Morgunblaðið - 22.09.1959, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 22. sept. 1959
WORCUrUiLAÐIÐ
3
Lídó
Hafa
auga-
staÖ á
MBL. sneri sér í gær til I»or-
valds Guðmundssonar, for-
stjóra, og spurðist fyrir um
það hjá honum', hvort hæft
væri, að hann hygðist selja
ríkinu veitingahúsið Lídó.
I»orvaldur svaraði:
— Skólanefnd og skólastjórn
Matsveina- og veitingaþjóna-
skólans hafa undanfarin ár ósk-
að eftir því að fá betri aðstöðu
vegna kennslu nemenda til handa
í góðu veitingahúsi, þannig að
þeir mundu geta lært að búa til
veizlumat og fjölbreytta rétti og
þjónar lært framreiðslustörf og
barþjónustu. íþví sambandi hef-
ur skólinn farið þess á leit við
menntamálaráðherra, að hann
fengi Þjóðleikhúskjallarann til
afnota, en úr því hefur ekki orð-
ið, enda er þar mjög takmarkað
vinnupláss og vinnuskilyrði
heldur slæm fyrir skóla, þar sem
eldhús er eingöngu miðað við
fátt starfslið, sem þar vinnur.
Þjóðleikhúskjallarinn hefur því
ekki þótt sem hentugastur fyrir
skólann.
Nú undanfarið hafa farið fram
viðræður milli mín og skóia-
stjóra Matsveina- og veitinga-
þjónaskólans, Tryggva Þorfinns-
sonar, og menntamálaráðherra
um það, hvort til greina kæmi,
að ríkið keypti veitingahúsið
Lídó undir starfsemi skólans.
Hefur verið um það fjallað,
hvort Lídó væri heppilegur stað-
ur fyrir skólann og er það mál
nú í athugun hjá skólastjóran-
um og ráðuneytinu. Ég vil leggja
áherzlu á það, sagði Þorvaldur að
lokum, að aldrei hefur komið til
greina í þessum umræðum, að ég
leigði Lídó af ríkinu, ef úr kaup-
um yrði, enda eru vafalaust nógu
margir um boðið. Aftur á móti
vil ég geta þess, að ef ríkið vildi
kaupa Lídó fyrir kostnaðarverð,
þá er það til umræðu af minni
hálfu.
Lídó heppilegt fyrir skóla.
Mbl. hitti einnig að máli í gær
Tryggva Þorfinnsson og spurði
hann frétta af Matsveina- og
veitingaþjónaskólanum. Tryggva
fórust orð á þessa leið:
Undanfarið höfum við verið til
húsi með starfsemi skólans í Sjó-
mannaskólanum. Þar er ágætt
eldhús, en ekki hægt að veita
nema takmarkaða verklega
kennslu. Er húsnæði þetta því
mjög óhentugt fyrir skólann og
svo er einnig um marga veit-
ingastaði hér, að þeir eru mjög
einhæfir og óhentugir til verk-
legrar kennslu. Af þeim sökum
er ekki hægt að veita nemend-
þá þekkingu og leikni í. þess-
um húsakynnum, sem .krefjast
verður af þeim eftir fjögurra ára
nám.
Af þessu er Ijóst, hélt Tryggvi
áfram, að nauðsynlegt er að skól-
inn starfi í húsnæði, þar sem
hægt er að stunda verklega
kennslu og selja það, sem nem-
endur búa sjálfir til. Lídó er
vel til þess fallið að starfrækja
þar slíkan skóla, þar er ágætt
eldhúspláss og aðrar aðstæður
góðar. Yið teljum, að það væri
mjög góð lausn á vandamálum
skólans, ef hann fengi inni í Lídó
eða öðrum veitingastað, þar sem
hægt er að leggja meiri áherzlu
á verklega kennslu en nú er.
Tryggvi gat þess að lokum,
eins og Þorvaldur hafði áður
gert, að mál þetta væri að öðru
leyti í athugun og enn á um-
ræðustigi.
