Morgunblaðið - 25.08.1959, Page 8

Morgunblaðið - 25.08.1959, Page 8
8 MOR nwni 4Ð1Ð Þrjðjudagur 25. ágúsí 1959 Steinn Ágúst Jónsson1 Flateyri áttræður I>EIR segja það Breiðfirðingar, að ekki henti að fá fólk úr fjar- lægum héruðum til að byggja Breiðafjarðareyjar í stað þess sem burtu flyzt. Hvorki kunni það vel við sig, né kunni til hlít- ar að færa sér í nyt þau náttúru- gæði, sem þar eru fyrir hendi. Ekki dæmi ég um réttmæti þessara ummæla, en ekki eru þau verulega góð héraðskynning né uppörfandi fyrir þá sem kynnu að hafa hug á að setjast þar að. Reynslan og saga eyjanna styður þau heldur ekki. Steinn Ágúst Jónsson fæddist á Höfða í Dýrafirði 22. ágúst árið 1879. Hann hefur þó sagt mér að hann sé Önfirðingur að ætt. Til 17 ára aldurs stundaði hann almenn bústörf hjá foreldrum sínum í Höfða. Fór þá til sjós, sem títt er um Vestfirðinga, og stundaði þá atvinnu um nokk- urra ára skeið. Var meðal ann- ars á vetrarvertíðum hér syðra. Ekki féll honum þó sjómennskan ýkja vel þegar til lengdar lét. Brá hann því á annað ráð. Fór í bændaskólann á Hvanneyri og útskrifaðist þaðan árið 1902. Þá var þar skólastjóri Hjörtur Snorrason og minnist Steinn Ágúst hans jafnan með hlýhug og virðingu. Mun hann ekki meta minningú annars manns meir. Til Flateyjar fluttist Steinn Ágúst árið 1909 til Guðna kaup- manns Guðmundssonar, sem þá hafði nýlega flutzt þangað frá Dýrafirði. Hjá honum hóf hann verzlunarstörf. En dvöl Guðna í Flatey var skemmri en skyldi, því hann drukknaði við Barða- strönd haustið 1910. Hugði Steinn Ágúst þá á brottför úr Flatey, af því varð þó ekki og fékkst hann næstu árin við barnakennslu og önnur störf í Flateyjarhreppi. En árið 1913 réðist hann til Guðmundar kaup- manns Bergsteinssonar og gerð- ist ráðsmaður á búi hans fyrstu árin en síðan verzlunarmaður, og var það lengst af meðan Guð mundur rak verzlun í Flatey. Steinn Ágúst Jónsson er félags- lyndur maður og samvinnuþýð- ur. Skömmu eftir komu sína til Breiðafjarðar byrjaði hann að vinna að félags- og menningar- málum eyjamanna. Hann mun hafa stofnað fyrstu barnastúk- una í Flatey. Virkur þátttakandi í ungmennafélagi eyjarinnar gerðist hann við komu sína þang- að. Og seinna, þegar ungmenna- samband Norður-Breiðfirðinga var stofnað varð hann fyrsti for- maður þess og var það um sex ára • skeið. 1 sóknarnefnd var hann kosinn árið 1912 og hefur setið í henni síðan, lengst af for- maður. í Flatey var timbur- kirkja, allgömul og hrörleg nokk uð, þegar Steinn Ágúst kom í sóknarnefndina. Áttu hana nokkrir bændur í hreppnum. Hafði þá lengi verið talað um, að byggja þyrfti nýja kirkju en ekk- ert orðið úr. Steinn Ágúst gekk í málið. Beitti sér fyrir því að söfnuðurinn tæki að sér kirkj- una og byggði aðra nýja. Þær urðu og lyktir málanna eftir Loftskeytamenn og konur Bylgjan og F. í. L. fara skemmtiferð næstkomandi fimmtudag 27. ágúst. Félagar tilkynnið þátttöku í síma 2-29-19 eða 1-05-81 fyrir miðvikudagskvöld. NEFNDIN Vélbátur í ágætu standi, 19 tonn með tveggja ára diesel-vél og öllum trollútbúnaði er til sölu, ef viðunandi tilboð fæst. — Allar upplýsingar gefur undirritaður, JÓN HJALTASON, hdl. Heimagötu 22 — Sími 447, Vestmannaeyjum H úsgagnasmiðir Húsgagnasmiður óskast (helzt vélamaður) INIýja Kompaníið h.f. Grettisgötu 51 — Sími 13850 Koparrcr 1/2 tommu 1/4 tommu 7/16 tommu Rennilokur 1/2 til 3ja tommu. Fyrirliggjandi: Sighvatur Einarsson Skipholti 15 — Símar: 24133 og 24137 nokkurt þóf. Reis svo ný kirkja af grunni í Flatey nokkru seinna, hið prýðilegasta guðshús, vel bú- ið að gripum. Er kirkjan nú höf- uðprýði eyjarinnar. Gjaldkeri sparisjóðsins í Flatey hefur Steinn Ágúst verið síðan 1925. Hreppsnefndaroddviti frá 1945 og gjaldkeri sjúkrasamlagsins frá sama tíma. Landbúnaðarmál hefur hann jafnan látið til sín taka