Morgunblaðið - 01.09.1959, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 1. sepí. 1959
MORCTllVJtT. 4Ð1Ð
23
fp »essa m ynd verð um
við að f< á í T .. • ii jornina
Holdið til Spónor í septembersól
SfeASTLIÐINN laugardag var I
afhjúpuð höggmyndin „Haf-|
meyjan“, sem bærinn keypti af
Nínu Sæmundsson fyrir þremur
árum og nú hefur verið sett nið-
ur í vestanverða Tjömina.
Blaðið átti í gær stutt samtal
við Nínu Sæmundsson í síma, þar
eð listakonan liggur í rúminu
með kvef. — Ég var búin að íá
kvef áður, og það batnaði ekki
við að ég fór á fætur til að vera
viðstödd afhjúpun styttunnar á
laugardaginn, sagði hún. Annars
tók það ekki langan tíma. Það var
róið út að styttunni og yfir-
breiðsla tekin af. _______
Ég vil alltaf hafa hönd í bagga,
þegar myndir eru steyptar eftir
mig og fór til ítalíu, en er gips-
myndin kom, hafði hún skemmzt
svo mjög á leiðinni, að ég tók
þann kost að gera alveg nýja
mynd. Ég hafði ætlað að vera á
Ítalíu í 2—3 mánuði, en varð að
vera þar í nærri ár.
— Þessi sala hefur þá illa borg-
að sig fyrir yður?
— Já, þetta eru ekki beztu
viðskiptin, sem ég hefi gert.
Myndin varð bæði mér sjálfri og
bænum dýrari en ella.
— Og fer styttan eins vel og
þér höfðuð gert yður í hugar-
lund, þegar hún er komin á sinn
stað.
— Ég var með i því að ákveða
hvernig hún skyldi standa. E. i. v
höfum við þó sett hana á of lítinn
: stöpul. En það má alltaf endur-
skoða.
★
Eftir að myndin hafði verið af-
hjúpuð á laugardaginn, var haft
boð inni til heiðurs listakonunni,
og voru þar listaverkanefnd
Reykjavíkur, bæjarráðsmenn og
nokkrir gestir ásamt blaðamönn-
um. Þar ávarpaði formaður lista-
verkanefndar, Tómas Guðmunds-
son, skáld, listakonuna, en Sveinn
Ásgeirsson, ritari nefndarinnar
skýrði frá tilkomu listaverksins
og gaf ýmsar upplýsingar um
höfund þess og listamannsferil
Nínu Sæmundsson.
Mánudaginn 7. sept. n.k. hefst á
vegum Ferðafélagsins Útsýnar 22
daga ferð til Spánar og Mallorca.
Flogið verður með Viscountflug-
vél Flugfélags fslands til Madrid
og dvalizt þar í 4 daga. Síðan
verður ferðazt í bifreið milli
helztu staða á Spáni og dvalizt í
borgunum Cordova, Sevilla, Mal-
aga, Granada og Alicante. Að
því búnu verður siglt til Mallorca
og dvalizt þar í 6 daga, og að lok-
um verður 3 daga dvöl í Barce-
lona, en þaðan verður flogið heim
hinn 29. sept. Ferð þessi veitir
óvenjugott tækifæri til að kynn-
ast Spáni og spönsku þjóðlifi og
menningu, enda er til ferðarinnar
vandað í hvívetna. Fararstjórar
verða tveir, íslendingur og Spán-
verji ,sem talar reiprennandi ís-
lenzku. Ferðin er farin á bezta
árstíma, meðan enn er hásumar
en hiti hæfilegur, hinir fjöl-
breyttu, litríku ávextir landsins
eru fullþroskaðir og uppskeran
stendur sem hæst.
Aðsókn hefur verið meiri að
ferðum Útsýnar í sumar en
nokkru sinni fyrr, enda hefur
félagið áunnið sér traust og vin
sældir fyrir örugga og góða þjón
ustu. Langt er síðan öll sæti seld
ust upp í Spánarferðina, en sök-
um óvæntra forfalla eru nú fjög-
ur sæti laus.
Nokkrir einstaklingar að auki
geta fengið flugfar til Madrid 7.
sept. og frá Barcelona til Reykja
víkur 29. sept. án þess að vera
þátttakendur í hópferðinni, og
mun Ferðafélagið Útsýn einnig
greiða götu þeirra á Spáni eftir
því sem óskað verður.
