Morgunblaðið - 22.05.1959, Side 2
0
MORGTJISRI.AÐIÐ
Föstudagur 22. rnaí 1959
Bæsarstjórn ræðir skiptivinnu á
vörubílavinnu, sem bærinn fram-
kvæmir
Mæðradafjurinn á sunnudaginn
Fátækar mæður njóta góðs af merkjasölunni
A BÆJARSTJ ÓRNARFUNDI í
gær var rætt erindi, sem komið
hafði fram frá Vörubílstjórafé-
laginu „Þróttur" í febrúar, þar
sem farið er fram á að nú verði
tekin upp „skipuleg skiptivinna“
á allri vörubílavinnu, sem Reykja
víkurbær og fyrirtæki hans
kaupa út, milli þeirra félags-
manna „Þróttar", sem skráðir
eru atvinnulausir hverju sinni og
Þrótti sé sköpuð aðstaða til að
fylgjast með skiptingunni.
Alllöng greinargerð fylgdi frá
Þrótti með þessum tilmælum. Er
þar sagt, að á undanförnum ár-
um hafi ríkt alvarlegt atvinnu-
leysi í stétt vörubílstjóra hér í
bæ og sé bæjarráði vel um það
kunnugt, að á undanförnum ár-
um og þá aðallega þann árstíma,
sem þetta sívaxandi atvinnuleysi
er hvað sárast, hafi verið óskað
eftir skiptingu í bæjarvinnunni
og er þess nú farið á leit að hún
verði skiplögð á þann hátt að
félagið „Þróttur" fái að fylgjast
með, hvernig hún er framkvæmd.
Erindi Þróttar var sent stjórn
Ráðningarskrifstofunnar, en hún
ræddi það á þremur fundum og
varð ekki sammála um afgreiðslu
erindisins. Meirihluti stjórnar-
innar tók fram í áliti sínu, að
regla hefði verið undanfarin ár,
að skiptivinna hefði verið fram-
kvæmd í bæjarvinnunni mánuð-
ina nóvember til marz, yfir há-
veturinn, þegar önnur vinna hef-
ur dregizt saman, t.d. byggingar-
vinna. Er talið í álitinu, að mörg
atriði komi til greina, og þá m.a.
það að margir vörubílstjórar,
sem nú eru í bæjarvinnunni hafa
unnið þar 15—20 ár og sumir
lengur. Segir að á stríðsárunum,
þegar setuliðið var hér, hafi ver-
ið erfitt að fá vörubíla í bæjar-
vinnuna, þar sem bílstjórar fengu
margfalt fyrir vinnu hjá setulið-
inu. En þá hafi þeim bílstjórum
sem vildu vera í bæjarvinnunni
verið lofað því, að þeir skyldu
fá fasta vinnu, ef þeir vildu
halda áfram hjá bænum, en það
hafi verið eðlilegt eins og þá var
ástatt. Þá segir, að verkstjórar
séu almennt andvígir algerri
skiptivinnu og telja hana óheppi-
lega og hún trufli vinnuna.
„Þegar nýir bílstjórar komi í
vinnuna séu þeir ókunnugir þeim
störfum sem þeir eigi að vinna
og bílarnir og bílstjórarnir mis-
jafnir. Samhæfni við verkamenn-
ina verður þá ekki nægilega góð
til þess að verkið gangi vel. Þeir
bílstjórar sem nú eru í bæjar-
vinnunni eru öllum verkum kunn
ugir hægt er að nota þá til allrar
vinnu og yfirleitt með góða bíla.
Verkstjórarnir telja sig flestir
ekki geta án þeirra verið“, segir
í álitinu.
í lok álits meirihluta stjórnar
Ráðningarstkrifstofunnar er tal-
ið til upplýsingar fyrir
bæjarráð, að frá áramótum til
15. marz hafi alls 101 vörubíl-
stjóri verið í vinnu hjá bænum
lengri eða skemmri tíma, en yfir-
leitt er fjöldi þeirra um 60, svo
af þessu sé Ijóst að um nokkra
vinnumiðlun hafi verið að ræða.
