Morgunblaðið - 06.05.1959, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ
Vaxandi SA-átt — rigning
100. tbl. — Miðvikudagur 6. maí 1959
Kjördœmamálið
Sjá bls. 13
Togarirm farirm heim
Alhert elti hann 100 milur út
EINS og kunnugt er af fregn-
um, stóð varðskiptið Albert
brezka togarann Ashanti að ólög
legum veiðum næstum 9 sjómílur
innan fiskveiðitakmarkanna 29.
f.m. eða fyrir tæpri viku síðan.
Brezkt herskip hindraði frekari
aðgerðir þá, en lofaði að leita
nánari fyrirmæla frá yfirboður-
um sínum. Síðan hefur varðskip
ið ætíð fylgt togaranum og her-
inu. Rétt fyrir hádegi í dag barst
loksins svar herskipsins, er var
á þá leið að eigendur Ashanti
hefðu fyrirskipað honum að
halda til Englands, og setti hann
þegar á ferð út. Fylgdi varðskip-
14 fyrir innan —
50 fyrir ntan
ið Albert honum eftir um 100 sjó
mílur á haf út, en herskipið Bar-
rosa fór með og hindraði frekari
aðgerðir. Var þessu mótmælt af
varðskipinu, og er málið nú í
höndum ríkisstjórnarinnar.
þeirra.
Gunnar á Bergs-
skála látinn
ÞANN 30. f.m. andaðist í sjúkra-
húsinu á Sauðárkróki, Gunnar
Einarsson, bóndi á Bergskála á
Skaga, mjög kunnur hagyrðing-
ur og ágæt refaskytta. Hann var
barnakennari sveitarinnar í fjölda
mörg ár og mikil eftirsjá að hon-
um fyrir sveit hans og héraðið.
Kona hans, Halldóra Traustadótt
ir, lifir mann sinn ásamt börnum
SEM stendur halda 4 brezk her-
skip uppi gæzlu á 3 svæðum til
ólöglegra veiða fyrir brezka tog-
ara. Eitt þeirra er út af miðjum
Vestfjörðum, en hin 2 fyrir Suð-
austurlandi, á svæðinu frá Ing-
ólfshöfða að Papey. Á Vestfjarð-
arsvæðinu voru í morgun 6 tog-
arar fyrir innan fiskveiðitakmörk
in og 8 fyrir utan og síðari hluta
dags var 1 fyrir innan við Ingólfs
höfða og 7 út af Lónsbug. Á sama
svæði fyrir Suðausturlandi voru
hins vegar 42 brezkir togarar að
veiðum fyrir utan fiskveiðitak-
mörkin. Frá 2. þ.m. hafa engir
brezkir togarar verið að veiðum
á Selvogsgrunni eða öðrum mið-
um við Suðvesturland.
Þór skaut og
togarinn ílúði
30. APRÍL s.I. kom varðskipið
Þór að brezka togaranum
Arctic Viking, sem var ein-
skipa að ólöglegum veiðum 6
jrjómílur innan takmarkanna
suður af Reykjanesi. Gaf varð
skipið togaranum stöðvunar-
merki m.a. skaut það nokkr-
um skotum eins og venja er
í slíkum tilfellum, en togar-
inn dró inn vörpu sína sem
bráðast kallaði á aðstoð
brezku herskipanna og setti á
fulla ferð út. Nokkru síðar
kom herskipið Contest á vett-
vang hætti þá eltingaleikur-
inn.
KÓPAVOGUR
Sumarfagnaffur Sjálfstæðis-
manna í Kópavogi er í Félags-
beimili Kópavogs í kvöld kl.
8,30. Dagskrá:
Ávarp: Ólafur Thors
Bingó
Dans
Aðgöngumiðar afhentir í skrif-
stofu félagsins, Melgerði 1, kl.
17—19 í dag.
Vormót að Hellu
SAMBAND ungra Sjálfstæðis-
manna og Fjölnir, FUS í Rangár-
vallasýslu, efna til vormóts að
Hellu laugardaginn 23. maí n. k.
Ingólfur Jónsson alþingismað-
ur mun halda ræðu á mótinu.
Verður vel vandað til skemmti-
atriða, m. a. fluttur leikþáttur og
sunginn einsöngur. Að lokum
verður stiginn dans.
Sjálfstæðisfólk á Suðurlandi er
hvatt til þess að fjölmenna til
mótsins.
Innan v/ð 2 m. voru á milli
herskipsins og varðskipsins
Réttarrannsókn út af glannalegri
siglingu brezka skipsins Contest
AÐ beiðni Landhelgisgæzlunnar,
fór fram í gær fyrir sjódómi
réttarrannsókn út af meintri til-
raun eins af brezku herskipun-
um hér við land, til þess að valda
árekstri milli þess og varðskips-
ins Maríu Júlíu.
