Morgunblaðið - 22.09.1959, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 22. sept. 195:
\fOPCTiiVT>r 4f)iD
11
Æðstu hjón Rússlands og Bandáríkjanna við kvöldverðarboðíð í Hvíta húsinu.
inn og engin fagnaðarlæti
heyrðust, en venjulega glymja
fagnaðarópin, þegar kunnir
erlendir gestir koma þangaö.
Er Krúsjeff var horfinn inn í
húsið, ók forsetinn einn áfram
í bifreið sinni og er bifreiðin
heygði fyrir næsta horn, brnt-
ust fagnaðarlætin út — fyrir
forsetanum.
Fyrsti fundurinn og
för með þyrilvœngju
1% klst. síðar kom Krúsjef'f
yfir götuna til Hvíta hússins og
haldinn var fyrsti viðræðufund-
ur hans og Eisenhowers. Við-
staddir hann voru margir banda-
rískir ráðherrar, þeirra á meðai
Herter utanríkisráðherra, Gromy
ko utanríkisráðherra Rússa og
Menshikov sendiherra. Þar var
ákveðið, að ráðstefna þessara
tveggja þjóðaleiðtoga skyldi
haldin í Camp David 25.—27.
september, þegar Krúsjeff hefur
lokið kynnisför um Bandaríkin.
Við þetta tækifæri afhenti
Krúsjeff Eisenhower að gjöf ná-
kvæma eftirlíkingu af stálkúlu,
sem var með tungleldflaug Rússa.
Kúlan er gerð úr mörgum fimm-
hyrndum reitum og munu þeir
hafa skilizt í sundur við spreng-
inguna er eldflaugin hitti tungiið
og dreifzt út um stórt svæði. Á
hverjum reit eru einkennisstafir
Sovétríkjanna.
Herter utanríkisráðherra skýrði
frá því á eftir, að viðræðurnar
á þessum fyrsta fundi hefðu ver-
ið mjög hreinskilnislegar. Hefði
verið snert á flestum deilumal-
um heims og hefði það komið
í ljós, að Krúsjeff hefði tilhneig-
ingu til að fá Bandaríkjamenn
til að semja við sig um málefni
annarra þjóða.
1 lok þessa fundar ræddust þeir
Eisenhower og Krúsjeff einslega
við, aðeins í návist túlkanna og
ÞfáSunimn b®r skylda til
að kynnast hvor annari
Rceður leiðtoganna í kvöldverðarboðinu
BÁÐIR þjóðaleiðtogarnir fluttu
stutt ávörp í kvöldverðarboð-
inu í Hvíta húsinu og fer hér
á eftir útdráttur úr ræðum
þeirra:
Bæða forsetans:
— Fyrir 150 árum var fyrst
tekið upp stjórnmálasamband
milli ríkja okkar. John Quincy
Adams, síðar forseti Bandaríkj
anna afhenti Alexander I. keis-
ara embættisskilriki sín. Allt
frá þeim tíma hafa þjóðir okkar
starfað saman að mörgum verk-
efnum og þær voru bandamenn
1 tveimur heimsstyrjöldum.
Og nú virðist mér að ríki
okkar hafi si#ldu að rækja við
allan heiminn. Vegna styrkleika
okkar, vegna þess hve áhrifa-
miklir við erum í heimsmálun-
um, þá er það mikilvægt að við
skiljum hvorn annan. Við erum
líka sammála um þetta Ég álít
að það sé ekki nóg að hefja
leiknar rökræður. Við verðum
að byggja á staðreyndum og
sannleika. Og við verðum að
gera það að sameiginlegu við-
fangsefni okkar að hvor þjóðin
geti öðlazt sem allra mesta þekk
ingu á hinni, þekkingu byggða
á staðreyndum og sannleika,
svo að við getum leitt veröld-
ina til meiri friðar og velmeg-
unar.
Ræða Krúsjeffs.
Krúsjeff svaraði ræðu Eisen-
howers og sagði m.a.:
— Við höfum tekið boði for-
seta Bandaríkjanna um að heim
sækja landið 1 þeirri hyggju að
komast að samkomulagi og
bæta sambúðina milli þjóðanna.
Það er nauðsynlegt eins og þér
t;ögðuð, vegna þess að iönd okk-
ar eru sterk og mega því ekki
eiga í illdeilum.
Ef við værum veik lönd,
horfði málið öðru vísi við, því
að þeir sem eru veikir klóra að-
eins hvorn annan í framan og
þeir þurfa ekki annað en að fara
á snyrtistofu á eftir og þá verð
ur allt í lagi. En ef við deilum,
þá er ekki nóg með það að lönd
okkar geti orðið fyrir stórkost-
legu tjóni, heldur kæmi hrunið
líka yfir önnur lönd.
Þér minntust á það, að 150 ár
væru liðin síðan sendiherra yð-
ar afhenti Alexander I. keisara
embættisskilríki sín. Síðan þetta
gerðist hafa lönd okkar aldrei
háð styrjöld hvort gegn öðru
og ekki nóg með það, heldur
hafa aldrei komið upp milli
þeirra alvarlegar deilur.
Mismunandi þjóðskipulag rík
ir hjá okkur. Við teljum okkar
skipulag betra og þér teljið
ykkar betra. En það er ástæðu-
laust að fara að deila þessvegna.
Leyfum sögunni að dæma um
það, hvort þjóðskipulagið er
betra.
Ef við föllumst á það, þá get-
um við byggt sambúð okkar á
friði og vináttu.
Bandaríkin eru ríkt og öflugt
land. Ég les venjulega margar
ræður sem þingmenn ykkar og
stjórnmálamenn flyíja svo að
þó ég kynnist þeim hér í fyrsta
skipti persónulega, eru þeir þeg
ar gamlir kunningjar mínir með
ræðum sínum.