Á SUNNUDAGSMORGUN fór
fram í Kristskirkju í Landa-
koti söngmessa og ferming,
sem hinn nýskipaði erkibiskup
Norðurlanda Martin Lucas
framkvæmdi. Eins og frá var
skýrt í blaðinu sl. föstudag
hefur Martin Lucas nýlega
verið skipaður umboðsmaður
páfa á Norðurlöndum. í lok
söngmessunnar sl. sunnudag
flutti erkibiskupinn ávarp til
safnaðarins og þakkaði mót-
tökurnar hér og sagði að páfi
hefði lýst yfir sérstökum á-
huga sinum á lífi Norður-
landabúa og þá sérstaklega ís-
lendinga. Erkibiskup kvaðst
fremur hefði kosið að koma
hér að vetrarlagi til þess að
kynnast erfiðleikunum sem
harður vetur og illviðri hefðu
í för með sér fyrir íbúa lands-
Cóðir gestir
TÓNLISTAKHÁSKÓLINN í
Prag bauð nokkrum nemendum
og kennurum frá Tónlistarskóla
Reykjavíkur í heimsókn til Prag
í vor. Skyldu nemendur og kenr.-
t-ins og skyrt var ira í biaðinu sl. fostudag er notuð serstæð aðferð við byggingu hins nýja
háskólabíós. Þakið var sett saman á jörðu niðri, en síðan lyft með skriðmótum. — Hér á mynd-
inni sést húsið, er því verki var lokið. (Ljósm. Mbl. M. Ö. Ant.)
ins. Hann sagði að páfi hefði
beðið sig að veita öllum trú-
uðum postullega blessun sína.
Því næst þakkaði erkibiskup-
inn biskupi, prestum og systr-
um fyrir störf þeirra í þágu
kaþólsku kirkjunnar og bað
fyrir starfi þeirra. Síðan skor-
aði hann á söfnuðinn að standa
stöðugan í trúnni og gera
skyldur sínar þrátt fyrir alla
erfiðleika vorra tíma.
Að lokum ávarpaði hann
fermingardrenginn og lýsti fyr
ir honum mikilleika ferm-
ingar, sakramentisins og bað
hann standa stöðugan í trúnni.
★
M YNDIN: — Erkibiskupinn,
Martin Lucas í fullum skrúða
með mítur og bagal, flytur
ávarp sitt
(Ljósm. Mbl. M. Ö. Ant.)
arar halda nokkra tónleika á
ýmsum stöðum í Tékkóslóvakíu.
Fóru alls þrír nemendur héðan í
för þessa ásamt þeim Áma Krist-
jánssyni skólastjóra, Birni Ól-
afssyni konsertmeistara, Jóni
Nordal, tónskáldi og Birni Jóns-
syni framkvæmdastjóra Tónlist-
arfélagsins. Tónleikar þeir, sem
nemendur og kennarar skólans
héldu, vöktu hvarvetna athygli
í hinu mikla músíklandi, Bæ-
heimi, og var förin öll hin ánægju
legasta og þýðingarmikil.
Nú hefur Tónlistarskólinn í
Prag endurgoldið heimsókn þessa
og þegið boð Tónlistarskólans hér.
Alls eru á ferðinni sex nemendur
frá Tónlistarháskólanum í Prag
ásamt forstjóranum, dr. Václav
Hubácek. Nemendahópur þessi
hefur nú haldið tónleika í Aust-
urbæjarbíói fyrir styrktarfélaga
Tónlistarfélagsins, en einnig á
Akureyri og víðar. Þetta eru
glæsilegir fulltrúar hins fræga
tónlistarháskóla, sem stofnaður
var 1811, og er meðal elztu og
virðulegustu tónlistarháskóla
heimsins. Á tónleikunum hér var
flutt tékknesk tónlist, svo sem
hér segir:
Václav Iíyzivát lék á klarinettu
sónötu eftir Jan K. Vanhal. —
Ludmila Skorpilova (mezzo-
sópran) söng lög eftir Dvorrák og
Framh. á bls. 23.