Bifreiðaslys
í Mývatnssveit
GRÍMSSTÖÐUM, 31. ágúst — Sl.
laugardagskvöld varð bílslys á
þjóðveginum austan við Mývatn.
Jeppi frá Vopnafirði mætti þar
stórum vörubíl á blindhomi. —
Þegar bílstjóri jeppans ætlaði að
hemla reyndust hemlarnir óvirk-
ir, svo að bílstjórinn varð að
beina jeppanum af veginum út í
hraunið, til að forðast árekstur.
Piltur og stúlka, sem voru í jepp-
anum meiddust nokkuð, en þó
ekki hættulega. Pilturinn hand-
leggsbrotnaði. Jeppinn mun vera
lítið skemmdur. — Sama kvöld
varð árekstur tveggja fólksbíla
frá Húsavík, skammt frá Skútu-
stöðum. Bílarnir skemmdust
nokkuð, en fólkið í þeim sakaði
ekki. — Jóhannes.
— Eisenhower
Framh. af bls. 1.
var í Bonn, en blaðafulltrúinn
svaraði því til, að sjónvarpsvið-
ræður þeirra Macmillans væru
jafnnytsamar ef ekki nytsamari
en blaðamannafundurinn í Bonn,
því að í Bretlandi gæti Eisen-
hower talað á sínu móðurmáli við
brezku þjóðina. f Þýzkalandi yrði
að leita milligöngu blaðamanna.
Ekki hafa verið birt einstök
atriði úr viðræðum þeirra Mac-
millans á sveitasetrinu og til-
kynnt hefur verið, að ekki yrði
greint frekar frá þeim að sinni.
★
Krúsjeff lét hafa það eftir sér
í dag, að hann væri ánægður
með tóninn í svarbréfi Aden-
auers — og hann færi í Banda-
ríkjaheimsóknina fastráðinn í
því að reyna að bræða ísinn, sem
myndazt hefði í „kalda stríðinu".
AIdarafmœlis Ögurkirkju
minnzt sl. sunnudag
— Var myndin sérstaklega
gerð með það fyrir augum að
setja hana á Tjömina í Reykja-
vík?
— Nel, frummyndina gerði ég
eftir eigin hugmynd, og ekki í
neinum sérstökum tilgangi. Svo
kom Thor Thors sendiherra i
heimsókn til mín vestur í Banda-
ríkjunum, sá myndina og varð
hrifinn af henni. — Þessa verðum
við að fá í Tjörnina, sagði hann.
Hann hefur svo sjálfsagt komið
hugmyndinni á framfæri. Þegar
ég kom heim síðast, hafði ég ljós-
mynd af styttunni meðferðis.
Bæjarstjórnin skoðaði hana, og
ákvað að hún yrði keypt og sett
upp í Tjörninni. Einnig var
ákveðið að myndin yrði steypt í
brons í Firenze á ftalíu, því það
er gífurlega dýrt að láta steypa
stórar myndir í Bandaríkjunum.
EINS og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu átti Ögurkirkja við ísa-
fjarðardjúp 100 ára afmæli 30.
ágúst síðastliðinn, og var þess
minnzt með hátíðaguðsþjónustu í
kirkjunni sama dag. Séra Jón
Auðuns, dómprófastur, prédikaði,
en Sigurður Kristjánsson, prestur
á ísafirði, þjónaði fyrir altari.
Hefir selt 17
málverk
HAFNARFIRÐI, — Mikil aðsókn
hefir verið að málverkasýningu
Sveins Björnssonar í Iðnskólan-
um við Mjósund. Var hún opnuð
á laugardaginn og hafa nú selzt
17 myndir. í gærkvöldi höfðu
200 manns komið á sýninguna, en
það er ágæt aðsókn. — Sýningin
verður opin um hálfs mánaðar-
skeið kl. 2 til 11 dag hvern.
Fór athöfnin hið virðulegasta
fram og var kirkjan full af há-
tíðargestum. Við þetta tækifæri
voru ein brúðhjón gefin gaman,
Ragnhildur Hafliðadóttir og
Ingvi Norðmann Guðmundsson.
Að lokinni minningarhátíðinni
var kaffidrykkja, og söngflokkur
frá ísafirði undir stjórn Jónasar
Tómassonar, söng. Þá flutti
Kristján Jónsson frá Garðsstöð-
um erindi, þar sem hann rakti
sögu kirkjunnar.
