Morgunblaðið - 22.09.1959, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.09.1959, Qupperneq 2
2 Monv-vftnt AÐIÐ Þriðjudagur 22. sept. 1959 Enn eitt umferðarslys 18 ára piltur beið bana ENN hefur orðið banaslys. Á laugardagskvöldið var ung- ur piltur fyrir bíl á þjóðveg- inum uppi í Mosfellssveit. Beið hann bana af völdum meiðsla er hann hlaut. Þc-tta dauðaslys var um kl. 11,45 á laugardagskvöldið á Mos- fellssveitarvegi, skammt frá heimreiðinni að stórbúinu á Blikastöðum. Þar var á gangi 18 ára piltur, Sigurður Runólfur Bjarnason, Hverfisgötu 85. Hann varð fyrir fólksbíl, R-9486, er var á leið til Reykjavíkur. Sigurður heitinn Bjarnason hafði verið á dansleik í félags- heimilinu í Hlégarði. Hann hafði lagt af stað einn gangandi áleið- is til Reykjavíkur. Skyggni var mjög slæmt vegna þess hve dimmt var í lofti, en rigning var. Maðurinn, sem bílnum ók var einn í honum. Hann hefur skýrt svo frá, að á slysstaðnum hafi hann, rétt áður en hann sá Sig- urð fyrir framan bílinn, mætt bíl. Rétt í sama mund sá hann í ljósunum frá sínum eigin bíl, hvar maður var framundan. — Segist bílstjórinn hafa snar- hemlað, en slysinu varð eigi forð- að. Framendi bílsins kom aftan á manninn og kastaði honum upp á vélhúsið, en síðan féll mað- urinn á veginn. Hann var með meðvitund er bílstjórinn kom að honum. En lítilli stundu síðar missti maðurinn meðvitund. Lézt Sigurður Runólfur í sjúkra- húsi nokkru eftir að komið var með hann þangað. Þar sem þetta sviplega slys varð er vegurinn mjög breiður. Höfðu hemlaför eftir bílinn mælzt í um það bil 70 sentimetra fjarlægð frá vegbrúninni. Sigurður Runólfur Bjarnason var sonur Bjarna Sigurðssonar skipstjóra og konu hans, að Hverfisgötu 85 hér í Reykjavík. | íslenzkir flugmenn j i í nauðum staddir ! \ — Báti þeirra hvolfdi á skemmtisiglingu j „POLITIKEN“ og fleiri dönsk blöð skýra frá því, að sl.^Iaug- ardag hafi báti hvolft undir tveim íslendingum og tveim Dönum á Sjælsp, skammt fyrir utan Kaupmannahöfn, en öllum verið bjargað um síðir. Islendingarnir voru tveir flug- menn hjá Flugfélagi íslands, þeir Anton Axelsson, flugstjóri og Axel Thorarensen, loftsiglinga- fræðingur sem boðið hafði verið út í skemmtisiglingu af tveim kunningjum sínum. Veður var sæmilegt og segir ekki af ferðum þeirra, fyrr en einn í hópnum missti hatt sinn í vatnið. Brugðu þá 3 mannanna snöggt við og teygðu sig út fyrir borðstokkinn, til þess að ná hatt- inum. Skipti það þá engum tog- um, að bátnum hvolfdi. Þeir fé- lagar komust allir á kjöl, en einn þeirra, annar fslendingurinn, var ósyndur. Þegar þetta gerðist var bátur- inn 7—800 metra frá landi og lagðist annar Daninn til sunds, til þess að sækja hjálp. Hjálpar leiðangur fór síðan út til aðstoð- ar þeim, sem á kili voru, og kom hann á vettvang, þegar Vz klst. eða 3 st.fj. voru liðnir, frá því að bátnum hvoldi. En þegar verið var að innbyrða mennina tókst svo illa til, að einn hjálparbát- anna, sem á voru tveir menn, hvolfdi einnig og fóru þeir báðir í vatnið. Eftir skamma stund tókst hins vegar að ná öllum upp í bátana aftur og var þá siglt til lands sem hraðast. Þar biðu sjúkrabifreið- ir, sem fluttu hina velktu í sjúkrahús til athugunar. Þeir urðu á hinn bóginn brátt hinir hressustu og fóru þvj ferða sinna. Friðrik vann Petrosjan BLED, 19. sept.: — Biðskákir úr 7. umferð fóru þannig, að Glig- oric vann Petrosjan og jafntefli varð hjá Fischer og Smyslov. — f 8. umferð vann Friðrik Ólafsson Petrosjan og Gligoric vann Ben- borðiriu í rólegheitum og fær annað óþægilegra í staðinn á drottningarvæng — peð, sem Petrosjan ræður ekkert við. — Þetta er anzi gott. Já, það er ekki að því að spyrja“. kö. — Staðan eftir 8. umferð: 1 —2 ^ Keres og Tal 5Vt vinning hvor, S 3—4 Gligoric og Petrosjan 4% | vinning hvor og 5—8 Friðrik ^ Ólafsson, Fischer, Smvslov og s Benkö 