Morgunblaðið - 01.09.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.09.1959, Blaðsíða 2
2 mORCVNBlAÐlF Þriðjudagur 1. sepí. 1959 Víðir II. og Snæfell aflahæstu skipin f SKÝRSLU Fiskifélags íslands um síldveiðamar í sl. viku segir m. a. „Framan cif vikunni var bræla fyrir Austurlandi, en lygndi um miðja viku og hélzt blíðviðri á miðunum út vikuna. Töluverð síldveiði var 20—40 sjómílur SA af Seley og fengu allmörg skip góðan afla þessa daga. Talið er að enn sé að veið- um þriðjungur þeirra skipa, sem í salt 211.405 uppsalt. tn. í bræðslu 831.761 mál. í frystingu 19.555 uppm.tn. til veiða fóru í vor. Nokkur töf varð á löndun eystra, þar sem þrær verksmiðjanna fylltust jafn óðum. Á laugardag fóru skip að leita til Raufarhafnar, en þar var lokið fyrir nokkru að bræða þá síld, sem þar var i þróm. Viku- aflinn var 60.886 mál og tunnur. Á miðnætti laugardaginn 29. ágúst var síldaraflinn sem ^segir: hér 1958 (288.769) (235.009) ( 15.253) 1957 (149.306) (518.653) ( 15.954) Samtals mál og tn. 1.062.721 Tíu aflahæstu skipin sl. laugar- Víðir II., Garði.......... 17613 Snæfell, Akureyri......... 15456 Jón Kjartansson, Eskif. .. 14416 Faxaborg, Haifnarfirði .. 14396 Guðm. Þórðarson, Rvík .. 12805 (539.031) (683.913) dagskvöld voru þessi: Sig. Bjamason, Akure. .. 12636 Arnfirðingur, Rvík .... 11240 Bjarmi, Dalvík ......... 10609 Einar Hálfdáns, Bolungav. 10499 Hólmanes, Eskifirði .... 10404 Þéttar síldartorfur út af Langanesi REITINGSAFLI var frá hádegi í gær á mlðunum fyrir austan. — Síldarleitarflugvélin fann 20—30 ▼aðandi torfur 40 mílur austur af Langanesi og Ægir hafSi einnig fundið síld á nálægum slóðum. Voru um 30 skip að veiðum þar i gær. Afli var sæmilegur, frá 200—700 mál. Veðrið var gott á veiðisvæðinu og höfðu nokkrir bátar tilkynnt síldarleitinni afla sinn. Halda þau ýmist inn á Rauf arhöfn eða suður á firði, ef um söltunarhæfa síld er að ræða. Er síldin. sem þama veiðist, talin mun betri en sú sem fengizt hef- ur að undanförnu út af Seley. — Veður var prýðilegt til veiði í gær. Sildarleitinni á Raufarhöfn var kunnugt um afla eftirtalinna skipa: Bjarmi 700, Guðmundur Þórðarson GK 300, Haföm 200, Fjölskyldan með Knísjeff WASHINGTON, 31. ágúst. — I fylgd með Krúsjeff í Bandaríkjaförinni verða kona hans, þrjú böm og tengdasonur. — Talsmaður bandaríska utanríkisráðu- neytisins upplýsti í dag, að Krúsjeff hefði þegið boð Eisenhowers um að hafa fjölskyldu sína með. Kona Krúsjeffs heitir Nina Petr- ovna, dætumar tvær Julia Nikitichna og Rada Nikit- ichna, sonurinn Sergie Nik- itovich — og tengdasonur- inn Alexi Ivanovich Adzhu bei, en hann er ritstjóri Iz- vestia. Helga RE 150, Hilmir 260, Sunnu tindur 200, Ásúlfur 300, Björg- vin EA 200 og Gylfi II. 150. Vitað var að fleiri skip höfðu fundið síld. NESKAUPSTAÐ, 31. ágúst. — Þrjú skip bíða nú löndunar í Nes- kaupstað, Ársæll Sigurðsson með 700 mál, Helgi Flóventsson með 575 og Frigg með 600 mál. Þessi skip hafa landað síðan á sunnu- dag: Vonin II 610 mál, Guðmu.i i- ur Þórðarson 896, Sigrún 776 mál. — í dag lönduðu þessi skip: Faxaborg 176 mál, Kári 326, áæ- faxi 724, Magnús Marteinsson 588 og verið er að landa úr Gull- faxa, sem ec með 800 mál. Þá verður löndunarhlé til hádegis i morgun. Er verksmiðjan þá búin að taka við 72000 málum. Ekk- ert hefur verið saltað hér síðar. á laugardag, en þá var saltað í 5000. tunnuna, gerði það Þóra Ölvisdóttir, og fékk hún 500 króna verðlaun. — Fréttaritari. RAUFARHÖFN, 31. ágúst — Hér hafa landað eftirtalin skip, Gunn- ar 575 mál, Fagriklettur 1040 Víðir II. 750; Hrafnkell 853; Sig- urbjörg 632; Helga RE 956; Guð- björg GK 622; Vörður 656; Giss- ur hvíti 833; Guðmundur Þórð- arsson GK 426; Hvanney 504; Pétur Jónsson 628; Hafbjörg 168. Svanur SH 360; Þráinn 414; Páll Pálsson 684; Muninn 362; Sleipn- ir 720; Hafbjörg VE 252; Sigrún AK 44; Sæljón 424; Snæfell 766. — Einar Fyrirlestur um jarðskjálfta- mælingar DR. MARKUS BÁTH, dósent í jarðskjálftafræðum við háskólan í Uppsölum, flytur erindi um jarðskjáiftamælingar í 1. kennslu stofu Háskólans, miðvikudaginn 2. þ.m. kl. 20. Félagar hins ísl. Náttúrufræðifélags og aðrir er kynnu að hafa áhuga á efni þessu eru velkomnir. Vígsluathöfnin að Hólum hófst með skrúðgöngu hempklæddra presta til kirkjunnar. — Siðastir ganga vígsluvottar, vígsluþegi og biskupar. Um 30 vígðir menn voru viðstaddir athöfnina. Albýðusambandið hvetur til samningauppsagna Fréttatilkynning frá sambandsstjórninni UM síðustu helgi sátu 38 fulltrú- ar verkalýðssamtakanna innan Alþýðusambands Islands víðs vegar af landinu _ ráðstefnu um kaup- og kjaramál ásamt mið- stjóm Alþýðusambandsins. Ráð- stefnunni lauk á sunnudagskvöld og var þá einróma samþykkt eftirfarandi ályktun: Ráðstefna Alþýðusambands ins, haldin í Reykjavík 29. og 30. ágúst 1959, telur nauðsyn- legt, að samningum verði sagt upp af þeim sambandsfélög- um, sem er það kleift á næst- unni, vegna uppsagnarákvæða samninga. Jafnframt telur ráðstefnan rétt, að miðstjórn sambands- ins boði til nýrrar ráðstefnu með fulltrúum þeirra félaga, er þá hafa sagt upp samning- 5 Framsókn ' sparkar Óskari í Vík MBL. hefur fregnað, að þrír efstu menn á lista Framsóknarmanna í Suður- landskjördæminu verði: 1. Ágúst Þorvaldsson, 2. Björn Björnsson, 3. Helgi Bergs. Með þessari skipan er sýnt, að Framsóknarflokk- urinn ætlar að sparka Ósk- ari Jónssyni í Vík í Alþing- iskosningunum í haust, en hann var eins og kunnugt er kjörinn þingmaður V- Skaftfellinga í kosningun- um sl. sumar. Fríhöfnin á Keflavíkur- velli selur hátollavörur Keflavíkurflugvelli, 31. ágúst — UM sl. helgi hóf frí- höfnin á Keflavíkur flugvelli s ö 1 u til flugfarþega á vör- um sem eru í hæzta tollflokki, en eru seldar án tollálagn- ingar og verðmunur því mikill saman- borið við verðlag á frjálsum markaði. Vörur þær sem frí höfnin hefir á boð- stólum eru m. a. frönsk ilmvötn svo sem Christian Dior og Molyneaux Ljós mynda- og kvik- myndavélar frá Voi gtlander, Leica og Rolleiflex, allt nið- ur í ódýrari tegund- ir. Karl- og kven- armbandsúr eru frá Gruen. Tíðindamaður Mbl. spurði Ólaf Thord- ersení fríhafnarstj., um muninn á verð- lagi í búð hans og t.d. á sömu vöru í Bandaríkjunum. Ól- afur n e f n d i sem dæmi að Minolta- ljósmyndavél kost- aði 163 dali í frí- höfninni, en sams- konar vél kostaði 250 dali í Bandaríkj unum og 16 mm kvikmyndavél, sem hér kostaði 300 dali væri seld út úr búð í Bandaríkjunum á 500 dali. Þessi dæmi gefa til kynna að opnun verzlunar þessarar, er til hins mesta hagræðis fyrir er- lenda flugfarþega, sem leggja leið sína um Keflavíkurflug- völl. — B. Þ. um, þegar frekari vitneskja Iiggur fyrir um verðlagningu landbúnaðarafurða og aðra þróun efnahagsmála þjóðar- innar. Fulltrúár sjómannafélaganna a ráðstefnunni héldu með sér sérstakan fund, þar sem rædd voru kaup- og kjaramál togara- sjómanna. Samþykkti fundurinn einróma að rétt væri að segja upp samningum togarasjómanna í haust og hafa