Morgunblaðið - 11.06.1959, Side 12

Morgunblaðið - 11.06.1959, Side 12
12 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 11. júní 1959 Utg.: H.f. Arvakur Reykjavllc. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsscn. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Viffur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr 35,00 á mánuði innaniands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. SKYLDUR FRJALSRA BLAÐA FRJÁLS blaðaútgáfa er eín af forsendum lýðræðis. Nú á dögum er þetta regla, sem ætíð gildir en þó aldrei fremur en þegar kosning- ar eru í nánd. Verkfallsréttur er heimill í frjálsu þjóðfélagi og verða allir að una afleiðingum þess. En verkfallsvopninu verður ætíð að beita með varúð, ekki sízt þegar jafnmikið er í húfi og hér fyrir öryggi sjálfs lýðræðisins. Að vísu má segja, að þegar stöðvunin gengur jafnt yfir alla, þá sé veru- lega úr hættunni dregið. Rétt er það. En kosningabar- áttan á meðan blaðaútgáfa al- mennt lá niðri sýnir, að hér er sitt hvað að varast. Þess varð skjótt vart, að Framsóknarmenn neyttu færis til að magna marg- háttaðan munnlegan söguburð út um byggðir landsins. En Framsóknarmenn létu sér ekki nægja hinn munnlega slúð- urburð. Eftir áð prentaraverk- fallið var hafið, sendu þeir frá sér dreifiblað, þar sem ranglega var farið með orð og skoðanir nafngreindra Sjálfstæðismanna austur í Rangárvallasýslu og dr. Sigurðar Nordals, fyrrum sendi- herra. Þar var beinlínis skákað í því skjóli, að leiðréttingum yrði ekki komið við um ófyrirsjáan- legan tíma. Menn eru ýmsu van- ir í íslenzkri stjórnmálabaráttu. Þó sker þetta drengskaparleysi sig úr. Framkoman gegn herra Ásgeiri Ásgeirssyni, forseta ís- lands, ber þó keim af hinu sama, þegar staðfastlega er vitnað í gömul orð hans, sem slitin eru úr samhengi í því trausti, að hann geti ekki gert grein fyrir skoð- unum sínum nú. Þessi atvik og önnur slík munu lengi verða til varnaðar ,en þau sýna hættuna, sem stafar af því, þegar hömlur eru lagðar á blaða- útgáfu af hvaða orsökum sem er. En um leið og viðurkennd er nauðsyn á frjálsri útkomu blaða, verða þau að vera skyldu sinnar minnug. Þýzka kommúnistablað- ið Der rote Fahne sagði hinn 19. ágúst 1923: „Að nota lýgina sem baráttutæki, eins og komm- únistar gera í dagblöðum, það er ekki að ljúga, það er bláköld nauðsyn." íslendingar þekktu því miður þessa baráttuaðferð áður en kommúnistar létu hér að sér kveða. Tíminn hefur frá upp- hafi verið undir alltof miklum áhrifum þeirra, sem tileinkuðu sér þessa stjórnmálafræði. Öllum verður á, því að enginn er alfullkominn. Um það er ekki að sakast, né heldur þó að skoð anir séu skiptar, því að enginn veit allan sannleikann. En við - leitnin verður ætíð að vera sú, að halla hvergi réttu máli held- ur skýra hvarvetna svo satt og rétt frá sem fremst er unnt. LAUSN PRENTARAVERKFALLS IPRENTARAVERKFALL - INU var um það deilt, hvort nota skyldi mátt þessa forystufélags til að brjóta skarð í stöðvunarvegginn, er reisa tókst gegn verðbólguöld- unni. Strax í upphafi samninga mun hafa komið í ljós, að prent- smiðjueigendur buðu fram greiðslur í lífeyrissjóð, sem lengi hafði verið ráðgerður og fleiri og fleiri stéttarfélög