heima í héraði, og fylgzt vel með á því sviði. Um skeið var hann trúnaðarmaður Búnað- arfélags Islands í Flateyjarhreppi og nágrenni, og gjaldkeri Bún- aðarfélags Flateyjarhrepps hefur hann verið síðan 1928. Vel má vera, að fleiri opin- berum störfum hafi Steinn Ágúst gegnt þar í eyjunum á seinni árum, þó mér sé ekki um það kunnugt. T. d. mun hann hafa staðið framarlega í þeim tilraunum sem gerðar hafa verið til að endurreisa útgerð og at- vinnulíf í Flatey, sem verið hef- ur mjög í hnignun síðustu ára- tugina, þó ekki hafi sú viðleitni borið verulegan árangur fram að þessu. Þetta kann nú að þykja þurr upptalning. Og máske segir það ekki mikið um einn mann, á tímum flokkshyggju og valda- streitu, þó talin séu upp störf og stöður sem hann hefur gegnt um ævina, en þó nokkuð. Að vísu hefur Steinn Ágúst fylgt Sjálf- stæðisflokknum að málum, og hann oft verið sterkur í eyjun- um, en ekki hefur flokksfylgið þó nægt honum til þeirra trún- aðarstarfa, sem honum hafa Ver- ið falin. Vinsældir hans og starfs hæfni hafa þar meiru um ráðið. Og Steinn Ágúst hefur staðið vel fyrir sínu. Hann er hinn nýtasti maður, hygginn og vandvirkur, og hefur innt öll sín störf af höndum svo, að ekki hefur verið að fundið. „Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur“. Steinn Agúst kvæntist árið 1913 Katrínu Þórð- ardóttur, prests Ólafssonar frá Söndum í Dýrafirði, hinni ágæt- ustu konu. Þau hafa eignazt eina dóttur barna, Gyðu, sem gift er og búsett í Reykjavík. Heimili þeirra Steins og Katrínar hefur staðið við sporð Eyjólfsbryggjunnar — aðalverzl- unarbryggjunnar í Flatey — í húsi, sem nefnt er Eyjólfshús. Hefur það verið hreppnum happ og komið sér vel fyrir marga. Heimili þeirra er eitt mesta myndar- og menningarheimili í Breiðafjarðareyjum, og hefur svo verið frá því að þau settust þar að fyrir nær fimmtíu árum. Gestrisni þeirra er og einstök. Skortir þó ekki góða gestrisni víða í eyjum. Heita má, að öllum sé heimill matur og kaffi í húsi þeirra á hvaða tíma sólarhrings- ins sem er. Um það var mér vel kunnugt meðan ég átti heima í norðanverðum Breiðafirði. Svo oft lenti ég við Eyjólfsbryggj- una, stundum með þreytta og kálda ferðamenn, sem ekki áttu of mikið af lausum aurum. Þá var kreppa og lánsfjárskortur í landi. Katrín Þórðardóttir minnir mig oft á eina stallsystur sína í íhrii'ar * KVIKMYN TJARNARBÍÓ: Sjöunda innsiglið. Kvikmynd þessi er sænsk, og hefur hinn mikilhæfi sænski leikstjóri Ingmar Bergman haft leikstjórn hennar á hendi. Hefur Bergman, sem kunnugt er, hlotið heimsfrægð og mörg heiðursverð laun á kvikmyndahátíðum fyrir leikstjórn sína. í kvikmynd þess- ari leynir sér heldur ekki snilli leikstjórans, hugkvæmni hans og frumleikur um efnisval og efnis meðferð. Myndin, sem hlotið hef- ur nafn sitt frá Opinberunar- bók Jóhannesar, gerist á miðöid- um, á timum krossferða og svarta dauða, og er þar á táknrænan hátt, og með nútímann í bak- sýn, þó að ekki komi það beint fram, rakin þjáningarsaga mann fólksins, barátta þess og ótti við plágur og syndir, vald djöfulsms og hvers konar hindurvitni önn- ur, sem fólkið er heltekið af. Vekur þetta óhjákvæmilega áhorf andann til umhugsunar um þann ótta og vonleysi, sem mannkyn- ið býr við i dag á tímum kjarn- orku O' vetnissprengja. En boð- skapur myndarinnar er sá, að von leysi og vantrú á hin góðu öfl tilverunnar leiði til glötunar, en heilbrigð bjartsýni, og trú á sig- ur hins góða, sé vegurinn til ham ingjusamra lífs. Yfir mynd þessari hvílir mjög dulúðugur blær og jafnvel drungalegur á köflum, er tekur áhorfandann föstum tökum. Leík »stjórnin er, sem áður segir, á- hrifamikil, myndatakan víða af- bragð og leikurinn með ágætum, enda fara þarna með aðalhlut- verkin sænskir kvikmynaleikar- ar í fremstu röð. HAFNARBÍÓ: Bræðurnir. Þetta