Áður en málið var tekið
fyrir hafði lögfræðingi brezka
sendiráðsins hér verið tilkynnt
um málið, en það óskaði eigi
eftir að fultrúi þess mætti við
réttarrannsóknina. Er þetta í
fyrsta skipti sem hér er haldin
réttarrannsókn vegna kæru á
hendur herskipi í brezka flot-
anum.
Bjarni K. Bjarnason, fulltri
borgardómara, var forseti sjó-
dómsins, en meðdómendur þeir
Pétur Björnsson skipstjóri og
Jónas Jónasson skipstjóri.
Atburðirnir þeir er réttar-
rannsókn þessi snýst um gerðust
út af Reykjanesi og á Selvogs-
banka dagana 29. og 30. apríl
síðastliðinn. Hafa blöðin skýrt 1
stórum dráttum frá þeim.
Lárus Þorsteinsson, skipherra
á varðskipinu María Júlía, kom
fyrst fyrir dóminn. Þar gerði
hann grein fyrir fyrstu atrennu
brezka varðskipsins H. M. S.
Contest að varðskipi hans, en
þær sem á eftir fylgdu, voru
allar eins og sú fyrsta. Herskip-
ið kom brunandi á fullri ferð á
eftir hinu litla varðskipi Maríu
Júlíu, dró það skjótlega uppi,
fór fram með stjórnborðshlið
þess í lítilli fjarlægð frá skipinu,
og snarsveigði síðan i veg fyrir
varðskipið. Skipsmenn á M. J.
veittu því eftirtekt, að skipið
dró á eftir sér stálvír og var
hann festur í flotholt eða eitt-
hvað því um líkt stykki. Lárus
skipherra kvaðst hafa gefið skip
un um að hægja ferð skipsins
og sveigja frá varðskipinu, en
það brunaði áfram og var bráð-
lega aftur komið í kjölfar M. J.
Þannig myndaði herskipið nokk-
urs konar herkví. — Skipverjar
á Maríu Júlíu gátu síðar betur
áttað sig á dufli því, er herskip-
ið dró á eftir sér, til þess að
tefja för varðskipsins. Taldi Lár
ur skipherra hér hafa verið um
að ræða tvo tveggja mtr. sívaln-
inga, sem mjókkuðu til beggja
enda, og voru sennilega um 50
sentimetra, þar sem þeir voru
sverastir. Þannig atrennur end-
urtók herskipið í sífellu. Lárus
gat einkum um eitt dæmi þess-
arar glæfrasiglingar herskipsins.
Sagði hann, að herskipið hefði
þá stefnt á skip sitt, og hafi það
eigi sveigt af leið fyrr en árekst-
ur virtist yfirvofandi. Fór her-
skipið þá svo nærri Maríu Júlíu,
að bilið milli skipanna var ekki
yfir 2 metra, sagði Lárus skip-
herra. Gekk sjór vegna frákasts-
ins frá herskipinu inn á þilfar
varðskipsins.
Við réttarrannsóknina skýrði
Lárus skipherra frá því, að það
hefði augljóslega verið tilgang-
urinn með þessum aðgerðum her
skipsins Contest, að hindra það
að María Júlía gæti sinnt
gæzlustörfum á lögbrotasvæðum
brezkra togara, svo og að sigling
skipsins og víraútbúnaðurinn,
sem herskipið dró á eftir sér,
hafi veríð til þess gert, að María
Júlía skyldi sigla á herskipið eða
stálvírinn. Til þess að forðast
árekstra, hafi María Júlía ætíð
þurft að gera sérstakar ráðstaf-
anir. Kvað skipherrann á Maríu
Júlíu hina óforsvaranlegu sigl-
ingu herskipsins hafa varðað við
24.—22.—23. og 28. gr. hinna al-
þjóðlegu siglingareglna.
Lárus skipherra kvaðst t d.
hafa látið skipið reka og leitað
upp undir land, m.a. til þess að
reyna að tryggja öryggi skips og
skipshafnar.
Daginn eftir að þetta gerðist,
hafi María Júlía enn hitt hið
brezka herskip á Selvogsbanka,
og hóf það þá þegar upp aðgerðir
gegn varðskipinu, sem þrátt fyr-
ir erfiðar aðstæður gat rækt
skyldustörf sín og skrifað upp
brezka lögbrotatogara. Síðdegis
þennan dag, eftir að orðaskipti
höfðu fram farið milli skipanna,
hætti brezka herskipið hinum stór
hættulegu aðgerðum sínum gegn
Maríu Júlíu, og hindraði ekki
varðskipið við gæzlustörf eftir
það.