Einn af stjónendum Ráðningar-
skrifstofunnar vildi láta fallast á
erindi Þróttar.
Þegar málið var svo rætt í bæj-
arráði eftir að Ráðningarskrif-
stofan hafði úm það fjallað, vildu
bæj arfulltrúar Sj álfstæðisflokks-
ins styðjast við álit meirihluta
stjórnar Ráðningarskrifstofunnar
og afgreiða málið samkvæmt því.
Magnús Jóhannesson bftr. (S)
tók til máls á bæjarstjórnarfund
inum í gær og lýsti þeim atrið-
um úr áliti Ráðningarskrifstofu
Reykjavíkurbæjar, sem nefnd
eru hér að ofan. Taldi MJ. að
mjög væri „óeðlilegt“, að taka
upp slíka skiptivinnu, sem
Þróttur" fer fram á nema þá um
hreina atvinnubótavinnu væri
að ræða og væri alltaf hætta á að
sxíkt fordæmi hefði það í för með
sér að önnur stéttarfélög mundu
e.t.v. heimta sams konar rétt og
gæti slík einsdæmi orðið nokkuð
afdrifaríkt. Hann lagði á það
áherzlu, að vinnuskipting væri
tíðkuð um háveturinn og það
væri Ijóst af þeirri bílatölu; sem
væri í vinnu hjá bænum, að mik-
il skipting á vinnu ætti sér stað,
þó hins vegar væri ekki á það
fallizt að hafa skipulagða skipt-
ingu á allri vinnu eins og „Þrótt-
ur“ færi fram á. ,
Einar Ögmundsson bftr. (K)
taldi, að ástæður meirihluta
stjórnar RáðningaTskrifstofunn-
ar og forstjóra hennar, væru
mjög haldlitlar og hefðu t.d.
mjög fáir vörubílstjórar verið í
bæjarvinnu á stríðsárunum, sem
væru þar nú. Taldi hann að mik-
ið ósamræmi væri milli teknanna
hjá vörubifreiðastjórum, þar sem
sumir hefðu e.t.v. brúttótekjur
um og yfir 200 þúsund en aðrir
miklu minna og jafnvel svo lítið
að selja yrði atvinnutæki þeirra
fyrir sköttum.
Björgvin Frederiksen bftr. (S),
spurði þá Einar Ögmundsson,
sem er formaður Þróttar, hvort
það væri rétt að á stöðinni væru
menn, sem ættu fleiri en eina bif-
reið og þegar talað væri um svo
miklar brúttótekjur, að þær nemi
jafnvel á 3. hundrað þúsund kr.,
þá vær ekki óeðlilegt, þótt
spurt væri um það, hvort
ekki gæti komið til greina ein-
hver skipting innan frá frá fé-
laginu sjálfu í stað þess að gera
það með einskonar valdboði
utanfrá. Það stæði félagsmönn-
um næst að lcoma sér sjálfum
saman um skiptingu á vinnu. Á
s.l. ári mundi Reykjavíkurbær
hafa greitt 14 millj. samtals til
vörubifreiðastjóra fyrir vinnu
hjá þeim og mundi það nema um
55 þús. kr. á hvern bílstjóra.
Væri því augljóst að hér væri
um miklar tekjur að ræða og ekki
óeðlilegt að Þróttarmenn sjálfir
tækju sig saman um að skipta
þeim á milli sín.
Guðmundur J. Guðmundsson,
bftr. (K), tók til máls og endur-
tók að mestu ræðu Einars Ög-
mundssonar, en viðhafði allstór-
orðar dylgjur í garð Reykjavík-
urbæjar um óheiðarleika af
hálfu Ráðningarskrifstofunnar í
sambandi við útdeilingu vörubíl-
stjóravinnu.
Magnús Jóhannesson, bftr.,
tók aftur til máls og sagði það
athyglisvert, að ekkert af tölum
eða staðreyndum væru í greinar-
gerð Þróttar, en hins vegar alls
konar staðhæfingar, sem væru
gersamlega órökstuddar, auk
alls konar fullyrðinga og þar
bæri jafnvel á dylgjum í garð
Ráðningarskrifstofunnar, sem
ekki hefði við nein rök að styðj-
ast. Kom M.J. fram með tölur,
sem sýndu að atvinnuleysi væri
nú sízt meira meðal bifreiða-
stjóra en verið hefði undanfarin
ár, þannig að það væri engin
frekari ástæða til þess að taká
skipulagða skiptingu vinnunnar
upp nú heldur en verið hefði
áður.