Það sem við ættuT. að leggja
megináherzluna á núna er að
bæta sambúðina okkar í milli.
Við ásælumst ekkert frá Banda
ríkjunum og þau ásælast ekkert
frá okkur. Það er satt að nú í
dag eruð þið ríkari en við En
á morgun verðum við eins ríkir
og næsta dag ennþá i íkari en
þið.
En gerir það nokkuð til. Þeg-
ar allt kemur til alls, þá ætlum
við að gera þetta með eigin
afli og á einskis kostnað.
að því loknu bauð Eisenhower
hinum rússneska leiðtoga í ferða-
lag með þyrilvængju yfir Was-
hingtonborg.
Þeir gengu út á grasblettinn
fyrir framan Hvíta húsið. Þar
stóðu tvær þyrilvængjur og stigu
þeir um borð í aðra þéirra. 1
hinni þyrilvængjunni, sem fylgdi
á eftir voru öryggisverðir.
Krúsjeff hafði ákaflega
gaman af þessari ferð. Hafði
Eisenhower uppdrátt af borg-
inni á hnjám sínum til að sýna
honum skipulag og byggingu
borgarinnar. Þeir flugu m. a.
yfir Washington, Lincoln og
Jefferson minnismerkin, yfir
þinghúsið og yfir stór ný í-
búðarhverfi sem eru í bygg-
ingu. En það virtist hafa einna
mest áhrif á Krúsjeff að sjá
hina gífud£gu bílaumferð frá
Washingtonborg út eftir þjóð-
vegunum, en einmitt um þetta
leyti var verið að loka skrif-
stofunum og fólk að halda
heim.
Síðan lentu þeir aftur hjá
Hvíta húsinu og Krúsjeff skrapp
um sinn yfir í Blair House. Hann
þurfti að búa sig undir kvöld-
verðarboðið, sem Eisenhower
efndi til honum til heiðurs.
Kiœddisf ekki
kjóltötum
Þess var beðið með nokkurri
eftirvæntingu, að Krúsjeff kæmi
til veizlunnar, því að á boðsmið-
anum stóð ritað, að klæðnaður
skyldi vera kjólföt. En aldrei er
vitað til þess að Krúsjeff hafi
klæðzt kjólfötum. Nú bjuggust
menn við að sjá það í fyrsta
skipti.
En Krúsjeff mætti í venjuleg-
um dökkum jakkafötum með
grátt slifsi og þannig voru allir
Rússarnir klæddir, meira að
segja Menshikov sendiherra, sem
þó hefur oft klæðzt kjólfötum í
opinberum veizlum.
Hófið var vegjegt. Það var
stærsta veizla, sem Eisenhower
hefur nokkru sinni haldið. Voru
í henni 100 manns. Næst stærsta
veizla hans var 1957 fyrir banda-
ríska vísindamenn en í henni
voru 98 gestir og í veizlu sem
haldin var Elísabetu Englands-
drottningu til heiðurs voru 97
gestir.
Á borðum var Ijúffengur steikt
ur kalkún, melóna og karrisúpa.
Hljómsveit lék vinsæl amerísk
lög.
Báðir þjóðarleiðtogarnir fluttu
ávörp í þessari veizlu í Hvíta
húsinu. Stóð hún fram yfir mið-
nætti og gafst Krúsjeff tækifæri
til að ræða við fjölda veizlu-
gesta.
Þar hitti hann na. a. Allan
Dulles, yfitmann leyniþjónustu
Bandaríkjanna og sagði við
hann: — Ég fæ að lesa allar sömu
skýrslurnar og þér lesið.
— Þá vona ég að þér fáið þær
allar með löglegu móti, svaraði
Dulles.
Krúsjeff gaf ekkert út á það
en sagði: — Við skulum sameina
leyniþjónustu okkar. Þá kom-
umst við af með helmingi minna
starfslið.
Svo var farið í háttinn.
Gips-þitplötur
Þakpappi
IVfars Trading Co. hf.
Klapparstíg 20 — Sími 17373.
Bókin sem margir hafa
beðið eftir:
,Listin að grenna sig4
Þér getið auðveldlega
létzt um 10, 20, 30 pund
eða meira?
Þessi nýja aðferð hæf-
ir bæði körlum og kon-
um.
Verð bókarinnar er
Kr. 25.00.
lendum hvert á land
.em er gegn póstkröfu.
Réttvægi.
Pósthólf 1115
Reykjavík
stbeiningabok
.fyrír í>a se m veroaaogrínnast
0G lÍKA FYRIR ÞA SEM VÍLJA FITNA
Aðeins lítið eitt nægir...
þv/ rakkremið er írá
Gillette
Pað freyðir nægilega
þó lítið sé tekið. Það er
í gæðaflokki með Bláu
Gillette Blöðunum og Gillette
rakvélunum. JÞað er framleitt
til að ftíllkomna raksturinn. Það
freyðir fljótt og vel . . . og inniheldur
hið nýja K34 bakteríueyðandi efni
Reynið eina túpu í dag.
sem einnig varðveitir mýkt
húðarinnar.
Gillette „Brushless“ krem. einni^ fáaníevt.
Heildsölubirgðir: Globus hf., Vatnsstíg 3 síipi 17930
Glœsileg
níu herb. íbúð við Hraunteig, efri hæð og ris ásamt
bílskúr til sqIu. — Nánari uppiýsingar gefur.
MALFLUTNINGSSKRIFSXOFA
Einars B. Guðmundssonar, Guðl. Þorlákssonar
og Guðm. Péturssonar.
Aðalstræti 6 III. hæð (Morgunblaðshúsinu)
Sírhar 1 20 *02 — 1 32 02 og 1 36 02