bekkjnum fyrst, en nú orðið vantar meira í efri bekkina. Ekki hefur til þess komið að loka þyrfti skólunum af völdum inflúenz- unnar, þar eð ekki hefur vantað í heila bekki. SANDGERÐI, 2. maí. — Gæftir í Sandgerði voru í betra lagi seinni helming aprílmánaðar. Á tímabilinu 15.—30. apríl voru al- mennt farnir 10—13 róðrar á bát. Alls fóru 19 bátar á þessu tímabili 210 róðra og nam heild- arafli þeirra á tímanum 2540 tonnum. Mestan afla í róðri hafði Rafn- kell 54 tonn, þá Særún 49 tonn og þriðji Muninn 35 tonn. Hæst- an heildarafla þetta tímabil hafði Víðir II 242 tonn, annar Særún 228 tonn og þriðji Rafnkell með 204 tonn. Það sem af er vertíðinni eru eftirtaldir bátar hæstir: 1. Víðir II með 865 tonn 2. Rafnkell með 810 tonn 3. Pétur Jónsson 717 tonn AKUREYRI, 4. maí. — 1. maí hátíðahöldin byrjuðu hér á Ak- ^ ureyri kl. 2 við Verkalýðshúsið. | Ágætt veður var, en nokkuð kalt. Jón Ingimarsson setti hátíðina, en ávörp fluttu Jón Rögnvalds- son, Haukur Haraldsson og Björn Jónsson. Síðan var farið í kröfu- göngu og lék Lúðrasveit Akur- eyrar fyrir henni. Barnaskemmt- uri var í Alþýðuhúsinu síðdegis og dansleikur um kvöldið. — Afli á þessari vertíð í Sand- gerði nemur nú samtals 10,416 tonnum í 1142 róðrum, en var á sama tíma í fyrra 8,810 tonn í 1203 róðrum. Hafa Sandgerðis- bátar því fiskað um 1600 tonn- um meira en á sama tíma í fyrra. lýðsins, ekki eftir því að sagan frá 1 .maí 1957 endurtaki sig. Þá flutti eini forustumaður þeirra, sem ennþá er í verkamannastétt, ávarp, sem þeir eru sjálfsagt ekki búnir að gleyma. Hann sagði m.a.: Hér koma fram og halda langar lofræður forstjórar, bæjarstjórar og allt niður í ráðherra. Allt fjas um kjarnorku, flugskeyti, Rússa og Bandaríkjamenn er út í loftið og þessum degi verkamanna óvið- komandi .... „Það var hér áður, verkamenn, að verkalýðsfélagið hér var öflugt, mikil og lifandi starfsemi. Fundirnir voru svo vel sóttir að hvergi fékkst nægilegt húsrými til þess að hýsa 'allan mannskapinn. En hvernig er það núna, verkamenn? Höfum við ekki lengur neitt til þess að berj. ast fyrir....Á síðasta aðalfundi mættu, segi og skrifa 12 sálir, þar af nokkrir forstjórar“. Hvað sem um þetta má segja, þá urðu Norðfirðingar fegnir að fá að njóta hins almenna frídags, án þess að þurfa að heyra for- stjórana í verklýðsforingjagerfi, þylja sínar venjulegu ræður á þessum degi. Tómahljóðið, sem í mál þeirra er komið, er svo ósköp lítið skemmtilegt áheyrnar. Það var sem sagt almennur frí- dagur í Neskaupstað 1. maí 1959. — Einnig frí frá ræðuhöldum kommúnista. — Fréttaritari. Mlkil síld við Suðvesinrknd Tilraun til oð veiba hana i hringnót AKRANESI, 4. maí. — Vélbát- urinn Bjarni Jóhannesson lig-gur nú hér við hafnargarðinn með hringnót, hringnótabát, og síldar háfa reiðubúinn að fara suður í Grindavíkursjó, til þess að snurpa síld undir eins og norðan- belginginn lægir. Þessa tilraun á að gera vegna síldarfrétta, sem borizt hafa frá áhöfn síldarbát- anna undanfarna 3 daga. Skip- stjóri á bátnum er Björn H. Björnsson. í fyrradag fundust miklar „lóðningar" í Grindavíkursjó, utan af 30 faðma dýpi og nærri því upp í land. Ekki óð síldin beinlínis, en síldartorfurnar voru ein iðandi kös og mældust eins og veggur frá kili og niður í botn. Aftur á móti sýndu lóðningar í Merki voru seld á götunum til styrktar byggingu félagsheimilis gærkvöldi að síldin var dreifðari. I verkalýðsins. — Mag. | Snurpunótatilraun þessi er gerð fyrir frumkvæði ’ Sturlaugs Böðvarssonar, útgerðarmanns. ★ ★ Síldarbátarnir eru nú búnir að fá hátt á fjórða hundrað tunnur í tveimur lögnum. Komu báðir inn á sunnudaginn. Fékk Sveinn Guðmundsson þá 165 tunnur og Svanur 120. Nú fengu síldarbátarnir aftur síld í nótt, 75 tunnur báðir til samans. Síldin er stór, en mögur og er fryst til útflutnings. Sagt er að síld muni nú vera á öllu svæðinu frá Vestmannaeyj um að Snæfellsnesi, ef að svo reyndist er líklegt að bátarnir bíði ekki boðanna og fari á veið- ar undir eins og þorkaflinn minnkar, því nú orðið virðist vera nægur markaður fyrir vor- síldina. — Oddur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.