Tillaga Sjálfstæðismanna í bæj
arráði var samþykkt í bæjar-
stjórn með 10 atkvæðum gegn 4
og málið þannig afgreitt.
VESTMANNAEYJUM, 19. maí.
Eftirfarandi tillögur voru bornar
fram og samþykktar með öllum
atkvæðum, útgerðarmanna og
sjómanna, á almennum fundi í
Akogeshúsinu sl. þriðjudag.
1. Fundurinn telur alvarleg mis-
tök í úthlutun humarleyfa á
miðum Vestmannaeyjabáta, þar
sem Bæj arf ógetaembættinu í
Vestmannaeyjum hefir verið
falið úthlutun humarleyfa til
báta skrásettra í Reykjavík,
Keflavík og Árnessýslu.
2. Ennfremur telur fundurinn að
betur hefði átt að athuga með
stærð humarveiðibáta. Mjög
varhugaverð leið, telur fund-
urinn að sé farin, þegar skip
allt að 190 brúttótonn fá veiði-
ley.fi í landhelgi og spyr hvað
hindri nýju togskipin að fá
hliðstæð leyfi?
Fundurinn álítur að fyllsta
athugun hefði átt að ríkja með
stærð bátanna og þá jafnframt
kannaðir möguleikar stærri
báta og skipa til annara veiða.
Á SUNNUDAGINN er hinn ár-
legi mæðradagur. Þann dag bera
Reykvíkingar litlu bleiku blóm-
in frá Mæðrastyrksnefnd og
stuðla þannig að því að fátækar
mæður og börn fái sumarvist í
sveit. Merkin verða afhent í öll-
um barnaskólum í Reykjavík og
Kópavogi og á skrifstofu nefnd-
arinnar frá kl. 9,30 á sunnudags-
morgun og . eru það tilmæii
Mæðrastyrksnefndar að Reyk-
víkingar hvetji börn og unglinga
til að selja mæðrablómin.
Mæðrastyrksnefnd byrjaði starf
semi sína árið 1934 eða fyrir 25
árum, og var tilgangur hennar
á eins og nú að styrkja fátækar
mæður og börn til að kornast í
sveit. Byrjað var í smáum stíl,
mæður og börn bjuggu í tjöld-
um, enda söfnuðust ekki nema
800 kr. fyrsta mæðradaginn. í
fyrra var ágóðinn af sölu mæðra
blómsins 106 þús. kr. Nefndin
hefur komið upp mæðraheimili
í Hlaðgerðarkoti í Mosfellssveit,
þar sem 30 konur dvöldu með
Samanber snurpinót, hringnót
og jafnvel reknet.
3. Fundurinn harmar aðgerðar-
leysi og afstöðu Alþingis, til
dragnótaveiða innan fjögurra
mílna markanna, bátum allt að
35 brúttotonn að stærð. Teljum
við torvelt skilningi vorum að
ekki skuli verða gefnir mögu-
leikar, innan viturlegra marka,
nýta þau auðæfi og tæki, sem
fyrir eru í nýtingu skarkola og
sólkola. Fundurinn telur að hér
aðsleyfi eigi hér að ríkja og
nefnir mánuðina maí—júlí, sem
hentugasta fyrir Vestmanna-
eyjar.
Framdi sjálfsmorð
SALZBURG, 21. maí. — Mariza
Hrasovcak, júgóslavnesk flótta-
kona, framdi sjálfsmorð í fang-
elsi hér í dag með því að eta
skóáburð. Astæðan var ótti við
að verða send til heimalandsins.
90 börn í fyrrasumar, í þremur
hópum, auk þess sem 30 einstæð-
ar gamlar konur hvíldu sig þar
í 8 daga. Voru þær ákaflega
hrifnar af þessu tækifæri til að
hvíla sig í sveitinni og kölluðu
dvalartímann sæluvikuna.