Kirkjunni bárust margar gjaf-
ir. 5 þúsund krónur bárust frá
börnum Sigrúnar Baldvinsdóttur
og Einars Þorsteinssonar, 3000
krónur frá börnum Guðríðar
Hafliðadóttur og Ólafs Þórðar-
sonar frá Strandseljum, Bjarni
í Vigur gaf 1000 krónur og kven
félag sveitarinnar gaf gólfdregil.
Þá gaf séra Jón Auðuns málverk
af Ara Magnússyni, sýslumanni,
og konu hans, Kristínu Guð-
brandsdóttur.
Nýlega hefur farið fram við-
gerð á kirkjunni og hún máluð.
Tólf fogarar voru að veidum
innan takmarkanna á miðnætti
Þeim til verndar voru 4 tundurspillar
UM ÞAfl leyti er nákvæmlega
var liðtð eitt ár frá því a3 reglu-
gerðin um 12 milna fiskveiðilög-
sögu tók glldi, þ. e. á miönætti
sl., voru 12 brezkir togarar ai
veiðum innan fiskveiðitakmark-
anna.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæzlunni héldu brezK
herskip þá hlífiskildi yfir 3 veiði-
svæðum, fyrir vestan, norðan og
austan landið.
VerndarsvæSin þrjú
Á verndarsvæðinu úti fyrir
Vestfjörðum voru S togarar að
veiðum, en utan takmarkanna
voru aðrir sex. Þar var einnig
herskipið „Dunkirk'* — Fyrir
norðan land, á Þistilfjarðardjúpi,
voru 5 togarar að veiðum fyrir
innan takmörkin, en 22 fyrir ut-
an þau. Tundurspillirinn „Traf-
algar“ var landhelgisbrjótunum
á þessu svæði til verndar. Varð-
skipið ,JÞór“ var líka á þessum
slóðum. — Loks var svo einn
brezkur togari að veiðum í land-
helgi fyrir austan, úti af Glett-
inganesi, en 6 togarar voru að
veiðum fyrir utan. Þarna var
tundurspillirinn „Jutland“ á
verði. Auk þeirra herskipa, sem
að framan eru nefnd, er „Dunc-
an“ á ferð milli veiðisvæðanna.
Einum færra en meðaltal
Niðurstaðan af þessu er sem
fyrr segir sú, að ólöglegar veiðar
stunduðu um miðnætti sl. 12
brezkir togarar. Er það einum
færra en að meðaltali hafa stund-
að veiðar í landhelgi dag hvern,
síðan nýju fiskveiðitakmörkin
gengu 1 gildi, eins og fram kem-
ur í viðtali við Pétur Sigurðsson
á bls. 10. í blaðinu í dag. Þar er
einnig að finna ýmsar fleiri fróð-
legar upplýsingar Péturs um
framferði Breta hér við land síð-
asta árið og störf landhelgis-
gæzlunnar á því tímabili.
Eiginmaður minn
JÖRUNDUR ODDSSON
aðalbókari,
andaðist 30 ágúst.
María Pétursdóttir.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR GUÐBJARTSSON,
bryti
andaðist í sjúkrahúsi í Gautaborg laugardaginn 29. þ.m.
Ester H. Ólafsdóttir,
_ börn, tengdaböm og barnaböm
Jarðarför mannsins míns,
VALGEIRS MAGNÚSSONAR
Langholtsveg 10,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. sept. kL
1,30 e.h.
Fyrir mína hönd, barna okkar og annarra aðstandenda.
Katla Dagbjartsdóttir.
Fósturmóðir okkar
BJARNLfN BJARNADÓTTIR
sem andaðist að Landsspítalanum þann 23. ágúst sJ.
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 3.
sept. kl. 1,30 e.h.
Margrét G. Einarsdóttir, Ólafur G. Einarsson.
Við þökkum innilega þeim, sem á einn eða annan
hátt hafa sýnt okkur hluttekningu við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
JÓNlNU SOFFfU jósefsdóttur
Miðtúni 20
Bömin
Þökkum innilega auðsýnda samúð í veikindum og vtt
andlát
GUÐMUNDfNU HELGADÓTTUK
Baldursgötu 11.
Aðstandendur.