3 vinninga hver. V Staðan í biðskák Friðiiks og s Petrosjan var birt í blaðinu sl. ! simnudag. Áframhaldið varð \ þannig: S 43. Kd4 g5 44. e4 Kg7 45. \ Hf2 Hb4t 46. Kd5 Hxa4 47. S e5 Hal 48. e6 b5 49. e7 Hdlt • 50. Kc6 Hel 51. Kxb5 He5t 52. j Ka4 Hxe7 53. Kxa5 Ha7t 54. S Kb4 Ha8 55. b3 h5 56. Kc5 \ Hc8t 57. Kd6 Hd8t 58. Kc6 ; Hc8t 59. Kd7 Hcl 60. Hb2 S Hhl 61. b4 Hxh2 62. b5 Hhl > 63. b6 Hdlt 64. Ke6 Hd8 65. ^ b7 Hb8 66. Kf5 gefið. „Já, hann hefur farið þessa i leið“, sagði Baldur Möller, er ; hann sá skákina. ,Einfalt og lag- s gott. Hann gefur frípeðið á nrið- '••— KOSNINGASKFIF- STOFA SJÁLF- STÆÐISFLOKKSINS í REYKJAVÍK er í Morgunblaðshús- inu, Aðalstræti 6, II. hæð. — Skrifstofan er opin alla daga frá kl. 10—18. — k ★ k Stuðningsfólk flokksins Valdimar Björnsson og frú Guðrún Jónsdóttir Valdimar Björnsson flyt- ur fyrirlestra á vegum Stúdentafélags Rvíkur íbúðarhúsið á Útverkum brennur SELFOSSI, 21. sept.: — fbúð- arhúsið á Útverkum á Skeið- um brann til kaldra kola síðast liðinn sunnudag. Eldsins varð vart um kl. 12 á hádegi og fyilt ist allt af reyk á skömmum tíma og varð ekki við neitt ráðið. Mikið hvassviðri var að vestan. Húsið var ein hæð og loft, timburhús, forskalað að utan. Engu varð bjargað úr húsinu, nema fatnaði, sem var við yztu dyr. Þarna var þrennt í heimili, og bóndinn Ilinrik Þórðarson, átti gott bókasafn, sem allt fór í eldinum. Húsið var vátryggt og innbú. Eldsupptök eru ókunn. VALDEMAR Björnsson, fjármála ráðherra í Minnesotafylki 1 Bandaríkjimum, kom til landsins í gærmorgun. Er hann hingað kominn í boði Stúdentafélags Reykjavíkur og mun flytja tvo fyrirlestra á þess vegum og verð- ur fyrri fyrirlesturinn fluttur í Sjálfstseðishúsinu annað kvöld. Fyrirlestrar þessir munu fjalla um mismuninn á þeim tveimur aðal-stjórnmálaflokkum Banda- ríkjanna, repúblikönum og demó krötum. Má vænta mikils fróð- leiks af fyrirlestri Valdemars um þessa stjórnmálaflokka, en marg ir gera sér ekki glöggan greinar- mun á stefnum þeirra. Valdemar Björnsson mun einnig flytja fyrirlestur á vegum íslenzk ameríska félagsins, er hann nefnir: Það er svo bágt að standa í stað. Fjallar sá fyrir- lestur um innflytjendur í Ame- ríku. Kona Valdemars, Guðrún Jóns dóttir, kennara Hróbjartssonar, kom með honum hingað að þessu sinni og búa þau hjónin að Eski- hlíð 6A meðan þau standa við í Reykjavík. — Það er ágætt að vera kom- inn til íslands einmitt í slátur- tíðinni, sagði Valdemar Björns- son er tíðindamaður blaðsins hitti hann snöggvast að máli í gær. Er við spurðum hann frétta að vest- an sagði hann m.a., að atburðum, sníoaoi í Esjuna ÞAÐ haustar að hér í bænum, blöðin á trjánum eru tekin að gulna, og svalt í lofti á kvöldin. í gærmorgun, er bæjarbúar risu úr rekkju, veittu þeir því eftir- tekt, að snjóað hafði í Esjuna. Er það fyrsti snjórinn, sem feliur þar á þessu hausti. er beðið að hafa sam- band við skrifstofuna og gefa henni upplýs- ingar varðandi kosn- ingarnar. k ★ k Athugið hvort þér séuð á kjörskrá í síma 12757. k ★ k Gefið skrifstofunni upp- lýsingar um fólk sem verður fjarverandi á kjördag, innanlands og utan. k ★ k Símar skrifstofunnar eru 13560 og 10450. sem gerzt hefðu á íslandi nýverið hefði verið veitt mikil athygli í Bandaríkjunum og skrifað um þá í blöð heimshafanna á milli bæði um samskipti íslendinga við bandaríska varnarliðið og eins um landhelgisdeiluna við Breta. — Ég held að andinn í þessum skrifum hafi yfirleitt verið vin- veittur íslandi, bætti hann við. Af íslendingum vestra kvað Valdemar það helzt til tíðinda, er vikublöðunum Lögbergi og Heimskringlu var steypt saman í eitt blað. Kvað hann fólk gera sér góðar vonir um að þetta yrði til að stuðla að aukinni út breiðslu. íslenzku námsfólki hefur fækk að mjög í Bandaríkjunum síð- ustu árin. Eru það nú helzt lækn ar, sem þangað leita