Morgunblaðið - 22.07.1959, Síða 1
20 siðui
Forsetakosningum frestab k>ar til í dag
Alþingi sett við hátiðlega athöfn i gær:
Kjörbréf allra bingmanna sam-
bykkt samhljóða
ALÞINGI var sett við hátíðlega athöfn í gær. Hófst athöfnin með
l*ví, að forseti islands, biskup og alþingismenn gengu fylktu liði frá
Alþingishúsinu til Dómkirkjunnar og fór þar fram guðsþjónusta.
Að henni lokinni var gengið aftur til Alþingishússins og las forseti
Islands forsetabréf um þennan aukafund Alþingis og sagði þingið
sett. Aldursforseti þingsins, Páll Zóphóníasson, tók því næst við
fundarstjórn og voru kjörbréf tekin til rannsóknar og öll samþykkt
í einu hljóði. Þá undirrituðu nýir þingmenn eiðstaf, en að því loknu
var fundi frestað til næsta dags. I dag fer svo væntanlega fram for-
setakjör á Alþingi.
Þingmenn ganga til guðsþjónustu í Dómkirkjunni.
★-------------*
Atlas-skeyti
9000 km.
WASHINGTON, 21. júlí — Banda
ríski flugherinn skaut í morgun á
loft flugskeyti af Atlas-gerð og
heppnaðist skotið vel. Skeytið
féll í sunnanvert Atlantshafið
eftir að hafa farið 9 þúsund km.
í því voru mörg tæki til
vísindalegra athugana.
Skeyti þessi eiga að geta hitt í
mark eftir 8000—9000 km flug og
má geta þess, að Atlas-skeytið,
sem Bandaríkjamen* skutu í
morgun, fannst nákvæmlega, þar
sem það átti að falla til jarðar.
Miðvikudagur 22. júli
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 6: Indverskur rithöfundur í heim-
sókn hér.
För sinfóniuhljómsveitarinnar.
— 8: Samtal við Maríu Andrésdótttir
100 ára.
— 9: Önnur skák Friðriks og Inga
R. Jóhannssonar.
— 10: Forystugreinarnar: „Af hverju
hefur SIS sölubúðir í Reykja-
vík“ og „Vísindin efla alla
dáð“.
Flugslys í Danmörku (Utan úr
heimi).
— 11: A Siglufirði.
— 12: Finnar og friverzlunarsvæðið.
— 13: Síldveiðiskýrsla Fiskifélagsins.
— 18: ípróttir.
*----------------------------*
Gengið til kirkju.
Laust eftir klukkan eitt f gær
tóku alþingismenn að streyma
til alþingishússins en áhorfendur
söfnuðust saman á gangstéttmni
við Austurvöll og virtu þingmenn
ina fyrir sér. Tveir lögregluþjón-
ar stóðu sitt hvoru megin við að-
aldyr alþingishússins og heilsuðu
í hvert sinn er þingmaður gekk
inn í húsið.
Laust fyrir klukkan hálftvö
var klukkum Dómkirkjunear
hringt og brátt gekk hin virðu-
lega fylking út úr alþingishúsinu
og til Dómkirkjunnar. Fremstir
fóru forseti íslands, herra Ás-
geir Ásgeirsson og herra Sigur-
björn Einarsson, biskup næst
gengu forsetafrú Dóra Þórhails-
dóttir og Emil Jónsson, forsætis-
ráðherra. Þar næst komu aðrir
ráðherrar, en síðan alþingismenn
og loks skrifstofustjóri Alþingis
og ráðuneytisstjóri forsætisráðu-
neytisins. Veður var þuirt, en
loft þungbúið.
Undirstaðan varðar mestu
í Dómkirkjunni predikaði bisk-
upinn. Lagði hann út af þessum
orðum í 20. kapítula annarrar
Mósebókar: Drottinn mælti við
Móse: Þú skalt gjöra mér altari;
alstaðar þar sem ég læt minnast
nafns míns, mun ég koma til þín
og blessa þig.
í upphafi ræðu sinnar
minnti hann á, að alþingishúsið
og Dómkirkjan stæðu hlið við
hlið og á einum grunni, en þsu
stæðu einnig á sama grunni
djúpt undir öllu yfirborði. Varð-
aði mestu að leita að undirstöðu,
fótfestu, öruggum og svikalaus-
um grunni.