# Selsvörinni
ÞAÐ er hvergi vorlegt á ís-
landi um þessar mundir. —
Nístandi norðan kuldi dag
hvern. Um norðanvert landið
hefur verið snjókoma, en um
það sunnanvert úrkomulaust,
en kalt. Undir húsveggjum í
skrúðgörðum Reykvíkinga má
víða sjá blómstrandi páska-
liljur og önnur falleg vorblóm,
en þau eiga erfiða daga í þess-
ari kuldátíð. Esjan er kulda-
leg og sama máli gegnir þeg-
ar horft er út á Flóann vest-
ur við Selsvör, en þar er þessi
mynd tekin. Ekki eru horfur
á að hlýrri loftstraumar nái
til landsins, a. m. k. ekki í
bráð. (Ljósm. Gunnar Rúnar)
Trúnaðarmannaiundur S.U.S.
ú Akureyri og í Borgurnesi
LAUGARDAGINN 9. maí n.k.
hefur Samband ungra Sjálfstæð-
ismanna boðað til fundar á Akur-
eyri með trúnaðarniönnum sín-
um í Norður- og Suður-Þingeyj-
arsýslu, Eyjafjarðarsýslu og á
Akureyri.
Daginn eftir, sunnudaginn 10.
maí, verður haldin fundur í
Borgarnesi með trúnaðarmönn
um SUS í Mýrarsýslu, Borgar-
fjarðarsýslu, Dalasýslu og Snæ-
fellsness- og Hnappadalssýslu.
Nú þegar hafa verið haldnir
tveir slíkir fundir, að Hellu á
Rangárvöllum 26. apríl og í Ból-
staðarhlíð í Austur-Húnavatns-
sýslu 2. maí.
Til fundarins að Hellu komu
trúnaðarmenn SUS í Árnessýslu,
Rangárvallasýslu og Vestur-
Skaftafellssýslu, og trúnaðar-
menn í Vestur- og Austur-Húna-
vatnssýslu og Skagafjarðarsýslu
sátu fundinn í Bólstaðarhlíð.
Á báðum fundunum tóku marg
ir til máls auk framsögumanna
og var auðheyrt ,að mikill áhugi
ríkir meðal sjálfstæðismanna um
framgang Sjálfstæðisflokksins í
komandi kosningum.
AKRANESI, 4. apríl. — Kvik-
myndin um bandaríska prédik-
arann Billy Graham var sýnd í
Bíóhöllinni hér á laugardags-
kvöldið. Allur aðgangseyrir rann
til íslenzka kristniboðsins í
Konso í Afríku. Oddur.—
Atta vikulegar ferðir fil Hafnar
Sumaráœtlun Flugfélags Islands gengur
í gildi
SUMARÁÆTLUN Flugfélags ís-
lands er nú að ganga í gildi, en
samkvæmt henni verður ferðum
bæði í innanlands og utanlands-
flugi fjölgað smám saman fram
í júní. Þaðan í frá verða viku-
lega 9 ferðir til útlanda með Vis-
count-flugvéium félagsins. Verða
daglegar ferðir til Kaupmanna-
hafnar — og tvær á laugardögum.
Jafnframt daglegar ferðir til
Stóra-Bretlands. Aðrir viðkomu-
staðir verða eins og í fyrra: Glas-
gow, Olsó, Hamborg og Lund-
únir.
Á laugardaginn voru rétt tvö
ár liðin frá því að Viscountflug-
vélarnar komu til landsins. Hafa
þær reynzt mjög vel í hvívetna.
Það telst m.a. til tíðinda, að aldrei
hefur orðið vart bilunar í hreyfl-
um þeirra, ekki einu sinni smá-
bilunar. Þó er hver hreyfill bú-
inn að ganga í um 1,800 stundir.
Þessir hreyflar, sem eru af Rolls-
Royce gerð, eru nú orðnir þraut-
reyndir og láta allir eigendur
Viscount-flugvé'la mjög vel af
þeim.
Á þessum tveimur árum hafa
flutningar á millilandaleiðum
aukizt til muna. Sérlega hefur
vænkast hagurinn á flugleiðinni
Glasgow — Kaupmannahöfn —
Glasgow og eru fyrirsjáanlegir
miklir flutningar þar í sumar.
Skymasterflugvélin Sólfaxi
verður nú í fyrsta sinn reglu-
lega í innanlandsflugi, en Vis-
countflugvélarnar munu einnig
hlaupa þar í skörðin. Mest verð-
ur flogið til Akureyrar í sumar,
daglega kvölds og morgna og
einnig usj miðjan dag þrisvar í
viku. Fjóra daga vikunnar verð-
ur farið tvisvar til Vestmanna-
eyja, en aðra daga einu sinni.
Alla virka daga flogið til ísa-
fjarðar og til Egilsstaða alla daga
nema mánudaga. Alls verður
flogið frá Reykjavík til 20 staða
úti á landi og einnig milli byggð
arlaga fjarri Reykjavík.