til náms, eða námsmenn á góðum styrkjum. Selveiðiskip flytja olíuna til Grænlands HINGAÐ til Reykjavíkur eru komnir tveir norskir selfangar- ar, Norvarg og Norbjörn, báðir frá Tromsö. Þeir hafa verið leigðir til þess að flytja til Kulusuk flugvallar við Angmagsalik gasolíu og benz ín. Er hér um að ræða sama farm og franska olíuskipið Port de Bouc skipaði hér á land á dögun- um. Það hafði aldrei komizt til Kulusuk vegna ísa. — Það er skip ið, sem varð rauðvínslaust í hafi! Selveiðiskipin geta lestað um 300 tonn af olíu í hverri ferð, en alls er um að ræða um 2000 tonn. Verbúðin Crœnahúsið á Raufarhöfn brunnin Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ kviknaði í svokölluðu Grænahúsi á Raufarhöfn. Skemmdist það svo af eldi og vatni, að það er talið ónýtt. Klukkan laust fyrir tólf á sunnudagskvöldið varð spreng- ing í brennsluolíutunnu utan við Grænahúsið. Hafði tunnan staðið við steinsteypt miðstöðvarhús, áfast við það, austanmegin, þeim megin, sem snýr að höllinni. Var sprengingin svo mikil, að hún heyrðist langar leiðir. Símstöðv- arstjórinn á Raufarhöfn, Valtýr Hólmgeirsson, var heima hjá sér í símstöðvarhúsinu, en það er í um 50 metra f jarlægð frá Græna- húsinu, heyrði sprenginguna og leit út um glugga til að gá hverju hún sætti. Sá hann eld í Grænahúsinu og gerði þá verk- stjóra söltunarstöðvarinnar Haf- silfurs aðvart svo og öðrum þorpsbúum. Fljótlega dreif að menn til slökkvistarfsins. Komið var með mótorslökkvidælu þorps ins á vettvang, en hún komst ekki í gang, því að rafgeymi hennar hafði verið stolið í sumar og ekki fenginn nýr geymir í staðinn. Einnig var komið með slökkvi- dælu síldarverksmiðjanna og reyndist hún í lagi, og var hún notuð með góðum árangri við slökkvistarfið. Tvö norsk síld- veiðiskip, sem voru í höfninni, Solberg og Henning. fluttu sig upp að bryggju Hafsilfurs. Lögðu skipsmenn slöngum frá sjódælum skipanna upp að hinu brennandi húsi. Þegar komið var að Grænahús- inu um 7 mín. eftir að sprenging- in varð, var austurgafl hússins alelda. Vestanátt var og lagði eldinn að stafla af tómum tunn- um, sem voru skammt frá húsinu, og í áttina að bryggjum Hafsilf- urs. Kviknaði í nokkrum tunn- um, en verkstjóri söltunarstöðv- arinnar, Jón Einarsson, náði í 5 stór handslökkvitæki, sem stöðin átti, og með þeim og fleiri hand- slökkvitækjum var slökkt í tunnustaflanum. Raufarhafnarbúar komu fljótt á vettvang eftir' að símstöðvar- stjórinn hafði gert aðvart. Gengu þeir mjög rösklega fram við slökkvistarfið ásamt skipshöfn. norsku skipanna. Tókst að slökkva eldinn í Grænahúsinu þegar um þriðjungur þess var brunninn. Húsið stendur enn, en er svo mikið skemmt af eldi og vatni, að það er ónýtt talið, eins og fyrr greinir. Vegna hins ötula slökkvistarfs, tókst að hindra að eldurinn breiddist út, en söltun- arstöð Hafsilfurs, sem er stærsta söltunarstöðin á Raufarhöfn, var í yfirvofandi hættu, og ennfrem- ur stöð Hólmsteins Helgasonar. — Við rannsókn málsins f gær virðast eldsupptök þau, að neisti frá reykháfi hússins hafi fallið í olíumegnaða jörð utan við hinn steinsteypta miðstöðvarklefa. Hafi eldurinn valdið sprengingu í brennsluolíutunnunni, en log- andi olía kveikt í húsinu. Hafði tunnan verið flutt að miðstöðvar klefa|.um fyrir tveimur dögum og þá tæmd að mestu í olíugeym- inn við húsið, en hann slapp lítt eða ekki skemmdur í brunanum. Geta má þess, að botninn úr olíu- tunnunni þeyttist um 20 metra frá þeim stað, sem tunnan var. Grænahúsið var eitt af verbúð- arhúsum Hafsilfurs. Bjuggu þar á sumrin um 30 manns, en nú áttu þar heima fimm manns. Einn mað ur var heima þegar eldurinn kom upp og bjargaðist hann út. En hann og fólkið, sem þar bjó, missti sængurföt, klæðnað og fleira, því lítið sem ekkert af innanstokksmunum bjargaðist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.