Biskup sagði sögu af því, er
lítið barr'. virti hann fyrir 3ér
eitt sinn er hann hafði farið úr
hempunni og sagði: „Þú ert bara
maður“. Hér hefði litla barnið
sagt mikinn sannleik. Hvaða
stöðu sem menn hefðu á heocíi
væru þeir fyrst og fremst bara
menn í kirkjubekknum og frjá's-
ir að opna huga sinn fyrir þeim
sem væri bara Guð. — Biblíar
kallaði menn til að minna þá á
að þeir væru menn. Þannig segði
hún mönnum að sættast við bróð-
ur sinn áður en þeir gengju upp
að altarinu og kristindómurinn
væri ekki betur skýrður en í emu
orði — hjálp; að látá hjálpast og
verja öllu til að hjálpa öðrum.
Lúther hefði einnig lagt á bað
mikla áherzlu, að þjóna Guði
væri að þjóna mönnunum.
Framh. á bls. 3.
> í
Krúsjeff:
I „Vér erum |
i stolt þjó&"\
VARSJÁ, 21. júlí — í kvöld-
verðarboði í rússneska sendi-
ráðinu í Varsjá minntist Krús
jeff á þá ákvörðun sína að
hætta við heimsóknina til
Norðurlanda. Hann sagði m.
a.: „Vér erum stolt þjóð. Ef
einhver hrækir á oss, heim-
sækjum vér ekki þann, sem
það gerir“.
Er Genfarfundurinn
Forseti fslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, setur Álþingi í gær
út í sandinn?
Rússar ósveigjanlegri
en áður
GENF, 21. júlí — Alláreiðanlegar heimildir í Genf segja að Herter,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafi skýrt Gromyko, utanríkisráð-
herra Bússa, frá því, að það sé álit Bandaríkjastjórnar, að Genfar-
ráðstefnan fari út um þúfur, ef Rússar haldi fast í fyrri tillögu sína
um sameiginlega nefnd þýzku ríkjanna til að fjalla um Þýzkalands-
málin. Mun Herter hafa innt Gromyko eftir því, hvort Rússar væru
cíáanlegir til að semja um Þýzkalandsmálin án þess að nefndar-
skipunin væri með í þeim samningum. Heimildirnar herma, að
Gromyko hafi ekki gefið nein skyr svör við spurningu Herters. —
Ilerter mun hafa tilkynnt Eisenhower, að Rússar séu nú ósveigjan-
legri í Genf en áður.
Hafa hafnað tillögu Rússa
Eins og skýrt hefur verið frá
í fréttum hafa Vesturveldin al-
Á að halda áfram?
Fréttaritari Reuters segir, að
það sé skoðun bandarísku stjórn-
að renna
málamannanna í Genf, að á næstu
tveim dögum verði skorið úr um
það, hvort ástæða sé að halda
Genfarráðstefnunni áfram.
Þá berast ennfremur þær fregn
ir frá Genf, að komið hafi til
tals, að Nixon komi við í Genf,
þegar hann flýgur heim úr
Moskvuför sinni snemma í næsta
mánuði, og ræði við Herter ut-
anríkisráðherra. En auðvitað fell-
ur slík ráðagerð um sjálfa sig, ef
utanríkisráðherrafundi verður ó-
vænt slitið.
Fer til Berlínar
Á laugardaginn flýgur Herter
il Vesur-Berlínar í stutta heim-
sókn og þar verður hann viðstadd
ur hátíðlega athöfn, þegar einni
af götum borgarinnar verð-
ur gefið nafn John Foster DuIIes
fyrirrennara hans i embæti utan-
ríkisráðherra.
Er skip Ólafs helga fundið?
gerlega hafnað tillögum Rússa
um þýzku nefndina. Vesturveld-
in vilja ekkert aðhafast, sem gæti
stuðlað að því, að Bonn-stjórnin
væri neydd til að viðurkenna
kommúnistastjórnina í Austur-
Þýzkalandi.
ÓSLÓ, 21. júlí — í dag fund-
ust í Svíþjóð leyfar úr vík-
ingaskipi, sem sérfræðingar
telja, að verið geti úr skipi
Ólafs konungs helga. Skipið
fannst skammt fyrir sunnan
Stokkhólm. Nokkur tími er
liðinn síðan skipið fannst, en
ekki hefur verið skýrt opin-
berlega frá fundinum fyrr en
í dag.
Tvö önnur víkingaskip
liggja á hafsbotni skammt frá
stað þeim, sem þetta merki-
lega skipsflak fannst.