Morgunblaðið - 22.07.1959, Síða 12
12
MORCT'VP.J 4 fílfí
MlSvOtudagur júl! 1959
Teiknari
Pravda varar Finna við að gerast
aðili að fríverzl unarsvœðinu
Verkfræðifirma vill ráða til sín góðan teiknara. Um-
sóknir með upplýsingum um fyrri störf leggist inn á
afgr. Mbl. merkt: „Teiknari—9482“.
Vegna sumarleyfa
verða skrifstofur vorar aðeins opnar frá
kl. 13—17 til 15. ágúst.
Verkfræðingafélag íslands
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Lokað
þrjár til fjórar vikur vegna sumarleyfa.
SIGURBJÖRN PÉTURSSON
tannlæknir
Tjarnargötu 16.
Lokað
vegna sumarleyfa til 10. ágúst.
lady h.f.
Liífstykkjaverksmiðja.
Skrifstofan
verður lokuð til 10. ágúst vegna sumarleyfa. Þó
verður svarað í skrifstofusíma kl. 11—12 f.h. dag-
lega.
Cufugildrur
Höfum til sölu lágþrýstar gufugildrur af flestum
stærðum.
Einarsson & Pálsson h.f.
Jkólavörðustíg 3 A, Sími 13890 -
Hvitt pífugluggatjaldaefni
og án pífu (breitt).
Gardínubúðin
Laugaveg 28.
Verkamenn og Vélamenn
vantar okkur nú þegar.
Almenna byggingafélagið h.f.
Borgartúni 7.
Ráðstefna í Stokkhólmi um fríverzlun
sjo rikja
VJÐSKIPTA- og fjármálaráðherrar sjö Evrópuríkja eru nú á fundi
í Stokkhólmi til að ræða um stofnun „Litla fríverzlunarsvæðisins",
sc-m svo hefur verið kallað. Ráðstefnan hefur verið gagnrýnd í V-
í-ýzkalandi á þeim grundvelli, að fríverzlunarsvæðið muni verða til
að reka fleyg milli Evrópuríkjanna. Þessu hefur verið harðlega mót-
mælt af fulltrúum á ráðstefnunni og brezku og dönsku fulltrúarnir
hafa lagt sérstaka áherzlu á, að nauðsynlegt sé að koma á sem nán-
ustu samstarfi milli fríverzlunarsvæðisins og landanna, sem standa
að tollabandalagi Evrópu. — Finnum hefur verið leyft að fylgjast
neð umræðum á fundinum og skýra aðstöðu sína, en ekki verður
akveðið fyrr en síðar um frekari þátttöku þeirra.
AÐ „LITLA fríverzlunarsvæð-
inu“ standa: Svíþjóð, Noregur,
Danmörk, Bretland, Portúgal,
Sviss og Austurríki; sem nefnd
hafa verið hin ytri ríki til að-
greiningar frá sexveldunum, sem
standa að tollabandalaginu; en
þau eru; V-Þýzkaland, Frakk-
land, Ítalía, Holland, Belgía og
Luxemburg. Er gert ráð fyrir,
að þess verði ekki langt að bíða
að komist verði að endanlegum
samningum um fríverzlunar-
svæðið.
Þessum löndum hefur gengið
vel að komast að samkomulagi í
aðalatriðum og ekki þykir líklegt
að neinar stórvægilegir hagsmun-
ir muni rekast á innan fríverzl-
unarsvæðisins.
Ráðgert er, að tollar verði
lækkaðir smám saman á tíu ára
tímabili. Fyrst í júli 1960 (um
20%) og síðast í ársbyrjun 1970.
Ennfremur er gert ráð fyrir, að
öll gjaldeyris- og innflutnings-
höft milli landanna verði afnúm-
in á jafnlöngu tímabili. ,
Landbúnaðar- og fiskafurðir
verða aðalvandamálið eins og
áður, meðan fríverzlunarmál
voru mest rædd innan Efnahags-
samvinnustofnunar Evrópu.
Þetta skiptir Dani sérstaklega
miklu máli, þar sem þeir flytja
út landbúnaðarafurðir í stórum
stíl og auk þess töluvert af fisk-
afurðum. Bretar hafa nú boðist
til að ívilna þeim verulega í sam-
bandi við innflutning landbún-
aðarafurða og myndi það vega að
töluverðu leyti upp á móti versn
andi aðstöðu Dana á V-þýzka-
markaðnum, eftir því sem meir
og meir kemur til framkvæmda
af samningunum um tollabanda-
lag sexveldanna.
Eitt af því sem vekur mikla
athygli í sambandi við þetta mál,
er hin erfiða afstaða Finna, sem
getur leitt til þess, að þeir standi
alveg utan við friverzlunarsvæð-
ið. Æ, síðan Finnar greiddu hin-
ar geysiháu „stríðsskaðabætur"
til Rússa, hafa þeir verið þeim
mjög háðir efnahagslega, þar
sem margar útflutningsafurðir
Finna hafa ekki verið seljanleg-
ar annars staðar en í austurvegi.