er amerísk kvikmynd tekin í litum. Gerist hún einhvers staðar í „vilta vestrinu". Er meg- inefni myndarinnar um harðsnú- inn bófaflokk, sem rænir járn- brutarlestir og baráttu nokkurra heiðarlegra manna til að ráða niðurlögum bófanna. í þessari baráttu taka þátt tveir bræðut, hvor í sínum flokki, Grant Mc Lanel (James Stewart) sem er í flokki hinna heiðarlegu og Utica Kid (Audie Murphy), sem er í liði bófanna. Átökin eru hörð sem jafnan í slíkum mynd- um, barizt í veitingakrám og viðar og vitanlega linnir skot- hríðinni ekki fyrr en allir bóí- amir liggja í valnum. Þess ber að geta, að áður en lýkur rennur Utica Kid blóðið til skyldunnar og berst hann síðustu stundirnar við hlið bróður síns, en fellur loks fyrir kúlu fyrri félaga sinna. Mynd þessi hefur fátt sér til ágætis, eins og flestar myndir af þessu tagi — það væri þá einna helzt að James Stewart sýnir þarna, sem oft endranær, hversu prýðilegur og fjölhæfur leikari hann er. Breiðafirði, er svo segir um í gamalli sögu: „Geirríður sparaði ekki mat við menn, ok lét gera skála sinn um þjóðbraut þvera“. Eða er hún kannski arftaki Guð- rúnar í Miðbæ, sem öllum gerði gott af litlum efnum, óþægustu strákarnir í Flatey virtu og elsk- uðu á sinum tíma og Matthías minnist svo: Hjálpfýsi þín og hjartagæzka undun og elsku allra vakti. — Fyrir að segja frá þessu fæ ég litlar þakkir hjá minni ágætu vinkonu, því yfirlætislausari manneskja og hlédrægari er ekki til. Það er orðin mikil tízka, að heiðra menn á afmælisdögum þeirra, allt frá fermingaraldri til hárrar elli, þó ekki verði alltaf með góðu móti komið auga á verðleikana. — Eg geri ráð fyrir, að í dag verði fjölmennt á heimili þeirra Steins Ágústs og Katrínar í Flatey. Bátum verði þéttskipað við Eyjólfsbryggjuna. Hreppsbúar og aðrir nógrannar safnist saman og þaíki þeim fyrir komuna til Flateyjar, ver- una þar og öll störfin' sem þau hafa unnið af fórnfýsi og trú- mennsku byggðarlaginu til heilla. Það væri að verðleikum. Á þessum afmælisdegi hús- bóndans í Eyjólfshúsinu, flyt eg hónum og konu hans hér með einlægar þakkir fyrir liðnar samverustundir og margan greiða veittan mér og mínum og óska þess að fundum okkar megi enn bera saman, þó lengra sé nú orðið á milli en áður var. Og minni kæru eyjabyggð óska eg þess, að þangað flytjist margt fólk af þvílíkri gerð sem þau hjón. Þá mun aftur birta yfir eyjunum, sem þau hafa tengzt svo traustum böndum. 22/8 1959 B. Sk. um: AUSTURBÆJARBÍÓ: Þrjár þjófóttar frænkur. Þetta er þýzk gamanmynd tekin í litum. — Fjallar hún um tvo nýútskrifaða „tugthúskandidata" sem komast á járnbrautarstöð, yfir ferðatöskur frægrar kaba- rettsöngkonu. Eru í töskunum kjólar söngkonunnar og annar fatnaður hennar. Af því að „kan- didatamir eru hugkvæmir og ekki af baki dottnir þrátt fyrir alllanga gistingu í fangelsi, þá ákveða þeir að brjótast inn 1 banka einn í borginni. En til þess að geta athafnað sig sem bezt við innbrotið, þá sjá þeir í hendi sér, að þeir verða að geta sezt að, með einhverju móti, í íbúð- inni fyrir ofan bankann. Þezr klæðast nú búningum söngkon- unnar, og halda upp í íbúðina. Eigendurnir eru á dýarveiðum í Afríku, en þjónn þeirra gætir íbúðarinnar. Þeim félögum tesst að ginna hann og setjast þeir nú að í íbúðinni. Láta þeir félag- arnir nú hendur standa fram úr eermum og er ekki að orðlengja það, að þeir fremja innbrotið. En ekki gengur það fyrir sig alveg snurðulaust, en ekki er vert að rekja það nánar hér. I mynd þessari fara margir skemtmilegir gamanleikarar með hlutverk, svo sem hinir gömlu og góðu kunningjar okkar, Theo Lingen, Oskar Sima og Hans Moser, svo einhverjir séu „efndir, en mér finnst ekki nógu vel á efa- inu haldið, — myndin ekki eins fyndin og við hefði mátt búast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.