Húsið í Hlaðgerðarkoti er nú
fullbúið, og verður keppt að því
að ganga frá lóðinni í kring í
sumar. Hvernig það gengur fer
eftir því hve vel blómasalan geng
ur á sunnudaginn. Því fleiri
blómamerki, þeim mun fleiri
blóm kringum mæðraheimilið.
Sumardvölin í Hlaðgerðarkoti
hefst um mánaðarmótin júní-
júlí í sumar og mun Mæðrastyrks
nefnd byrja á næstimni að taka
á móti umsóknum um dvalarvist
frá fátækum mæðrum. Skrifstofa
nefndarinnar er opin alla daga
nema laugardaga frá 2—4. Frú
Auður Auðuns lögfræðingur
nefndarinnar, er þar til viðtals
á mánudögum, en frú Svava
Matthiesen aðra daga.
Að Mæðrastyrksnefnd standa
22 reykvísk kvenfélög og eigaþau
öll fulltrúa í nefndinni. Formað-
ur er frú Jónína Guðmundsdóttir.
Dr. Alexander
Jóhannesson
formaður Flu"-
málafélagsins
AÐALFUNDUR Flugmálafélags
íslands var haldinn í Tjarnarcafé
miðvikudaginn 29. apríl sl. For-
maður, Hákon Guðmundsson.
hæstaréttarritari, setti fundinn
og kvaddi til fundarstjóra Björn
Jónsson, en fundarritara Gið-
brand Magnússon. Síðan fóru
fram venjuleg venjuleg aðalfund
arstörf.
Skýrsla formanns var mjög
greinargóð um störf félagsins. —
Félagið stóð fyrir svifflugmóti að
Hellu á Rangárvöllum síðastliðið
sumar, sem stóðu í viku. Það
var mjög kostnaðarsamt fyrir fé-
lagið eða um kr. 25.000,00. Sagði
formaður að svifflug væri ágæt-
ur undirbúningsskóli fyrir flug-
menn, en til þess þyrfti ríkið að
kosta meiru til en gert væri.
Síðan var gengið til stjórn-
arkosninga: Formaður baðst
undan endurkosningu, en for-
manns kosningu hlaut Dr. Alex-
ander Jóhannesson prófessor fyr-
ir þetta starfsár. Úr stjórn áttu
að ganga Ásbjörn Magnússon og
Björn Pálsson og báðir endur-
kosnir. Fyrir voru í stjórn Páll
B. Melsteð og Björn Br. Björns-
son kosnir til tveggja ára. — í
varastjórn hlutu kosningu Einar
Pálsson, Hafsteinn Guðmundsson
og Björn Jónsson. Endurskoð-
endur voru endurkosnir Sigurður
Jónsson og Gunnar Jönasson.
Töluverðar umræður urðu um
málefni félagsins.
Sænskur togari
í landhelgi
TRELLINGBORG, 21. maí. —
Sænskur togari kom hingað til
hafnar í dag og sagði sínar farir
ekki sléttar. Hafði hann verið
tekinn að veiðum innan 12 mílna
landhelgi Rússa í Eystrasalti og
farið með hann til hafnar í Pion-
erskiy. Afli og veiðarfæri voru
gerð upptæk og auk þess var
skipstjórinn sektaður. Rússneska
leynilögreglan yfirheyrði áhöfn-
ina lengi og að því er áhöfnin
sagði — til þess að rannsaka
hvort hinar ólöglegu veiðar hefðu
staðið í sambandi við njósnir.
Það væri of mikið að segja, að Gromyko sé maður dagsins í Genf. En sakir hinnar annariegu
utanríkisstefnu Rússa á utanríkisráðherrafundinum hefur Gromyko vakið mikla athygli og hann
hefur vart frið fyrir fréttaniönnum og ljósmyndurum, þegar hann sést utan dyra. Gromyko er
á miðri myndinni, en Zorin, aðstoðarutanríkisráðherra Bússa, er til hægri.
Óánœgja í Eyjum meö
veitingu humarveiöileyfa