STAKSTEINÁR
Hver sálgaði
vinstri stjóminni
Vinstri flokkarnir halda enn
áfram að hnakkrífast um það,
hver hafi sálgað vinstri stjórn-
inni. Þjóðviljinn kcmst m.a. að
orði um þetta á þessa leið í for-
ystugrein sinni sl. sunnudag:
„Eysteini Jónssyni mun ekkl
takast að breiða yfir svik Fram-
sóknar við vinstri stefnu og hrak-
farir sínar í viðskiptum sínum
við íhaldið sl. vetur, hversu oft
sem hann endurtekur lygasöguna
um sök kommúnista í falli vinstri
stjórnarinnar".
Varð sjálfdauð
Þjóðviljinn segir ennfremur:
,JÞaff er ekki hægt að þurrka
út með áróffri þá staðreynd. a*
Framsókn rauf stjórnarsamstarf-
ið og sveik mörg mikilvægustn
stefnumál vinstri stjórnarinnar.
Afstaða Alþýðubandalagsins og
sósíalistaflokksins var alveg ljós,
þcss var krafizt að Framsóknar-
flokkurinn stæði heiðarlega við
gerða samninga. Auðskilið er að
Eysteini Jónssyni og Hermanni
Jónassyni hafi fundizt það ósvíf-
in krafa.“
Þetta segir blað kommúnista
um orsakirnar að falli vinstri
stjórnarinnar. En mundi það ekki
vera mála sannast, að vinstri
stjórnin hafi beinlínis orðið sjálf-
dauð, að hún hafi veslast upp í
úrræðaleysi sínu og ræfildómi.
Fáheyrðar
blekkingar Tímans
„Tíminn“ hefur enn einu sinnl
sannað, að hann er óvandaðasta
blað á íslandi. Þetta aðalmálgagn
Framsóknarflokksins leggur nú
höfuðáherzlu á það í málflutn-
ingi sínum, að Sjálfstæðisflokk-
urinn standi að bráðabirgðalög-
um ríkisstjórnarinnar um bann
gegn hækkun á landbúnaðaraf-
urðum, ekki síður en Alþýðu-
flokkurínn. Þessu heldur blaðið
fram, þrátt fyrir það, að mið-
stjórn og þingflokkur Sjálfstæð-
isflokksins hafa mótmælt bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar
og lýst því yfir, að flokkurinn
muni beita sér fyrir því á næsta
Alþingi að bændum verði bætt
það tjón, sem þeir verða fyrir af
nefndum ráðstöfunum. Sjálfstæð-
ismenn hafa lýst því yfir, að
bændur eigi skýlausan rétt á því
að fá 3,18% hækkun á verðlagi
afurffa sinna á þessu hausti. Þeir
hafa tekið upp þá kröfu, sem
stjórn stéttasambands bænda hcf
ur gert f. h. bænda.
Láta sér hagsmuni
bænda í léttu rúmi liggja
Allir- heiðarlegir menn munn
því sjá, hversu fáránlegar blekk-
ingar Tíminn fer með um þetta
mál. Það er þess vegna áuðsætt,
að það sem Timaliðið hugsar um,
er ekki það, hvernig hagsmunir
bænda verða tryggðir, heldur
hitt, hvernig Framsóknarflokkur-
inn geti aflað sér stundarfylgis
með þvi að þyrla upp alls konar
óhróðri og ósannindum.
Ef Framsóknarmenn hefðu vilj
að vera heilir i þessu máli, myndu
þeir hafa fagnað yfirlýsingu mið-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins og
Iýst þvi yfir, að þeir væru reiðu-
búnir til samstarfs við hann, um
að rétta hlut bænda og leiðréUa
ranglætið, sem minnihlutastjórn
Alþýðuflokksins hefur framiff á
bændastéttinni. En þetta gerðu
Framsóknarmenn ekki, heldur
hófu pólitísk illindi og ósann-
indaáróður um máliff.