þá lausa. Vínstúka í smíðum Keflavikurflugvelli, 31. ágúst. — VERIÐ er að smíða mikla og vandaða vínstúku i sambandi við fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli. Vínstúkan er innan þess svæðis, sem er afmarkað í flugstöðvar- byggingunni fyrir starfsemi frí- hafnarinnar. Þarna mun erlend- um flugfarþegum gefast tækifæri til að fá kokteil eða aðra sterka drykki á meðan þeir bíða eftir brottför flugvélar sinnar. Vínstúkan er hin smekklegasta að útliti, smíðuð úr dökku sand- blásnu birki, skreytt speglum og ljósastæðum úr eir. Teikningu vínstúkunnar gerði Sveinn Kjar- val en smíði annast trésmiðja Þórarins Ólafssonar í Keflavík. Gert er ráð fyrir að vínstúkan taki til starfa 10. sept. n.k. — B. Þ. Nýja háspenna- línan frá Mjólkár- virkjun tcngd við ísaf jörð í haust ÍSAFIRÐI, 31. ágúst — t sumar hefur verið unnið við lagningu háspennulínu hingað frá Mjólkár virkjun, og er nú hafin bygging spennustöðvar hér í hlíðinni upp af bænum. Að öilum líkindum verður hægt að tengja hina nýju háspennulínu við rafveituna hér í haust. Að því er rafveitustjór- inn hér, Jón Gestsson, skýrði frá, hefur enn ekki verið gengið frá samningum við Rafmagnsveitur ríkisins um kaup á raforku frá Mjólkárvirkjun. En Rafveita tsafjarðar er sjálfstætt fyrirtæki. Vatnsaflsstöð tók til starfa hér I febrúar 1937, hefur hún síðan verið aukin og auk þess eru nú hér tvær díselstöðvar. AIls er orkan um 2110 kw. — G. A. Rússar neita enn OSLÓ, 31. ágúst. — Rússar hafa enn hafnað óskum flugfélagsins SAS um að fá að fljúga yfir rússneskt landssvæði í áætlun- arflugi frá Norðurálfu til Suður- Asíu. SAS hefur áður borið fram þessar óskir, en ef heimilað yrði að fljúga yfir Rússland og Söber- íu í flugi til Japan mundi flug- leiðin styttast til muna. SAS held ur uppi flugferðum frá Norður- löndum til Moskvu. Bílstjóri slosost UM tólfleytið á laugardag' var sendiferðabifreiðin R-5361 á leið eftir Suðurlandsbraut jnni við Elliðaár. Þar óku einnig tveir drengir á skellinöðrum og ólc annar þeirra í veg fyrir sendi- ferðabílinn, sem neyddist til að víkja til að forða árekstri. Fór Lilli-.n við það útaf. Bifreiðar- stjórinn meiddist og var fluttur á Siysav ..rðstofuna 0o oíllinn skemmdist. Unglingarnir á skellinöðrunu 1 fóru léiðar sinnar og tókst ekki að hafa upp á hverjir þeir væru. Eru það vinsamlega tilmæli til þeirra, sem kynnu að hafa séð er slysið bar að höndum, að þeir hafi samband við rannsóknarlög- regluna. Dómur genginn í tnáli bandarísku veiðiþjófanna f GÆR barst Morgunblað- inu fréttatilkynning frá ut- anríkisráðuneytinu varð- andi mál bandarísku veiði- þjófanna í Botnsá í Hval- firði. Eins og skýrt var frá hér í blaðinu 19. þ. m., voru menn þessir staðnir að veið um í Botnsá og voru hand- samaðir í annarri tilraun, eftir að hafa áður sloppið undan i þyrilvængju. — Fréttatilkynning utanríkis- ráðuneytisins hljóðar svo: Hinn 13. og 14. ágúst sl. voru liðsmenn úr björgun- arsveit varnarliðsins að æf- ingum nálægt Botnsá í Hvalfirði. Gerðu þeir ár- angnrslausa tilraun til þess að veiða í ánni. Lögreglu- stjórinn á Keflavíkurflug- velli tók málið þegar til rannsóknar, og hefur nú, eftir að dómsmálaráðuneyt- tS hafði fjallað um málið, gert yfirmanni þeira, sem ábyrgð bar á atburði þess- um að greiða 2000 króna sekt, að viðbættum máls- kostnaði, fyrir brot á lögum um lax- og silungsveiði. Auk þess voru hin ólöglegu veiðarfæri gerð npptæk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.