Hefur verðbólgan í Finnlandi átt
mikinn þátt í þessu. Er þess
skemmst að minnast hvernig
Rússar notuðu þessa aðstöðu, er
þeir með hótunum um viðskipta-
bann gátu komið frá finnskri
ríkisstjórn, sem þeir töldu sér
sérstaklega andvíga.
Áf þessum ástæðum og ýms-
um fleiri höfðu Finnar mikinn
hug á að taka þátt í efnahags-
samstarfi V-Evrópu-þjóðanna,
þótt þeir hyggðust áfram hafa
mikil viðskipti við Rússa. Þetta
töldu þeir sig geta gert, ef Norð
urlöndin mynduðu fríverzlunar-
svæði sín á milli, sem síðan yrði
hluti af friverzlunarsvæðinu,
sem áðan var getið. Mundu þeir
þannig aðeins verða beinir að-
ilar að samningum en hin Norð-
urlöndin. Það var því mikið á-
fall fyrir Finna nú fyrir skömmu
þegar sýnt var að Norðurlönd-
in þrjú töldu sig ekki geta stað-
um. Mun Finnum þá hafa kom-
um. Mun Finnum þó hafa kom-
ið til hugar að gerast áttundi að-
ilinn að bandalagi ytri rikjanna
sjö. En um helgina birti Pravda
aðalmálgagn rússnesku stjórn-
arinnar viðvörun til Finna um
að gerast ekki aðili og hlýtur
það að minnka líkumar fyrir að
svo verði.
Helzt er nú talið, að Finnar
ætli að vera í einhverju lauslegu
sambandi við fríverzlunarsvæð-
ið, ef hægt er.
Margir spyrja nú hvað fram-
undan sé í efnahagsmálunum og
stjórnmálum V-Evrópu, þegar
hún virðist vera að skiptast í
tvær viðskiptaheildir. Eins og
kunnugt er var lengi unnið að því
að stofna miklu særra friverzl-
unarsvæði innan Evrópu, eða
allra 17 landa, sem sóðu að Efna
hagssamvinnusofnuninni, og kom
þessi hugmynd fram 'strax eftir
að farið var að vinna að stofn-
un tollabandalags sexveldanna,
Hefðu sexveldin þá tengst hin-
um ríkjunum ellefu. En eftir
tveggja ára árangurslausas samn
ingaumleitanir, þar sem mest bar
á ósamkomulagi milli Englend-
inga og Frakka var þeim hætt
í nóvember s.I.
Nú þegar samkomulag hefur
orðið milli sóx landa annars veg-
ar og er að takast milli sjö landa
hinsvegar eru fjögur lönd utan
við og það eru einmitt þau lönd-
in, sem hafa hvað versta að-
stöðuna efnahagslega og þvl
mesta þörf fyrir samstöðu með
öðrum löndum, þessi lönd eru:
fsland (sem vegna verðbólgu og
einhæfrar útflutningsframleiðslu
er í erfðiri aðstöðu), frland,
Grikkland og Tyrkland. Aftur á
móti hafa Finnar aldrei verið
aðilar að Efnahagssamvinnu-
stofnun Evrópu.
Þótt óvænlega horfi I bili er
það álit margra, að aftur verði
tekið til við samninga um stórt
fríverzlunarsvæði í einhverri
mynd og muni þá löndunum fjór-
um, sem nú standa utan við, ekki
gleymt. Og fullvist þykir, að
einn höfuðtilgangurinn með
samningum landanna sjö, sé
að styrkja aðstöðu þeirra gagn-
vart sexveldunum og knýja þau
til samninga um gagnkvæm við-
skiptafríðindi.
Hinn vinsæli bandaríski pianóleikari Liberace sést hér á mynd-
inni er hann gekk úr úr réttarsal í Lundúnum eftir að hafa
unnið meiðyrðamál gegn brezka blaðinu Daily Mirror. Slúður-
dálkahöfundur blaðsins hafði látið í það skína, að Liberace væri
kynvilltur, en hafði ekkert fyrir sér í þvL Var blaðið dæmt til
að greiða Liberace fébætur sem námu um 600 þúsund krónum.
Sinaskeiðaólar ATHUG/Ð að borið saman við útbreiðslu
nýjar smekklegar. Margir litir. er gtum ódyr ra að auglýsa í Morgunblaðinu, en í öðrum
Aðeins 27.00. blöðum —
Snyrtivöruúrvalið er hjá okkur. JfóorgfttinMabid
Þér eigið alltaf leið um Laugaveginn. Sigurður Olason Hæslarétlurlögmaður
Clausenshúð Þorvaldur Lúðvíksson Héraðsdómsltigniaður
Snyrtivörudeild — Laugaveg ■f' Múlflutningsskrifstnfa Auaturstræti J4. Siuii i.-55-35