eru nú að afla sér, og lítilsháttar breyt- ingar á vinnutilhögun. Fyrstu tillögur um þetta náðu þó ekki samþykki prentara. Kommúnistar hugðust þá taka forystuna og höfðu ekki áhuga fyrir neinu öðru en beinum kauphækk- unum, sem ætlað var að fleyga stöðvunarlögin frá því í vetur. Af þessum sökum dróst deilan mun lengur en ella. Að lokum urðu kommúnistar þó al- gerlega undir. Þær breytingar, sem gerðar voru á vinnutilhög- un hafa ekki verulegan kostnað í för með sér. Að öðru leyti var samið um lífeyrissjóðinn, svo sem frá upphafi hafði verið boð- ið. Kommúnistar ætluðu að ær- ast og beittu sínum gamalþekktu ráðum til að reyna að koma í veg fyrir að samið yrði. Yfir- gnæfandi meirihluti prentara var þó þar á annari skoðun. Þeir sýndu heilbrigt mat á því, að engum er fremur gerður óleikur en sjálfum launastéttunum, ef efnahagsráðstafanirnar frá því í vetur verða að engu gerðar. HVENÆR SJÁ BRETAR AÐ SÉR? THOR THORS sendiherra hefur nýlega ritað at- hyglisverða grein um Iandhelgismálið í bandaríska stórblaðið New York Times. 1 grein sinni hnekkir Thor rækilega þeim fyrirslætti Breta, að þeir geti ekki fallizt á 12 mílna fiskveiðitakmörk, af því að það mundi óhjákvæmilega hafa í för með sér samþykkt á 12 mílna landhelgi í öllum sam- böndum. Thor sýnir fram á, að þó að Bretar beiti valdi á ís- landsmiðum til að hnekkja á- kvörðun okkar um 12 mílna fiskveiðilandhelgi, þá sætti þeir sig aðgerðarlausir við stækkun Kínverja á landhelgi sinni í 12 mílur. Á þetta reynir þó daglega við bæjardyr Breta í nýlendu þeirra Hong Kong. Þar taka Bretar aðgerðalaust hinu meira, þó að þeir beiti vopnavaldi við okkur til að hindra hið minna. Skýringin á hinum mismun- andi aðförum Breta getur ekki verið önnur en stærðarmunurinn á Kínverjum og íslendingum. Hann er að vísu mikill en vegur Breta sjálfra verður óneitanlega þeim mun minni, sem þeir láta þvílíkan stærðarmun ráða meira um gerðir sínar. Bretar hafa nú þegar sýnt, að þeir vilja ekki viðurkenna rétt okkar til 12 mílna fiskveiðitak- marka. Eru þeir ekki búnir að undirstrika þá synjun sína nægí- lega til að geta látið þar við sitja, þangað til séð verður, hver verða úrslit fiskveiðiráðstefnunn ar nýju? Bretar mundu auka veg sjálfra sín og tryggja sam ■ heldni Atlantshafsríkjanna, ef þeir sæu nú að sér og skildu, að þeir hafa nú þegar minnkað virðingu sjálfra sín meira en nóg. Nýtt vopn gegn afbrotamönnum — svonefndar ,,robotmyndir44 PARÍSARLÖGREGLAN hefir fyrir nokkru tekið upp nýja að- ferð við að hafa uppi á afbrota- mönnum, Lögreglumenn nefna fyrirbærið „robotmyndina". Að- ferð þessi er t.d. fólgin í því, að lögreglan fær teiknara í lið með sér, sem teiknar andlitsmyndir af hinum grunaða eftir lýsingu vitna. Stundum er ljósmynda- tækni einnig notuð á svipaðan hátt. Fyrir skömmu tókst Parísar- lögreglunni að hafa hendur í hári Guy nokkurs Treberts, sem tal- inn er hafa myrt unga konu- í St. Germain-hverfinu í apríl s.I. — en auk þess grunar lögreglan hann um að hafa fleiri kvenna- morð á samvizkunni. Við fyrstu eftirgrennslan við- víkjandi morðinu í St. Germain fékk lögreglan upplýsingar nokk- urra vitna um mann, sem sézt hafði hraða sér burt frá morð- staðnum. — Payan, lögreglufor- ingi , sem stjórnaði rannsókninni, kallaði þá sér til aðstoðar ungan ítalskan listamann. Hann spurði öll vitnin í þaula til þess að fá sem Ijósasta lýsingu á hinum flýjandi manni og teiknaði síðan andlitsmynd eftir lýsingu hvers þeirra. Er hann hafði þannig feng ið allgott safn mynda — sem raun ar bar alls ekki saman í mörgum atriðum — tók hann eins konar „meðaltal“ af þeim, þ.e.a.s. dró saman þau atriði, sem honum þóttu sennilegust í lýsingu hvers og eins og gerði lokamyndina — „robotmyndina“. — Þetta var raunar ekki fullkomin andlits- mynd, en teiknarinn vænti þess, að hún sýndi að nokkru helztu drætti í svipmóti mannsins, sem lögreglan leitaði að. Myndin var síðan birt í öllum dagblöðum borgarinnar og sýnd í kvikmyndahúsunum. — Og ár- angurinn lét ekki á sér standa. Innan tíðar símuðu nokkrir ná- granna Treberts til lögreglunnar — og brátt var hann kominn und ir lás og slá. Þetta var raunar ekki fyrsta handtakan, sem framkvæmd var að tilvísan „robotmyndar". Það. var einmitt slík mynd, sem leiddi París, 28. maí. (Reuter). — SKRIFSTOFA Dior-tízkuhússins í París skýrði í dag frá því, að öll sæti væru gersamlega uppseld á tízkusýningar, sem Dior ætlar að efna til í Moskvu, höfuðborg Rússlands dagana 12.—16. júní. Rúmlega 12 þúsund miðar hafa þegar selzt og um 10 þúsund fleiri hafa skrifað sig á lista, ef hægt væri að fjölga tízkusýning- unum. Tízkusýningarnar eiga að fara fram í Verkalýðshöllinni í Moskvu. Þar verða tvær sýningar til handtöku Roberts Avril fyrir hálfu öðru ári, þess er myrti ensku ferðakonuna Janet Mars- hall. daglega og sýndir alls um 120 mismunandi kvenklæðnaðir. Tólf fallegar sýningarstúlkur hafa ver ið valdar til fararinnar, 7 eru franskar, þrjár enskar, ein kana- dísk og ein argentínsk. Algert innflutningsbann er 1 Rússlandi á klæðnaði frá Frakk- landi, en búizt er við að einmitt þeir meðal hinna rússnesku yfir- stétta, sem hafa efni á því að kaupa Dior-klæðnaði hafi einhver ráð til þess að koma honum inn í landið, m.a. með því áð láta líta út fyrir að klæðnaðurinn sé keypt ur í París. Allt uppselt á Dsor tízkusýningu í Moskvu TÆKNIN nemur sífellt ný lönd — og þægindin aukast. — Margir garðeigendur munu kannast við bakverk og eymsl í herðum og handleggjum, sem oft fylgja því annars svo ánægjulega verki að slá „blettinn“ sinn. — í framtíð- inni mun garðeigandinn geta losn að við þessi óþægindi, en það kostar þá jafnframt það, að hann nýtur minni hreyfingar en áður. Nýlega var haldin mikil sýn- ing á hvers konar garðyrkjutækj um í Englandi. Þar var m.a. kynnt ný vél, sem margur garð- eigandinn leit hýru auga til — „straumlínulöguð“, sjálfvirk garð sláttuvél. — Unga stúlkan á myndinni sýnir, hvernig hin nýja sláttuvél vinnur. — Maður fleyg- ir sér bara makindalega út af á garðbekk eða í hengirúm og hefir við höndina lítinn stutt- bylgjusendi. Með því að styðja á hnapp á sendinum setur maður sláttuvélina af stað — og hún byrjar að slá af miklum móði. Með því að styðja á aðra hnappa má svo stýra vélinni til hægri og vinstri, áfram og aftur á bak og stöðva hana. Þú liggur í sólbaði — og slærð „blettinn" þinn um leið!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.